Greinar þriðjudaginn 23. desember 2008

Fréttir

23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 45 orð | 1 mynd

Afhenti styrk úr minningarsjóði

VIGDÍS Finnbogadóttir afhenti í fyrradag styrk úr minningarsjóði bróður síns, Þorvaldar Finnbogarsonar. Styrkinn, 250.000 krónur, hlaut að þessu sinni Arnar Björn Björnsson, nemandi á þriðja ári í umhverfis- og byggingarverkfræði við Háskóla Íslands. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 104 orð | 1 mynd

Arnaldur og Vilhjálmur seljast vel

Í SÓL og skugga , saga Bryndísar Schram, er mest selda ævisagan um þessar mundir samkvæmt bóksölulistanum. Með því slær hún við Magneu og Sögu af forseta sem hafa barist um toppsætið í þeim flokki til þessa. Meira
23. desember 2008 | Erlendar fréttir | 109 orð

Bíll er forðast vegfarendur

SÆNSKA bílafyrirtækið Volvo er að þróa bíl með ratsjá og sjálfvirka bremsu sem stöðvar bílinn ef hann telur að hætta sé á árekstri við bíl eða gangandi vegfaranda fyrir framan. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 46 orð | 1 mynd

Blysför á Þorlák

Íslenskir friðarsinnar standa að blysför niður Laugaveginn í kvöld, á Þorláksmessu. Safnast verður saman á Hlemmi kl. 17:45 og leggur gangan af stað stundvíslega kl. 18. Að venju munu friðarhreyfingarnar selja kyndla á Hlemmi í upphafi göngunnar. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 416 orð | 1 mynd

Borgarsjóður verði rekinn hallalaus

Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is FRUMVARP að fjárhagsáætlun Reykjavíkurbogar fyrir árið 2009 var lagt fram í borgarstjórn í gær. Meira
23. desember 2008 | Erlendar fréttir | 404 orð | 1 mynd

Deilt um starfsleyfi heilara

Moskvu. AP. | Míkhaíl Fadkín, 63 ára heilari í Moskvu, segist geta læknað fjölmarga kvilla – til að mynda brisbólgu, lungnakvef, meltingartruflanir, jafnvel ófrjósemi – með því að handleika „lífsorkusvið“ sjúklingsins. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 84 orð

Dýpsta ár kreppunnar

„VIÐ gerum ráð fyrir því að árið 2009 verði dýpsta ár kreppunnar og þess vegna hefur verið reynt að ganga varlega fram til þess að ríkið með sínum aðgerðum dýpki ekki kreppuna.“ Þetta sagði Árni M. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 67 orð

Dýrari skólamáltíðir

VERÐ skólamáltíða í grunnskólum Kópavogs hækkar úr 235 kr. í 280 kr. frá og með 1. janúar nk. Var ákvörðun þessa efnis tekin við afgreiðslu fjárhagsáætlunar Kópavogsbæjar á bæjarstjórnarfundi föstudaginn 19. desember sl. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 235 orð | 1 mynd

Ekki bara á Íslandi

ÞRÓUN HIV-smita á Íslandi hefur verið á þann veg síðustu ár að algengasta smitleiðin er kynmök milli karls og konu en smitum í hópi samkynhneigðra hefur fækkað. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 661 orð | 3 myndir

Enn langt í land með þorskeldi í stórum stíl

Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Erfiðleikar í efnahagsmálum heimsins hægja á þróuninni í fiskeldi, ekki síst á dýrari tegundum eins og þorski. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 422 orð | 1 mynd

Fá verðbætur á óverðtryggða samninga

VERKTAKAR innan Samtaka iðnaðarins munu fá verðbætur á óverðtryggða verksamninga sína samkvæmt drögum að samkomulagi milli Reykjavíkurborgar og Samtaka iðnaðarins (SI) sem voru samþykkt á borgarráðsfundi sl. laugardag. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 44 orð | 1 mynd

Flóð í Ártúnsbrekku

TÖLUVERÐAR umferðartafir urðu í Ártúnsbrekku síðdegis í gær þegar vatnsflaumurinn flæddi yfir götuna. Starfsmenn borgarinnar höfðu líka í nógu að snúast þar sem víða var asahláka með tilheyrandi vatnselg. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 324 orð

Flutt frá St. Jósefs?

Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is STJÓRNENDUR og starfsmenn St. Jósefsspítala í Hafnarfirði eru áhyggjufullir vegna hugmynda heilbrigðisyfirvalda um að flytja starfsemi frá sjúkrahúsinu til annarra sjúkrahúsa. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 77 orð | 1 mynd

Frí frá borgarstjórn

GÍSLI Marteinn Baldursson borgarfulltrúi hefur ákveðið að taka sér launalaust leyfi frá störfum í borgarstjórn Reykjavíkur fram á sumar. Gísli Marteinn segir á bloggsíðu sinni að annir í námi eigi eftir að aukast og ferðalögin heim hafi tekið á. Meira
23. desember 2008 | Þingfréttir | 363 orð

Frumvörp orðin að lögum

60 ára mega taka út sparnað Fólk sem hefur náð 60 ára aldri getur nú tekið út lífeyrissparnað sinn í einu lagi og heimild til að fresta töku lífeyris verður ekki bundin við tiltekið aldursmark. Allir flokkar samþykktu frumvarp þessa efnis í gær. Meira
23. desember 2008 | Erlendar fréttir | 103 orð

Grunlaus um kreppuna

SIR John Gieve, aðstoðarbankastjóri Englandsbanka, segir í viðtali við BBC , breska ríkissjónvarpið, að bankinn hafi ekki séð fyrir hve fjármálakreppan yrði alvarleg. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 135 orð | 1 mynd

Gæslunám innan Lögregluskólans

LÖGREGLUNÁM, fangavarðarnám og gæslunám kunna í framtíðinni að verða þrjár brautir innan Lögregluskóla ríkisins. Munu þeir starfsmenn Landhelgisgæslunnar, sem það þurfa starfa sinna vegna, þá fá menntun og þjálfun í lögreglufræðum í skólanum. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 203 orð | 1 mynd

Halldóra Eldjárn

HALLDÓRA Kristín Ingólfsdóttir Eldjárn, fyrrverandi forsetafrú, lést í gær, 85 ára að aldri. Halldóra fæddist 24. nóvember 1923 á Ísafirði og ólst þar upp, elst fjögurra systkina. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 77 orð | 1 mynd

Hjartað segir nei, en heilinn já

MATTHÍAS Johannessen er einn þeirra fjölmörgu sem nú velta Evrópusambandsaðild fyrir sér. Á vefsíðu sinni Matthias.is segir hann: „Ég hef verið að hugsa um Evrópusambandið og aðildina að því. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 266 orð

Íslendingum fjölgaði um 6.884

ÍSLENDINGUM fjölgaði um 6.884 á síðustu 12 mánuðum. Þetta er óvenjulega mikil fjölgun. Samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár voru landsmenn 319.756 hinn 1. desember síðastliðinn en 312.872 ári áður. Þetta jafngildir því að íbúum hafi fjölgað um 2,2% á einu ári. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 199 orð

Íslenskar eignir sænskra fyrirtækja eru verðlausar

SÆNSKA fjármálaeftirlitið [FI] gaf út tilmæli til þarlendra fjármálafyrirtækja í lok október sl. sem fólu í sér að allar íslenskar eignir yrðu að fullu frádráttarbærar frá eiginfjárútreikningum þeirra. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 144 orð | 1 mynd

Keyrð í slökkvibíl niður á tjörn

HÚN VARÐ frelsinu fegin álftin sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bjargaði úr hremmingum á Hjónagörðum Háskóla Íslands. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 147 orð | 1 mynd

Komið endilega inn í kakó

FORSETAHJÓNIN, Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff, tóku mótmælendum vel í gær og buðu þeim inn í kakó. Meira
23. desember 2008 | Erlendar fréttir | 40 orð | 1 mynd

Kópernikus í klakafjötrum

ÍSLISTAVERKIÐ „Kópernikus“ eftir þá Bogoslav Zen og Gosha Korenkyewicz hefur vakið verðskuldaða athygli á sýningu íslistamanna, sem nú er haldin í Rövershagen í Norður-Þýskalandi. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 72 orð

Kynnir tillögur um skuldaaðlögun

BJÖRN Bjarnarson dómsmálaráðherra hefur kynnt ríkisstjórninni tillögur um skuldaaðlögun, þ.e. breytingar á nauðungarsamningskafla gjaldþrotaskiptalaga. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 76 orð | 1 mynd

Kæst skal hún vera

ÞEIR BROSA sínu blíðasta kokkarnir í Múlakaffi, Jóhannes Stefánsson og Þorlákur Helgason, um leið og þeir anda að sér skötuilminum. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 182 orð

Leiðrétt

The Islander en ekki The Icelander Halldór Guðmundsson bókmenntafræðingur hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: „Í tilefni af hugvekju Bjarna Bjarnasonar rithöfundar í Morgunblaðinu í gær er rétt að taka fram að ensk útgáfa bókar minnar um... Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 330 orð

Lögin sem beðið var eftir

Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is FJÁRLÖG fyrir næsta ár voru loks samþykkt á Alþingi í gær með öllum greiddum atkvæðum stjórnarþingmanna en vinnan hefur dregist vegna erfiðra aðstæðna í efnahagslífinu. Meira
23. desember 2008 | Erlendar fréttir | 101 orð | 1 mynd

Moskítóflugan sem kjaftaði frá eftir dauðann

Finnska lögreglan telur sig hafa komið upp um bílþjóf með því að greina DNA-erfðaefni í hræi moskítóflugu. Bílnum var stolið í júní í borginni Lapua og fannst hann nokkrum vikum síðar. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 373 orð | 1 mynd

Mörg andlit kreppunnar

EFNAHAGSKREPPAN á sér mörg andlit og sum jafnvel skemmtilega óvænt. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 126 orð

Neyðarlög Alþingis réðu úrslitum um tapið

„Óumdeilt er að í tilteknum tilvikum hafi fjárfesting í peningamarkaðssjóði Landsbankans verið kynnt sem áhættulaus. NBI hf. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 83 orð

Opið allan sólarhringinn

Hjálparsími Rauða krossins, 1717, er opinn allan sólarhringinn allt árið. Konukot, Eskihlíð 4, sími 511 5150, athvarf fyrir heimilislausar konur er opið allan sólarhringinn frá Þorláksmessu til nýársdags. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 331 orð | 3 myndir

Ráðleggur sjóðurinn öðrum allt annað en Íslandi?

Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is KALL Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), eftir stórauknum ríkisútgjöldum til að örva hagvöxt hefur vakið athygli. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 155 orð | 1 mynd

Síldarmyndir í Sparisjóði Siglufjarðar

Siglufjörður | Síldarminjasafn Íslands stendur fyrir málverkasýningu í afgreiðslusal Sparisjóðs Siglufjarðar. Höfuðverk sýningarinnar er myndin Konur í síldarvinnu eftir Gunnlaug Blöndal sem hann mun hafa málað á Siglufirði árið 1934. Meira
23. desember 2008 | Erlendar fréttir | 226 orð

Stórárás á Gaza undirbúin

HAMAS-hreyfingin á Gaza lýsti í gær yfir sólarhringsvopnahléi í átökum sínum við ísraelska herinn en ísraelsk stjórnvöld boða stórárás á Gaza vegna flugskeytaárása á Ísrael. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 111 orð | 1 mynd

...svo sem vér og fyrirgefum...

...SVO sem vér og fyrirgefum Landsbankanum... Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 104 orð

S-Þingeyjarsýsla einn svellbunki

AÐ SÖGN lögreglunnar á Húsavík eru vegirnir í Suður-Þingeyjarsýslu, allt frá Akureyri til Húsavíkur, einn svellbunki. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 91 orð

Tannlæknar skrifi ekki undir samning

SJÚKRATRYGGINGASTOFNUN og heilbrigðisráðueytið munu bjóða tannlæknum áframhald á „litla samningnum“ út árið 2009 (forvarnarskoðun 3ja og 12 ára barna). Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 127 orð

Tíðari ferðir í Borgarfjörð

FULLTRÚAR Strætó bs. og bæjarstjórna Akraness, Hvalfjarðarsveitar og Borgarbyggðar skrifuðu í gær undir samninga um akstur Strætós milli bæjarfélaganna og höfuðborgarsvæðisins. Aksturinn hefst 2. janúar nk. Meira
23. desember 2008 | Erlendar fréttir | 240 orð | 1 mynd

Tíundi hver þarf matarkort

VEGNA efnahagsástandsins og vaxandi atvinnuleysis hefur eftirspurn eftir matarmiðum eða matarkortum í Bandaríkjunum aldrei verið jafnmikil og nú. Um 30 millj. manna, 10. hver Bandaríkjamaður, þiggur nú þessa aðstoð hins opinbera við að komast af. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 292 orð | 1 mynd

Töldu sig hafa góð veð fyrir útlánum peningamarkaðssjóðs

Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is FYRRVERANDI framkvæmdastjóri Landsvaka, dótturfyrirtækis Landsbankans gamla, Stefán H. Stefánsson, segir að með neyðarlögunum 6. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 253 orð | 2 myndir

Verðbólgan mælist 18%

Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is VERÐBÓLGAN eykst enn og mælist nú 18,1% miðað við undanfarna 12 mánuði en hún mældist 17,1% í nóvember. Verðbólgan er núna jafnmikil og hún var í maí árið 1990 og hefur ekki verið hærri í tæp nítján ár. Meira
23. desember 2008 | Erlendar fréttir | 119 orð | 1 mynd

Vilja í vinnu hjá Obama

NOKKRUM vikum áður en Barack Obama tekur við sem forseti Bandaríkjanna hafa meira en 300.000 manns sótt um vinnu á vegum nýju stjórnarinnar. Um er að ræða algert met og sýnir vel þær væntingar, sem Bandaríkjamenn gera til Obama. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 470 orð | 3 myndir

Vilja réttinn burt

Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is Vilji er til þess á meðal fulltrúa Geysis Green Energy (GGE) og Reykjanesbæjar í stjórn HS-Orku að afnema forkaupsrétt eigenda í félaginu, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 1837 orð | 3 myndir

Þarf að taka til og lofta út

Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Staða sveitarfélaganna í landinu hefur versnað verulega þar sem erlend lán hafa á einu ári hækkað um 100%. Meira
23. desember 2008 | Þingfréttir | 190 orð

ÞETTA HELST ...

Líf í þinghúsinu Mikið líf var í Alþingishúsinu í gær á lokadegi þingsins fyrir jól . Atkvæðagreiðslur fóru nokkrum sinnum fram yfir daginn og þingmenn og ráðherrar voru því oftast í góðu göngufæri við þinghúsið. Meira
23. desember 2008 | Þingfréttir | 98 orð | 1 mynd

Þingi frestað frekar en jólunum

EKKI var laust við að þingmönnum væri létt þegar þinglok nálguðust í gær. Eins og oft þegar þreytumerki eru farin að sjást á fólki var boðið upp á kærkomið konfekt. Síðustu vikuna hafa margir spáð því hvenær þingstörfum lyki. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 100 orð | 1 mynd

Þingnefndum fækkað úr 12 í 7?

FÆKKA mætti fastanefndum Alþingis úr tólf í sjö í sparnaðarskyni og til hagræðis. Þetta kom fram í máli Sturlu Böðvarssonar, forseta Alþingis, við lok síðasta þingfundar ársins í gær. Meira
23. desember 2008 | Innlendar fréttir | 258 orð | 1 mynd

Þjónustan mun skerðast

Eftir Björn Jóhann Björnsson og Silju Björk Huldudóttur HALLDÓR Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og bæjarstjóri á Ísafirði, segir í viðtali í Morgunblaðinu í dag að staða sveitarfélaga sé misjöfn en öll þurfi þau með einhverjum... Meira

Ritstjórnargreinar

23. desember 2008 | Leiðarar | 303 orð

Sofið á verðinum

Íslendingar hafa sofnað á verðinum. Forvarnarstarf vegna alnæmis virðist hafa legið í láginni og ungt fólk gerir sér ekki grein fyrir hættunni sem af sjúkdómnum stafar. Enn smitast einn Íslendingur á mánuði af veirunni. Meira
23. desember 2008 | Leiðarar | 259 orð

Staðið í ístaðinu

Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri mælti fyrir frumvarpi að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar á borgarstjórnarfundi í gær. Áætlunin tekur verulegt mið af hinum nýja veruleika, sem blasir við í efnahagsmálunum. Meira
23. desember 2008 | Staksteinar | 206 orð | 1 mynd

Verðtryggingarmögnun ríkisins

Verðtryggingin bítur. Og hún bítur fast. Háværar kröfur hafa komið fram um afnám verðtryggingarinnar, en ríkisstjórnin hefur látið þær sem vind um eyru þjóta. Meira

Menning

23. desember 2008 | Kvikmyndir | 233 orð | 2 myndir

Allt eins og það á að vera

ÞAÐ er vel við hæfi að jólamyndin Four Christmases sé á toppi seinasta Bíólistans fyrir jól. Tæplega tvö þúsund bíógestir skelltu sér á myndina um síðustu helgi og er því heildarfjöldi gesta kominn upp í 12. Meira
23. desember 2008 | Tónlist | 74 orð | 1 mynd

Annað líf

SJALDAN hefur verið jafn djúpt á strákasveit og Take That en popplagasmíðar Gary Barlow risu giska hátt upp fyrir þá meðalmennsku sem er iðulega stunduð í þeim geiranum. Meira
23. desember 2008 | Tónlist | 71 orð | 1 mynd

Annars flokks sirkus

SAMHENGISINS vegna er ekki annað hægt en að skoða plötu Lennys Kravitz frá 1995 sem heitir því skemmtilega nafni ...Circus . Meira
23. desember 2008 | Kvikmyndir | 159 orð | 1 mynd

Carrey á kunnuglegum slóðum

NÝJASTA grínmynd Jims Carreys skaust beinustu leið á toppinn í Bandaríkjnum eftir að talið var upp úr kössunum þar vestra. Meira
23. desember 2008 | Tónlist | 428 orð | 1 mynd

Er tónlistin á leið út úr Kastljósi?

Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@mbl.is SVO gæti farið, vegna niðurskurðar hjá RÚV, að tónlistaratriði yrðu fjarlægð úr Kastljósi. Þar myndi hverfa eitt besta kynningarpláss íslenskra tónlistarmanna í sjónvarpi í dag. Meira
23. desember 2008 | Menningarlíf | 558 orð | 2 myndir

Fallegar manneskjur

Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is Jólasýning Þjóðleikhússins er Sumarljós, byggð á hinni rómuðu skáldsögu Sumarljós og svo kemur nóttin eftir Jón Kalman Stefánsson. Verkið er safn tengdra sagna og brota. Meira
23. desember 2008 | Bókmenntir | 190 orð | 2 myndir

Fyrst og fremst pólitískur

BRESKA leikskáldið Adrian Mitchell, sem þekktur var fyrir ádeiluljóð sín um kjarnorkustríð, Víetnam, fangelsi og kynþáttahatur, er látinn í Bretlandi 76 ára að aldri. Meira
23. desember 2008 | Fólk í fréttum | 111 orð | 1 mynd

Gömul kona aðstoðaði kvennagullið McConaughey

82 ÁRA mexíkönsk kona kom hinum myndarlega leikara Matthew McConaughey til bjargar þegar bíllinn hans bilaði. Hann var á fjórtán daga ferðalagi í Mexíkó með vini sínum þegar atvikið átti sér stað. Meira
23. desember 2008 | Fólk í fréttum | 177 orð | 1 mynd

Héldu brúðkaupsveislu

LEIKKONAN Jessica Alba hélt brúðkaupsveislu á heimili sínu síðasta föstudag, sjö mánuðum eftir að hún gifti sig. Meira
23. desember 2008 | Fjölmiðlar | 178 orð | 1 mynd

Hugheilar jólakveðjur

UPPLESTUR á jólakveðjum er siður sem mörgum landsmönnum þykir afar vænt um. Um leið eru kveðjurnar einkennandi fyrir það hlutverk sem ríkisútvarp getur haft í litlu samfélagi við að þjappa fólki betur saman á hátíðastundum. Meira
23. desember 2008 | Fólk í fréttum | 149 orð | 1 mynd

Hvað gerir Björk í Norræna húsinu í dag?

*Norræna húsið hefur staðið fyrir skemmtilegum uppákomum nú í desember; svokölluðu jóladagatali sem fram hefur farið á hverjum degi. Dagatalið hefur verið þannig að alla daga kl. 12.34 hafa ýmsir listamenn verið með uppákomu í 15 til 20 mínútur. Meira
23. desember 2008 | Fólk í fréttum | 226 orð | 1 mynd

Jackson alvarlega veikur

POPPARINN Michael Jackson hefur greinst með erfðasjúkdóminn A1AD sem getur reynst banvænn. Meira
23. desember 2008 | Fólk í fréttum | 115 orð | 9 myndir

Jólagjafir handa „óvini“ þínum

Nú fer hver að verða síðastur að klára jólagjafainnkaupin og eins og oft vill verða raðast þeir síðast á listann sem maður...elskar „minnst“, skulum við segja. Hér að neðan má sjá lista sem gæti auðveldað einhverjum innkaupin. Meira
23. desember 2008 | Tónlist | 977 orð | 3 myndir

Jólalag sem bragð er að

Eftir Höskuld Ólafsson hoskuldur@mbl.is AUGLÝSINGALAG Coca Cola frá árinu 1971, sem hefst á ljóðlínunum „I'd like to buy the world a home and furnish it with love,“ er ábyggilega með þekktustu lagstúfum sjónvarpssögunnar. Meira
23. desember 2008 | Tónlist | 81 orð | 1 mynd

Krabbameinssjúk börn styrkt

TÍUNDU árlegu tónleikarnir til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna verða haldnir í Háskólabíói laugardaginn 27. desember kl. 16.00. Einar Bárðarson átti hugmyndina að þessum árlega viðburði. Lið valinkunnra listamanna kemur fram. Meira
23. desember 2008 | Bókmenntir | 192 orð | 1 mynd

Litlar sviptingar á bóksölulistanum

ÞAÐ er ekki hægt að segja að landinn velji sér léttmeti til að lesa eða gefa um þessar mundir því þrjár mest seldu bækur landsins þykja nokkuð svartar. Meira
23. desember 2008 | Fólk í fréttum | 127 orð | 1 mynd

Nýtt umslag sett á korteri fyrir jól

* Fyrsta upplag af fyrstu plötu hljómsveitarinnar Retro Stefson , Montaña , er uppselt hjá útgefanda. Annað upplag af plötunni kom í búðir í gær en þó með örlítið breyttu sniði. Meira
23. desember 2008 | Menningarlíf | 75 orð | 1 mynd

Síðasta sýningarhelgi hjá Kiru Kiru

SÝNING Kiru Kiru, Kristínar Bjarkar Kristjánsdóttur, í Suðsuðvestur lýkur sunnudaginn 28. desember, svo nú fara að verða síðustu forvöð að skoða hana. Sýningin „Spilar út“ er hljóðverk ásamt 16 mm filmu og verður opið á milli kl. Meira
23. desember 2008 | Tónlist | 499 orð | 1 mynd

Skemmtilega röng hilla

Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is EINN af þeim sem troða upp á tónleikum á NASA næsta laugardag er myndlistarmaðurinn og tónlistarmaðurinn Egill Sæbjörnsson. Haustið 2000 kom út plata hans, Tonk of the Lawn sem kom mörgum í opna skjöldu. Meira
23. desember 2008 | Tónlist | 229 orð | 1 mynd

Spiluðu tæplega 40 helgar á árinu sem er að líða

Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „OKKUR telst til að við höfum spilað um 38 helgar á þessu ári. Meira
23. desember 2008 | Fólk í fréttum | 109 orð | 2 myndir

Stress og ofþreyta

KÆRASTA Lindsay Lohan, Samantha Ronson, heimsótti sjúkrahús á sunnudaginn. Meira
23. desember 2008 | Bókmenntir | 109 orð

Styrkir Snorra Sturlusonar

STYRKIR Snorra Sturlusonar hafa nú verið veittir í sautjánda sinn. Meira
23. desember 2008 | Tónlist | 68 orð | 1 mynd

Söngur í galleríi á Laugaveginum

HLÍN Pétursdóttir sópransöngkona ætlar að syngja í Gallerí Marló á Laugaveginum í dag á milli kl. 16 og 17, gestum og gangandi til yndisauka á Þorláksmessu. Hún syngur m.a. ljóð eftir Nínu Björk Árnadóttur við lag Atla Heimis Sveinssonar. Meira
23. desember 2008 | Myndlist | 196 orð | 1 mynd

Tilbrigði við gömlu meistarana

Opið alla daga nema mánudaga kl. 14-17. Sýningu lýkur 23. desember. Aðgangur ókeypis. Meira
23. desember 2008 | Tónlist | 128 orð | 2 myndir

Vilhjálmur vinsæli

PÁLL Óskar með Silfursafnið og diskur með upptöku frá minningartónleikum um Vilhjálm Vilhjálmsson hafa barist hart um toppsæti Tónlistans seinustu vikur. Meira
23. desember 2008 | Tónlist | 223 orð | 1 mynd

Vissu ekki af notkun lagsins í lesbíu-sjónvarpsþætti

Eftir Birgi Örn Steinarsson biggi@mbl.is AÐDÁENDUR bresku sjónvarpsþáttanna Sugar Rush er sýndir eru á Skjá 1 og fjalla um táningslesbíur í Brighton hafa líklegast einhverjir tekið eftir því að eitt helsta þemalag þáttanna er íslenskt. Meira
23. desember 2008 | Tónlist | 65 orð | 1 mynd

Vont og það versnar

ÞAÐ er táknrænt, nafnið á nýjustu plötu poppprinsessunnar Britney Spears, enda hefur líf hennar verið algjör sirkus undanfarin ár. Hið sama má e.t.v. segja um þessa plötu, hún er hálfgerður sirkus (í neikvæðum skilningi þess orðs). Meira
23. desember 2008 | Tónlist | 680 orð | 2 myndir

Þvoði fætur fátækra og þurrkaði með hári sínu

Söngur þessi er mjög merkilegur, ekki aðeins fyrir það, hve gamall hann er, heldur einkum fyrir hitt, að hann er orktur á Íslandi, eftir íslenzkum rímreglum og undir íslenzkum bragarháttum. Meira

Umræðan

23. desember 2008 | Aðsent efni | 682 orð | 1 mynd

Af oflæti Morgunblaðspistlahöfundar

Birna Þórðardóttir gerir athugasemdir við skrif Kolbrúnar Bergþórsdóttur: "...vita má Kolbrún Bergþórsdóttir – sem og aðrir er hrokans njóta – að fallið getur borið brátt að..." Meira
23. desember 2008 | Aðsent efni | 669 orð | 1 mynd

ESB-stefna Samfylkingar?

Stefán Jóhann Stefánsson skrifar um Samfylkinguna og Evrópumál: "Samfylkingin hefur ekki lokið undirbúningi í samræmi við lýðræðislegar samþykktir og getur því ekki skrifað undir umsókn um aðild að ESB." Meira
23. desember 2008 | Pistlar | 484 orð | 1 mynd

Hann fékk bók, en hún . . .

Í dag er Þorláksmessa. Viku fyrir jól lítur alltaf út fyrir að Þorláksmessa verði mesti rólegheitadagur. Meira
23. desember 2008 | Aðsent efni | 1597 orð | 1 mynd

Nýi sáttmáli

Eftir Bjarna Snæbjörn Jónsson: "Óánægja með ríkjandi ástand er aflvaki breytinga. Því meiri óánægja, því meira afl í breytingarnar." Meira
23. desember 2008 | Blogg | 210 orð | 1 mynd

Sigurbjörn Sveinsson | 22. des. Verðlögð út af markaðnum Ég fór í bæinn...

Sigurbjörn Sveinsson | 22. des. Verðlögð út af markaðnum Ég fór í bæinn í gær, sunnudag, með fjölskyldunni. Ég leit inn í ýmsar búðir og athugaði verðið á veitingastöðunum. Allt hafði hækkað eins og við var að búast. Meira
23. desember 2008 | Aðsent efni | 406 orð | 1 mynd

Síðasti íþróttaþátturinn á RÚV búinn!

Daníel Jakobsson skrifar um niðurskurð á íþróttafréttum: "Sú staða er uppi að síðasti íþróttaþátturinn á RÚV hefur farið í loftið. Vegna niðurskurðar verða engir íþróttaþættir á dagskrá." Meira
23. desember 2008 | Aðsent efni | 413 orð | 2 myndir

Til hamingju Árborg, Hveragerði, Akranes, Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit

Jórunn Frímannsdóttir skrifar um strætisvagnasamgöngur nokkurra helstu nágrannasveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins: "Með þessari stórauknu þjónustu hefur Strætó opnað kraftmikla lífæð milli nokkurra helstu byggðarkjarna í nágrenni höfuðborgarinnar" Meira
23. desember 2008 | Aðsent efni | 59 orð

Veit ekkert um þau mál

VEGNA greinar sem birtist í Morgunblaðinu í gær vil ég taka fram að ég hef aldrei á ævi minni tjáð mig um viðskipti Lúðvíks Bergvinssonar alþingismanns, enda veit ég ekki neitt um þau. Meira
23. desember 2008 | Velvakandi | 379 orð | 1 mynd

Velvakandi

Hvar er fyrirmyndarstofnunin? STARFSMENN Ríkisskattstjóraembættisins kusu stofnunina bestu ríkisstofnunina. En hvað um viðskiptavinina? Væntanlega hefðu útrásarvíkingarnir kosið eins. Meira
23. desember 2008 | Aðsent efni | 787 orð | 1 mynd

Þorláksmessuslagurinn 1968 og eftirmál

Gylfi Guðjónsson skrifar um mótmæli fyrr og nú: "Ungar stúlkur úr Æskulýðsfylkingunni voru mjög aðgangsharðar, bæði þarna og síðar. Þær bitu og slógu lögreglumenn og spörkuðu í punginn á þeim ef færi gafst." Meira

Minningargreinar

23. desember 2008 | Minningargreinar | 693 orð | 1 mynd

Jóhannes Vilhjálmsson

Jóhannes Vilhjálmsson fæddist í Sveinskoti á Álftanesi 6. apríl 1936. Hann andaðist á Landspítalanum 5. september síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Halla Bjarnadóttir frá Leiðólfsstöðum í Flóa, f. 17. ágúst 1900, d. 2. Meira  Kaupa minningabók
23. desember 2008 | Minningargreinar | 357 orð | 1 mynd

Jón Halldórsson

Jón Halldórsson fæddist á Skálmarnesmúla í Múlasveit í Austur-Barðastrandarsýslu 28. okt. 1917. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 8. desember síðastliðinn. Meira  Kaupa minningabók
23. desember 2008 | Minningargreinar | 779 orð | 1 mynd

Stefán Guðmundsson

Stefán Guðmundsson fæddist á Mýrum í Skriðdalshreppi í S-Múl. 30. apríl 1943. Hann lést á Landspítalanum þriðjudaginn 9. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðmundur Sveinsson og Pálína Fanney Stefánsdóttir. Systkini Stefáns eru Jónína Salný, f. Meira  Kaupa minningabók
23. desember 2008 | Minningargreinar | 315 orð | 1 mynd

Sveinbjörn Veturliðason

Sveinbjörn Veturliðason fæddist á Lækjamótum á Ísafirði 18. desember 1928 og bjó þar öll sín æviár. Hann lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði 8. desember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Ísafjarðarkirkju 13. desember síðastliðinn. Meira  Kaupa minningabók
23. desember 2008 | Minningargreinar | 1205 orð | 1 mynd

Vigfúsína Bjarnadóttir

Vigfúsína Bjarnadóttir, eða Sína, eins og hún var jafnan kölluð, fæddist á Fjallaskaga, ysta bæ við Dýrafjörð norðanverðan, 2. nóvember 1918. Hún lést á Hrafnistu að morgni 10. desember síðastliðins og var jarðsungin frá Fossvogskirkju 18. desember. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

23. desember 2008 | Viðskiptafréttir | 293 orð | 1 mynd

Eignir gerðar verðlausar

Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl. Meira
23. desember 2008 | Viðskiptafréttir | 95 orð | 1 mynd

Ekki „frítt“ heldur 0 kr.

Farsímafyrirtækið Nova hyggst fara að tilmælum Neytendastofu og bjóða viðskiptavinum sínum áfram að hringja sín á milli á 0 kr. í allt að 1.000 mínútur á mánuði. Meira
23. desember 2008 | Viðskiptafréttir | 58 orð

Exista úr Kauphöll

Úrvalsvísitalan í Kauphöllinni á Íslandi lækkaði um 1,5% í gær og var lokagildi hennar 350 stig . Mest lækkun varð á hlutabréfum Exista, um 33%, og á bréfum Straums-Burðaráss , um 6,7%. Meira
23. desember 2008 | Viðskiptafréttir | 95 orð

Frestun misráðin

Ákvörðun menntamálanefndar Alþingis um að fresta afgreiðslu frumvarps um Ríkisútvarpið ohf. var afar misráðin að mati Viðskiptaráðs. Nefndin ákvað fyrir helgi að fresta afgreiðslu frumvarpsins, sem fól m.a. Meira
23. desember 2008 | Viðskiptafréttir | 71 orð | 1 mynd

Geir vissi ekki af tilboði FSA vegna Icesave

Forsætisráðherra segist ekki hafa vitað, fyrir yfirtöku íslenska ríkisins á Landsbanka Íslands , um tilboð breska fjármálaeftirlitsins (FSA) um að gegn 200 milljóna punda fyrirgreiðslu væri FSA tilbúið að færa reikninga Icesave yfir í breska lögsögu. Meira
23. desember 2008 | Viðskiptafréttir | 164 orð

Greitt út af Icesave-reikningum í Bretlandi

MEIRIHLUTI þeirra, sem áttu innstæður á Icesave-reikningum Landsbankans í Bretlandi, hefur fengið þær greiddar út. Þetta kemur fram í frétt á bresku fréttaveitunni The Press Association. Meira
23. desember 2008 | Viðskiptafréttir | 98 orð

Sala á Kaupþingi í Svíþjóð eftir áramót

SKRIFAÐ hefur verið undir viljayfirlýsingu um sölu á mestum hluta af Kaupþingi í Svíþjóð til finnska bankans Ålandsbanken , að því er segir á fréttavef sænska blaðsins Dagens Industri. Þá segir að gengið verði endanlega frá sölunni í byrjun næsta árs. Meira
23. desember 2008 | Viðskiptafréttir | 143 orð | 1 mynd

Selja Refresco

AÐ SÖGN Júlíusar Þorfinnssonar talsmanns Stoða, áður FL Group, hafa fjárfestingar- og umbreytingarfyrirtækin Blackstone og Lion Capital sýnt eignarhlut Stoða í hollenska drykkjarvörufyrirtækinu Refresco áhuga, en eignarhlutur félagsins hefur verið í... Meira

Daglegt líf

23. desember 2008 | Daglegt líf | 471 orð | 2 myndir

Blönduós

Þennan dag fyrir 815 árum dó Þorlákur Þórhallsson helgi, biskup í Skálholti, maður sem Jóhannes Páll II. páfi útnefndi verndardýrling Íslands árið 1985. Meira
23. desember 2008 | Daglegt líf | 852 orð | 4 myndir

Gervitré með platberjum og kisa uppi á þaki

Ekki er allt sem kemur fyrir í textum jólalaganna gegnsætt og vel skiljanlegt. Fimm ára sérfræðingar Morgunblaðsins rýndu í þá og áttu ekki í vandræðum með að útskýra hin undarlegustu atriði í jólasöngvunum. Meira
23. desember 2008 | Daglegt líf | 103 orð

Íslands gæfusól

Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd var að hugsa um yfirstandandi erfiðleika: Þegar kvelst í máli meins og mæðu þjóðarbú, hvað mun annað hjálpa eins og himingefin trú? Meira

Fastir þættir

23. desember 2008 | Fastir þættir | 171 orð

Brids - Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is

Betri hugmynd. Norður &spade;K8542 &heart;G3 ⋄K10 &klubs;ÁK104 Vestur Austur &spade;D1097 &spade;Á3 &heart;95 &heart;K10764 ⋄987643 ⋄ÁD52 &klubs;5 &klubs;G3 Suður &spade;G6 &heart;ÁD82 ⋄G &klubs;D98762 Suður spilar 5&klubs;. Meira
23. desember 2008 | Í dag | 27 orð

Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hver annan. Eins og...

Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hver annan. Eins og ég hef elskað yður, skuluð þér einnig elska hver annan. (Jóh. 13, 34. Meira
23. desember 2008 | Árnað heilla | 27 orð | 1 mynd

Reykjavík Berta María fæddist 3. júní kl. 22.15. Hún vó 3.375 g og var...

Reykjavík Berta María fæddist 3. júní kl. 22.15. Hún vó 3.375 g og var 50,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Þóra Magnea Helgadóttir og Guðmundur Þorkell... Meira
23. desember 2008 | Árnað heilla | 27 orð | 1 mynd

Reykjavík Fjóla Dís fæddist 18. maí kl. 16.58. Hún vó 4.165 g og var 52...

Reykjavík Fjóla Dís fæddist 18. maí kl. 16.58. Hún vó 4.165 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Ingibjörg Edda Birgisdóttir og Helgi Björn... Meira
23. desember 2008 | Árnað heilla | 26 orð | 1 mynd

Reykjavík Máni Snær fæddist 20. apríl kl. 23.54. Hann vó 2.745 g og var...

Reykjavík Máni Snær fæddist 20. apríl kl. 23.54. Hann vó 2.745 g og var 47 cm langur. Foreldrar hennar eru Brynja Dan Gunnarsdóttir og Axel... Meira
23. desember 2008 | Fastir þættir | 155 orð | 1 mynd

Skák - Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is

1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. Be2 O-O 6. Rf3 e5 7. O-O Rbd7 8. Dc2 Rh5 9. Hd1 Rf4 10. Bf1 c5 11. dxc5 dxc5 12. a3 Re6 13. b4 g5 14. Rd5 g4 15. Re1 Rb8 16. Be3 Rc6 17. bxc5 Rcd4 18. Bxd4 Rxd4 19. Dc3 f5 20. exf5 Bxf5 21. De3 Hc8 22. Meira
23. desember 2008 | Árnað heilla | 187 orð | 1 mynd

Stóri pakkinn daginn eftir

GÚSTAV Arnar, fyrrverandi forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, ætlar að reyna að ljúka jólainnkaupunum fyrripart dagsins því að í kvöld ætlar hann að fagna sjötíu og fimm ára afmælinu sínu. Meira
23. desember 2008 | Fastir þættir | 314 orð

Víkverjiskrifar

Víkverji lét loksins verða af því að höggva sitt eigið jólatré fyrir hátíð ljóss og friðar. Hingað til hefur hann látið sér nægja að festa kaup á því í búð. Meira
23. desember 2008 | Í dag | 138 orð | 2 myndir

Þetta gerðist...

23. desember 1878 Í Ísafold birtist auglýsing sem samkvæmt Sögu daganna markar upphaf jólaauglýsingaflóðsins. Hún var svohljóðandi: „Jóla- og nýársgjafir. Meira

Íþróttir

23. desember 2008 | Íþróttir | 110 orð | 1 mynd

„Við duttum í lukkupottinn“

JACOB Landtved, íþróttastjóri danska handknattleiksliðsins GOG, lýsti í gær yfir mikilli ánægju með að hafa fengið Guðmund Þ. Guðmundsson til starfa sem þjálfara karlaliðs félagsins frá og með sumrinu 2009. Meira
23. desember 2008 | Íþróttir | 145 orð | 1 mynd

Boston Celtics jafnaði félagsmetið

MEISTARALIÐ Boston Celtics virðist óstöðvandi í NBA-deildinni í körfuknattleik. Liðið vann sinn 18. leik í röð í fyrrinótt á heimavelli gegn New York Knicks, 124:105, og er það jöfnun á félagsmeti. Meira
23. desember 2008 | Íþróttir | 1513 orð | 1 mynd

Er með alveg hrikalega skemmtilegt lið

„ÞAÐ hefur gengið mjög vel hjá okkur í vetur, því er ekki að neita,“ sagði Alfreð Gíslason, þjálfari þýska meistaraliðsins Kiel, þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hans. Meira
23. desember 2008 | Íþróttir | 261 orð | 2 myndir

Fólk sport@mbl.is

Helena Sverrisdóttir körfuknattleikskona skoraði sjö stig fyrir bandaríska háskólaliðið TCU í fyrrinótt þegar liðið tapaði gegn Texas A&M 64:50. Þetta var annar tapleikur TCU í röð í NCAA-deildakeppninni. Meira
23. desember 2008 | Íþróttir | 430 orð | 3 myndir

Fólk sport@mbl.is

Albert Capellas, yfirþjálfari barna- og unglingastarfs spænska knattspyrnustórveldisins Barcelona , verður hér á landi á milli jóla og nýárs á vegum Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands. Hann heldur tvo fyrirlestra í Fífunni í Kópavogi sunnudaginn 28. Meira
23. desember 2008 | Íþróttir | 153 orð

Gunnar og Jóhanna sigruðu í dýfingum

GUNNAR Sigurðsson og Jóhanna Rakel Jónasdóttir sigruðu á jólamóti hins Íslenska dýfingafélags sem haldið var á sunnudaginn. Meira
23. desember 2008 | Íþróttir | 157 orð | 1 mynd

Heiðar valinn í úrvalslið vikunnar

HEIÐAR Helguson er í liði vikunnar í ensku 1. deildinni í knattspyrnu hjá opinberri síðu deildakeppninar, The Football League, fyrir frammistöðu sína með QPR gegn Preston á laugardaginn. Meira
23. desember 2008 | Íþróttir | 365 orð | 10 myndir

Hver hreppir hnossið í ár?

ÍÞRÓTTAMAÐUR ársins 2008 verður útnefndur í hófi á Grand hóteli Reykjavík föstudaginn 2. janúar. Þetta verður í 53. sinn sem Samtök íþróttafréttamanna, SÍ, standa að kjörinu frá stofnun þeirra árið 1956. Meira
23. desember 2008 | Íþróttir | 219 orð

Ísland tólfta fremsta handknattleiksþjóð Evrópu samkvæmt lista EHF

ÍSLAND er tólfta fremsta handknattleiksþjóð Evrópu, sú tíunda besta í karlaflokki og sautjánda besta í kvennaflokki, samkvæmt styrkleikalista Handknattleikssambands Evrópu fyrir árið 2008 sem gefinn hefur verið út. Meira
23. desember 2008 | Íþróttir | 79 orð

KNATTSPYRNA England Úrvalsdeild: Everton – Chelsea 0:0 Rautt...

KNATTSPYRNA England Úrvalsdeild: Everton – Chelsea 0:0 Rautt spjald : John Terry (Chelsea) 35. Staðan: Liverpool 18116127:1239 Chelsea 18115236:738 Aston Villa 18104430:2034 Man. Meira
23. desember 2008 | Íþróttir | 218 orð | 1 mynd

Lið Chelsea mistókst að tryggja sér toppsætið á Goodison Park í gær

LÆRISVEINUM Luiz Felipe Scolari hjá Chelsea mistókst í gær að tryggja sér toppsætið í ensku úrvalsdeildinni, þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Everton á Goodison Park í Liverpool. Meira
23. desember 2008 | Íþróttir | 204 orð | 1 mynd

Margrét Kara komin heim frá Bandaríkjunum og samdi við KR-inga

MARGRÉT Kara Sturludóttir landsliðskona í körfuknattleik, skrifaði í gær undir þriggja ára samning við KR en þangað kemur hún frá Bandaríkjunum. Meira
23. desember 2008 | Íþróttir | 183 orð | 1 mynd

Níu úr hópíþróttum á topp tíu

TÍU efstu íþróttamennirnir í kjöri Samtaka íþróttafréttamanna á Íþróttamanni ársins 2008 eru kunngjörðir í dag. Sá sem efstur varð í kjörinu verður útnefndur í hófi á Grand hóteli Reykjavík föstudaginn 2. janúar. Þetta er í 53. Meira
23. desember 2008 | Íþróttir | 460 orð

Stefnum ofar en í fyrra

Eftir Skúla Unnar Sveinsson skuli@mbl.is „ÞAÐ eru orðin sex ár síðan ég lék síðast með Keflavík,“ sagði Haukur Ingi Guðnason knattspyrnumaður, sem í gær skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.