Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Skil á drykkjarumbúðum til Endurvinnslunnar hafa aldrei verið betri en í fyrra en alls var 87,2% af seldum umbúðum skilað árið 2012.
Meira
Mikill fjöldi Íslendinga kemur að sjálfboðastarfi og er talið að hátt í 40% þjóðarinnar vinni að einhvers konar sjálfboðastarfi á hverju ári, eða um 130 þúsund manns.
Meira
Ranglega var farið með nafn Arnheiðar Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Skýrslutæknifélagsins, í myndatexta í blaðinu sl. laugardag um UT-verðlaunin. Beðist er velvirðingar á...
Meira
„Ég er mjög ánægður með ákvörðun atvinnuvegaráðherra og Hafrannsóknastofnunar að hafa komið til móts við okkur og gefið út viðbótarkvóta fyrir loðnu, byggðan á bráðabirgðaútreikningum á stærð veiðistofnsins,“ segir Vilhjálmur Vilhjálmsson,...
Meira
Eldspúandi Leikur að ljósi og eldi var meðal þess sem brá fyrir í gærkvöldi við Austurvöll á Kærleikum Bergljótar Arnalds. Fólk opnaði hjörtu sín og hleypti inn ástinni eins og vera...
Meira
Bresk stjórnvöld munu birta í dag skýrslu um framlag Skotlands til Stóra-Bretlands en skýrslan kemur í kjölfarið á kröfu margra Skota um sjálfstæði.
Meira
Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Samband íslenskra loðdýrabænda bindur vonir við að breytingar á starfi ráðunauta og ráðgjöf til greinarinnar, sem tóku gildi um áramótin, muni auka þjónustu við loðdýrabændur.
Meira
„Reynslan hefur verið mjög góð og sýnt okkur að þetta er vel hægt,“ segir Ingileif Oddsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki, en skólinn hefur starfrækt framhaldsdeild á Hvammstanga í vetur.
Meira
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Ár snáksins hófst í gær samkvæmt kínversku tímatali og lauk þar með ári drekans. Af því tilefni var boðið til kínverskrar nýárshátíðar á Háskólatorgi Háskóla Íslands í gær sem hófst með drekadansi.
Meira
Listi Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir þingkosningarnar 27. apríl nk. var samþykktur á kjördæmisþingi á Akureyri um helgina. Kristján L.
Meira
Hákon Stefánsson, framkvæmdastjóri Creditinfo, segir að þau gögn sem fyrirtækið hefur safnað saman bendi til þess að enn sé að hægja á efnahagsmálum.
Meira
Kínverjar kvöddu ár drekans í gær og fögnuðu ári snáksins með dansi og flugeldum. Hátíðarhöldin halda áfram í dag en víða í Kína er venja að vinir og fjölskylda hittist og fagni áramótunum saman líkt og gert er á Vesturlöndum.
Meira
Liðsmenn úr Björgunarsveitinni Tintron komu tveimur fullorðnum og fjórum börnum til aðstoðar á sjötta tímanum í gærmorgun en fólkið hafði þá setið fast í tveimur jeppum næturlangt í nágrenni Skjaldbreiðs.
Meira
Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Góð samstaða er meðal hjúkrunarfræðinga um að standa við uppsagnir sínar nema betra tilboð berist. Kom það fram á fjölmennum samstöðufundi hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum í gær.
Meira
Yfir helmingur Íslendinga, eða um 60%, virðist ekki vita að 112 er ekki aðeins neyðarnúmerið á Íslandi heldur einnig samræmt neyðarnúmer í löndum ESB.
Meira
Meira en 650 þúsund heimili í Bandaríkjunum voru án rafmagns yfir helgina þegar öflugt hríðarveður gekk yfir norðaustur hluta landsins. Mestur snjór féll í ríkjum í Nýja Englandi og á svæðinu í kringum New York-ríki.
Meira
Hápunktur Kumbh Mela, trúarhátíðar hindúa á Indlandi, fór fram í gær en þá baða sig hátt í 30 milljónir pílagríma þar sem fljótin Yamuna og Ganges renna saman. Hátíðin hófst 14.
Meira
Sænska matvælafyrirtækið Findus hefur lagt fram formlega kvörtun til yfirvalda í Frakklandi eftir að í ljós hefur komið að hrossakjöt sem fannst í lasagne fyrirtækisins var ekki vegna mistaka hjá kjötbirgjum þar í landi heldur selt sem nautakjöt af...
Meira
Ákvörðun skipulagsráðs Reykjavíkur frá 19. desember 2012 um breytt deiliskipulag á Hólmsheiði vegna fangelsislóðar að Nesjavallaleið 9 hefur verið kærð til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Meira
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu veit hver ber ábyrgð á líkamsárás sem var framin í félagsheimili Vítisengla í Síðumúla á laugardaginn og verður hann kallaður fyrir í skýrslutöku.
Meira
„67. ársþing KSÍ mótmælir þeirri fyrirætlan mennta- og menningarmálaráðherra að setja lista yfir íþróttaviðburði sem ber að sýna í opinni útsendingu í sjónvarpi án eðlilegs endurgjalds,“ segir m.a.
Meira
Oscar Lopez hefur opnað fyrstu íslensku fréttasíðuna um blandaðar bardagalistir, eða MMA. Slóðin er bardagafregnir.is og þar er fjallað almennt um blandaðar bardagalistir auk þess sem náið er fylgst með íslenskum íþróttamönnum í þessari grein.
Meira
ADHD samtökin fögnuðu á föstudag útgáfu handbókar fyrir kennara sem heitir ADHD og farsæl skólaganga. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, fékk afhent fyrsta eintakið af bókinni.
Meira
Kærleikurinn var alltumlykjandi í gær á hátíðinni Kærleikar sem listamaðurinn Bergljót Arnalds hafði veg og vanda af. Kærleikarnir eru hluti af Vetrarhátíð og er markmiðið með þeim að efla samkennd, gleði og kærleika.
Meira
Landsfundur Samstöðu, flokks lýðræðir og velferðar, fór fram í Kríunesi við Elliðavatn um helgina. Þar var samþykkt að bjóða ekki fram lista í komandi þingkosningum.
Meira
Gengið var frá framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi á kjördæmisþingi í Hveragerði um helgina. Prófkjör fór fram í lok janúar sl. og greiddu tæplega fjögur þúsund manns atkvæði.
Meira
Annað kvöld kl. 20.30 kemur Standard Issue-kvartett fram á KEX Hosteli. Hann skipa Sigurður Flosason, saxófónn, Andrés Þór Gunnlaugsson, gítar, Þorgrímur Jónsson, kontrabassi og Scott McLemore, trommur.
Meira
Rómantíska gamanmyndin Þetta reddast, eftir Börk Gunnarsson, verður frumsýnd 1. mars og má nú sjá stiklu fyrir myndina á YouTube. Björn Thors fer með aðalhlutverkið í myndinni, leikur drykkfelldan...
Meira
Leikritið Tengdó verður sýnt í Hofi á Akureyri 13. og 14. febrúar. Í Tengdó birtist sönn saga ástandsbarns sem leitar föður síns. Valur Freyr, höfundur og annar leikara, segir þar sögu tengdamóður sinnar og horfir gagnrýnum augum á íslenskt samfélag.
Meira
Bæjarstjórn Blönduóss hefur skoðað sameiningu sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu og hyggst vinna úttekt á kostum og göllum sameiningar Blönduósbæjar, Skagastrandar, Húnavatnshrepps og Skagabyggðar.
Meira
Aðrir höfðu fyrir alllöngu áttað sig á því en nú virðist það líka vera runnið upp fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur að ríkisstjórn hennar er búin að vera.
Meira
Vetrarhátíðin var haldin með pomp og prakt um helgina og fjöldi viðburða í boði. M.a. var Safnanótt á föstudagskvöld og Sundlauganótt var á laugardagskvöld, en þá var boðið upp á söng og fleira fyrir sundlaugargesti.
Meira
Við viljum sjá til þess að heimurinn viti af höfundunum okkar og fjölmargir þeirra eiga erindi út fyrir landsteinana. Það er eitt af hlutverkum miðstöðvarinnnar að koma þeim á framfæri með öllum ráðum
Meira
Hvað ertu að hlusta á um þessar mundir? Ég fann fyrir tilviljun linka á Machinefabriek-gaurinn í síðustu viku, sem heitir víst fullu nafni Rutger Zuydervelt. Þetta er ótrúlega forvitnilegt efni og mér finnst gaman að finna eitthvað svona nógu skrýtið.
Meira
Danski spennuþátturinn Glæpurinn hóf göngu sína síðastliðið þriðjudagskvöld. Upphafsatriðið var svo hroðalegt að maður tók fyrir höfuðið og gólaði: „Ég er viðkvæmt blóm, ég get ekki horft á þetta!“ Svo hélt maður vitanlega áfram að horfa.
Meira
Mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur að fenginni tillögu leiklistarráðs úthlutað styrkjum til atvinnuleikhópa árið 2013 en 73 sóttu alls um styrki til 82 verkefna.
Meira
Eftir Tómas Inga Olrich: "Ljóst er að innan sumra ríkja Evrópusambandsins hefur lýðræði veikst. Lýsir það sér í minnkandi áhuga á kosningum til löggjafarþings."
Meira
Eftir Ara Tryggvason: "Erfðabreytt hefur ekkert með fæðuöryggi að gera nema sem hindrun, því er milliliðalaus aðgangur að fæðunni úrslitaatriði."
Meira
Fíkniefnapróf Í fréttum þessa dagana er mikið fjallað um brottrekstur skipverja hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum eftir að fíkniefnapróf leiddu í ljós að viðkomandi hefðu neytt fíkniefna af einhverju tagi.
Meira
Eftir Einar Kristján Haraldsson: "Hvað verður þá um fótboltamót þar sem tjaldað er við íþróttahús, bæjarhátíðir eða jafnvel bara heimsókn í sveitina, þegar ekki má tjalda heima við bæ?"
Meira
Dísa Sigfúsdóttir fæddist á Þórshöfn 16. september 1930. Hún lést á Dvalarheimilinu Hlíð 1. febrúar sl. Foreldrar hennar voru Sigfús Helgason f. 12.10. 1895, d. 26.7. 1936 og Álfheiður Vigfúsdóttir f. 16.11. 1901, d. 5.10. 1985.
MeiraKaupa minningabók
Gyða Ólafsdóttir fæddist í Reykjavík 24. desember 1926. Hún lést á Landspítalanum Fossvogi að kvöldi 3. febrúar síðastliðinn. Foreldrar Gyðu voru hjónin Ólafur Sigurðsson, f. á Núpi í Dýrafirði 20. ágúst 1984, d. 9.
MeiraKaupa minningabók
Halldór Jóhannesson fæddist á Sandá í Svarfaðardal 21. apríl 1922. Hann lést 2. febrúar 2013 í Dalbæ, Dalvík. Útför Halldórs fór fram frá Dalvíkurkirkju 9. febrúar 2013.
MeiraKaupa minningabók
Jónas Hvannberg, bæklunarskurðlæknir, var fæddur í Reykjavík 5. janúar 1978. Hann lést fimmtudaginn 31. janúar, á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, 35 ára að aldri. Foreldrar Jónasar eru Þorbjörg Guðmundsdóttir, og Jónas Hvannberg.
MeiraKaupa minningabók
Magnús Welding Jónsson fæddist í Reykjavík 28. janúar 1950. Hann lést á Landspítalanum 31. janúar 2013. Móðir hans er Elín Magnúsdóttir f. 21.maí 1933, fósturfaðir hans var Jóhannes Jósefsson, f. 15.2. 1930, d. 30.4. 2008.
MeiraKaupa minningabók
Unnur Guðbjörg Þorkelsdóttir hárgreiðslumeistari fæddist í Reykjavík hinn 20. ágúst 1937. Hún lést á líknardeild Landspítalans 4. febrúar 2013. Foreldrar Unnar voru Margrét Einarsdóttir, fædd í Hafnarfirði 1913, d.
MeiraKaupa minningabók
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Síðastliðinn fimmtudag veitti Creditinfo þremur fyrirtækjum sérstaka viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í rekstri. Er þetta þriðja árið í röð sem Creditinfo veitir þessa viðurkenningu.
Meira
Á árinu 2012 tókst Kína að fara fram úr Bandaríkjunum sem stærsta viðskiptaþjóð heims, að því er fréttastofa Bloomberg greinir frá. Heildarmagn inn- og útflutnings til og frá Kína nam 3,87 billjónum dala (e.
Meira
Stjórnvöld í Caracas tilkynntu á föstudag að virði venesúelska bólivarsins yrði fellt um 32%, úr 4,30 á móti dollarnum niður í 6,30 bólívara fyrir hvern dollar. Jafngildir lækkunin því að bandaríkjadalur hækki um 46,5% gagnvart bólivar.
Meira
Hákon Gunnarsson, bóndi í Aðaldal, hefur haldið úti búskap með Galloway-nautgripi í þrjá áratugi. Þessi tegund gefur af sér meira kjöt en sambærilegir gripir eða allt að 350 kg á skrokk.
Meira
Nú stendur yfir sýning á málverkum og skúlptúrum Helga Þorgils í Gerðarsafni. Helgi er listmálari og ber sýningin heitið Tónn í öldu. Sýningin var opnuð 12. janúar. Á vefsíðunni Gerðarsafn.is má finna umfjöllun um verk Helga og texta frá honum.
Meira
Ljóðaslamm Borgarbókasafns var haldið í sjötta sinn á Safnanótt en í því keppir ungt fólk á aldrinum 15-25 ára í orðlist með frjálsri aðferð, þar sem áhersla er ekki síður lögð á flutninginn en orðið sjálft. Þemað í ár var Bilun.
Meira
Námshestar sem ekki nenna að mæta í skóla geta nýtt sér Coursera-vefsíðuna. Inni á henni má finna fyrirlestra háskólakennara úr mörgum af bestu háskólum Bandararíkjanna, þ.á.m. Princeton, Duke og Caltech auk þrettán annarra skóla.
Meira
Verði veður gott kemur alveg til greina að skreppa á skíði í dag. Leika sér aðeins í brekkunum og koma svo heim undir kvöld með eplarjóðar kinnar, beint í bollukaffi,“ segir Þorsteinn Magnússon, lögg. fasteignasali á Selfossi, sem er 43 ára í dag.
Meira
Guðlaugur fæddist í Tröð í Önundarfirði 11.2. 1903, sonur hjónanna Rósinkrans A. Rósinkranssonar, bónda þar, og Guðrúnar Guðmundsdóttur húsfreyju. Rósinkrans var bróðir Sveins, skipstjóra í Hvilft, afa bræðranna Gunnlaugs, skólastjóra og alþm.
Meira
30 ára Heimir ólst upp á Akureyri, stundar nám við frumgreinadeild HR og er verslunarmaður í Herragarðinum í Reykjavík. Maki: Eva Rós Guðmundsdóttir, f. 1981, sem rekur Listdansskóla Hafnarfjarðar. Sonur: Bjartur Kató, f. 2009.
Meira
Orðalagið „tíðni óhappa er há“ er hálfgert hátíðnióhapp. Í fræðum þarf oft að staðla málið en það má oftast nær þýða á mannamál þurfi maður að tala við mann: óhöpp eru algeng , óhöpp eru tíð , óhöpp verða oft , mikið er um óhöpp...
Meira
Selfoss María Sigrún fæddist 25. maí kl. 0.14. Hún vó 3.905 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Hrefna María Hagbarðsdóttir og Valdimar Hjaltason...
Meira
Sveinbjörg fæddist á Siglufirði, var í Barnaskóla og Gagnfræðaskóla Siglufjarðar, hóf níu ára píanónám við Tónlistarskóla Karlakórsins Vísis á Siglufirði hjá Hauki Guðlaugssyni, stundaði nám í píanóleik við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Jóni Nordal,...
Meira
95 ára Kristbjörg M. Jónsdóttir Sigríður Þorláksdóttir 85 ára Guðbjartur Gunnarsson Jón Tryggvi Valentínusson 80 ára Arngrímur Sigurðsson Emil Gunnlaugsson Jón Þórhallsson Þórir G.
Meira
40 ára Unnur lauk stúdentsprófi frá MS, er bóndi og vinnur við Dvalar- og hjúkrunarh. Fellsenda. Maki: Ásgeir Salberg Jónsson, f. 1969, starfsm. á Grundartanga. Börn: Björgvin Óskar, f. 2000; Hilmar Jón, f. 2002, og Hafdís Inga, f. 2004.
Meira
Bolla! Bolla! Bolla! Víkverji fagnar bolludeginum eins og aðrir, með því að troða sig út af hvers kyns bollum. Súkkulaðiglassúr, sulta og rjómi verða í dag aðalfæðuflokkar Víkverja. Nema kjötbollur séu í boði líka!
Meira
Nú í vikunni barst mér lítið ljóðakver, „Vængjum vildi eg berast“, sem ég hafði ekki séð áður eftir Guðmund Geirdal en þau voru samfeðra hann og Halla á Laugabóli.
Meira
11. febrúar 1973 Sjöstjarnan fórst milli Færeyja og Íslands og með henni tíu manns, fimm Íslendingar og fimm Færeyingar. 11. febrúar 1973 Kvikmyndin Brekkukotsannáll, eftir skáldsögu Halldórs Laxness, var frumsýnd í Sjónvarpinu.
Meira
40 ára Þórður ólst upp í Sauðanesi, lauk BS-prófi í búfræði frá Hvanneyri og er ráðunautur og sjúkraflutingam. á Blönduósi. Maki: Ásdís Arinbjarnadóttir, f. 1971, hjúkrunarfræðingur. Börn: Hrafnhildur Una, f. 1996; Páll, f. 1998, og Kristín Helga, f.
Meira
Alfreð Finnbogason, landsliðsmaður í knattspyrnu, var markahæstur í hollensku úrvalsdeildinni í hálftíma á laugardagskvöldið. Alfreð jafnaði fyrir Heerenveen, 2:2, í uppbótartíma gegn Venlo og tryggði liði sínu dýrmætt stig. Það var hans 16.
Meira
Birkir Bjarnason, landsliðsmaður í knattspyrnu, skoraði mark Pescara í gær þegar liðið sótti Palermo heim í miklum fallslag í ítölsku A-deildinni en leikurinn endaði með jafntefli, 1:1.
Meira
HANDBOLTI Skúli Unnar Sveinsson skuli@mbl.is Brynja Magnúsdóttir hefur farið á kostum í liði HK eftir að hún hóf að leika á ný með liðinu eftir að hún náði sér af krossbandasliti. Á laugardaginn gerði hún 12 mörk þegar HK lagði FH 27:25.
Meira
Brynjólfur Óli Karlsson, sundmaður úr Breiðabliki, setti þrjú sveinamet á gullmóti KR sem fram fór í Laugardagslaug um helgina. Hann setti metin í 400 metra fjórsundi, 400 metra skriðsundi og 50 metra flugsundi.
Meira
Hildur Þorgeirsdóttir , landsliðskona í handknattleik, átti stórgóðan leik með Blomberg-Lippe í gær þegar lið hennar sótti Oldenburg heim í þýsku 1. deildinni.
Meira
Hannes Jón Jónsson tryggði Eisenach sigur á Leipzig, 28:27, í þýsku B-deildinni í handknattleik í fyrrakvöld en hann gerði sigurmarkið um hálfri mínútu fyrir leikslok.
Meira
Eiður Smári Guðjohnsen lagði upp eitt marka Club Brugge þegar liðið vann Stefán Gíslason og félaga í OH Leuven, 3:1, í belgísku 1. deildinni í fyrrakvöld. Eiður kom inn á sem varamaður á 64.
Meira
Geir Þorsteinsson var endurkjörinn formaður Knattspyrnusambands Íslands til tveggja ára á ársþingi sambandsins á laugardaginn. Enginn bauð sig fram gegn Geir og sama er að segja um stjórn KSÍ í heild. Hún var öll endurkjörin án mótframboðs.
Meira
Fjórir leikir voru í Mikasa-deildunum í blaki um helgina, tveir í karlaflokki og tveir í kvennaflokki. Staða efstu liða hjá körlum breyttist ekki, en hjá konunum skellti HK sér í annað sætið, upp fyrir Aftureldingu, með því að leggja Stjörnuna að velli.
Meira
Á Akureyri Einar Sigtryggsson sport@mbl.is Nú styttist í úrslitakeppnina í íshokkíinu og karlaliðin tvö sem fara í lokaúrslit buðu upp á frábæran leik á Akureyri á laugardag.
Meira
Í Vesturbænum Kristinn Friðriksson sport@mbl.is KR-ingar tóku á móti Þórsurum, næstefsta liði Dominosdeildarinnar, í gærkvöldi. KR hafði tapað þremur leikjum í röð og þurfti sigur til að viðhalda nánu sambandi við liðin fyrir ofan sig.
Meira
Keflavík tryggði stöðu sína enn frekar á toppi Dominosdeildar kvenna um helgina, eða ef til vill er réttara að segja að KR hafi tryggt stöðu Keflvíkinga á toppnum. Keflavík vann Fjölni á laugardaginn en KR lagði Snæfell í Stykkishólmi.
Meira
England Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Við þurfum ekki að velta okkur upp úr þessu mikið lengur. Manchester United verður enskur meistari í tuttugasta skipti í vor. Og líklega áður en veturinn er liðinn, með þessu áframhaldi.
Meira
Nítján ára bið Nígeríumanna eftir meistaratitli lauk í gær þegar Sunday Mba tryggði þeim 1:0 sigur á Burkina Faso í úrslitaleik Afríkumótsins í knattspyrnu í Jóhannesarborg í Suður-Afríku.
Meira
Þórey Rósa Stefánsdóttir, landsliðskona í handknattleik, var í stóru hlutverki hjá danska liðinu Tvis Holstebro, sem gerði góða ferð til Rússlands í gær.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.