Greinar föstudaginn 20. apríl 2018

Fréttir

20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 113 orð

20 börn fengu styrk frá Vildarbörnum

20 börn og fjölskyldur þeirra fengu í gær ferðastyrk Vildarbarna Icelandair. Hvert barnanna fær skemmtiferð fyrir sig og fjölskyldu sína. Í styrknum felst að allur ferðakostnaður, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 77 orð

Alvarleg rafmagnsbilun í Þorlákshöfn

Laust fyrir 10 í gærkvöldi sló öllu rafmagni út í Þorlákshöfn og nágrenni. Samkvæmt upplýsingum frá Landsneti mun spenni frá RARIK hafa leyst út. Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets, sagði í samtali við mbl. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 23 orð | 1 mynd

Arnar er frár á fæti

Arnar Pétursson stökk í mark þegar hann sigraði í Víðavangshlaupi ÍR í gærmorgun. Hann hljóp kílómetrana fimm á 15 mínútum og 35... Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 82 orð | 1 mynd

Ashkenazy sæmdur stórkrossinum

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sæmdi í gær rússnesk-íslenska hljómsveitarstjórann og píanistann Vladimir Ashkenazy stórkrossi hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðarathöfn á Bessastöðum. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 88 orð | 1 mynd

Auglýst eftir prestum í afleysingar

Biskup Íslands hefur auglýst eftir prestum til að sinna afleysingaþjónustu í tveimur prestaköllum: Borgarprestakalli í Vesturlandsprófastsdæmi og Laufásprestakalli í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 293 orð

„Ég hafna því að fiskarnir séu svo fáir að við höfum ekki rétta...

„Ég hafna því að fiskarnir séu svo fáir að við höfum ekki rétta mynd af ástandi og stærð hgrásleppustofnsins,“ segir Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 345 orð | 2 myndir

Betri sundlaug í Garðabæ í notkun

Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Þetta er gleðidagur hér í Garðabænum. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 67 orð | 1 mynd

Björg Eiríksdóttir bæjarlistamaður

Tilkynnt var á Vorkomu Akureyrarstofu á fimmtudaginn hver yrði bæjarlistarmaður Akureyrar 2018-2019 og varð myndlistarkonan Björg Eiríksdóttir fyrir valinu. Í list sinni hefur Björg fengist við mannlega tilvist, líkama, innra líf og mynstur. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 208 orð | 1 mynd

Bæta þarf mönnun

Mönnun áhafna farþegabáta er eitt þeirra atriða sem rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur skoðað og gert um tillögur í öryggisátt. Í brennidepli hefur verið atvik sem varð sumarið 2016 þegar reykur kom upp í vélarrúmi hvalaskoðunarbáts frá Húsavík. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 327 orð | 1 mynd

Ekki tekjutengt í Vestmannaeyjum

Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Vestmannaeyjabær hefur frá árinu 2012 fellt niður fasteignagjöld á ellilífeyrisþega, 70 ára og eldri, sem búa í eigin húsnæði, óháð tekjum, en í tilkynningu sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið sendi frá sér sl. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 568 orð | 1 mynd

Endurskoða verði mönnun farþegaskipa

Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Mikilvægt er að myndaður verði formlegur vettvangur þannig að þær tillögur í öryggisátt, sem Rannsóknarnefnd samgönguslysa kemur með í kjölfar slysa, óhappa og ýmissa atvika til sjós, leiði til úrbóta og aðgerða. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 433 orð | 2 myndir

Facebook bregst við persónuverndarkröfum

Baksvið Guðm. Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Bandaríska netfyrirtækið Facebook segist á næstunni munu kynna hvernig það ætli að bregðast við nýjum persónuverndarreglum Evrópusambandsins sem taka gildi í lok maí. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 130 orð | 1 mynd

Fjögur gæðaverkefni hlutu styrk

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra veitti styrki til fjögurra gæðaverkefna í heilbrigðisþjónustu í vikunni. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 232 orð | 1 mynd

Formaður, deildarstjóri, rittúlkur og nemi

Dagný Kristinsdóttir, kennari og formaður Aftureldingar, á 40 ára afmæli í dag. Hún er deildarstjóri yfir miðstigi í Varmárskóla í Mosfellsbæ og tók við þeirri stöðu núna í janúar. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 94 orð

Fóru heim með bikarana

Fjöldi viðurkenninga er veittur á skeifudaginn, auk Morgunblaðsskeifunnar. Heiðar Árni Baldursson sigraði í fjórkeppni nemenda og fékk Gunnarsbikarinn sem gefinn var til minningar um Gunnar Bjarnason, fyrrverandi hrossaræktarráðunaut og kennara. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 231 orð | 1 mynd

Fráveitugjaldið 32% hærra í Borgarbyggð

Fráveitugjald Veitna í Borgarbyggð er 32% hærra en í Reykjavík og á Akranesi. Skýrist það af samningum sem sveitarstjórn Borgarbyggðar gerði þegar Orkuveita Reykjavíkur tók við uppbyggingu og rekstri fráveitunnar í Borgarnesi á sínum tíma. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 157 orð | 2 myndir

Fögnuðu sumarkomu í mildu veðri

Sumarkomunni var fagnað með hátíðarhöldum víða um land í gær. Skátar voru í aðalhlutverki og stóðu fyrir skrúðgöngum og samkomuhaldi svo sem í Bústaðahverfinu í Reykjavík þar sem þessar myndir voru teknar. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 305 orð | 1 mynd

Gluggaviðgerðum lýkur í Skálholti

Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Iðnaðarmenn vinna þessa dagana að því að skipta um hlífðargler í gluggum Skáholtskirkju og er það hluti af umfangsmeiri viðgerðum á kirkjunni. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 135 orð | 1 mynd

Glæpaalda á Tenerife

Þorvaldur kostaði sjálfur löggiltar þýðingar á tveimur fréttum úr spænskum fjölmiðlum tengdar málinu. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 174 orð | 1 mynd

Góð aðsókn í sumarbúðir KFUM og KFUK

Útlit er fyrir góða aðsókn að sumarbúðum KFUM og KFUK á komandi sumri. Bókanir nú eru 20% fleiri en þær voru á sama tíma fyrir ári, en sumarið 2017 fóru tæplega 2.600 í sumarbúðir samtakanna. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 243 orð | 1 mynd

Hraðleit eins árs í Keflavík

Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Isavia hefur nú í um ár boðið upp á hraðþjónustu í öryggisleit á Keflavíkurflugvelli. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 248 orð | 1 mynd

Kaupin skapa yfirtökuskyldu

Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Við kaup útgerðarfélagsins Brims hf. á 34,1% hlut Vogunar, dótturfélags Hvals hf. og Fiskveiðihlutafélagsins Venusar, í HB Granda, skapast yfirtökuskylda gagnvart öðrum hluthöfum fyrirtækisins. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 24 orð | 1 mynd

Kristinn Magnússon

Reykjavík Börn og fullorðnir fögnuðu sumri með ýmsum hætti í gær. Nokkrir krakkar notuðu tækifærið og sulluðu svolítið á Ingólfstorgi, enda var komið... Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 89 orð | 1 mynd

Kristján leiðir í Norðurþingi

Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, mun leiða lista Sjálfstæðisflokksins í sveitarfélaginu í sveitarstjórnarkosningunum í lok maí. Kristján varð sveitarstjóri meirihlutastjórnar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna eftir síðustu kosningar. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 146 orð | 4 myndir

Kærkomnir vetrargestir á Seyðisfirði

Óvenjumargir flækingsfuglar þreyðu veturinn í görðum á Seyðisfirði en sýna á sér fararsnið núna þegar varpfuglarnir streyma til landsins. Á meðal þeirra er hettusöngvari, fjallafinka og gráþröstur sem voru í garði einum á Garðarsvegi í vikunni. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 355 orð | 2 myndir

Olla er hestaamman mín

Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég vil leggja allt í að komast vel frá því sem ég geri. Ná því besta sem hægt er út úr hrossinu,“ segir Gunnhildur Birna Björnsdóttir, nemandi á Hvanneyri, sem vann Morgunblaðsskeifuna í ár. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 210 orð

Sá látni var ekki í bílbelti

Í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa um banaslys sem varð á gatnamótum Njarðarbrautar og Tjarnarbrautar í Reykjanesbæ hinn 21. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 818 orð | 1 mynd

Stillt upp sem fjárglæframanni

Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is „Í Arion banka á ég reikning sem ég stofnaði fyrir fjörutíu árum í Búnaðarbankanum. Ég er búinn að eiga við þá farsæl viðskipti og hef alltaf staðið við mitt. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 428 orð

Strokufanginn hugsanlega á Spáni

Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Líkur er á því að strokufanginn Sindri Þór Stefánsson sé kominn til Spánar. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 109 orð

Svikinn um 1,4 milljónir á Tenerife

Íslenskur maður sem var svikinn um 1,4 milljónir króna á Tenerife árið 2015 sakar Arion banka og Valitor um alvarlega vanrækslu. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 89 orð | 1 mynd

Tryggvi Ólafsson hlýtur verðlaun Jóns

Myndlistarmaðurinn Tryggvi Ólafsson er handhafi Verðlauna Jóns Sigurðssonar forseta árið 2018. Það var tilkynnt á hátíðarsamkomu í Jónshúsi í Kaupmannahöfn í gær. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 68 orð | 1 mynd

Tæpar 15 milljónir í ferðakostnað

Heildarferðakostnaður starfsmanna Alþingis árið 2017 nam 14,7 milljónum króna. Frá þessu var greint í svari Steingríms J. Sigfússonar, forseta Alþingis, við fyrirspurn Þorsteins Sæmundssonar, þingmanns Miðflokksins. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 96 orð | 1 mynd

Umdeild andlitskennsl

Bandarískur alríkisdómari úrskurðaði í vikunni, að Facebook yrði að sæta hópmálssókn vegna ásakana um að fyrirtækið hefði beitt andlitskennslum á ljósmyndir án leyfis notenda. Meira
20. apríl 2018 | Innlendar fréttir | 284 orð | 2 myndir

Veiðin undir varúðarmörkum

Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Stefna íslenskra stjórnvalda hefur lengi verið sú að nýta auðlindir hafsins á ábyrgan hátt. Meira

Ritstjórnargreinar

20. apríl 2018 | Leiðarar | 146 orð

Dýr laun

Of mikill munur er orðinn á launakostnaði og launum Meira
20. apríl 2018 | Leiðarar | 450 orð

Nýr belgur, gamalt vín

Kúba fær nýjan forseta en Raúl Castro er skammt undan Meira
20. apríl 2018 | Staksteinar | 212 orð | 1 mynd

Veruleikafirringin og leiðindi línunnar

Trausti Valsson, prófessor emerítus í skipulagi við HÍ, skrifaði á dögunum um borgarlínuhugmynd meirihlutans í borginni, sem gangi út á að „meðfram línunum komi 400 m þéttbýlisbelti á hvora hönd. Meira

Menning

20. apríl 2018 | Tónlist | 57 orð | 1 mynd

Bjöllur frumfluttar

Söngsveitin Ægisif heldur tónleika í Langholtskirkju á morgun kl. 17 og syngur á þeim kórverkið Bjöllurnar ásamt völdum perlum úr Náttsöngvunum eftir Sergej Rachmaninoff. Meira
20. apríl 2018 | Tónlist | 75 orð | 1 mynd

Björgvin útnefndur bæjarlistamaður Hafnarfjarðar

Bæjarlistamaður Hafnarfjarðar árið 2018 er tónlistarmaðurinn Björgvin Halldórsson og var hann útnefndur í fyrradag, á upphafsdegi bæjarhátíðarinnar Bjartir dagar. Í afmæliskveðju sem bærinn sendi söngvaranum á Facebook 16. apríl sl. Meira
20. apríl 2018 | Tónlist | 70 orð | 1 mynd

Blúsmenn í Bæjarbíói

Blúsmenn Andreu halda tónleika í kvöld kl. 20.30 í Bæjarbíói við Strandgötu í Hafnarfirði. Meira
20. apríl 2018 | Fólk í fréttum | 101 orð | 1 mynd

Eltihrellir hjá Swift

Lögreglan í Los Angeles handtók við heimili söngkonunnar Taylor Swift mann sem grunaður er um að vera eltihrellir. Maðurinn var með grímu þegar hann var handtekinn og í bíl hans voru hnífur, skotfæri, hanskar og reipi. Meira
20. apríl 2018 | Tónlist | 67 orð | 5 myndir

Hafnfirðingar kvöddu veturinn með tónlistarhátíðinni Heima í fyrradag, á...

Hafnfirðingar kvöddu veturinn með tónlistarhátíðinni Heima í fyrradag, á síðasta degi vetrar, og var hátíðin nú haldin í fimmta sinn. Að vanda fór hún fram í heimahúsum í miðbænum en einnig í Fríkirkjunni og Bæjarbíói. Meira
20. apríl 2018 | Tónlist | 533 orð | 4 myndir

Hinn smurði í Langholtinu

Kór Langholtskirkju. Stjórnandi: Magnús Ragnarsson. Konsertmeistari: Joaquin Páll Palomares. Einsöngvarar: Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran, Elmar Gilbertsson tenór og Ágúst Ólafsson bassi. Föstudagur 13. apríl kl. 20. Meira
20. apríl 2018 | Fjölmiðlar | 181 orð | 1 mynd

HM(jandi) hetjur í grassverðinum

Þættirnir um sögu heimsmeistaramótsins í knattspyrnu sem RÚV sýnir þessar vikurnar eru um margt merkilegir enda þótt kvikmyndatökumaðurinn (sem virðist hafa verið sá sami frá upphafi) hafi annaðhvort verið sótölvaður í vinnunni eða spastískur af... Meira
20. apríl 2018 | Myndlist | 56 orð | 1 mynd

Innrás Shoplifter

Hrafnhildur Arnardóttir/Shoplifter er annar myndlistarmaðurinn sem ræðst inn í Listasafn Reykjavíkur – Ásmundarsafn í öðrum innrásarlið sýningarinnar List fyrir fólkið og verður sýning hennar opnuð í safninu á morgun kl. 16. Meira
20. apríl 2018 | Tónlist | 28 orð | 1 mynd

Stelkur fagnar útgáfu Stórvals

Kammersveitin Stelkur heldur útgáfutónleika annað kvöld kl. 20 í Árbæjarsafni vegna plötunnar Stórval sem inniheldur samnefnt verk Charles Ross sem er tileinkað og byggt á verkum myndlistarmannsins... Meira
20. apríl 2018 | Fólk í fréttum | 758 orð | 2 myndir

Þegar meistari Cave rífur úr manni hjartað

Cave stjórnar áhorfendum alfarið, biðlar og hvíslar til þeirra, tekur í hendurnar á þeim, faðmar þá, öskrar á þá, lætur þá bera sig. Meira

Umræðan

20. apríl 2018 | Pistlar | 358 orð | 1 mynd

Efling heilsugæslunnar

Styrking heilsugæslunnar er eitt meginmarkmiða ríkisstjórnarinnar. Heilsugæslan ætti að vera fyrsti viðkomustaður allra í heilbrigðiskerfinu, burt séð frá því hvers eðlis vandinn er eða hversu umfangsmikilli þjónustu einstaklingurinn þarf á að halda. Meira
20. apríl 2018 | Aðsent efni | 979 orð | 1 mynd

Eiturörvum Assads breytt í VG-vanda og Katrínar

Eftir Björn Bjarnason: "Tilgangurinn var með öðrum orðum að breyta Sýrlandsmálinu í ágreiningsefni innan lands. Það tókst að nokkru leyti." Meira

Minningargreinar

20. apríl 2018 | Minningargreinar | 515 orð | 1 mynd

Bragi Gunnlaugsson

Bragi Gunnlaugsson, Berufirði II Djúpavogshreppi, andaðist á dvalarheimilinu Skjólgarði Hornafirði 8. apríl 2018. Hann var fæddur 29. apríl 1932. Foreldrar hans voru Helga Einarsdóttir og Gunnlaugur Guðmundsson og var Bragi elstur af 13 systkinum. Meira  Kaupa minningabók
20. apríl 2018 | Minningargreinar | 732 orð | 1 mynd

Erling Viðar Sigurðsson

Erling Viðar Sigurðsson fæddist á Akranesi 29. nóvember 1951. Hann lést á sjúkrahúsinu á Akranesi 10. apríl 2018. Foreldrar hans voru Sigurður Hreinn Ólafsson sjómaður, f. 14. 9. 1933 á Akranesi, d. 18.6. 1978, og Inga Guðmunda Magnúsdóttir, f. 11.12. Meira  Kaupa minningabók
20. apríl 2018 | Minningargreinar | 1257 orð | 1 mynd

Fjóla Pálsdóttir

Fjóla Pálsdóttir fæddist 25. maí 1928 í Hjallanesi í Landsveit. Hún lést á Landspítalanum 10. apríl 2018. Foreldrar hennar voru hjónin Halldóra Oddsdóttir frá Lunansholti f. 29. janúar 1891, d. 10. júlí 1971, og Páll Þórarinn Jónsson frá Holtsmúla, f.... Meira  Kaupa minningabók
20. apríl 2018 | Minningargreinar | 2101 orð | 1 mynd

Guðmundur Reynir Guðmundsson

Guðmundur Reynir Guðmundsson fæddist í Kolviðarnesi í Eyjahreppi 22. mars 1941. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akranesi, 8. apríl 2018. Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson, f. 15. sept. 1902, d. 24. jan. Meira  Kaupa minningabók
20. apríl 2018 | Minningargreinar | 2286 orð | 1 mynd

Guðmundur Þorbjörnsson

Guðmundur Þorbjörnsson útgerðarmaður fæddist á Grenivík 2. júní 1934. Hann lést 5. apríl 2018 á líknardeild Landspítalans. Foreldrar hans voru hjónin Anna Guðmundsdóttir, f. 1907, d. Meira  Kaupa minningabók
20. apríl 2018 | Minningargreinar | 1641 orð | 1 mynd

Jón Ingi Ragnarsson

Jón Ingi Ragnarsson fæddist í Reykjavík 9. júní 1943. Hann lést á líknardeild Landspítalans 9. apríl 2018. Foreldrar hans voru Ragnheiður Magnúsdóttir, kaupmaður og húsmóðir, f. 14.3. 1916, d. 29.4. 1969, og Kristinn Ragnar Jóhannesson kaupmaður, f. 28. Meira  Kaupa minningabók
20. apríl 2018 | Minningargreinar | 1948 orð | 1 mynd

Róbert Örn Ólafsson

Róbert Örn Ólafsson fæddist í Keflavík 9. ágúst 1940. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 7. apríl 2018. Foreldrar hans voru Ólafur R. Guðmundsson verkstjóri, f. 3. maí 1917, d. 13. ágúst 1975, og Dagmar Pálsdóttir matráður, f. 5. janúar 1918, d. Meira  Kaupa minningabók
20. apríl 2018 | Minningargreinar | 930 orð | 1 mynd

Þorsteinn Hjartarson

Þorsteinn Hjartarson fæddist 27.4.1935 í Reykjavík. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 8. apríl 2018. Foreldrar hans voru Sigrún Einarsdóttir, fædd í Flatey á Breiðafirði 29.10. Meira  Kaupa minningabók
20. apríl 2018 | Minningargreinar | 2025 orð | 1 mynd

Þóra Sigríður Sigfúsdóttir

Þóra Sigríður Sigfúsdóttir (Sigga) fæddist 13. desember 1931 í Hvammi í Þistilfirði. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 11. apríl 2018. Foreldrar hennar voru Margrét Jensína Magnúsdóttir, f. 1904, d. 1979, og Sigfús Aðalsteinsson, f. 1902, d.... Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

20. apríl 2018 | Viðskiptafréttir | 324 orð | 1 mynd

Fjöldamótmæli í Frakklandi

Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Fjöldamótmæli hófust í gær í Frakklandi gegn Emmanuel Macron forseta landsins. Frá þessu er sagt á fréttasíðum Huffington Post og AFP . Meira
20. apríl 2018 | Viðskiptafréttir | 161 orð | 1 mynd

Hráolíuverð yfir 74 dali á fatið

Á þriðjudag fór verð Brent-hráolíu yfir 74 dali á fatið og hefur ekki verið hærra síðan 2014. Hefur Brent-hráolía hækkað um 8% það sem af er þessu ári og fór verðið hæst upp í 74,72 dali á þriðjudag. Meira
20. apríl 2018 | Viðskiptafréttir | 145 orð

Með óbilandi trú á íslenskum sjávarútvegi

Viðskiptin með hlutabréfin í HB Granda eru ekkert smáræði og eðlilegt að spyrja Guðmund hvort Brim hafi t.d. skoðað að fjárfesta frekar í öðrum greinum en sjávarútvegi. Meira
20. apríl 2018 | Viðskiptafréttir | 141 orð | 1 mynd

Moon sækist eftir friðarsáttmála

Moon Jae-in, forseti Suður-Kóreu, lýsti því yfir á fimmtudaginn að hann myndi sækjast eftir friðarsáttmála til þess að binda formlega enda á Kóreustríðið á væntanlegum fundi sínum með Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu hinn 27. apríl. Meira
20. apríl 2018 | Viðskiptafréttir | 504 orð | 2 myndir

Stór en viðráðanlegur biti

Viðtal Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is „Við vitum að HB Grandi er gott fyrirtæki og vel rekið. Á síðustu árum hefur verið mikið fjárfest í innviðum félagsins, s.s. Meira

Daglegt líf

20. apríl 2018 | Daglegt líf | 96 orð | 1 mynd

...farið í útileiki í Árbænum

„Nú er sumar, gleðjist gumar, gaman er í dag,“ skrifaði skáldið forðum. Og víst er að börn njóta þess að vera úti að leika, loksins þegar sumarið kemur. Meira
20. apríl 2018 | Daglegt líf | 140 orð | 1 mynd

Hvernig verður þinn persónulegi víkingahjálmur?

Nú er tækifæri til að bregða sér um stundarsakir í hlutverk víkings og bera almennilegan víkingahjálm, því boðið verður upp á víkingahjálmasmiðju nk. sunnudag, 22. apríl, í húsnæði Landnámssýningarinnar í Aðalstræti 16, Reykjavík. Meira
20. apríl 2018 | Daglegt líf | 986 orð | 4 myndir

Maður verður aldrei of gamall fyrir skotfimi

Skotfimiiðkendur í röðum Keflavíkur iða nú í skinninu yfir að komast á útisvæði félagsins í Reykjanesbæ. Þar eru notuð púðurskot úr haglabyssum, skammbyssum og rifflum. Margir Íslandsmeistarar í greininni eru úr Keflavík og boðið er upp á skotfimi sem val fyrir nemendur í 9. bekk í Holtaskóla. Meira
20. apríl 2018 | Daglegt líf | 64 orð | 1 mynd

Sameiginlegt plokk, já, takk

Ferðafélag Íslands skipuleggur sameiginlegan plokkdag á Degi jarðar, sunnudaginn 22. apríl. Almenningur, félagsmenn og meðlimir í öllum fjallgöngu- og hreyfihópum FÍ taka höndum saman og gera árás á plast og rusl í nágrenni Reykjavíkur. Meira
20. apríl 2018 | Daglegt líf | 120 orð | 1 mynd

Skotfimin er eins og skák, þolinmæðisíþrótt

Skotfimi er ekki bara karlaíþrótt, þótt þeir séu vissulega fleiri í greininni. Sífellt fleiri stúlkur hafa komið í skotdeild Keflavíkur. Meira
20. apríl 2018 | Daglegt líf | 149 orð | 1 mynd

Spurt er: Hvaða dansspor eru áhugaverð myndverk?

Helgi Már Kristinsson og Sigga Soffia opna sýningu á morgun, laugardag, sem þau kalla Hamskipti, augnablikið vs. varanleiki. Meira

Fastir þættir

20. apríl 2018 | Í dag | 165 orð | 1 mynd

1. Rf3 d5 2. g3 g6 3. Bg2 Bg7 4. d4 Rf6 5. 0-0 0-0 6. c4 c6 7. Db3 Db6...

1. Rf3 d5 2. g3 g6 3. Bg2 Bg7 4. d4 Rf6 5. 0-0 0-0 6. c4 c6 7. Db3 Db6 8. Rc3 Bf5 9. Re5 Be6 10. Dd1 dxc4 11. Ra4 Dd8 12. Rc5 Dc8 13. Dc2 Bh3 14. Dxc4 Bxg2 15. Kxg2 Rbd7 16. Rcd3 Rxe5 17. dxe5 Rd5 18. b3 Hd8 19. Bb2 a5 20. Had1 a4 21. e4 Rb6 22. Meira
20. apríl 2018 | Í dag | 96 orð | 2 myndir

6.45 til 9 Ísland vaknar Logi Bergmann, Rikka og Rúnar Freyr vakna með...

6.45 til 9 Ísland vaknar Logi Bergmann, Rikka og Rúnar Freyr vakna með hlustendum K100 alla virka morgna. 9 til 12 Siggi Gunnars Skemmtileg tónlist og góðir gestir reka nefið inn. Meira
20. apríl 2018 | Í dag | 258 orð

Af Sindra, draugagangi og þynnku

Faðir minn hefði sagt, að Jón Ingvar Jónsson væri „gamansamur“ þegar hann orti þetta á Boðnarmiði út af nýjustu tíðindum: Enn í klandri er hann Sindri, oft um lögin hnaut. Ekki nokkur held ég hindri hann sem alltaf flaut. Meira
20. apríl 2018 | Í dag | 53 orð | 1 mynd

Eyrún Eðvaldsdóttir

30 ára Eyrún ólst upp í Kópavogi, býr þar, lauk prófi sem sjúkraliði, stundar nú nám í hjúkrunarfræði við HÍ og starfar á Ísafold í Garðabæ. Systur: Helga Björg, f. 1979, búsett í Danmörku, og Eva, f. 1990, sjúkraþjálfari í Danmörku. Meira
20. apríl 2018 | Í dag | 48 orð | 1 mynd

Gísli Már Magnússon

30 ára Gísli Már ólst upp á Eskifirði, býr þar, lauk stúdentsprófi frá VA og starfar hjá Brammer á Reyðarfirði. Maki : Lena Sóley Yngvadóttir, f. 1991, starfsmaður við leikskólann á Eskifirði. Sonur: Emil Gíslason, f. 2014. Foreldrar: Magnús Guðnason,... Meira
20. apríl 2018 | Í dag | 93 orð | 1 mynd

Góðgerðarsmellur á toppinn

Á þessum degi árið 1985 fór lagið „We Are The World“, sem ofurgrúppan United Support of Artist (USA) gaf út til styrktar Afríku, í fyrsta sæti á smáskífulistanum í Bretlandi. Meira
20. apríl 2018 | Í dag | 666 orð | 2 myndir

Hefur ætíð haft áhuga á helgihaldi kirkjunnar

Sigfús Jón Árnason fæddist á Sauðárkróki 20.4. 1938 og ólst þar upp. Vegna tímabundinna berklaveikinda móður hans var hann í fóstri í þrjú ár hjá hjónunum á Hofi á Höfðaströnd, þeim Jóni Jónssyni og Sigurlínu Björnsdóttur sem voru vinafólk foreldra... Meira
20. apríl 2018 | Í dag | 19 orð

Hjá Guði er hjálpræði mitt og vegsemd, minn örugga klett og athvarf mitt...

Hjá Guði er hjálpræði mitt og vegsemd, minn örugga klett og athvarf mitt hef ég í Guði. (Sálm: 62. Meira
20. apríl 2018 | Árnað heilla | 338 orð | 1 mynd

Jenna Huld Eysteinsdóttir

Jenna Huld Eysteinsdóttir er fædd 1976. Meira
20. apríl 2018 | Í dag | 53 orð

Málið

Um tölvukerfi sem hefur bilað og ekki er búið að laga er oft sagt að það „liggi niðri“. Þetta er óþarfa enska: (the computer system) is down . Meira
20. apríl 2018 | Í dag | 56 orð | 1 mynd

Óli Örn Atlason

40 ára Óli Örn lauk BA-prófi í uppeldis- og menntunarfræði frá HÍ og er forstöðumaður Fönix. Maki: Karen G. Elísabetardóttir, f. 1977, deildarstjóri á leikskóla. Börn: Hlynur, f. 1999; Helgi Júlíus, f. 2008; Sigríður Kristín, f. 2010, og Einar Atli, f. Meira
20. apríl 2018 | Árnað heilla | 29 orð | 1 mynd

Reykjavík Anna Elísabeth Lleshi fæddist 2. mars 2017 kl. 12.18. Hún vó...

Reykjavík Anna Elísabeth Lleshi fæddist 2. mars 2017 kl. 12.18. Hún vó 1.082 g og var 39,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Guðrún Lilja Önnudóttir og Gerard Lleshi... Meira
20. apríl 2018 | Í dag | 85 orð | 2 myndir

Sálarsöngvari fæddist á þessum degi

Á þessum degi árið árið 1951 fæddist sálarsöngvarinn, lagahöfundurinn og upptökustjórinn Luther Vandross. Hann hét fullu nafni Luther Ronzoni Van Dross Jr. og ólst upp á Manhattan. Meira
20. apríl 2018 | Í dag | 213 orð

Til hamingju með daginn

90 ára Birna Friðgeirsdóttir Eyvör Stefánsdóttir 85 ára Auður Þorbergsdóttir Bergný Jóhannsdóttir Jóhann G. Pétursson Lilja G. Aðalsteinsdóttir 80 ára Gissur Þór Sigurðsson Guðríður H. Meira
20. apríl 2018 | Fastir þættir | 247 orð

Víkverji

Til skoðunar er hvað gera skuli varðandi þjóðarleikvang knattspyrnufólks á Íslandi, Laugardalsvöllinn. Ljóst er að gera þarf á honum breytingar, eða reisa nýjan leikvang til að standast þær kröfur sem gerðar eru af Alþjóðaknattspyrnusambandinu. Meira
20. apríl 2018 | Í dag | 114 orð | 1 mynd

Þetta gerðist...

20. apríl 1602 Einokunarverslun Dana á Íslandi hófst þegar konungur veitti borgurum Kaupmannahafnar, Málmeyjar og Helsingjaeyrar einkaleyfi til að versla hér á landi. Einokunin stóð til ársloka 1787. 20. Meira

Íþróttir

20. apríl 2018 | Íþróttir | 59 orð

1:0 Patrick Pedersen 29. Tók vel á móti sendingu Einars Karls...

1:0 Patrick Pedersen 29. Tók vel á móti sendingu Einars Karls Ingvarssonar og skoraði af stuttu færi. 2:0 Bjarni Ólafur Eiríksson 39. sneiddi boltann með höfðinu í netið frá markteig eftir hornspyrnu Sigurðar Egils. 2:1 Kaj Leo í Bartalsstovu 43. Meira
20. apríl 2018 | Íþróttir | 133 orð | 2 myndir

Arnar og Andrea voru fyrst

ÍR-ingarnir Arnar Pétursson og Andrea Kolbeinsdóttir komu fyrst í mark í Víðavangshlaupi ÍR í miðborg Reykjavíkur í dag og urðu jafnframt Íslandsmeistarar í 5 km götuhlaupi. Mótið var haldið í 103. Meira
20. apríl 2018 | Íþróttir | 74 orð | 1 mynd

Bröndby sneri blaðinu við í Herning

Hjörtur Hermannsson og félagar í Brøndby eru komnir með þriggja stiga forystu á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir magnaðan 3:2 útisigur á Midtjylland í uppgjöri efstu liðanna í Herning í gær. Meira
20. apríl 2018 | Íþróttir | 144 orð | 1 mynd

Chelsea er enn með í baráttunni

Chelsea er enn með í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu eftir 2:1 útisigur á Burnley í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Victor Moses skoraði sigurmark Chelsea, rétt eftir að Ashley Barnes hafði jafnað fyrir Burnley. Meira
20. apríl 2018 | Íþróttir | 54 orð | 1 mynd

Dominos-deild kvenna Fyrsti úrslitaleikur: Haukar – Valur 85:68...

Dominos-deild kvenna Fyrsti úrslitaleikur: Haukar – Valur 85:68 *Staðan er 1:0 fyrir Hauka og annar leikur á Hlíðarenda á laugardaginn. Úrslitakeppni NBA Austurdeild, átta liða úrslit: Cleveland – Indiana 100:97 *Staðan er 1:1. Meira
20. apríl 2018 | Íþróttir | 356 orð | 2 myndir

Enn einn titill Valsmanna

Á Hlíðarenda Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Íslandsmeistarar Vals urðu meistarar meistaranna í knattspyrnu þriðja árið í röð með 2:1-sigri á ÍBV í Meistarakeppninni á Valsvellinum í gær. Meira
20. apríl 2018 | Íþróttir | 361 orð | 2 myndir

Finnur Valur svör?

Á Ásvöllum Kristófer Kristjánsson kristóferk@mbl.is Hann var ekki æsispennandi fyrsti leikur úrslitaeinvígis úrvalsdeildar kvenna í körfuknattleik á Ásvöllum í gærkvöldi. Meira
20. apríl 2018 | Íþróttir | 364 orð | 2 myndir

Framarar opnuðu rimmuna upp á gátt

Í Safamýri Ívar Benediktsson iben@mbl. Meira
20. apríl 2018 | Íþróttir | 132 orð | 2 myndir

Fram – Valur 28:22

Framhús, annar úrslitaleikur kvenna, fimmtudag 19. apríl 2018. Gangur leiksins : 1:3, 4:5, 7:6, 9:8, 11:10, 13:12 , 15:13, 18:15, 20:18, 21:21, 24:22, 28:22 . Meira
20. apríl 2018 | Íþróttir | 130 orð | 2 myndir

Haukar – Valur 85:68

Schenker-höllin, fyrsti úrslitaleikur kvenna, fimmtudag 19. apríl 2018. Gangur leiksins : 8:4, 14:8, 16:12, 18:16 , 23:18, 30:20, 35:27, 37:29 , 44:35, 51:37, 59:43, 63:49 , 69:55, 73:55, 79:63, 85:68 . Meira
20. apríl 2018 | Íþróttir | 275 orð | 1 mynd

Íslenska karlalandsliðið í íshokkí hélt í gær til Tilburg í Hollandi...

Íslenska karlalandsliðið í íshokkí hélt í gær til Tilburg í Hollandi. Þar fer fram A-riðill í 2. deild heimsmeistaramótsins og fer fyrsti leikur Íslands fram hinn 23. apríl næstkomandi. Ísland er í riðli með Ástralíu, Hollandi, Belgíu, Kína og Serbíu. Meira
20. apríl 2018 | Íþróttir | 106 orð | 1 mynd

KÖRFUKNATTLEIKUR Fyrsti úrslitaleikur karla: Sauðárkrókur: Tindastóll...

KÖRFUKNATTLEIKUR Fyrsti úrslitaleikur karla: Sauðárkrókur: Tindastóll – KR 19.15 HANDKNATTLEIKUR Umspil kvenna, þriðji úrslitaleikur: Hertz-höllin: Grótta – HK (0:2) 19.30 BLAK Þriðji úrslitaleikur kvenna: Neskaupst.: Þróttur N. Meira
20. apríl 2018 | Íþróttir | 208 orð | 2 myndir

* LeBron James skoraði 46 stig í fyrrinótt þegar Cleveland sigraði...

* LeBron James skoraði 46 stig í fyrrinótt þegar Cleveland sigraði Indiana, 100:97, í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfuknattleik, og jafnaði metin í 1:1 í einvígi liðanna. Meira
20. apríl 2018 | Íþróttir | 272 orð | 1 mynd

Meistarakeppni karla Valur – ÍBV 2:1 Patrick Pedersen 29., Bjarni...

Meistarakeppni karla Valur – ÍBV 2:1 Patrick Pedersen 29., Bjarni Ólafur Eiríksson 39. – Kaj Leo i Bartalsstovu 434. Mjólkurbikar karla 2. Meira
20. apríl 2018 | Íþróttir | 374 orð | 1 mynd

Mikilvæg skref í meistarabaráttu

Guðjón Valur Sigurðsson og Alexander Petersson ásamt samherjum sínum í Rhein-Neckar Löwen stefna ótrauðir að þriðja meistaratitlinum í röð í þýska handboltanum. Meira
20. apríl 2018 | Íþróttir | 149 orð | 1 mynd

Olísdeild kvenna Annar úrslitaleikur: Fram – Valur 28:22 *Staðan...

Olísdeild kvenna Annar úrslitaleikur: Fram – Valur 28:22 *Staðan er 1:1 og þriðji leikur á Hlíðarenda á mánudagskvöld. Þýskaland Kiel – Füchse Berlín 25:20 • Alfreð Gíslason, þjálfar Kiel. Meira
20. apríl 2018 | Íþróttir | 74 orð | 1 mynd

Ólafur var allt í öllu gegn Lugi

Ólafur Andrés Guðmundsson var besti leikmaður vallarins þegar lið hans Kristianstad vann Lugi, 25:23, í fyrstu viðureign liðanna í undanúrslitum um sænska meistaratitilinn í handknattleik karla í gær. Leikið var í Kristianstad. Meira
20. apríl 2018 | Íþróttir | 591 orð | 3 myndir

Skal þjálfa hunda og mótorhjól sé því að skipta

Handbolti Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Mér finnst þetta spennandi verkefni. Fyrir mér skiptir engu máli hvort ég þjálfa karla eða konur. Ég skal þjálfa hunda eða mótorhjól sé því að skipta. Meira
20. apríl 2018 | Íþróttir | 135 orð | 1 mynd

Slæm byrjun í Los Angeles

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er í erfiðri stöðu eftir fyrsta hringinn á LA Open-golfmótinu í Los Angeles í gær en hún lék hann á 75 höggum, fjórum höggum yfir pari vallarins. Meira
20. apríl 2018 | Íþróttir | 732 orð | 2 myndir

Svakaleg viðureign

Er Tryggvi Hlinason á leiðinni í NBA deildina? Er KR að fara bæta við sig leikmanni núna í lokaúrslitunum? Var Breiðablik búið að undirstinga Pétur Ingvarsson með það að taka við liðinu fyrir úrslitarimmuna í 1. deildinni? Meira
20. apríl 2018 | Íþróttir | 82 orð | 1 mynd

Valdís í fremstu röð í Marokkó

Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir fór vel af stað á Lalla Meryem-mótinu í golfi sem fram fer í Marokkó. Mótið er hluti af LET-Evrópumótaröðinni. Valdís lék fyrsta hringinn í gær á 71 höggi eða einu höggi undir pari. Hún er í 5. Meira
20. apríl 2018 | Íþróttir | 135 orð | 2 myndir

Valur – ÍBV 2:1

Valsvöllur, Meistarakeppni karla, fimmtudag 19. apríl 2018. Skilyrði : 9 gráðu hiti, skýjað og örlítið hvasst. Skot : Valur 12 (8) – ÍBV 7 (2). Horn : ÍBV 2 – Valur 7. Valur: (4-5-1) Mark : Anton Ari Einarsson. Meira

Ýmis aukablöð

20. apríl 2018 | Blaðaukar | 628 orð | 1 mynd

9 brúðkaupsleyndarmál frá sérfræðingum

Þegar stóri dagurinn hefur verið ákveðinn er í mörgu að snúast. Þeir sem hafa gengið í gegnum þennan viðburð í lífinu eru sammála um að dagurinn sé sérstakur, en það séu hlutir sem þeir hefðu viljað vita áður en þeir lögðu af stað í leiðangurinn. Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 1305 orð | 2 myndir

Að gangast við okkur í efni og anda

Edda Jónsdóttir er leiðtogamarkþjálfi sem sérhæfir sig í að efla hæfni fólks til að vera fjárhagslegir leiðtogar í eigin lífi. Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 238 orð | 3 myndir

Að njóta dagsins

Ljósmyndarinn Bragi Þór er vinsæll brúðkaupsljósmyndari. Hann nær að festa á filmu tímalausar myndir sem fanga augnablik kærleika og ástar í brúðkaupum. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 249 orð | 8 myndir

Alls konar brúðarvendir

Þegar kemur að því að velja brúðarvendi eru valmöguleikarnir endalausir. Litir í brúðkaupi og stíll stýra útlitinu, en eðli brúðarinnar skiptir líka máli. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 76 orð | 3 myndir

Brúðargjafir fyrir kaffiglöðu brúðhjónin

Nespresso Aeroccino4 (flóari) Aeroccino4 er nýi mjólkurflóarinn frá Nespresso, enn fjölbreyttari og þægilegri en forverarnir. Með Aeroccino4 er hægt að útbúa tvenns konar heita mjólkurfroðu, heita mjólk og kalda mjólkurfroðu. Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 325 orð | 10 myndir

Brúðargjafir sem gleðja

Mörg brúðhjón auðvelda gestum það að velja brúðargjafir með gjafalistum, sem auðvelt er að útbúa á heimasíðum margra verslana. Hér er það sem er hvað vinsælast þessa dagana samkvæmt gjafalistunum á netinu. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 69 orð | 2 myndir

Brúðarslör

Við val á brúðarkjól og slöri er mikilvægt að litir tóni saman og fallegt heildarútlit myndist á fatnað brúðarinnar. Slörið er vanalega í stíl við kjól brúðarinnar og ef kjóllinn er einfaldur er slörið einfalt. Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 152 orð | 6 myndir

Brúðkaup í Tiffany's-litnum

Innst inni erum við allar veikar fyrir Tiffany's-litnum. Hver man ekki eftir kvikmyndinni Breakfast at Tiffany's þar sem Holly elskaði fátt meira en að skoða skartgripina í versluninni fram á morgun með kaffibolla í hendi þegar allir aðrir voru sofandi? Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 765 orð | 2 myndir

Draumabrúðkaup með aðstoð sérfræðings

Vigdís Segatta er einn helsti brúðkaupsskipuleggjandi landsins. Hún er eigandi og stofnandi Luxwedding. Með starfi sínu sameinar hún öll áhugamál sín í einu. Í viðtalinu útskýrir hún hlutverk þess sem skipuleggur brúðkaupið. Elínrós Línda | elinros@mbl.is Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 1008 orð | 5 myndir

Eiginmaðurinn minn allra besti vinur til að sigra heiminn með

Guðný Sigurmundsdóttir textílhönnuður og Tryggvi Hjaltason „senior strategist“ hjá CCP vekja athygli hvert sem þau koma með börnin sín þrjú. Þau eru ekki einungis ótrúlega falleg fjölskylda, heldur kærleiksríkt teymi sem gerir hlutina á sínum forsendum. Elínrós Línda | elinros@mbl.is Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 27 orð | 6 myndir

Fallegustu brúðarkjólar allra tíma

Þegar kemur að því að velja fallegustu brúðarkjóla allra tíma, þá koma margir til greina. Þessir kjólar urðu fyrir valinu að þessu sinni. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 197 orð | 5 myndir

Förðunartrix brúðarinnar

Allar brúðir vilja hafa húðina fullkomna á brúðkaupsdaginn og þarf undirbúningur að byrja nokkrum vikum fyrir stóra daginn. Marta María | mm@mbl.is Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 1272 orð | 4 myndir

Gátlisti fyrir brúðkaupið

Þegar brúðkaup er skipulagt er að mörgu að huga. Eftirfarandi er ítarlegur gátlisti sem gott er að styðjast við. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 2279 orð | 3 myndir

Gott hjónaband snýst um að vera góður maki

Unnur Valborg Hilmarsdóttir hefur lengi unnið við námskeiðahald og markþjálfun. Hún býr á Hvammstanga en þangað á hún rætur sínar að rekja. Að mati Unnar snýst gott hjónaband um að vera góður maki. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 437 orð | 10 myndir

Góðar hugmyndir fyrir brúðkaup

Þegar kemur að brúðkaupum er hægt að fara margar ólíkar leiðir. Eftirfarandi hugmyndir eru innsýn inn í nokkra hluti sem er skemmtilegt að gera á stóra deginum. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 197 orð | 6 myndir

Góð ráð fyrir brúðgumann

Brúðir leggja mikið upp úr því að líta þokkalega út á brúðkaupsdaginn sinn. En það er ekki síður mikilvægt fyrir brúðgumann að hugsa vel um húðina fyrir brúðkaupsdaginn. Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 292 orð | 1 mynd

Góð ráð varðandi brúðarkjólinn

Kristinn Guðjónsson hefur rekið Efnalaugina Björg á Háaleitisbraut frá árinu 1984. Fyrirtækið sem er fjölskyldufyrirtæki fagnar 65 ára afmæli á þessu ári. Það var stofnað árið 1953. Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 101 orð | 2 myndir

Hannaðu þinn eigin hring

Hjá Carat/Acredo fæst eitt fjölbreyttasta úrval af trúlofunar- og giftingarhringum sem þekkist hér á landi. Rakel Mist Hauksdóttir starfar hjá Carat ásamt föður sínum Hauki Valdimarssyni. Bæði eru þau gullsmiðir að mennt. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 1095 orð | 5 myndir

Hannar brúðarkjóla sem eldast vel

Berglind Hrönn Árnadóttir er eigandi brúðarkjólaverslunarinnar Begga Design. Hún er búsett í Madríd en kemur reglulega til landsins. Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 63 orð | 4 myndir

Hártískan fyrir brúðir

Hártískan á þessu ári er annaðhvort mjög klassískt uppsett franskt hár eða náttúrulegt liðað glansandi hár. Þessi franska „effortless“ tíska sést víða og tekur töluverðan tíma að rækta hárið í þessum anda. Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 1541 orð | 5 myndir

Hnutu hvort um annað á þjóðhátíð í Eyjum

Eyja Bryngeirsdóttir giftist ástinni sinni, Kristjáni Þór Jónssyni, eða Kidda Big Foot eins og hann er oft kallaður, síðasta sumar. Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 683 orð | 4 myndir

Ljómaðu á stóra daginn

Það er svo heilmikið sem fer í að skipuleggja brúðkaup. Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 1481 orð | 5 myndir

Með hamingjukitl í maganum

Kolbrún Vaka Helgadóttir hefur starfað við dagskrárgerð fyrir RÚV. Í nokkur ár starfaði hún við menningarþáttinn Djöflaeyjuna og Menninguna í Kastljósi. Hún gerði einnig þáttaseríuna Örkina sem fjallaði um sambandi milli manna og dýra. Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 246 orð | 3 myndir

Með þínu eigin stílbragði

Að láta sérsauma á sig föt er einstakt tækifæri til að persónugera jakkafötin með þínu eigin stílbragði. Herragarðurinn býður upp á slíka þjónustu. Davíð Einarsson ræðir möguleikana. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 939 orð | 7 myndir

Ógleymanlegt vetrarbrúðkaup

Telma Halldórsdóttir er lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Eiginmaður hennar Eiríkur Vigfússon sem er efnafræðingur með MBA-gráðu er með ólæknandi áhuga á hjólreiðum að hennar mati og starfar sem verslunarstjóri hjá GÁP. Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 379 orð | 2 myndir

Settu ástina í fyrsta sæti

„Ég mæli með hjónabandi. Ef það hefur sterkan grunn mun það hrista af sér hindranir og lægðirnar eins og labrador að koma úr baði. Það er mikilvægt að skemmta sér og hafa húmor fyrir sjálfum sér og lífinu. Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 104 orð | 1 mynd

Skartgripir

Þegar kemur að stóra deginum skipta skartgripir miklu máli. Hvort sem það er fallegur giftingarhringur sem innsiglar ástina sem á að vara að eilífu eða falleg morgungjöf, þá eru þetta hlutir sem fólk velur af kostgæfni löngu fyrir stóra daginn. Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 278 orð | 3 myndir

Skartgripir sem endurspegla karakter

Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir, hönnuður og gullsmiður, stofnaði Aurum ásamt eiginmanni sínum, Karli Jóhanni Jóhannssyni, árið 2003. Allt frá þeim tíma hafa þau boðið upp á úrval af fallegum skartgripum í miðborginni. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 13 orð | 1 mynd

Trúlofunarhringar, Gull og Silfur.

Þessir einstöku hringar minna á gamla góða tíma. Klassískir og standast tímans... Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 17 orð | 1 mynd

Trúlofunarhringar, Jón og Óskar

Einfaldir nútímalegir hringar úr palladíum. Hringur konunnar er prýddur demöntum. Passar vel fyrir þá sem velja... Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 203 orð | 4 myndir

Undirfötin í heimlán

Brúðarkjóllinn er oftar en ekki í forgrunni en undirfötin eru ekki síður mikilvæg og þau þurfa að passa vel. Það er glatað að gifta sig í óþægilegum nærbrókum eða brjóstahaldara með hlýrum sem síga út á axlirnar. Marta María | mm@mbl.is Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 495 orð | 10 myndir

Vertu guðdómleg á brúðkaupsdaginn

Það er til siðs að brúður skarti sínu fegursta á brúðkaupsdaginn sinn. Það er nauðsynlegt að hafa nokkur atriði í huga sem viðkoma förðun. Brúðkaupsförðun þarf að draga fram fegurð brúðarinnar en þó á náttúrulegan hátt. Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 1088 orð | 1 mynd

Við getum ekki pantað alltaf það sama af matseðlinum!

Áslaug Kristjánsdóttir starfar sem kynlífsráðgjafi á Domus Mentis, Geðheilsustöðinni. Hún segir að í aðdraganda giftinga þegar undirbúningurinn er í hámarki ættu brúðhjón að gera með sér samning um hvernig kynlífs þau vilja njóta í lífinu. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Meira
20. apríl 2018 | Blaðaukar | 62 orð | 4 myndir

Vinsælustu brúðarkökurnar

Þegar kemur að því að velja brúðarköku skiptir öllu máli að hún endurspegli þemað í brúðkaupinu. Eftirfarandi kökur eru vinsælar um þessar mundir. Brúðarkökur eiga sín „trend“ eins og annað í þessum heimi. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.