Greinar fimmtudaginn 31. október 2019

Fréttir

31. október 2019 | Innlendar fréttir | 413 orð | 1 mynd

Aðgerðir í loftslagsmálum

Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Við setjum peninga úr samningnum í loftslagsmálin. Við erum að leggjast á sveif með ríkinu í loftslagsmálum og styðja við þau markmið sem það hefur sett,“ segir Arnar Árnason, formaður Landssambands kúabænda. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 338 orð | 1 mynd

Aldurshlutföll lesin úr vængjum veiddra rjúpna

Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ólafur Karl Nielsen, vistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, sem m.a. annast vöktun rjúpnastofnsins og rannsóknir á vistfræði hans og veiðiþoli, hefur aldursgreint 3.356 rjúpur frá veiðitímanum í fyrra. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 592 orð | 3 myndir

Álitamál ef útiloka á olíuleit á Drekasvæði

Sviðsljós Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Átta þingmenn úr þremur flokkum hafa endurflutt á Alþingi frumvarp um frystingu olíuleitar við Ísland, sem er hugsað sem liður í að sporna við alvarlegum áhrifum loftslagsbreytinga. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 223 orð | 1 mynd

Blaðamenn á leiðinni í verkfall

Ragnhildur Þrastardóttir Sigurður Bogi Sævarsson Vinnustöðvanir hefjast á stærstu fréttamiðlum landsins á föstudag í næstu viku. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 386 orð | 1 mynd

Blaðberinn sem raular á morgungöngunni

„Blaðburðurinn gefur mér tækifæri til að kynnast borginni. Teigarnir í Laugardalnum í Reykjavík eru mitt fasta svæði en svo hleyp ég í skarðið í öðrum hverfum ef forföll verða. Meira
31. október 2019 | Erlendar fréttir | 767 orð | 1 mynd

Boðar nýjan skatt á „ofurauðmenn“

New York. AFP. | Bandaríska þingkonan Elizabeth Warren hefur lofað að hækka skatta auðmanna, skipta upp stórum bönkum og tæknirisum og herða reglur um starfsemi banka og fleiri fyrirtækja. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 467 orð | 1 mynd

Ekki einhugur um heiti ganga

Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vegagerðin og Ísafjarðarbær taka ekki vel í hugmyndir um að nota önnur heiti á jarðgöngin sem verið er að gera á milli Borgarfjarðar í Arnarfirði og Dýrafjarðar, hin svonefndu Dýrafjarðargöng. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 831 orð | 1 mynd

Ekki víst að kosningar leysi Brexit

Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Það er alls ekki víst að þingkosningar í Bretlandi í desember muni leysa pattstöðuna sem virðist vera komin í breska þingið að mati Simon Usherwood, prófessors við Surrey-háskóla og aðstoðarforstjóra rannsóknadeildar um samskipti Bretlands og Evrópusambandsins hjá Rannsóknastofnun um félags- og efnahagsmál (ESRC). „Þetta þing býr við ákveðið vandamál. Það getur ekki gert nokkurn af þeim þremur hlutum sem þarf til að binda enda á þessa stöðu. Það getur ekki yfirgefið ESB með samningi, án samnings eða hætt við útgönguna,“ segir Usherwood. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 580 orð | 2 myndir

Engar loðnuveiðar ráðlagðar í vetur

Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Að óbreyttu er ekki útlit fyrir loðnuvertíð í vetur og yrði það þá annað árið í röð sem engar loðnuveiðar yrðu stundaðar við landið. Meira
31. október 2019 | Innlent - greinar | 188 orð | 6 myndir

Fjölbreytt vika að baki á K100

Það kemur fjöldinn allur af skemmtilegum viðmælendum í stúdíó K100 alla daga. Í liðinni viku höfum við fræðst um verkefni á borð við „Jól í skókassa“ og um strák sem ferðast um landið og fræðir landann um allt sem er hinsegin. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 114 orð | 1 mynd

Forsetahjónin í Snæfellsbæ

„Fjölbreytni er styrkur samfélagsins í Snæfellsbæ,“ segir Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. Þau Guðni og Eliza Reid kona hans voru í gær í opinberri heimsókn í Snæfellsbæ; litu þar inn í leik- og grunnskóla og á dvalarheimilinu Jaðri. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 182 orð | 1 mynd

Fæðingum á Landspítala fjölgar

Fæðingum á Landspítalanum á tímabilinu janúar til september í ár fjölgaði um 4,8% miðað við sömu mánuði í fyrra. Þetta kemur fram í skýslu um starfsemi sjúkrahússins í septembermánuði síðastliðnum, þar sem reksturinn er greindur út frá ýmsum viðmiðum. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 103 orð | 1 mynd

Gert að greiða Atla 5,5 milljónir í bætur

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær Borgarleikhúsið og Kristínu Eysteinsdóttur leikhússtjóra til þess að greiða leikaranum Atla Rafni Sigurðarsyni 5,5 milljónir króna í bætur vegna uppsagnar hans frá leikhúsinu í desember 2017. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 184 orð | 1 mynd

Hrekkjavakan aldagömul hefð

Svokölluð hrekkjavaka fer fram í kvöld, en hátíðarhöld í tengslum við hana hafa verið að sækja í sig veðrið á Íslandi. „Það hefur borið meira og meira á þessari vetrarhátíð í þessu formi hrekkjavökunnar undanfarinn áratug eða tvo. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 228 orð | 1 mynd

Iðnaðarmenn hafa samið við HS Orku

Sambönd og félög iðnaðarmanna innan Alþýðusambands Íslands hafa að undanförnu átt í viðræðum við orkufyrirtæki og stóriðjufyrirtæki um endurnýjun kjarasamninga. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 76 orð | 1 mynd

Jólamerki Thorvaldsensfélagsins í ár

Allt frá árinu 1913 hefur Thorvaldsensfélagið gefið út og selt jólamerki sem seld eru einstaklingum og fyrirtækjum. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 60 orð | 1 mynd

Kasti mögulega verðmætum á glæ

Ekki hefur verið hugað að því í nýju frumvarpi um frystingu olíuleitar við Ísland hvað verði um 25% hlut Íslands hefji Norðmenn vinnslu á sínum hluta Drekasvæðisins. Guðni A. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 442 orð | 2 myndir

Kominn á felguna eftir ferna tónleika í röð

Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 34 orð | 1 mynd

Kristinn Magnússon

Sólin Það er oft fallegt um að litast í guðsgrænni náttúrunni og fengu þessir fallegu hestar í nágrenni Flúða að njóta haustsólarinnar í allri sinni dýrð, þar sem hún sló gylltum ljóma á... Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 250 orð | 1 mynd

Má selja kirkjuhús?

„Í minni sókn eru fjórar kirkjur. Möðruvallakirkja er langstærst. Meira
31. október 2019 | Innlent - greinar | 403 orð | 19 myndir

Mikilfengleikinn í sinni tærustu mynd

Það var ekki þverfótað fyrir frægðarmennum þegar Giambattista Valli og H&M frumsýndu samstarfsverkefni sitt í einni glæsilegustu höll Rómaborgar í síðustu viku. Sú sem hér skrifar fékk að upplifa þessa dýrð með eigin augum. Hápunktur kvöldsins var líklega að sjá Kendall Jenner með eigin augum. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 441 orð | 1 mynd

Nevena Tasic ósigrandi í borðtennis á Íslandi

Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Íþróttafræðingurinn Nevena Tasic flutti til Íslands frá Serbíu fyrir rúmlega tveimur árum, hóf keppni í borðtennis sem liðsmaður Víkings í mars í fyrra og hefur síðan sigrað í öllum mótum sem hún hefur tekið þátt í. Fyrir skömmu var hún jafnframt með í karlaflokki í Pepsi-móti Víkings og stóð þar uppi sem sigurvegari, en kona hafði ekki áður unnið borðtennismót karla hérlendis. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 871 orð | 3 myndir

Norðurfloti Rússa á hreyfingu

Fréttaskýring Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Ein umfangsmesta aðgerð rússneska Norðurflotans frá lokum kalda stríðsins er nú í fullum gangi. Talið er að minnst tíu kafbátar taki þátt, af þeim eru átta kjarnorkuknúnir. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 313 orð

Ráðherra eyði óvissunni

Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ásgeir Karlsson, deildarstjóri greiningardeildar ríkislögreglustjóra, hefur ritað Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra bréf þar sem hann lýsir yfir áhyggjum af framtíð embættisins. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 109 orð | 1 mynd

Rússar sýna mátt sinn og megin

Að minnsta kosti tíu kafbátar rússneska Norðurflotans taka nú þátt í einni umfangsmestu æfingu hans frá lokum kalda stríðsins. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 63 orð | 1 mynd

Sinfónían hitar upp fyrir tónleikaferð

Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur opna hádegistónleika í Eldborg Hörpu í dag. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 478 orð | 2 myndir

Skortur á fjármögnun dregur úr uppbyggingu

Baldur Arnarson baldura@mbl.is Gunnar Valur Gíslason, framkvæmdastjóri Íþöku fasteignafélags, segir bankana hafa dregið úr útlánum til nýrra fasteignaverkefna, þ.m.t. nýrra íbúðaverkefna. Það muni væntanlega draga úr framboði nýrra íbúða á næstu misserum. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 73 orð | 1 mynd

Starfsmaður flugvallarins í haldi

Þrír karlmenn sitja í gæsluvarðhaldi vegna gruns um innflutning á kókaíni og nokkrum lítrum af amfetamínvökva. Einn þeirra er sagður starfsmaður á Keflavíkurflugvelli og hinir tveir eru fyrrverandi starfsmenn. Lögreglan á Suðurnesjum handtók mennina. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 234 orð | 2 myndir

Stór hlutverk í Hollywood

Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Íslenskar konur eiga stóran hlut í velgengni þriggja af stærstu bíómyndum ársins í Hollywood. Hildur Guðnadóttir tónskáld samdi tónlistina í stórmyndinni Joker sem er á hvers manns vörum þessa dagana. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 61 orð | 1 mynd

Syndandi selurinn situr fyrir á sjávarbotninum

Þessi fallegi selur er á meðal þeirra skemmtilegu og kyndugu skepna sem kafarinn Erlendur Bogason hefur myndað neðansjávar. Erlendur hyggst í nóvember kynna merkilegan nýjan myndavef, sjavarlif. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 483 orð | 2 myndir

Tónlistarævintýri í Síerra Leóne

Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Hljómplata með nýjum og frumsömdum lögum sem urðu til í samvinnu tónlistarfólks frá Íslandi, Bretlandi og Síerra Leóne kemur út á næstunni. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 480 orð | 2 myndir

Treystir að Barnaverndarstofa viðurkenni mistökin

Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is „Þetta er frekar óraunverulegt núna. Þetta er búið að taka fimm ár,“ sagði Freyja Haraldsdóttir eftir að hún hafði betur gegn Barnaverndarstofu í Hæstarétti í gær. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 306 orð | 1 mynd

Tugmilljóna krafa Landsbankans fyrnd

Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Einstaklingur sem tók 25 milljóna kr. lán í danskri mynt í Landsbankanum árið 2007 var sýknaður af kröfu bankans um endurgreiðslu lánsins í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudaginn. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 547 orð | 3 myndir

Unga fólkið brýnir ráðherrana

Guðrún Hálfdánardóttir guna@mbl.is Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er mjög ánægð með að sjá í lok formennskuárs Íslands í norrænu ráðherranefndinni hversu hratt og vel var unnið á árinu. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 60 orð | 1 mynd

Úlla og Drakúla

Í tilefni hrekkjavökunnar segir Úlfhildur Dagsdóttir frá ferðalagi sínu um slóðir Drakúla í Transilvaníu á Borgarbókasafninu í Kringlunni í dag kl. 17.30. Við sögu koma kastalar, birnir, drekar og dýflissur. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 944 orð | 6 myndir

Við erum það sem við borðum

Á Akranesi er að finna heildsölu, verslun og lífrænt kaffihús sem hefur að geyma margar þær bestu kökur og kræsingar sem finnast hér á landi. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 415 orð | 8 myndir

Villtur lax og krónhjörtur prýða jólamatseðil Fiskmarkaðarins

Það fer að bresta á með jólum sem þýðir að jólamatseðlar veitingastaðanna fara að líta dagsins ljós. Það dregur heldur betur til tíðinda í ár hjá Fiskmarkaðnum en að sögn Hrefnu Sætran hefur hingað til ekki verið boðið upp á sérstakan jólaseðil. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 354 orð | 1 mynd

Þrettán hundruð milljarðar króna

Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Árið í ár hefur verið gjöfult fyrir Íslendinga í Hollywood. Tvær konur hafa haldið uppi merki þjóðarinnar og gert það með miklum sóma. Meira
31. október 2019 | Innlendar fréttir | 57 orð | 1 mynd

Þrjár umsóknir um embætti í Digranesi

Umsóknarfrestur um embætti prests í Digranesprestakalli, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra, er runninn út. Þessi sóttu um embættið: Bryndís Svavarsdóttir guðfræðingur, sr. Gunnar Jóhannesson og sr. Helga Kolbeinsdóttir. Meira
31. október 2019 | Erlendar fréttir | 581 orð | 5 myndir

Ævi da Vinci rakin í 162 verkum

Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Gífurlegur áhugi er á sýningu, sem opnuð var í Louvre-safninu í París í síðustu viku í tilefni af því að 500 ár eru liðin frá því Leonardo da Vinci lést. Hafa yfir 240 þúsund manns þegar bókað miða. Meira

Ritstjórnargreinar

31. október 2019 | Staksteinar | 226 orð | 1 mynd

Atvinnulífið þarf frekari aðgerðir

Athygli vekur að vextir Seðlabankans hafa verið lækkaðir það mikið að nú heyrast jafnvel þær raddir að frekari lækkun muni ekki skila sér sem mótvægi við samdrátt í atvinnulífinu. Aðrir telja að enn sé svigrúm til að hafa jákvæð áhrif með lækkun vaxta. Þá hefur Seðlabankinn kynnt aðrar aðgerðir til að ná sama markmiði sem líklegt er að fari að skila árangri. Meira
31. október 2019 | Leiðarar | 259 orð

Enda aðrir úti í skurði?

Kannski eru loks að verða kaflaskil í Bretlandi Meira
31. október 2019 | Leiðarar | 383 orð

Gegn trúarofsóknum

Majed El Shafie hefur lagt sérstaka áherslu á að bjarga stúlkum úr röðum jasída frá Ríki íslams Meira

Menning

31. október 2019 | Tónlist | 213 orð | 1 mynd

Airwhales-hátíðin haldin í fyrsta sinn á Hlemmi Square

Tónlistarhátíðin Airwhales verður haldin í fyrsta sinn helgina 7.-9. nóvember frá kl. 16 til miðnættis á hótelinu Hlemmur Square að Laugavegi 105 og verður aðgangur ókeypis. Meira
31. október 2019 | Tónlist | 811 orð | 1 mynd

„Hreinskilin frásögn af lífi mínu“

Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Rapparinn Countess Malaise, öðru nafni Dýrfinna Benita, sendir frá sér fyrstu breiðskífu sína í dag, á hrekkjavöku, 31. október. Meira
31. október 2019 | Tónlist | 299 orð | 1 mynd

„Mikilvægt að segja satt“

Lára Rúnars heldur útgáfutónleika í kvöld kl. 21 í Bæjarbíói í Hafnarfirði vegna nýjustu breiðskífu sinnar, sem nefnist Rótin . Meira
31. október 2019 | Leiklist | 873 orð | 2 myndir

En samt spes

Eftir Gunnar Helgason í leikgerð Bjarkar Jakobsdóttur. Leikstjórn: Björk Jakobsdóttir. Leikmynd: Stígur Steinþórsson. Búningar: Björk Jakobsdóttir. Lýsing: Freyr Vilhjálmsson. Sviðshreyfingar: Björk Jakobsdóttir. Meira
31. október 2019 | Kvikmyndir | 114 orð | 1 mynd

Forsaga Krúnuleika í framleiðslu

Kapalstöðin HBO hefur ákveðið að ráðast í gerð sjónvarpsþátta þar sem rakin verður forsaga þeirrar sögu sem sögð hefur verið í Game of Thrones , Krúnuleikunum. Meira
31. október 2019 | Leiklist | 928 orð | 3 myndir

Framtíð Íslands mótuð

Viðtal Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Við köllum þetta endurlit vegna þess að þetta er ekki leikgerð á skáldsögunni heldur nýtt sjálfstætt leikverk. Meira
31. október 2019 | Tónlist | 1036 orð | 2 myndir

´Hvar er draumurinn?

Viðtal Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Þriðja breiðskífa Grísalappalísu, Týnda rásin , kemur út á morgun, plata sem hefur verið býsna lengi í vinnslu, allt frá árinu 2016. Meira
31. október 2019 | Bókmenntir | 56 orð | 1 mynd

Karl Ágúst í bókakaffi í Árbænum

Borgarbókasafnið í Árbæ stendur fyrir bókakaffi í dag kl. 17 með Karli Ágústi Úlfssyni, rithöfundi og leikara með meiru. Meira
31. október 2019 | Leiklist | 61 orð | 1 mynd

Lína langsokkur á þremur stöðum

Lína langsokkur, ein vinsælasta og ástsælasta sögupersóna Astridar Lindgren, verður brátt á fjölunum í þremur leikhúsum á landinu. Meira
31. október 2019 | Tónlist | 640 orð | 3 myndir

Meinlaus skrímsli

OMAM eru: Arnar Rósenkranz Hilmarsson, Brynjar Leifsson, Kristján Páll Kristjánsson, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, Ragnar Þórhallsson. Steingrímur Karl Teague: Píanó í lögum 2, 4, 5, 6, 7, og 9. Viktor Orri Árnason: Strengir í lögum 4, og 10. Meira
31. október 2019 | Tónlist | 77 orð | 1 mynd

Menningarhátíð sett

Menningarhátíð Seltjarnarness hefst í dag og stendur til og með 3. nóvember. Fjölbreytt dagskrá verður í boði og hefst hún í bókasafni bæjarins þar sem Guðrún Jónsdóttir, formaður menningarnefndar, setur hátíðina. Meira
31. október 2019 | Myndlist | 304 orð | 1 mynd

Ragnar endurgerir Santa Barbara

Myndlistarmaðurinn Ragnar Kjartansson ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur og segir nú frá því á vef The Art Newspaper að hann muni endurgera eða -skapa bandarísku sápuóperuna Santa Barbara og sýna í nýrri menningarmiðstöð, GES-2, í Moskvu í... Meira
31. október 2019 | Tónlist | 96 orð | 1 mynd

Segja frá Davíð og verkum hans

Í tilefni af því að 100 ár eru nú liðin frá útgáfu Svartra fjaðra , fyrstu ljóðabókar Davíðs Stefánssonar, verður haldinn viðburður með sömu yfirskrift í Hömrum í Hofi í kvöld kl. 20. Meira
31. október 2019 | Bókmenntir | 492 orð | 1 mynd

Skemmtilegra að renna blint í sjóinn

Árni Matthíasson arnim@mbl.is Aðferðir til að lifa af heitir ný skáldsaga Guðrúnar Evu Mínervudóttur. Meira
31. október 2019 | Kvikmyndir | 241 orð | 1 mynd

Sýningar hefjast á Vasulka-áhrifunum

Heimildarmyndin Vasulka-áhrifin verður frumsýnd í Bíó Paradís í kvöld og hefjast almennar sýningar á morgun. Myndin var fyrst sýnd á heimildarmyndahátíðinni Skjaldborg á Patreksfirði í júní sl. og hlaut þar áhorfendaverðlaun, Einarinn. Meira
31. október 2019 | Tónlist | 672 orð | 4 myndir

Tónninn gefinn á Húsavík

Fyrir það fyrsta er ekki hlaupið að því að setja fingurinn á það hvað drón (e. drone) er í raun og veru, til að fyrirbyggja furðu algengan misskilning þá erum við ekki að tala um drón sem fljúga! Meira
31. október 2019 | Tónlist | 344 orð | 1 mynd

Uppgjör Ásgeirs við langtímasamband

Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti Einarsson, sem notar listamannsnafnið Ásgeir, hefur sent frá sér nýtt lag, „Bernskuna“, sem verður á væntanlegri plötu hans Sátt sem kemur út 7. Meira
31. október 2019 | Bókmenntir | 339 orð | 3 myndir

Varnarleysi hinna óvelkomnu

Eftir Bubba Morthens. Mál og menning gefur út. 71 bls. kilja. Meira
31. október 2019 | Bókmenntir | 179 orð | 1 mynd

Verðlaunahafar ársins

Eins og greint var frá í blaðinu í gær hlaut Gyða Valtýsdóttir tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs 2019 sem afhent voru við hátíðlega athöfn í Stokkhólmi í fyrrakvöld. Fern önnur verðlaun voru veitt það sama kvöld. Meira
31. október 2019 | Fjölmiðlar | 211 orð | 1 mynd

Vinkona mín, blaðakonan sænska

Mikið sem hún Karin vinkona mín er skemmtileg og skelegg ung kona, og gaman að fá að fylgjast með henni á fimmtudagskvöldum á RÚV í sænsku þáttunum Systur 1968. Karin er ung blaðakona á sjöunda áratugnum sem fer til starfa hjá dagblaði í smábæ. Meira

Umræðan

31. október 2019 | Aðsent efni | 830 orð | 1 mynd

20 ára öryrkjaafmæli – staðalímyndir, sjálfið og skömmin

Eftir Unni H. Jóhannsdóttur: "Ég gat ekki unnið og ég skammaðist mín fyrir það. Í heimi normaliseringar ýttu geðhvörf og flogaveiki mér fram af brúninni og ég átti ekki afturkvæmt." Meira
31. október 2019 | Aðsent efni | 762 orð | 1 mynd

Bonneville Power og Landsvirkjun

Eftir Skúla Jóhannsson: "Bíðum með þjóðarsjóð og auðlindagjald, alla vega í bili. Ef afgangur verður á rekstri Landsvirkjunar, greiðum þá niður lán og veitum arði í ríkissjóð." Meira
31. október 2019 | Pistlar | 364 orð | 1 mynd

Eflum menntun á landsbyggðinni

Menntunartækifæri barna og ungmenna og aðgengi þeirra að íþrótta- og tómstundastarfi hefur áhrif á ákvarðanir foreldra um búferlaflutninga frá smærri byggðarlögum. Meira
31. október 2019 | Aðsent efni | 478 orð | 1 mynd

Eitthvað fyrir mig?

Eftir Birnu Varðardóttur: "Ef einstaklingsmiðað fæði er markmiðið þurfum við að vinna út frá bestu þekkingu hvers tíma til að hámarka heilsu og árangur en á sama tíma koma til móts við einstaklinginn og hans lífsstíl." Meira
31. október 2019 | Aðsent efni | 704 orð | 1 mynd

Ekkert um okkur án okkar

Eftir Ásthildi Sturludóttur: "Við þurfum að vera gildandi í allri umræðu og ákvörðunum um framtíð byggðar á norðurslóðum." Meira
31. október 2019 | Aðsent efni | 635 orð | 1 mynd

Fangelsaður og pyntaður – að gefast aldrei upp

Eftir Majed El Shafie: "Ísland getur verið birtan sem ryður burt myrkri trúarofsókna." Meira
31. október 2019 | Aðsent efni | 1127 orð | 1 mynd

Framtíðin er í húfi

Eftir Þröst Eysteinsson: "Skógrækt er öflugasta aðferðin sem við höfum til að binda kolefni úr andrúmsloftinu og þar með hægja á loftslagsbreytingum." Meira
31. október 2019 | Aðsent efni | 338 orð | 1 mynd

Hamfarahlýnun

Eftir Kristján Baldursson: "Kveikjan að þessu skrifi mínu er furðugrein sem birtist í Morgunblaðinu 22. okt. sl. eftir Valdimar H. Jóhannesson." Meira
31. október 2019 | Aðsent efni | 817 orð | 1 mynd

Lög samkvæmt pöntun

Eftir Steinar Berg Ísleifsson: "Þá kom til pólitískur klíkuskapur og ámælisverð vinnubrögð Alþingis sem breytti lögum í laumi til að reyna að ónýta hæstaréttardóminn." Meira
31. október 2019 | Aðsent efni | 824 orð | 1 mynd

Mun mannkynið eiga sér viðreisnar von?

Eftir Egil Þóri Einarsson: "Fjallað er um þær ógöngur sem mannkynið er í vegna ofneyslu og eyðileggingar náttúrulegra lífkerfa. Hvað er til ráða til að stöðva þessa þróun?" Meira
31. október 2019 | Aðsent efni | 530 orð | 1 mynd

Ný heimssýn fullvalda þjóðar

Eftir Hall Hallsson: "Það væri glapræði að endurtaka leikinn frá 1262 og selja okkur að þessu sinni undir þýðverskt/franskt forræði." Meira
31. október 2019 | Aðsent efni | 225 orð | 1 mynd

Sálfélagslegur stuðningur í endurhæfingu og meðferð krabbameina

Eftir Ásgeir R Helgason: "Konum með krabbamein, sem hafa aðgang að sálfélagslegum stuðningi, líður almennt betur en þeim sem hafa það ekki. Minna er vitað um karla." Meira
31. október 2019 | Aðsent efni | 524 orð | 1 mynd

Tækifæri í tengslum við sjávarútveg og fiskvinnslu

Eftir Hannes Kristin Gunnarsson: "Okkur hefur tekist vel til við stjórnun fiskveiða og við tæknivæðingu í fiskvinnslu." Meira

Minningargreinar

31. október 2019 | Minningargreinar | 504 orð | 1 mynd

Björn Þorbjarnarson

Björn Þorbjarnarson, fyrrverandi skurðlæknir í New York, fæddist á 9. júlí 1921. Hann lést í New Jersey 4. október 2019. Minningarathöfn um Björn mun fara fram á Flórída síðar. Meira  Kaupa minningabók
31. október 2019 | Minningargreinar | 2987 orð | 1 mynd

Egill Már Guðmundsson

Egill Már Guðmundsson fæddist 27. janúar 1952. Hann lést 10. október 2019. Útför hans fór fram 25. október 2019. Meira  Kaupa minningabók
31. október 2019 | Minningargreinar | 517 orð | 1 mynd

Eyjólfur G. Jónsson

Eyjólfur G. Jónsson fæddist í Reykjavík 18. apríl 1938. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Eir 3. október 2019. Hann var sonur Valgerðar M. Eyjólfsdóttur sjúkraliða og Jóns Eyþór Guðmundssonar, listmálara og kennara. Meira  Kaupa minningabók
31. október 2019 | Minningargreinar | 564 orð | 1 mynd

Guðrún Sigurveig Jóhannsdóttir

Guðrún Sigurveig Jóhannsdóttir fæddist 3. apríl 1941. Hún lést 16. október 2019. Útförin fór fram 25. október 2019. Meira  Kaupa minningabók
31. október 2019 | Minningargreinar | 393 orð | 1 mynd

Halldóra Kristjánsdóttir

Halldóra Kristjánsdóttir fæddist í Reykjavík 22. apríl 1965. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 28. september 2019 eftir skamma sjúkdómslegu. Foreldrar hennar voru Hólmfríður Hákonardóttir, f. 5. september 1942, d. 1980, og Kristján Oddgeirsson, f.... Meira  Kaupa minningabók
31. október 2019 | Minningargrein á mbl.is | 1195 orð | 1 mynd | ókeypis

Jónas Ásmundsson

Jónas Ásmundsson, fæddist á Bíldudal 24. september 1930. Hann lést á dvalarheimilinu Grund 19. október 2019. Foreldrar Jónasar voru Martha Ólafía Guðmundsdóttir húsmóðir, f. 4. apríl 1892, d. 18. Meira  Kaupa minningabók
31. október 2019 | Minningargreinar | 800 orð | 1 mynd

Jón Ragnar Haraldsson

Jón Ragnar Haraldsson fæddist 11. janúar 1924 í Hlíð á Vatnsnesi en flutti tveggja ára með foreldrum sínum að Haga í Þingi. Hann lést 20. október 2019. Meira  Kaupa minningabók
31. október 2019 | Minningargreinar | 389 orð | 1 mynd

Kristján Nikulásson Jónsson

Kristján Nikulásson Jónsson fæddist í Aðalstræti 50 á Akureyri 31. október 1919. Foreldrar hans voru hjónin Sesselja Lovísa Jónsdóttir húsfreyja, f. 1892, d. 1974, og Jón Björn Kristjánsson, síldarkaupmaður, húsgagnasmiður og bólstrari, f. 1890, d.... Meira  Kaupa minningabók
31. október 2019 | Minningargreinar | 570 orð | 1 mynd

Ólafur Ágústsson

Ólafur Ágústsson fæddist í Grindavík 22. júlí 1935. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð 25. október 2019. Foreldrar hans voru Matthildur Sigurðardóttir, f. 1. júní 1914 d. 10. september 2005, og Sveinbjörn Ágúst Sigurðsson, f. 11. ágúst 1906, d. 28. Meira  Kaupa minningabók
31. október 2019 | Minningargreinar | 20 orð | 1 mynd

Pálína Margrét Stefánsdóttir

Pálína Margrét Stefánsdóttir fæddist 12. febrúar 1925. Hún lést 20. september 2019. Útför Pálínu fór fram 4. október 2019. mbl.is/andlat Meira  Kaupa minningabók
31. október 2019 | Minningargrein á mbl.is | 1105 orð | 1 mynd | ókeypis

Pálína Margrét Stefánsdóttir

Pálína Margrét Stefánsdóttir fæddist 12. febrúar 1925 á Hvalskeri í Rauðasandshreppi. Hún lést á Landspítalanum Fossvogi 20. september 2019 eftir stutt veikindi.Foreldrar hennar voru Valborg Pétursdóttir, f. 8. janúar 1893, d. 17. Meira  Kaupa minningabók
31. október 2019 | Minningargrein á mbl.is | 843 orð | 1 mynd | ókeypis

Pálína Margrét Stefánsdóttir

Pálína Margrét Stefánsdóttir fæddist 12. febrúar 1925. Hún lést 20. september 2019.Útför Pálínu fór fram 4. október 2019. Meira  Kaupa minningabók
31. október 2019 | Minningargreinar | 1085 orð | 1 mynd

Svala Nielsen

Helga Svala Nielsen, sem alltaf var kölluð Svala, nema á bernskuárunum þegar hún gekk undir gælunafninu Lillý, fæddist á Akureyri 24. desember árið 1930. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum 14. október 2019. Meira  Kaupa minningabók
31. október 2019 | Minningargreinar | 330 orð | 1 mynd

Úlfur Einarsson

Úlfur Einarsson fæddist í Mýnesi 29. ágúst 1946. Hann lést 13. mars 2019. Foreldrar hans voru Laufey Guðjónsdóttir kennari og Einar Örn Björnsson bóndi á Mýnesi. Meira  Kaupa minningabók
31. október 2019 | Minningargreinar | 2324 orð | 1 mynd

Valborg Oddsdóttir

Valborg Oddsdóttir, Birkihlíð 38, Reykjavík, áður Neðra-Hálsi í Kjós, fæddist á fæðingardeild Landsspítalans 19. febrúar 1950. Hún lést á Líknardeild Landsspítalans 8. október 2019. Foreldrar Valborgar voru Oddur Andrésson, f. 24.11. 1912, d. 21.6. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

31. október 2019 | Viðskiptafréttir | 433 orð | 1 mynd

Bankar hagnast um 6 ma.

Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Stóru viðskiptabankarnir þrír, Landsbankinn, Arion banki og Íslandsbanki, skiluðu samtals rúmum sex milljörðum króna í hagnað á þriðja fjórðungi 2019. Meira
31. október 2019 | Viðskiptafréttir | 176 orð

Húsnæðisöryggi sé tryggt

Krafist er róttækra breytinga í húsnæðismálum svo tryggt sé að hagsmunir verkafólks verði teknir fram yfir hagsmuni fjármagnseigenda. Þetta segir í ályktun 7. þings Starfsgreinasambandsins sem haldið var í síðustu viku. Meira
31. október 2019 | Viðskiptafréttir | 112 orð

Icelandair hækkaði mest allra

Icelandair hækkaði mest allra félaga í Kauphöll Íslands í gær eða um 4,07% í 141 milljónar króna viðskiptum. Stendur gengið félagsins núna í 6,65 krónum hver hlutur. Meira
31. október 2019 | Viðskiptafréttir | 328 orð | 3 myndir

Veislan í Víkinni

„Fýllinn hefur um mannsaldra mótað matarmenningu á þessu svæði,“ segir Sigurður Elías Guðmundsson, veitingamaður í Víkurskála í Mýrdal. Þar var síðastliðna helgi efnt til fýlaveislu, hvar á borðum var saltaður og reyktur fýll. Meira

Daglegt líf

31. október 2019 | Daglegt líf | 190 orð | 1 mynd

Nýtist í faglegu starfi

Tíu meistaranemar í kennslu- og menntunarfræðum fengu nú í vikunni viðurkenningu skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar fyrir framúrskarandi lokaverkefni. Meira
31. október 2019 | Daglegt líf | 634 orð | 2 myndir

Útbrot á húð geta verið alvarleg

Húðútbrot hafa allflestir fengið en oft fær fólk áhyggjur af því að um sé að ræða alvarlegan sjúkdóm. Húðin er stærsta líffæri mannslíkamans og á húð geta oft komið fram ýmis merki um sjúkdóma. Meira
31. október 2019 | Daglegt líf | 1108 orð | 2 myndir

Vinkonur andvarpa yfir eigin ómegð

Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þær gera grín að eigin bugun sem þriggja barna mæður og segjast ekki skammast sín fyrir að allt sé í drasli heima. María og Emma andvarpa í hlaðvarpi. Meira

Fastir þættir

31. október 2019 | Fastir þættir | 143 orð | 1 mynd

1. d4 Rf6 2. c4 Rc6 3. Rc3 e5 4. dxe5 Rxe5 5. b3 Bb4 6. Bb2 0-0 7. e3 d5...

1. d4 Rf6 2. c4 Rc6 3. Rc3 e5 4. dxe5 Rxe5 5. b3 Bb4 6. Bb2 0-0 7. e3 d5 8. a3 Bxc3+ 9. Bxc3 He8 10. cxd5 Reg4 11. Bxf6 Dxf6 12. Rf3 Dc3+ 13. Meira
31. október 2019 | Árnað heilla | 84 orð | 1 mynd

Edda Sóley Þorsteinsdóttir

40 ára Edda er Reykvíkingur, ólst upp í Grafarvogi en býr í Seljahverfinu. Hún er jarðfræðingur að mennt, með meistaragráðu frá HÍ. Hún er verkefnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands og vinnur helst við malbiksrannsóknir. Meira
31. október 2019 | Árnað heilla | 82 orð | 1 mynd

Guðlaugur Hákon Þórðarson

60 ára Guðlaugur ólst upp í Reykjavík og á Tálknafirði en býr í Mosfellsbæ. Hann er skipstjórnarmenntaður og vélstjóri og er skipstjóri á eigin bát, sem heitir Dufan BA. Útgerð Guðlaugs nefnist Þiljur ehf. og er jafnframt fasteignafyrirtæki. Meira
31. október 2019 | Í dag | 242 orð

Hundurinn Sámur, dorg og leki

Þær fréttir hafa borist að búið sé að klóna hund Dorritar forsetafrúar – og er það „Gleðifrétt“ eins og Guðmundur Arnfinnsson segir: Sámur var sérstakur hundur, nýr Sámur er tækninnar undur, ei daufur né trist með dágóða lyst er... Meira
31. október 2019 | Í dag | 49 orð

Málið

Aftakaveður er sagt um fárviðri , sömuleiðis aftaksveður . Fleirtalan aftökur er og höfð um óveður, en merkingin líflát er búin að kaffæra hana. Aftök er bæði til um óveður og mikið frost , grimmdargadd. Meira
31. október 2019 | Fastir þættir | 174 orð

Merkilegt spil. N-Enginn Norður &spade;ÁG1096 &heart;G ⋄ÁK9...

Merkilegt spil. N-Enginn Norður &spade;ÁG1096 &heart;G ⋄ÁK9 &klubs;D874 Vestur Austur &spade;7543 &spade;KD8 &heart;872 &heart;D10953 ⋄DG106 ⋄82 &klubs;106 &klubs;G32 Suður &spade;2 &heart;ÁK64 ⋄7543 &klubs;ÁK95 Suður spilar... Meira
31. október 2019 | Árnað heilla | 30 orð | 1 mynd

Reykjavík Eva María Sigvaldadóttir fæddist 22. febrúar 2019 kl. 3.18...

Reykjavík Eva María Sigvaldadóttir fæddist 22. febrúar 2019 kl. 3.18. Hún vó 3.386 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Hanna Lea Magnúsdóttir og Sigvaldi Örn Gústavsson... Meira
31. október 2019 | Árnað heilla | 659 orð | 3 myndir

Tónlistarkennsla er mannrækt

Sigríður Ragnarsdóttir er fædd 31. október 1949 á Ísafirði og ólst þar upp. „Sem barn og unglingur eyddi ég flestum sumrum hjá móðurfólki mínu á Gautlöndum í Mývatnssveit og tók þar þátt í hefðbundnum sveitastörfum. Meira
31. október 2019 | Í dag | 77 orð | 1 mynd

Þeir háværustu fengu miða

Skipuleggjendur evrópsku MTV- verðlaunahátíðarinnar fóru fremur óvenjulega leið í miðagjöfum árið 2003. Meira

Íþróttir

31. október 2019 | Íþróttir | 82 orð | 1 mynd

Aron átti beinan þátt í tíu mörkum

Aron Pálmarsson, landsliðsmaður í handknattleik, lét ekki sitt eftir liggja þegar lið hans Barcelona vann öruggan sigur á þýsku meisturunum í Flensburg 34:27. Liðin mættust í Meistaradeild Evrópu á heimavelli Flensburg í gær. Meira
31. október 2019 | Íþróttir | 82 orð | 1 mynd

Dominos-deild kvenna Keflavík – Skallagrímur 70:75 KR &ndash...

Dominos-deild kvenna Keflavík – Skallagrímur 70:75 KR – Grindavík 81:66 Breiðablik – Valur 62:102 Snæfell – Haukar 56:61 Staðan: Valur 550466:31110 Haukar 541351:3058 KR 541396:3588 Skallagrímur 532351:3386 Keflavík 523354:3474... Meira
31. október 2019 | Íþróttir | 113 orð | 1 mynd

Fimm úr Val og fjórar úr Haukum í landsliðshópnum

Meistarar Vals eiga fimm leikmenn og Haukar fjóra í 16 kvenna landsliðshópi Íslands í körfubolta sem Benedikt Guðmundsson valdi í gær. Æfingahópurinn kemur saman 10. nóvember til undirbúnings fyrir fyrstu leikina í undankeppni EM 2021. Meira
31. október 2019 | Íþróttir | 47 orð | 1 mynd

Garðbæingar ætla sér að fara alla leið

„Ég held að stóri bikarinn sé það sem allir Stjörnumenn hafi augun á. Auðvitað viljum við vinna alla titla en flestra augu eru á Íslandsmeistaratitlinum,“ segir Arnþór Freyr Guðmundsson, leikmaður Stjörnunnar, meðal annars. Meira
31. október 2019 | Íþróttir | 74 orð | 1 mynd

Hamar lét Rochford fara

Topplið 1. deildar karla í körfuknattleik, Hamar í Hveragerði, hefur ákveðið að láta miðherjann Kinu Rochford fara. Rochford lék mjög vel með Þór Þorlákshöfn í efstu deild í fyrra en hefur ekki látið eins mikið að sér kveða hjá Hamri. Meira
31. október 2019 | Íþróttir | 62 orð | 1 mynd

Hegerberg sló metið

Ada Hegerberg, framherji franska knattspyrnuliðsins Lyon, var á skotskónum þegar Evrópumeistararnir fengu Fortuna Hjörring í heimsókn í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gær. Meira
31. október 2019 | Íþróttir | 77 orð | 1 mynd

Helgi og Ævar teknir við SR

Einn af reyndustu mönnum í íshokkíhreyfingunni á Íslandi, Helgi Páll Þórisson, er tekinn við þjálfun karlaliðs SR. Helgi hefur verið leikmaður, dómari og stjórnarmaður í ÍHÍ á ferlinum. Meira
31. október 2019 | Íþróttir | 913 orð | 5 myndir

Kári tryggði ÍBV jafntefli

Á Ásvöllum/Í Austurbergi/Á Akureyri Ívar Benediktsson Jóhann Ingi Hafþórsson Einar Sigtryggsson Haukar voru sjálfum sér verstir gegn baráttuglöðum Eyjamönnum þegar liðin mættust í toppslag 7. Meira
31. október 2019 | Íþróttir | 159 orð | 1 mynd

KSÍ útdeilir 120 milljónum króna til aðildarfélaga

UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, leggur aðildarsamböndum sínum til fé ár hvert til eflingar barna- og unglingastarfi. Að þessu sinni fær KSÍ um 60 milljónir króna. Meira
31. október 2019 | Íþróttir | 366 orð | 5 myndir

*Kvennalið KR í knattspyrnu hefur fengið góðan liðsstyrk en Ana Victoria...

*Kvennalið KR í knattspyrnu hefur fengið góðan liðsstyrk en Ana Victoria Cate og Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir hafa skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Meira
31. október 2019 | Íþróttir | 798 orð | 4 myndir

Markmiðið að vinna Íslandsmótið

Stjarnan Kristján Jónsson kris@mbl.is „Við teljum okkur geta farið alla leið. Við förum ekki í felur með það þótt við höfum tapað tveimur leikjum í röð. Meira
31. október 2019 | Íþróttir | 228 orð | 1 mynd

Meistaradeild kvenna 16-liða úrslit, seinni leikir: Twente &ndash...

Meistaradeild kvenna 16-liða úrslit, seinni leikir: Twente – Wolfsburg 0:1 • Sara Björk Gunnarsdóttir lék síðari hálfleikinn fyrir Wolfsburg og brenndi af víti. *Wolfsburg áfram, 7:0 samanlagt. Meira
31. október 2019 | Íþróttir | 70 orð | 1 mynd

Nær Berglind tug í París?

„Við áttum góðan leik á Íslandi en við erum bara hálfnuð. Við þurfum að taka verkefnið alvarlega og gefa okkur öll í það,“ sagði Olivier Echouafni, þjálfari PSG, í gær. Meira
31. október 2019 | Íþróttir | 152 orð | 1 mynd

Olísdeild karla Haukar – ÍBV 28:28 KA – Stjarnan 27:27 ÍR...

Olísdeild karla Haukar – ÍBV 28:28 KA – Stjarnan 27:27 ÍR – FH 27:32 *Leikjum Fjölnis og Vals, og HK og Fram, var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Sjá úrslit og stöðu á mbl.is/sport/handbolti. Meira
31. október 2019 | Íþróttir | 72 orð | 1 mynd

Samúel í úrslit bikarkeppninnar

Samúel Kári Friðjónsson leikur til úrslita í norsku bikarkeppninni í knattspyrnu. Lið hans Viking frá Stavangri vann í gær Ranheim í undanúrslitum keppninnar 3:0. Meira
31. október 2019 | Íþróttir | 440 orð | 5 myndir

Skallagrímur vann í Keflavík

Í Keflavík Skúli B. Sigurðsson sport@mbl.is Keflavík og Skallagrímur mættust í Keflavík í 5. umferð Dominos-deildar kvenna í Blue-höll þeirra Keflvíkinga í gærkvöldi. Meira
31. október 2019 | Íþróttir | 74 orð | 1 mynd

Wolfsburg í 8-liða úrslitin af öryggi

Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, er komin áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu með liði sínu Wolfsburg. Þýsku meistararnir slógu í gær Twente frá Hollandi út úr keppninni 7:0 samanlagt. Meira
31. október 2019 | Íþróttir | 301 orð | 1 mynd

Það er til skammar og angrar mig alveg rosalega hvernig stjórnvöld hafa...

Það er til skammar og angrar mig alveg rosalega hvernig stjórnvöld hafa dregið lappirnar varðandi uppbyggingu íþróttamannvirkja hér á landi. Í raun finnst mér þó meira pirrandi að það skuli ekki vera hægt að setja fram skýr svör og stefnu í þessum... Meira

Ýmis aukablöð

31. október 2019 | Blaðaukar | 16 orð | 1 mynd

10

Forskot íslensks sjávarútvegs mun ekki vara að eilífu og greinin þarf stöðugt að vera á... Meira
31. október 2019 | Blaðaukar | 19 orð | 1 mynd

16

Einn góðan veðurdag verða kannski bara róbótar að störfum í fiskvinnslum. Þeir ráða vel við slítandi og tilbreytingarlaus... Meira
31. október 2019 | Blaðaukar | 21 orð | 1 mynd

18

Það hefur reynst íslenskum sjávarútvegi mikið gæfuspor að sýna metnað á sviði nýsköpunar, rannsókna og vöruþróunar. Enn eru mörg tækifæri... Meira
31. október 2019 | Blaðaukar | 18 orð | 1 mynd

6

Miklu skiptir fyrir framtíð greinarinnar að takist að vekja og viðhalda áhuga unga fólksins á störfum tengdum... Meira
31. október 2019 | Blaðaukar | 21 orð | 1 mynd

8

Jens Garðar Helgason skoðar hvað hefur áunnist og hvaða áskoranir eru fram undan á fimm ára afmæli Samtaka fyrirtækja í... Meira
31. október 2019 | Blaðaukar | 785 orð | 2 myndir

Að mörgu að huga um borð í Senju

Flestallt hefur farið samkvæmt áætlun í stærsta verkefni í sögu Slippsins á Akureyri. Krefjandi er að koma fyrir miklum búnaði. Meira
31. október 2019 | Blaðaukar | 514 orð | 2 myndir

„Einn fullkomnasti bátur af þessari stærð“

Eigendur Aflhluta hafa haft milligöngu og umsjón með smíði nýs Bárðar SH. Þeir telja nýjungar bátsins draga bæði úr viðhaldskostnaði og óhagkvæmni smærri og eldri báta. Meira
31. október 2019 | Blaðaukar | 1056 orð | 2 myndir

Forskotið varir ekki að eilífu

Axel Helgason segir íslenskan sjávarútveg þurfa að vera meðvitaðan um að aðrar fiskveiðiþjóðir keppast við að auka hjá sér gæðin og saxa á það forskot sem íslenskar sjávarafurðir hafa notið um langt skeið. Meira
31. október 2019 | Blaðaukar | 410 orð | 2 myndir

Fóru upp gráir en niður aftur bláir

Gaman var að fylgjast með því síðasta sumar þegar tveir bátar „skiptu um ham“ á nokkrum vikum í Slippnum í Reykjavík. Meira
31. október 2019 | Blaðaukar | 782 orð | 2 myndir

Gefandi og skemmtilegt að leiða SFS

Fimm ár eru liðin frá því að Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi voru stofnuð. Þegar litið er til baka telur formaður samtakanna að mikill árangur hafi náðst eftir að kraftar fjölbreyttra fyrirtækja fóru að vinna saman. Meira
31. október 2019 | Blaðaukar | 955 orð | 4 myndir

Kína kallar á sérstök vinnubrögð

Kínverskur neytendamarkaður er risastór og verðmætur, en þar gilda ekki sömu lögmál og á Vesturlöndum. Fyrsta skrefið ætti alltaf að vera að skapa sýnileika í forritinu WeChat. Meira
31. október 2019 | Blaðaukar | 396 orð | 2 myndir

Kynna konum tækifærin í sjávarútvegi

Formaður Kvenna í sjávarútvegi segir mikilvægt að efla þær konur sem fyrir eru í greininni á sama tíma og vakin er áhugi annarra. Meira
31. október 2019 | Blaðaukar | 327 orð | 11 myndir

Lífið í sjónum gert sýnilegt

Á vefnum Sjávarlíf.is má finna stórt safn fallegra ljósmynda af fiskum og furðuverum sem lifa í hafinu umhverfis Ísland. Meira
31. október 2019 | Blaðaukar | 929 orð | 2 myndir

Róbótinn kann að handleika fiskinn

Róbótar sem stafla þungum fiskkössum á bretti eru þegar komnir í notkun en í framtíðinni gætu róbótar séð um velflest störf í fiskvinnslum svo mannshöndin þurfi hvergi að koma nærri. Meira
31. október 2019 | Blaðaukar | 575 orð | 2 myndir

Sjálfsiglandi rafskip framtíðarinnar

Sjálvirknivæðingin er hafin á flestum sviðum og geta leynst tækifæri í tækni sem getur boðið útgerðum bæði lægri kostnað og betri lausnir fyrir umhverfið. Meira
31. október 2019 | Blaðaukar | 995 orð | 3 myndir

Stanslaus hagsmunabarátta

Þorlákur Halldórsson er nýr formaður Landssambands smábátaeigenda. Hann stundar útgerð og harðfiskverkun í Grindavík auk formennskunnar og segir skugga erfiðra ára hvíla yfir smábátaútgerð. Meira
31. október 2019 | Blaðaukar | 33 orð | 1 mynd

Útgefandi Árvakur Umsjón Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Blaðamenn Ágúst...

Útgefandi Árvakur Umsjón Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Blaðamenn Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Auglýsingar Bjarni Ólafur Guðmundsson bog@mbl. Meira
31. október 2019 | Blaðaukar | 1101 orð | 2 myndir

Verða að breytast í takt við tímann

Landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra segir nýtingarstefnuna ógn við þá sem staðna og fylgja ekki tækniþróun, þekkingarstigi og straumum tímans. Meira
31. október 2019 | Blaðaukar | 1048 orð | 3 myndir

Víða eru tækifæri til að gera enn betur

Sjávarklasinn, Codland og Niceland Seafood hafa náð eftirtektarverðum árangri með nýsköpunarstarfi sínu. Meira
31. október 2019 | Blaðaukar | 872 orð | 2 myndir

Þar sem öll greinin kemur saman

Sjávarútvegsráðstefnan fer fram 7. og 8. nóvember og er ætluð öllum þeim sem eru forvitnir um þessa fjölbreyttu og öflugu atvinnugrein. Meira
31. október 2019 | Blaðaukar | 174 orð | 1 mynd

Þetta hefst allt með fiskinum, og hugvitinu

Sjávarútvegsráðstefnan verður haldin í tíunda sinn dagana 7. og 8. nóvember. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.