Greinar föstudaginn 24. nóvember 2006

Fréttir

24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 301 orð

7 ára fangelsi fyrir tæp 12 kíló af amfetamíni

HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt tvo Litháa á fertugsaldri í sjö ára fangelsi fyrir að gera tilraun til að smygla 11,9 kg af amfetamíni til landsins í bíl, sem þeir fluttu til landsins með ferjunni Norrænu í sumar. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 525 orð | 1 mynd

Aukin þjónusta er göngudeild og skrifstofa SÁÁ flytja í nýtt húsnæði

Efstaleiti | Ný starfsstöð Samtaka áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann, SÁÁ, verður opnuð á morgun í Efstaleiti 7 við hátíðlega athöfn. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 182 orð

Ábyrgð einstaklinga á samkeppnisbrotum gerð skýrari

Í DRÖGUM að frumvarpi sem nefnd á vegum iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur skilað ráðherra er gert ráð fyrir að ákvæði í samkeppnislögum um ábyrgð einstaklinga verði skýrð nánar. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 119 orð

Ákvörðunin faglegs eðlis

SIV Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra sagði á Alþingi í fyrradag að ástæðan fyrir skipulagsbreytingum hjá Miðstöð mæðraverndar, væri að hluta til faglegs eðlis. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 284 orð | 1 mynd

Ánægja með aukin viðskipti Íslendinga og Finna

Eftir Andra Karl andri@mbl.is "VIÐ ræddum ýmis málefni tengd tvíhliða viðskiptum Íslands og Finnlands og það eru engin vandamál okkar á milli þar," sagði Geir H. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 109 orð

Baráttufundur aðstandenda aldraðra

BARÁTTUFUNDUR aðstandenda aldraðra verður haldinn í Háskólabíói laugardaginn 25. nóvember n.k. kl. 15.00. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 27 orð

Basar í Mosfellsbæ

FÉLAGSSTARF eldri borgara í Mosfellsbæ verður með basar og kaffisölu laugardaginn 25. nóvember kl. 13.30-14, í Dvalarheimili aldraðra Hlaðhömrum. Kór eldri borgara, Vorboðar, syngur frá kl.... Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 86 orð

Basar Kristniboðsfélags kvenna

ÁRLEGUR basar Kristniboðsfélags kvenna í Reykjavík verður haldinn laugardaginn 25. nóvember kl. 14-17 í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58-60, norðurenda, á 3. hæð. Á basarnum verður margt til sölu, s.s. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 89 orð | 1 mynd

Blönduóslögreglan fékk Umferðarljósið

LÖGREGLAN á Blönduósi hlaut viðurkenninguna "Umferðarljósið" á Umferðarþingi í gær fyrir framlag sitt til umferðaröryggis en þetta var í sjöunda skipti sem verðlaunin eru veitt. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 416 orð | 1 mynd

Breytingar á mæðravernd til marks um framfarir

Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is EKKI er verið að sjúkdómsvæða mæðravernd með breytingum á skipulagi Miðstöðvar mæðraverndar (MM), líkt og Kolbrún Halldórsdóttir, þingkona vinstri grænna, sagði í umræðum á Alþingi um MM á miðvikudag. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 386 orð | 1 mynd

Brugðist við ruðningsáhrifum

Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is Egilsstaðir | Alcoa Fjarðaál hefur verið gagnrýnt fyrir að ráða starfsfólk frá öðrum fyrirtækjum á Austurlandi og skapa þannig ruðningsáhrif í atvinnulífinu. Sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki, þ.m.t. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 50 orð

Bústaðir 30 ára

FÉLAGSMIÐSTÖÐIN Bústaðir við Bústaðaveg fagnar nú 30 ára afmæli sínu um þessar mundir. Í tilefni þess verður efnt til afmælisveislu í Bústöðum föstudaginn 24. nóvember frá kl. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 137 orð | 1 mynd

Doktorsvörn við hugvísindadeild HÍ

DOKTORSVÖRN fer fram laugardaginn 25. nóvember við hugvísindadeild Háskóla Íslands. Þá ver Sveinn Einarsson leikstjóri ritgerð sína, A People's Theatre Comes of Age - A Study of the Icelandic Theatre 1860-1920. Meira
24. nóvember 2006 | Erlendar fréttir | 118 orð

Enginn lifði af slysið í Póllandi

Ruda Slaska. AFP. Meira
24. nóvember 2006 | Erlendar fréttir | 159 orð | 1 mynd

Eþíópíustjórn búin undir stríð

Addis Ababa. AFP. | Meles Zenawi, forsætisráðherra Eþíópíu, lýsti því yfir í gær að stjórn landsins hefði lokið undirbúningi undir stríð við íslamista í Sómalíu. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 152 orð

Fangelsi fyrir kynferðisbrot

HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir tæplega þrítugum karlmanni fyrir kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni og vinkonu hennar. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 395 orð | 1 mynd

Framkvæmdir í gang við 80 íbúðir Búseta

FRAMKVÆMDIR eru hafnar við uppsteypu á 57 íbúða fjölbýlishúsi Búseta, við Kjarnagötu í Naustahverfi. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 130 orð | 1 mynd

Framsókn fundar

HAUSTFUNDUR miðstjórnar Framsóknarflokksins verður haldinn á morgun, laugardag, á Hótel Loftleiðum. Fundurinn hefst klukkan 10 og er áætlað að honum ljúki um kl. 17. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 76 orð

Fræðslufundur um SÞ

Í TILEFNI 60 ára aðildarafmælis Íslands að Sameinuðu þjóðunum efna Mannréttindaskrifstofa Íslands, Háskólinn á Akureyri og Félag Sameinuðu þjóðanna til fræðslufundar nk. laugardag, 25. nóvember, kl. 14 í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna, Laugavegi 42. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 63 orð

Fundur um jarðaverð

OPINN málfundur um jarðaverð, búsetuþróun og framtíð landbúnaðar verður haldinn í litla salnum í Hvoli, Hvolsvelli, laugardaginn 25. nóvember nk. kl. 14. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 106 orð

Fundur um ljósmóðurfræði

ÓLÖF ÁSTA Ólafsdóttir ljósmóðir varði doktorsrannsókn sína við ljósmóðurfræðideild Thames Valley University í London, Bretlandi 2. október sl. Um fyrstu doktorsrannsókn í ljósmóðurfræði á Íslandi er að ræða. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 46 orð | 1 mynd

Fyrirhyggjan í öndvegi

Húsverðirnir í Austurbæjarskóla sýndu mikla fyrirhyggju er þeir létu hreinsa snjóinn af húsþakinu, þannig að hann félli ekki niður á nemendur og aðra vegfarendur á skólalóðinni. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 129 orð | 1 mynd

Gefur rithöfundum hús

Suðursveit | Guðrún Sveinsdóttir, nú búsett á Höfn í Hornafirði, færði Rithöfundasambandi Íslands að gjöf húseignina að Sléttaleiti í Suðursveit við stutta en hátíðlega athöfn fyrir skömmu. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 123 orð | 1 mynd

Goldman Sachs keyptu í KB

GOLDMAN Sachs og Fidelity fjárfestingarsjóðirnir eru meðal þeirra 110 alþjóðlegu fjárfesta sem keyptu í Kaupþingi banka, í alþjóðlega hlutafjárútboðinu, sem lauk í fyrradag, á þann veg að allt hlutafé seldist og reyndist vera umframeftirspurn. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 71 orð | 1 mynd

Gott að kæla sig niður í frostinu

ÞAÐ hefur verið sagður mælikvarði á hreysti manna hve lengi þeir geti unað í gufubaði án hvíldar. Fátt er meira hressandi en að slaka á í gufubaði eftir amstur dagsins. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 93 orð

Hugðist nema sex mánaða son sinn úr landi

KARLMAÐUR var handtekinn á Akureyrarflugvelli í gærmorgun þegar hann hugðist fara með sex mánaða son sinn í flugi þaðan til Kaupmannahafnar. Foreldrar barnsins eiga í forsjárdeilu skv. upplýsingum blaðsins. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 214 orð | 1 mynd

Innleysa um 80 milljarða hagnað á sölu símafélags

Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 315 orð

Jarðgerð hefjist um mitt næsta ár

MARGT bendir nú til að sorpurðunarmál Eyfirðinga, sem miklar og heitar umræður hafa verið um undanfarin ár, séu að komast í nýjan farveg sem leiða mun til þess að urðun á Glerárdal verði hætt. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 93 orð

Jólamarkaður Ásgarðs

HANDVERKSTÆÐIÐ Ásgarður mun verða með sinn árlega jólamarkað á morgun, laugardag, kl. 12-17 í húsnæði Ásgarðs að Álafossvegi 24 í Mosfellsbæ. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 68 orð | 1 mynd

Jólamarkaður í Bjarkarási

JÓLAMARKAÐUR verður í Bjarkarási á morgun, laugardag, kl. 13-16 í Stjörnugróf 9. Styrktarfélag vangefinna rekur hæfingarstöðina Bjarkarás fyrir fullorðið fólk með þroskahamlanir. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 67 orð

Jólaþorpið risið

JÓLAÞORPIÐ er risið í Hafnarfirði. Á Thorsplani standa nú tuttugu lítil jólahús. Jólaþorpið verður opnað á morgun, laugardaginn 25. nóvember, kl. 12 og er opið til kl. 18 alla laugar- og sunnudaga fram til jóla og til kl. 22 á Þorláksmessu. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 110 orð | 1 mynd

Konungsbók Arnaldar efst

KONUNGSBÓK Arnaldar Indriðasonar er í efsta sæti á lista söluhæstu bóka vikuna 15.-21. nóvember. Listann tekur Félagsvísindastofnun HÍ saman fyrir Morgunblaðið og verður hann birtur vikulega fram yfir áramót. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 323 orð | 1 mynd

Listinn endurspegli ákveðna breidd

Í PRÓFKJÖRI Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi á morgun er mikilvægt að valinn verði listi sem skapi sterka heild og endurspegli ákveðna breidd bæði út frá landshlutum en ekki síður út frá kynjum. Meira
24. nóvember 2006 | Þingfréttir | 513 orð | 1 mynd

Lífeyrisþegar fái 7,4 milljarða hækkun

Eftir Örnu Schram arna@mbl.is STJÓRNARANDSTAÐAN vill að greiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega hækki um 7,4 milljarða á næsta ári. Hún hefur sameiginlega lagt fram tillögu þessa efnis fram á Alþingi. Meira
24. nóvember 2006 | Erlendar fréttir | 110 orð | 1 mynd

Lítvínenko látinn í London

London. AFP. | Alexander Lítvínenko, fyrrverandi rússneskur njósnari, lést á sjúkrahúsi í London í gær. Bendir allt til, að eitrað hafi verið fyrir honum en ekki var þó búið að finna hvaða eitur hafði verið notað. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 135 orð

LV styrkir mynd Ómars um Hálslón

LANDSVIRKJUN ætlar að styrkja gerð heimildarmyndar Ómars Ragnarssonar um fyllingu Hálslóns - Örkina, um fjórar milljónir króna. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar (LV), upplýsti um styrkinn á fundi Félags forstöðumanna ríkisstofnana í gær. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 146 orð | 1 mynd

Málþing á afmæli Skógræktarfélags Reykjavíkur

SKÓGRÆKTARFÉLAG Reykjavíkur heldur afmælishátíð í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur laugardaginn 25. nóvember kl. 14 í tilefni af 60 ára afmæli sínu. Afmælishátíðin verður í formi málþings og síðan móttöku í boði borgarstjóra. Málþingið hefst kl. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 52 orð

Málþing fyrir kjörforeldra

FÉLAGIÐ Íslensk ættleiðing stendur fyrir málþingi laugardaginn 25. nóvember í safnaðarheimili Vídalínskirkju, Kirkjulundi, Garðabæ milli kl. 10:00 og 16:30. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 376 orð | 1 mynd

Mátti leyfa efnistöku uppi á Ingólfsfjalli

Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is LEYFI sem bæjarstjórn Ölfuss veitti Fossvélum ehf. til umfangsmikillar efnistöku uppi á Ingólfsfjalli stendur óhaggað samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarnefndar. Meira
24. nóvember 2006 | Erlendar fréttir | 399 orð | 1 mynd

Mikið mannfall í Bagdad

Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is AÐ minnsta kosti 160 manns týndu lífi og vel á þriðja hundrað særðist í mörgum bílsprengingum í Sadr-borg, helsta hverfi sjíta í Bagdad, í gær. Meira
24. nóvember 2006 | Erlendar fréttir | 520 orð | 1 mynd

Mikill mannfjöldi lét í ljós reiði í garð Sýrlendinga

Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is HUNDRUÐ þúsunda Líbana söfnuðust saman á götum Beirútborgar í gær til að kveðja Pierre Gemayel, iðnaðarráðherra Líbanons, sem var myrtur á þriðjudag. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 596 orð

Mikilvægt að skapa sátt um nýtinguna

Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is "ÉG tel vert að skoða allar tillögur sem bera það í sér að reynt sé að stuðla að sátt í mikilvægum málefnum. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 72 orð

Miklar hækkanir á áburði

MIKLAR hækkanir hafa orðið á áburði en á vef Landssambands kúabænda er greint frá því að verðskrár áburðarsala séu komnar út. Þannig munu allar áburðartegundir frá Yara hafa hækkað milli ára um 17%. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 60 orð

Miklu af skartgripum stolið

SKARTGRIPUM að andvirði nokkurra hundraða þúsunda, jafnvel milljóna, var stolið í innbroti á gullsmíðaverkstæði í Grafarvogi í gær. Meira
24. nóvember 2006 | Erlendar fréttir | 252 orð | 1 mynd

Milljónir Darfur-búa þarfnast aðstoðar

Sameinuðu þjóðunum. AP. | Fjórar milljónir nauðstaddra íbúa Darfur-héraðs þarfnast aðstoðar hjálparstofnana, að sögn Jans Egelands, sem samhæfir hjálparstarf Sameinuðu þjóðanna. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 159 orð | 1 mynd

Nýtt fjölbýli fyrir 55 +

Egilsstaðir | Sverrir Jóhannesson eigandi Rendita ehf. og Sigurþór Sigurðsson eigandi Malarvinnslunnar hf. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 548 orð | 3 myndir

Ótryggðir tjónvaldar í umferðinni

VERÐI tjón af völdum óvátryggðs ökutækis og ökumaður þess ber sök á tjóninu gildir hér á landi, líkt og annars staðar innan Evrópska efnahagssvæðisins, sú regla að tjónþolinn getur leitað til Alþjóðlegra bifreiðatrygginga á Íslandi (ABÍ). Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 179 orð | 1 mynd

Óvátryggð ökutæki í umferðinni 3.640 talsins

Eftir Guðni Einarsson gudni@mbl.is ÓVÁTRYGGÐ ökutæki í umferðinni á Íslandi eru nú 3.640 talsins, samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu. Flest ökutækin eru fólksbifreiðar eða 2.521 og flokkuð eftir lögregluembættum eru þau flest í Reykjavík, 1.256. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 239 orð

Prófkjör í Norðausturkjördæmi

PRÓFKJÖR Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi fer fram á morgun, laugardaginn 25. nóvember. Kosið er á tuttugu og tveimur stöðum víðsvegar í kjördæminu. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 94 orð

Rakst á bita í göngunum

FLUTNINGABÍL frá Flytjanda var ekið á öryggisbita í Hvalfjarðargöngunum í fyrrakvöld og sat þar fastur. Flutningabíllinn var á leið norður í land með stóran blásara á vagni en stöðvaðist í suðurmunna ganganna. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 57 orð

Ræða framtíðarsýn grunnskólans

Í TENGSLUM við heildarendurskoðun á grunnskólalögum stendur menntamálaráðuneytið fyrir málþingi á Hótel Nordica laugardaginn 25. nóvember kl. 9:30-13:00 um framtíðarsýn í málefnum grunnskólans og ný grunnskólalög. Meira
24. nóvember 2006 | Þingfréttir | 147 orð | 1 mynd

Ræða íbúa iðnaðarhúsnæðis

FÉLAGSMÁLANEFND Alþingis er að kanna leiðir til þess að fólk sem býr í atvinnuhúsnæði njóti sömu réttinda og þeir sem búa í öðru húsnæði, að sögn Dagnýjar Jónsdóttur, formanns nefndarinnar. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 105 orð | 1 mynd

Silvía Nótt klúður ársins

GULLKINDIN var veitt við hátíðlega athöfn í gær. Um er að ræða verðlaun ætluð þeim sem þykja með einum eða öðrum hætti hafa staðið sig sérlega illa á árinu og eru þau veitt í nokkrum flokkum. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 1531 orð | 1 mynd

Sífellt auknar kröfur gerðar til stjórnenda

Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is Það er tímanna tákn að almenningur treystir mun frekar upplýsingum frá frjálsum félagasamtökum en upplýsingum frá opinberum stofnunum, fyrirtækjum eða fjölmiðlum þegar kemur að umhverfis- og mannréttindamálum. Meira
24. nóvember 2006 | Þingfréttir | 114 orð

Skattlagningu verði breytt

LÖGÐ hefur verið fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar um að lífeyrisgreiðslur úr almennum lífeyrissjóðum verði skattlagðar á sama hátt og fjármagnstekjur. Flutningsmenn vilja að félagsmálaráðherra verði falið að undirbúa frumvarp þess efnis. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 58 orð

Slagsmál brutust út í miðri flugferð

Á ELLEFTA tímanum í gærkvöldi var lögreglunni í Reykjavík tilkynnt um slagsmál um borð í flugvél á leið frá Egilsstöðum. Vélin var í aðflugi þegar slagsmál brutust út og frestaði flugstjóri lendingu og tók aukahring. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 237 orð

Stakk fórnarlamb sitt í bakið

HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hefur dæmt nítján ára pilt, Arnar Val Valsson, til fimm ára fangelsisvistar fyrir tilraun til manndráps, þjófnað og tilraun til nytjastuldar. Honum er að auki gert að greiða fórnarlambi sínu 1,7 milljónir kr. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 89 orð

Stofnfundur samráðsvettvangs

STOFNFUNDUR Samráðsvettvangs trúfélaga verður haldinn í dag, föstudag, kl. 15 í Tjarnarsal Ráðhússins. Á stofnfundinum munu forseti Íslands, formaður mannréttindanefndar Reykjavíkurborgar og framkvæmdastjóri Alþjóðahússins flytja ávarp. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 66 orð | 1 mynd

Styrkir til landbúnaðarháskóla

EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Samvinnutryggingar afhenti í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í gær, styrki til Háskólans á Hólum og til Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 135 orð

Sýknaður af nauðgunarákæru

HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur sýknað mann af ákæru um að hafa nauðgað stúlku í aftursæti bíls í Reykjavík í fyrra. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 68 orð

Torfusamtökin ræða niðurrif

TORFUSAMTÖKIN gangast fyrir fundi á laugardaginn til að vekja athygli á niðurrifi húsa í miðbæ Reykjavíkur og auka upplýsingaflæði til almennings um þær aðgerðir. Dagskráin hefst óformlega kl. 14 laugardaginn 25. nóvember í Iðnó við Tjörnina. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 899 orð | 1 mynd

Verður einstaklingum refsað fyrir brot fyrirtækja?

Dósent við lagadeild Háskóla Íslands segir að vafi leiki á því að hægt sé að refsa starfsmönnum fyrirtækja fyrir ólögmætt samráð fyrirtækjanna og misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 129 orð | 1 mynd

Verður feginn frelsinu

"MÉR finnst fínt að honum verði veitt frelsi," sagði Sigurbjörg Sandra Pétursdóttir, 12 ára Grundfirðingur, sem í dag fær það verkefni að sleppa út í náttúruna haferni sem hún bjargaði úr háska í sumar. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 221 orð | 1 mynd

Verslunin 12 tónar fékk Njarðarskjöldinn

VERSLUNIN 12 tónar fékk í gær Njarðarskjöldinn, hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar og Íslenskrar verslunar, sem afhentur var í níunda sinn. Að Íslenskri verslun standa Félag íslenskra stórkaupmanna og Kaupmannasamtök Íslands. Meira
24. nóvember 2006 | Innlendar fréttir | 273 orð | 1 mynd

Víkingahjálmur úr fornu sléttumynstri

Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Borgarbyggð | "Ég á ekki rætur þarna og þekki ekki staðhætti vel. Ég skoðaði viðfangsefnið því meira sem gestur," segir Örn Smári Gíslason, grafískur hönnuð á auglýsingastofunni Ó! Meira

Ritstjórnargreinar

24. nóvember 2006 | Leiðarar | 400 orð

Merkur áfangi hjá KB banka

Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings banka, lýsti niðurstöðunni í alþjóðlegu hlutafjárútboði bankans sem einu stærsta skrefinu sem forsvarsmenn hans hefðu stigið, hvað varðar þróun hans. Meira
24. nóvember 2006 | Leiðarar | 377 orð

Mikilvæg yfirlýsing samgönguráðherra

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra gaf mikilvæga yfirlýsingu á fundi sem Samtök verzlunar og þjónustu efndu til um vegamál í fyrradag. Meira
24. nóvember 2006 | Staksteinar | 212 orð | 1 mynd

Stækkun friðlands

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra er augljóslega að gera tilraun til að rétta hlut Framsóknarflokksins í umhverfismálum. Meira

Menning

24. nóvember 2006 | Kvikmyndir | 123 orð | 2 myndir

Bollywood til Íslands?

INDVERSKA fréttaveitan NewKerala.com gerir forsætisráðherra Íslands að umfjöllunarefni á síðu sinni. Þar er fjallað um væntanlega heimsókn Geirs H. Meira
24. nóvember 2006 | Bókmenntir | 56 orð | 1 mynd

Bókamessa

RANGÁRÞING ytra og Sunnlenska bókaútgáfan á Selfossi boða til bókamessu að Laugalandi í Holtum laugardaginn 25. nóvember kl. 14:30. Meira
24. nóvember 2006 | Tónlist | 69 orð | 1 mynd

Fabúla í kvöld

ÚTGÁFUTÓNLEIKAR Fabúlu fara fram í kvöld í Tjarnarbíói. Á tónleikunum flytur Fabúla og hljómsveit efni af nýútkomnum diski, Dusk . Meira
24. nóvember 2006 | Fólk í fréttum | 55 orð

Fólk folk@mbl.is

Það verður rappað og rímað í félagsmiðstöðinni Miðbergi í Efra-Breiðholti í kvöld. Þá verður haldið hið árlega Rímnaflæði , en það er keppni í rappi og rímum á vegum Samfés. Þátttakendur eru unglingar úr félagsmiðstöðvum og tekur hver þeirra tvö lög. Meira
24. nóvember 2006 | Tónlist | 49 orð

Fólk folk@mbl.is

Hljómsveitin Noise sendir frá sér í dag sína aðra breiðskífu, Wicked . Til að fagna þeirri útgáfu heldur hún útgáfuhóf á Dillon á morgun. Þar hyggst sveitin leika nokkur lög fyrir gesti og skemmta sér síðan með þeim að því loknu. Gamanið hefst kl. Meira
24. nóvember 2006 | Fólk í fréttum | 85 orð | 1 mynd

Fólk folk@mbl.is

Þýska fyrirsætan Heidi Klum og bandaríski söngvarinn Seal eignuðust son í gær. Drengurinn, sem vó tæpar 16 merkur, hefur fengið nafnið Johan Riley Fyodor Taiwo Samuel . Meira
24. nóvember 2006 | Tónlist | 418 orð | 2 myndir

Heimsyfirráð skipulögð

Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is STÓRSVEITIN Benni Hemm Hemm gefur út sína aðra breiðskífu í dag. Platan ber heitið Kajak og inniheldur 13 lög sem forsprakki sveitarinnar, Benedikt Hermann Hermannsson, á veg og vanda að. Meira
24. nóvember 2006 | Tónlist | 454 orð | 1 mynd

Hrollvekjandi sælgæti

Magga Stína syngur Megas, geislaplata Möggu Stínu. Á plötunni leika auk Möggu Stínu Kristinn H. Árnason, Þórður Högnason, Hörður Bragason, Matthías Hemstock og Kormákur Geirharðsson. Öll lög og textar eru eftir Megas. Meira
24. nóvember 2006 | Menningarlíf | 591 orð | 2 myndir

Í félagsskap kaffis, bóka og blaða

Bókakaffihúsið Súfistinn, fyrir ofan Mál og menningu á Laugaveginum, skipar stóran sess í lífi mínu. Þangað fer ég oft og glugga í blöð og bækur á meðan ég drekk gott kaffi. Meira
24. nóvember 2006 | Kvikmyndir | 126 orð | 1 mynd

Ítölsk kvikmyndahátíð í Háskólabíói

HAFIN er ítölsk kvikmyndahátíð í Háskólabíói sem stendur til 3. desember næstkomandi. Að jafnaði verða sýndar 2-3 myndir á dag og alls tíu kvikmyndir. Meira
24. nóvember 2006 | Fjölmiðlar | 264 orð | 1 mynd

Kaninn leikur íslenska tónlist

KANINN er nafn á nýrri útvarpsstöð sem tók til starfa í gær en stöðin mun ólíkt öðrum starfandi útvarpsstöðvum - og Kananum gamla á Keflavíkurflugvelli - eingöngu flytja íslenska tónlist. Meira
24. nóvember 2006 | Bókmenntir | 156 orð | 2 myndir

Karitas vinsæl í Þýskalandi

TÆPUR mánuður er síðan skáldsagan Karitas - án titils , eftir Kristínu Marju Baldursdóttur, kom út í Þýskalandi og viðtökurnar hafa ekki látið á sér standa. Þegar hafa fleiri þúsund eintök selst af bókinni og fyrsta prentun uppseld. Meira
24. nóvember 2006 | Myndlist | 65 orð | 1 mynd

Ljós og skuggar

Á ÁRUNUM 1965-1980 ferðaðist danski ljósmyndarinn Mogens S. Koch alls tíu sinnum til Grænlands með Hasselblad-myndavél sína. Meira
24. nóvember 2006 | Kvikmyndir | 75 orð | 1 mynd

Mannabörn frumsýnd

KVIKMYNDIN Mannabörn (Children of Men) er byggð á vísindaskáldsögu eftir P.D. James. Sögusviðið er framtíðin og mannkynið er í útrýmingarhættu. Það sem getur orðið manninum til bjargar er ein þunguð kona. Meira
24. nóvember 2006 | Kvikmyndir | 67 orð | 1 mynd

Meira af jólasveininum

JÓLASVEINNINN III, sem verður frumsýnd í Sambíóunum í dag, segir frá vandræðum jólasveinsins örfáum dögum fyrir jól. Framleiðsla á leikföngum er á eftir áætlun og eiginkona hans ófrísk. Meira
24. nóvember 2006 | Kvikmyndir | 231 orð | 1 mynd

Mikill heiður

EINS og greint var frá fyrr í mánuðinum hlaut Dagur Kári Pétursson kvikmyndaverðlaun kennd við Peter Emil Refn en verðlaunin voru veitt í Kaupmannahöfn síðastliðinn miðvikudag. Meira
24. nóvember 2006 | Bókmenntir | 599 orð | 2 myndir

Morð við Öxará

Eftir Árna Þórarinsson og Pál Kristin Pálsson. JPV útgáfa. Reykjavík. 2006. 239 bls. Meira
24. nóvember 2006 | Leiklist | 645 orð | 2 myndir

Óleysanleg átök ástríðna og hefða

Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is Útskriftarárgangur leiklistardeildar Listaháskóla Íslands frumsýnir í kvöld leikritið Blóðbrúðkaup eftir F.G. Lorca. Blóðbrúðkaup er hin klassíska saga óleysanlegra átaka ástríðna og hefða. Meira
24. nóvember 2006 | Tónlist | 157 orð | 1 mynd

Skrifstofa tónlistarútrásar stofnuð

UNDIRRITAÐUR var í gær í Þjóðmenningarhúsinu samningur um stofnun Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar. Meira
24. nóvember 2006 | Tónlist | 328 orð | 1 mynd

Smekkleysa dreifir stafrænt

ALLAR ÚTGÁFUR Smekkleysu eru nú komnar í dreifingu á stærstu vefveitum heims. Dreifingin er unnin í gegnum breskt útibú Smekkleysu en þetta er í fyrsta skipti sem íslenskt útgáfufyrirtæki kemur allri tónlist sinni í heimsdreifingu með þessum hætti. Meira
24. nóvember 2006 | Tónlist | 447 orð | 1 mynd

Vandað að vanda

Geisladiskur hljómsveitarinnar Í svörtum fötum nefndur Orð. Í svörtum fötum eru Áki Sveinsson á bassa, Einar Örn Jónsson á hljómborð, Jón Jósep Snæbjörnsson syngur, Hrafnkell Pálmarsson á gítar og Páll Sveinsson á trommur. Meira
24. nóvember 2006 | Tónlist | 688 orð | 3 myndir

Vélað um annarra verk

Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is AÐ taka höfundarverk annarra og gera því skil upp á nýtt hefur alla tíð verið umdeild iðja. Meira
24. nóvember 2006 | Bókmenntir | 297 orð

Yfirlýsing frá Silju Aðalsteinsdóttur og Bjarti

EFTIR að ný þýðing Silju Aðalsteinsdóttur á hinni heimsfrægu skáldsögu Emily Brontë, Wuthering Heights , kom út í lok október hafa, að sögn bókaforlagsins Bjarts, fjölmargir lesendur haft samband við útgáfuna. Meira
24. nóvember 2006 | Bókmenntir | 421 orð | 1 mynd

Ævintýri í norðurhafi

Eftir Kristínu Steinsdóttur og Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur, Vaka-Helgafell 2006, 32. bls. Meira

Umræðan

24. nóvember 2006 | Aðsent efni | 842 orð | 1 mynd

Er álið málið?

Andrea Ólafsdóttir fjallar um álver og umhverfismál: "Við þurfum að sjá að í nýjum og umhverfisvænni lausnum felast ótrúleg tækifæri." Meira
24. nóvember 2006 | Aðsent efni | 466 orð | 1 mynd

Heilbrigðis- og félagsþjónusta eru grundvallaratriði í velferðarsamfélagi

Þorvaldur Ingvarsson fjallar um heilbrigðismál: "Efla þarf sérfræðiþjónustu á landsbyggðinni bæði með því að fá sérfæðinga til að setjast að og einnig með reglubundum heimsóknum." Meira
24. nóvember 2006 | Aðsent efni | 812 orð | 1 mynd

Kaupum ekkert

Jón Karl Stefánsson fjallar um lífsstíl: "Fólk er meira en vinnuþrælar og neytendur. Endurheimtum lífið, kaupum ekkert." Meira
24. nóvember 2006 | Aðsent efni | 297 orð | 1 mynd

Samráðsvettvangur trúfélaga

Einar Skúlason minnir á fund Samráðsvettvangs trúfélaga á Íslandi: "Markmið samráðsvettvangsins er að stuðla að umburðarlyndi og virðingu milli fólks með ólík lífsviðhorf og ólík trúarbrögð svo og ólíkra trúarhópa." Meira
24. nóvember 2006 | Aðsent efni | 295 orð | 1 mynd

Samstillt til sigurs

Kristján Þór Júlíusson hvetur íbúa Norðausturkjördæmis til að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins: "Ég býð fram krafta mína til að veita listanum forystu..." Meira
24. nóvember 2006 | Aðsent efni | 442 orð | 1 mynd

Sjálfstæðismenn, tökum þátt í prófkjörinu á morgun

Arnbjörg Sveinsdóttir hvetur íbúa í Norðausturkjördæmi til að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri: "Ég skynja bjartsýni fólks og drifkraft hér á svæðinu og hlakka til að starfa áfram á Alþingi fyrir kjördæmið." Meira
24. nóvember 2006 | Aðsent efni | 789 orð | 1 mynd

St. Jósefsspítali Hafnarfirði 80 ára

Gunnhildur Sigurðardóttir fjallar um sögu og starfsemi St. Jósefsspítala: "St. Jósefssystur settu svip á bæinn þegar þær tóku sér ferð niður í bæ og voru margir tilbúnir að spjalla við þær, bæði börn og fullorðnir." Meira
24. nóvember 2006 | Velvakandi | 408 orð | 1 mynd

Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10-12 og 13-15 | velvakandi@mbl.is

Trúmál VARÐANDI allar þær umræður og andstæð sjónarmið er eiga sér stað í skólum landsins milli fræðimanna og uppalanda varðandi trúfræðslu barna og unglinga, langar mig að benda á eina bók til kennslu sem er alveg kjörin til að slá á allan þann... Meira
24. nóvember 2006 | Aðsent efni | 148 orð

Vægi orða

SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR og Vinstri grænir eiga ótrúlega margt sameiginlegt: Báðir eru jákvæðir jafnaðarflokkar með sannferðugan feril í raun, þótt annar fari betur með þessa staðreynd en hinn. Meira
24. nóvember 2006 | Aðsent efni | 894 orð | 1 mynd

Það hafa það allir gott nema sumir...

Kristján Hreinsson fjallar um málefni öryrkja og eldri borgara: "...ég veit að það er til fólk hér á landi sem hefur það skítt og þetta fólk er yfirleitt sá hluti þjóðarinnar sem við ættum hvað helst að hlúa að." Meira
24. nóvember 2006 | Aðsent efni | 767 orð | 1 mynd

Þjóðernisdraumur Magnúsar Þórs

Paul F. Nikolov gerir athugasemdir við málflutning Magnúsar Þórs Hafsteinssonar: "Magnús Þór er að reyna að hræða fólk til þess að ná stuðningi og vinna sér fylgi." Meira

Minningargreinar

24. nóvember 2006 | Minningargreinar | 1586 orð | 1 mynd

Guðlaugur Björgvinsson

Guðlaugur Björgvinsson fæddist á Hlíðarenda í Breiðdal hinn 22. nóvember árið 1919. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum hinn 16. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigurbjörg Erlendsdóttir og Björgvin Jónasson. Meira  Kaupa minningabók
24. nóvember 2006 | Minningargreinar | 2221 orð | 1 mynd

Ingibjörg Hanna Bergmann Sveinsdóttir

Ingibjörg Hanna Bergmann Sveinsdóttir fæddist í Keflavík 6. júní 1947, heima hjá Önnu föðursystur sinni. Hún lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi 16. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Jóhanna E. A. Meira  Kaupa minningabók
24. nóvember 2006 | Minningargreinar | 2846 orð | 1 mynd

Ingibjörg Jónsdóttir

Ingibjörg Jónsdóttir ljósmóðir fæddist á Gemlufalli í Dýrafirði hinn 31. desember 1922. Hún andaðist á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund hinn 18. nóvember síðastliðinn. Meira  Kaupa minningabók
24. nóvember 2006 | Minningargreinar | 2260 orð | 1 mynd

Málfríður Þorvaldsdóttir

Málfríður Þorvaldsdóttir (Fríða Þorvalds) fæddist á Akranesi 15. sept. 1914. Hún lést á heimili sínu Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi hinn 19. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Þorvaldur Ólafsson, f. 14. sept. 1872, d. 16. Meira  Kaupa minningabók
24. nóvember 2006 | Minningargreinar | 3561 orð | 1 mynd

Pétur Magnús Guðmundsson

Pétur Magnús Guðmundsson fæddist í Reykjavík 21. október 1956. Hann lést á líknardeild LSH í Kópavogi 9. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans eru Ásdís Steingrímsdóttir, f. 28. júlí 1929, og Guðmundur Pétursson, f. 8. febrúar 1933. Meira  Kaupa minningabók
24. nóvember 2006 | Minningargreinar | 5267 orð | 1 mynd

Pétur Þór Melsteð

Pétur Þór Melsteð fæddist í Reykjavík 27. janúar 1941. Hann varð bráðkvaddur 13. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Helga Símonardóttir Melsteð, f. 22.5. 1914, d. 1.11. 2000, og Gunnlaugur Bjarnason Melsteð, f. 5.5. 1908, d. 21.1. 1963. Meira  Kaupa minningabók
24. nóvember 2006 | Minningargreinar | 1790 orð | 1 mynd

Vigdís Ferdinandsdóttir

Vigdís Ferdinandsdóttir fæddist í Reykjavík 11. ágúst 1921. Hún lést í Víðinesi 15. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Ferdinand Róbert Eiríksson skósmiður, f. á Eyvindarstöðum á Álftanesi 13.8. 1881, d. 12.2. Meira  Kaupa minningabók

Sjávarútvegur

24. nóvember 2006 | Sjávarútvegur | 912 orð | 2 myndir

Stefnum að veiðum hundraða stórhvala

SÆVAR Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands, telur að Íslendingar eigi að vinna að uppbyggingu markaða fyrir hvalaafurðir og stefna að því að veiða nokkur hundruð stórhvali á ári, auk hrefnu, undir eftirliti sérfræðinga. Meira

Viðskipti

24. nóvember 2006 | Viðskiptafréttir | 60 orð

Hækkun í Kauphöllinni

ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Íslands hækkaði um 0,63% í gær í 6.236 stig en verslað var með hlutabréf fyrir 6,6 milljarða króna, mest með bréf í Kaupþingi banka eða fyrir liðlega 1,7 milljarða króna. Meira
24. nóvember 2006 | Viðskiptafréttir | 76 orð

Innnes í útrás

ÍSLENSKA heildsöluverslunin Innnes ásamt meðfjárfestum hefur keypt norska heildsölu og dreifingarfyrirtækið Haugen-Gruppen en seljandinn var R.Twinings & C sem aftur er í eigu Associate British Foods að því er kemur fram í frétt á vef M2.. Meira
24. nóvember 2006 | Viðskiptafréttir | 209 orð

Kaupþing komið með 9% hlut í Storebrand

KAUPÞING banki hefur aukið hlut sinn í norska tryggingafélaginu Storebrand og á nú um 9% hlut að því er kemur fram í frétt á vefnum Näringsliv24 . Meira
24. nóvember 2006 | Viðskiptafréttir | 247 orð | 1 mynd

Segir líkur á auknu aðhaldi

Eftir Kristján Torfa Einarsson kte@mbl. Meira
24. nóvember 2006 | Viðskiptafréttir | 385 orð | 1 mynd

Verður sérhæfður banki á fyrirtækjamarkaði

Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is SPARISJÓÐABANKI Íslands hefur fengið nýtt nafn, Icebank, og hefur áherslum í starfsemi bankans verið breytt. Meira
24. nóvember 2006 | Viðskiptafréttir | 163 orð

Versnandi afkoma hjá Wyndeham

WYNDEHAM Press Group, breska prentsmiðjufyrirtækið sem hefur verið í eigu Dagsbrúnar, og síðar 365, frá því að það var keypt fyrr á árinu, hefur gefið út endanlegar afkomutölur fyrir fjárhagsárið sem lauk 31. mars síðastliðinn. Meira

Daglegt líf

24. nóvember 2006 | Daglegt líf | 71 orð | 3 myndir

Hönnunarsamkeppni í Rússlandi

Í vikunni fór fram alþjóðleg samkeppni ungra hönnuða við háskólann í St. Pétursborg í Rússlandi. Alls tóku hundrað ungir hönnuðir þátt í samkeppninni. Heldur var fatnaðurinn léttur þegar veðrið í St. Meira
24. nóvember 2006 | Daglegt líf | 403 orð | 2 myndir

Kvöldmaturinn hálfgerð helgistund

Á Thorsplaninu í Hafnarfirði standa nú tuttugu lítil jólahús og jólatré sem umlykja húsin bíða þess að öðlast nýtt líf. 800 leikskólabörn mæta í dag til að skreyta trén en Jólaþorpið í Hafnarfirði verður opnað á morgun, 25. nóvember, kl. Meira
24. nóvember 2006 | Daglegt líf | 926 orð | 6 myndir

Matreiðslan þarf ekki að vera flókin

Hún býður upp á ljúffengt kaffi og kex sem hún sækir inn í ísskáp. Segir gott að geyma það þar í stutta stund, því þá verði það hæfilega stökkt. Aðspurð hvort hún nostri svona við allt brosir hún og segir: "Mér finnst bara svo gaman í eldhúsinu! Meira
24. nóvember 2006 | Daglegt líf | 655 orð | 4 myndir

mælt með ...

Fjörlegir balzamer-tónar Austur-evrópsk þjóðlagatónlist nýtur umtalsverðra vinsælda hér á landi enda seiðandi og fjörlegur takturinn oft þannig að erfitt er að standa kyrr. Meira
24. nóvember 2006 | Daglegt líf | 529 orð | 1 mynd

Svalt sushi á Deco

Það hefur orðið gífurleg breyting á miðborg Reykjavíkur á örfáum árum og þá ekki síst á Kvosinni sem hefur á undraskömmum tíma breyst í kaffi- og veitingahúsahverfi. Meira
24. nóvember 2006 | Daglegt líf | 471 orð | 2 myndir

Tískan fer í hringi - stundum stóra

"Þetta er það eina sem ég er fljót að gera," segir Guðrún Ellertsdóttir kennari og kímir. Hún á þar við prjónaðar handstúkur sem æ fleiri konur sjást skarta og eru hafðar um úlnliðina. Meira
24. nóvember 2006 | Daglegt líf | 276 orð | 1 mynd

Tvær gómsætar

Eftir Heiðu Björgu Hilmisdóttur Hér eru uppskriftir sem passa í saumaklúbbinn, afmælið, partýið, kaffiboðið og bara hvar sem er. Þær geymast báðar mjög vel, settar í form og skornar niður í hæfilega bita þegar veislan er að fara að byrja. Meira
24. nóvember 2006 | Daglegt líf | 131 orð | 1 mynd

Vantar far?

ÞEIR sem þurfa að komast á milli bæjarfélaga á Íslandi geta nýtt sér þjónustu vefsíðunnar www.samferda.net. Síðan er tæki til að koma saman fólki sem ætlar milli tveggja staða á sama tíma. Meira
24. nóvember 2006 | Daglegt líf | 187 orð | 1 mynd

Vilja góðverk í jólagjöf

STÖÐUGT fleirum Norðmönnum finnst í lagi að verða af jólagjöf renni andvirði hennar í staðinn til hjálparsamtaka. Þetta kemur fram í könnun sem gerð var fyrir Rauða krossinn í Noregi. Meira

Fastir þættir

24. nóvember 2006 | Árnað heilla | 16 orð | 1 mynd

50 ára afmæli . Í dag, 24. nóvember, er fimmtugur Jón Ágúst...

50 ára afmæli . Í dag, 24. nóvember, er fimmtugur Jón Ágúst Aðalsteinsson, Kotárgerði 28,... Meira
24. nóvember 2006 | Í dag | 267 orð | 1 mynd

Aðventudagar Sólheima

Aðventudagar Sólheima hefjast nk. laugardag með fjölbreyttri dagskrá, en þetta er í fyrsta skipti sem þeir eru haldnir. Meira
24. nóvember 2006 | Í dag | 509 orð | 1 mynd

Á Ísland erindi í Evrópu?

Gylfi Zoega fæddist í Reykjavík 1963. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1983, Cand.Oecon frá HÍ 1987, meistaragráðu í hagfræði 1989 og doktorsprófi 1993 frá Columbiaháskóla í NY. Gylfi var prófessor við Birkbeck College 1993 til 2003. Meira
24. nóvember 2006 | Árnað heilla | 42 orð | 1 mynd

Árnað heilla ritstjorn@mbl.is

50 ára afmæli . Í dag, 24. nóvember, er fimmtugur Haraldur Viggó Ólafsson, trommuleikari í Plútó og starfsmaður Olís, Lálandi 23. Hann býður vinum og vandamönnum til veislu á morgun, laugardaginn 25. Meira
24. nóvember 2006 | Fastir þættir | 154 orð

BRIDS - Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is

Veik vörn. Norður &spade;106 &heart;ÁK5 ⋄Á1042 &klubs;ÁKG9 Vestur Austur &spade;82 &spade;ÁK9754 &heart;D10432 &heart;86 ⋄G7 ⋄K95 &klubs;7652 &klubs;108 Suður &spade;DG3 &heart;G97 ⋄D863 &klubs;D43 Suður spilar 3G og fær út... Meira
24. nóvember 2006 | Viðhorf | 842 orð | 1 mynd

Einelti og einsleitni

Klæðnaður þessara kvenna er til marks um hversu kúgaðar þær eru, segjum við. Og teljum okkur geta sett okkur á háan hest, enda njótum við svo mikils frelsis að unglingsstúlkur geta verið hálf naktar á almannafæri án þess að við sjáum nokkuð athugavert við stöðu okkar sem siðferðispostular. Meira
24. nóvember 2006 | Fastir þættir | 31 orð

Gætum tungunnar

Sagt var : Það voru fulltrúar tveggja samtaka. RÉTT VÆRI: ...fulltrúar tvennra samtaka. SNOTRARA VÆRI ÞÓ: ...fulltrúar frá tvennum samtökum. (Ath.: Eintala af orðinu samtök (eitt samtak, samtakið) er ekki til. Meira
24. nóvember 2006 | Í dag | 22 orð

Orð dagsins: Og eins og vér höfum borið mynd hins jarðneska, munum vér...

Orð dagsins: Og eins og vér höfum borið mynd hins jarðneska, munum vér einnig bera mynd hins himneska. (I. Kor. 4, 16. Meira
24. nóvember 2006 | Fastir þættir | 115 orð | 1 mynd

SKÁK - Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is

1. e4 c6 2. d4 d5 3. exd5 cxd5 4. c4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Bg5 e6 7. Rf3 Be7 8. c5 0-0 9. Bb5 h6 10. Bf4 Bd7 11. 0-0 Ra5 12. Bd3 b6 13. b4 Rb7 14. Ba6 Dc8 15. Re5 Re8 16. Hc1 bxc5 17. dxc5 f6 18. Rg6 Hf7 19. Meira
24. nóvember 2006 | Í dag | 178 orð

Spurt er... ritstjorn@mbl.is

1 110 erlendir fjárfestar hafa keypt hlut í Kaupþing banka í útboði. Hver er forstjóri Kaupþing banka? 2 Ísland er í öðru sæti á lista Economist yfir ríki þar sem lýðræði þykir vera mest. Hvaða ríki er í fyrsta sæti? Meira
24. nóvember 2006 | Fastir þættir | 285 orð | 1 mynd

Víkverji skrifar...

Það stendur margt skrýtið í blöðunum. Í Morgunblaðinu í gær var frétt um að lýðræði væri næst mest í heiminum á Íslandi, samkvæmt úttekt rannsóknafyrirtækis brezka tímaritsins The Economist . Meira

Íþróttir

24. nóvember 2006 | Íþróttir | 166 orð | 1 mynd

Eiður Smári fær hæstu einkunn hjá Barcelona

EIÐUR Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu og leikmaður Evrópu- og Spánarmeistaraliðs Barcelona, fær hæstu einkunn sérfræðinga fréttavefjar Sky fyrir framlag sitt í 2:0-sigri liðsins á útivelli gegn Levski Sofia í Búlgaríu. Meira
24. nóvember 2006 | Íþróttir | 267 orð | 2 myndir

Fólk sport@mbl.is

Upphafsmót Evrópubikarkeppninnar í alpagreinum skíðaíþrótta verður í Salla í Finnlandi á morgun. Tveir Íslendingar verða á meðal keppenda - Björgvin Björgvinsson og Kristinn Ingi Valsson frá Dalvík. Meira
24. nóvember 2006 | Íþróttir | 411 orð | 2 myndir

Fólk sport@mbl.is

Hörður Axel Vilhjálmsson , körfuknattleiksmaður, skilaði í gær inn félagaskiptablaði til KKÍ. Hann ætlar að leika með sínu gamla félagi, Fjölni , það sem eftir er vetrar. Meira
24. nóvember 2006 | Íþróttir | 193 orð | 1 mynd

Gunnar Einarsson lék 30. leik sinn í Evrópukeppni

GUNNAR Einarsson lék sinn þrítugasta Evrópuleik fyrir Keflavík í gær gegn sænska liðinu Norrköping. Gunnar er sá íslenski leikmaður sem hefur leikið flesta Evrópuleiki á ferli sínum. Frá þessu er greint á vefnum karfan.is . Meira
24. nóvember 2006 | Íþróttir | 162 orð

Hammarby tapaði

GUNNAR Þór Gunnarsson var í vörn sænska knattspyrnuliðsins Hammarby í gær sem tapaði 3:2 gegn danska liðinu Bröndby í Skandinavíudeildinni í gær. Leikurinn fór fram í Stokkhólmi en Pétur Marteinsson kom inn á sem varamaður í liði Hammarby á 64. mínútu. Meira
24. nóvember 2006 | Íþróttir | 162 orð

ÍSÍ fjallar um kæru Þórsara

ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLL ÍSÍ hefur ákveðið að taka fyrir áfrýjun Þórs á Akureyri vegna leiks Þórs/KA og ÍR um sæti í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í haust. Hún verður tekin fyrir í næstu viku. Meira
24. nóvember 2006 | Íþróttir | 465 orð

KÖRFUKNATTLEIKUR Keflavík - Norrköping 109:99 Íþróttahúsið í Keflavík...

KÖRFUKNATTLEIKUR Keflavík - Norrköping 109:99 Íþróttahúsið í Keflavík, Evrópukeppni karla, fimmtudagur 23. nóvember 2006. Meira
24. nóvember 2006 | Íþróttir | 907 orð | 1 mynd

Leikurinn var aldrei flautaður á í Eyjum

Mótanefnd Handknattleikssambands Íslands gerði mistök er hún sektaði Handknattleiksdeild Hattar um 250 þús. kr. og dæmdi leik liðsins við ÍBV tapaðan 10:0. Nýliðar Hattar frá Egilsstöðum héldu úr heimahögum akandi á einkabílum sl. Meira
24. nóvember 2006 | Íþróttir | 118 orð | 1 mynd

Logi Gunnarsson með 27 stig fyrir ToPo

Íslenski landsliðsmaðurinn í körfuknattleik, Logi Gunnarsson, fyrrum leikmaður Njarðvíkinga, heldur áfram að láta að sér kveða í finnsku úrvalsdeildinni. Í fyrrakvöld skoraði Logi 27 stig fyrir lið sitt ToPo frá Helsinki í leik gegn Tampereen Pyrinto. Meira
24. nóvember 2006 | Íþróttir | 238 orð | 1 mynd

Martin O'Neill hefur áhuga á að fá Defoe til Aston Villa

ASTON Villa er að undirbúa 7 milljón punda tilboð í Jermain Defoe framherja Tottenham. Meira
24. nóvember 2006 | Íþróttir | 245 orð

Ný Evrópusamtök stórliða

FJÓRTÁN af stærstu handknattleiksliðum Evrópu hafa myndað með sér samtök, líkt og gerðist í knattspyrnunni fyrir nokkrum árum. Meira
24. nóvember 2006 | Íþróttir | 286 orð | 1 mynd

"West Ham er í mjög góðum höndum"

TERRY Brown, sem seldi Íslendingunum hlut sinn í enska knattspyrnufélaginu West Ham og víkur úr sæti stjórnarformanns félagsins fyrir Eggerti Magnússyni eftir nokkra daga, er afar ánægður með eftirmann sinn og hældi honum á hvert reipi í samtali við sjónvarpsstöð West Ham. Meira
24. nóvember 2006 | Íþróttir | 365 orð | 1 mynd

Sjöundi sigur Tiger Woods á Hawaii

TIGER Woods lék best allra á lokakeppnisdegi PGA-mótsins á Hawaii þar sem hann tryggði sér sigur á mótinu í sjöunda sinn en keppendurnir voru aðeins fjórir. Hann fékk um 36 millj. kr. Meira
24. nóvember 2006 | Íþróttir | 441 orð | 1 mynd

Soltau fór á kostum

Danski landsliðsmiðherjinn Thomas Soltau fór á kostum í liði Keflvíkinga í gær í 109:99 sigri liðsins gegn sænska liðinu Norrköping. Meira
24. nóvember 2006 | Íþróttir | 118 orð

Stúlkurnar mæta Færeyingum

JÚLÍUS Jónasson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, valdi í gær þær sextán stúlkur sem taka þátt í undankeppni HM í Rúmeníu í næstu viku, þar sem þær leika í fimm liða riðli. Meira
24. nóvember 2006 | Íþróttir | 325 orð

Wie safnaði skollum í Japan

BANDARÍSKI táningurinn Michelle Wie, sem keppir á Casio-mótinu á mótaröð karlkylfinga í Japan, náði sér ekki á strik á fyrsta keppnisdeginum þar sem hún fékk 9 skolla (+1) og lék hún á 81 höggi, 9 höggum yfir pari. Þetta er þetta í 12. Meira

Bílablað

24. nóvember 2006 | Bílablað | 356 orð | 3 myndir

Afl og nákvæmni

BENEDIKT Eyjólfsson hjá Bílabúð Benna hefur ástríðu fyrir bílum, altént sumum bílum. Hann boðaði tíðindamann Bíla á sinn fund í bílaumboðið sitt og það var eins og að koma inn á ofurbílasýningu. Meira
24. nóvember 2006 | Bílablað | 86 orð | 1 mynd

Arctic Trucks með PIAA

HEKLA hf., umboðsaðili PIAA á Íslandi til margra ára, seldi á dögunum PIAA-umboðið til Arctic Trucks. Að sögn Sverris Viðars Haukssonar, framkvæmdastjóra hjá Heklu, hafði staðið til í töluverðan tíma að selja PIAA-umboðið. Meira
24. nóvember 2006 | Bílablað | 80 orð

Bílaumboð gefa með bílum

SENN styttist í jólin og vertíð að hefjast hjá kaupmönnum og verslunum. Bílaumboðin eru þar ekki undanskilin. Ingvar Helgason ehf. auglýsir að nú fylgi 100. Meira
24. nóvember 2006 | Bílablað | 149 orð | 1 mynd

Fegursti Benz á Íslandi

ASKJA opnaði nýlega fullbúna þjónustumiðstöð í Hafnarfirði fyrir Mercedes-Benz atvinnubíla. Meira
24. nóvember 2006 | Bílablað | 159 orð

Hönnuðum stefnt saman

PSA Peugeot Citroën hefur hrundið af stað nokkurs konar innbyrðis samkeppni milli hönnuða sinna til að skapa framtíðarbíla bílsmiðjanna tveggja. Í þessu skyni hefur fjórum álíka stórum teiknistúdíóum verið komið upp í 70. Meira
24. nóvember 2006 | Bílablað | 420 orð

Mismunandi dráttargeta

Leó M. Jónsson vélatæknifræðingur svarar fyrirspurnum á leoem @simnet.is (Ath. Bréf geta verið stytt). Eldri spurningar og svör eru birt á www.leoemm.com Spurt: Af tilviljun rakst ég á, mér til furðu, að dráttargeta, t.d. Meira
24. nóvember 2006 | Bílablað | 329 orð | 1 mynd

MSÍ stofnað innan vébanda ÍSÍ

Eftir Njál Gunnlaugsson njall@bilarogsport.is STOFNDAGUR Mótorhjóla-og Snjósleðasambands Íslands (MSÍ), er í dag, 24. nóvember. Með stofnun sambandsins er brugðist við þörf til að koma íþróttagreininni á jafnréttisgrundvöll gagnvart öðrum íþróttum. Meira
24. nóvember 2006 | Bílablað | 137 orð | 1 mynd

Nýr og endurhannaður Mini ferðalangur

NÚ þegar hinn endurhannaði Mini er kominn á göturnar er útlit fyrir að fleiri gerðir þessa geysivinsæla bíls muni koma fram á sjónarsviðið á næstu árum. Meira
24. nóvember 2006 | Bílablað | 216 orð

Óljóst bil á milli bíla

KÖNNUN á vegum Kwik-Fit bremsu- og dekkjafyrirtækisins í Bretlandi hefur sýnt að 90% ökumanna vita ekki hvað er æskilegt bil á milli bifreiða og að 56% ökumanna viðurkenna að þeir aki alltof nálægt næsta bíl á undan. Meira
24. nóvember 2006 | Bílablað | 338 orð | 1 mynd

Stærri hliðarhurðar í nýrri kynslóð Sprinter

ASKJA í Hafnarfirði hefur hafið sölu á nýjum Mercedes-Benz Sprinter sem leysir af hólmi eldri útgáfu sem kom á markað árið 1995 og hefur selst í 1,3 milljónum eintaka. Meira
24. nóvember 2006 | Bílablað | 378 orð | 1 mynd

Yes - vísbending

Eftir Ingvar Örn Ingvarsson ingvarorn@mbl.is Í SAXON héraðinu í Þýskalandi er pínulítið fyrirtæki, með aðeins 46 starfsmenn, sem framleiðir nokkuð merkilegan bíl - bíl sem er ekki síður merkilegur fyrir framleiðsluaðferðirnar en götueiginleikana. Meira
24. nóvember 2006 | Bílablað | 393 orð

Þrjár mismunandi útfærslur af Porsche 911 GT3

PORSCHE býður keppnismönnum sérstakan keppnisbíl, 911 GT3, í 3 mismunandi útgáfum. 911 GT3 Cup (997), sem vegur 1.120 kg, með 400 ha vél, er einungis til notkunar sem keppnisbíll. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.