Greinar laugardaginn 9. janúar 2021

Fréttir

9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 65 orð | 1 mynd

800 þúsund plastpokar endurunnir

Þegar ný lög sem banna verslunum sölu á plastpokum tóku gildi sat Fríhöfnin uppi með tæplega árs birgðir af pokum merktum fyrirtækinu. Fyrirtækið hefur náð samkomulagi við Pure North Recycling í Hveragerði um að pokarnir verði endurunnir. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 125 orð | 1 mynd

Alþingismenn að snúa úr jólaleyfi

Alþingismenn koma til starfa í næstu viku að loknu jólaleyfi. Fundur forseta Alþingis með formönnum þingflokka verður á mánudaginn klukkan 11 og nefndarstarf hefst á þriðjudaginn. Fyrsti þingfundur nýs árs verður haldinn mánudaginn 18. janúar. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 583 orð | 1 mynd

Áformin stranda enn á leyfi til nýtingar

Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Súðavíkurhreppur og Íslenska kalkþörungafélagið stefna að því að hafa fyrir miðjan febrúar tilbúin drög að samningi um lóð undir verksmiðju félagsins, Djúpkalk, í Súðavík. Skipulag er nú klárt. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 107 orð | 1 mynd

Ákvörðun um verndun náttúrunnar

Stofnun hálendisþjóðgarðs er það málefni sem er efst á baugi hjá umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundi Inga Guðbrandssyni, um þessar mundir. „Allt er þetta hluti af stærri sýn. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 485 orð | 1 mynd

„Krúttlegur lúxus“

Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hveragerði var þekktur skáldabær fyrir miðja síðustu öld og þar hafa margir listamenn átt heima. Í bænum búa núna skáld eins og til dæmis Guðrún Eva Mínervudóttir, sem býður fólki upp á dvöl og ráðgjöf við skapandi skrif í umhverfi sínu. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 61 orð | 1 mynd

Beðið eftir sæti og tilslökunum stjórnvalda

Fólk beið eftir því að komast að á veitingastaðnum og brugghúsinu Bastard á Vegamótastíg þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið þar hjá í gærkvöldi. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 274 orð

Borgin vill ekki aðstoða

Baldur Arnarson baldura@mbl.is Reykjavíkurborg lýsir sig andsnúna hugmyndum um frestun fasteignagjalda til að koma til móts við fyrirtæki í kórónuveirufaraldrinum. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 337 orð | 3 myndir

Dómarar takast á um „dómsmorð“

Karitas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is Tekist var á í dómsal í Hæstarétti í gær um meiðyrðamál Benedikts Bogasonar, forseta Hæstaréttar, gegn Jóni Steinari Gunnlaugssyni, fyrrverandi hæstaréttardómara. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 334 orð | 2 myndir

Dýrt að laga húsin á Skagaströnd

Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fyrirhuguð afhending sjávarútvegsfyrirtækisins FISK Seafood á nokkrum eignum á Skagaströnd til Sveitarfélagsins Skagastrandar hafa ekki verið teknar fyrir í sveitarstjórn. Halldór G. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 41 orð | 1 mynd

Eggert

Samgöngur Fararskjótar mannsins eru jafn misjafnir og þeir eru margir. Meðal þeirra er forláta þríhjól með kassa framan á sem getur komið sér vel í snatti á milli staða, líkt og hjá þessum manni í Austurstræti um miðjan dag í... Meira
9. janúar 2021 | Erlendar fréttir | 612 orð | 1 mynd

Enn þrýst á um afsögn

Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í gær að hann hygðist ekki sækja innsetningarathöfn Joes Biden, verðandi Bandaríkjaforseta, 20. janúar næstkomandi. Trump verður þar með fyrsti forsetinn frá árinu 1869 til að sækja ekki innsetningarathöfnin eftirmanns síns, en ekki var víst hvort Mike Pence varaforseti myndi sækja athöfnina í hans stað. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 758 orð | 2 myndir

Framkvæmdum við sundmiðstöð að ljúka

Úr bæjarlífinu Svanhildur Eiríksdóttir Reykjanesbæ Áður en ég flyt tíðindi úr Reykjanesbæ vil ég óska lesendum gleðilegs árs. Þrjár ungar konu r búsettar hér í bæ voru áberandi á árinu 2020 og var ánægjulegt að fylgjast með velgengni þeirra. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 455 orð | 1 mynd

Ísland fær tvöfalt fleiri skammta

Ragnhildur Þrastardóttir Oddur Þórðarson Ísland á rétt á helmingi fleiri skömmtum af bóluefni lyfjafyrirtækisins Pfizer við kórónuveirunni vegna nýs samnings sem Evrópusambandið undirritaði í gær. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 145 orð

Kaupir íbúð og bíl fyrir Víkingalottóvinning

„Hann var með forgangsröðina á hreinu ungi maðurinn sem vann 59,7 milljónir í Vikinglottó sl. miðvikudag; fyrst ætlar hann að kaupa sér íbúð og síðan bíl og svo ætlar hann að gera eitthvað skemmtilegt fyrir afganginn. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 264 orð | 1 mynd

Kúabændurnir spara tíeyring

Stjórn Auðhumlu, samvinnufélags mjólkurbænda, samþykkti á fundi sínum á dögunum að sá kostnaður lækki sem bændur greiða fyrir söfnun mjólkur sem fer til afurðastöðva. Meira
9. janúar 2021 | Erlendar fréttir | 117 orð | 1 mynd

Kæra „kolkrabbann“ fyrir rógburð

Bandaríska kosningafyrirtækið Dominion Voting Systems hefur kært Sidney Powell, fyrrverandi þátttakanda í lögfræðingateymi Donalds Trump Bandaríkjaforseta, fyrir rógburð og meiðyrði í garð fyrirtækisins, en Powell hafði m.a. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 57 orð | 1 mynd

Lalli og töframaðurinn snýr aftur

Sýningin Lalli og töframaðurinn eftir Lárus Blöndal Guðjónsson og Ara Frey Ísfeld Óskarsson í leikstjórn Ara snýr aftur á svið Tjarnarbíós frá og með morgundeginum, sunnudegi, klukkan 13. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 219 orð | 1 mynd

Laxeldi í Dýrafirði meira en tvöfaldað

Arctic Sea Fish áformar að meira en tvöfalda eldi á laxi í sjókvíum í Dýrafirði. Fyrirtækið hefur nú leyfi til að framleiða 4.200 tonn af regnbogasilungi og laxi í firðinum en áformar að auka eldið í 10 þúsund tonn af laxi, miðað við hámarkslífmassa. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 183 orð | 2 myndir

Leynd er yfir bótum Boeing

Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir félagið ekki geta upplýst hversu miklar bætur það fær frá flugvélaverksmiðjunum Boeing vegna kyrrsetningar Max-þotnanna. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 478 orð | 2 myndir

Lækkun varð á „sorpvísitölunni“ annað árið í röð

Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Sorpvísitalalan“ lækkaði í fyrra ef miðað er við heildarmagn úrgangs sem barst til Sorpu bs. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 381 orð | 1 mynd

Mikilvægast er núna að tryggja velferð íbúanna

Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Hreinsunarstarfið gengur ágætlega, en verkefnið er risavaxið svo nokkur tími mun líða uns afrakstur fer að sjást,“ segir Vilhjálmur Jónsson á Seyðisfirði og bæjarfulltrúi í Múlaþingi. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 152 orð | 1 mynd

Nýtt hótel hefur tekið á sig mynd

Nú hafa vinnupallar verið fjarlægðir að mestu af hinni nýju hótelbyggingu við Austurvöll. Því getur fólk virt fyrir sér útlit bygginga, sem standa munu á þessu sögufræga götuhorni Reykjavíkur næstu aldirnar. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 155 orð | 1 mynd

Ofsaveður á Austurlandi

Gul og appelsínugul veðurviðvörun tók gildi á stórum hluta landsins í nótt og árdegis í dag, þar sem vindhviður geta farið í 45 m/s og ekkert veður verður til ferðalaga. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 445 orð | 1 mynd

Ónotaðir plastpokar í endurvinnslu

Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli situr uppi með tæplega ársbirgðir af plastpokum sem viðskiptavinir verslunarinnar í komusal flugstöðvarinnar hafa nýtt undir sælgæti, áfengi og annan tollfrjálsan varning sem þar má kaupa. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 144 orð | 1 mynd

Samið um 12 ný dagdvalarrými

Hafnarfjarðarbær og Sóltún öldrunarþjónusta ehf. skrifuðu í gær undir samning um rekstur sérhæfðrar dagdvalar á Sólvangi. Meira
9. janúar 2021 | Erlendar fréttir | 204 orð | 1 mynd

Semja um fleiri skammta frá Pfizer

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, lýsti því yfir í gær að sambandið hefði náð fram breytingu á samkomulagi sínu við BioNTech og Pfizer og þannig tvöfaldað þann fjölda bóluefnaskammta gegn kórónuveirunni sem aðildarríki... Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 503 orð | 3 myndir

Skera þarf úr deilu um lóð Laxabakka fyrir dómi

Guðni Einarsson gudni@mbl.is Jarðirnar Alviðra og Öndverðarnes II hafa verið sameiginleg eign Landverndar og Héraðsnefndar Árnesinga frá árinu 1973 þegar Magnús Jóhannesson, bóndi í Alviðru, afhenti þeim landið til eignar. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 176 orð | 1 mynd

Stefnt að opnun eftir þessa helgi

Vegna flókins undirbúnings hefur skatturinn ítrekað þurft að fresta opnun fyrir umsóknir um tekjufallsstyrki, sem samþykktir voru sem lög frá Alþingi í byrjun nóvember. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 542 orð | 2 myndir

Stjórnvöld létta á takmörkunum

Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir Oddur Þórðarson Slakað verður á samkomutakmörkunum hér á landi miðvikudaginn 13. janúar og eiga nýjar reglur að gilda til og með 17. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 240 orð | 1 mynd

Súrmetið komið í verslanir tveimur vikum fyrir þorra

Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Þorramaturinn fær alltaf góðar viðtökur og rýkur út,“ segir Karl Hafsteinsson, verslunarstjóri Krónunnar í Lindum í Kópavogi. Þótt enn séu tæpar tvær vikur í þorrann, sem gengur í garð með bóndadegi, 22. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 629 orð | 2 myndir

Telja Brexit betri kost en EES-samninginn

Fréttaskýring Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Það styttist óðum í þingkosningar í Noregi en þær fara fram 13. september nk. Meira
9. janúar 2021 | Erlendar fréttir | 93 orð

Tvær borgir settar í sóttkví vegna smits

Kínversk stjórnvöld ákváðu í gærmorgun að setja tvær borgir sunnan höfuðborgarinnar Peking í sóttkví vegna mesta fjölda nýrra tilfella kórónuveirunnar í landinu í hálft ár. Meira
9. janúar 2021 | Innlendar fréttir | 260 orð | 1 mynd

Umferð sett takmörk vegna loftmengunar

Ómar Friðriksson omfr@mbl. Meira

Ritstjórnargreinar

9. janúar 2021 | Leiðarar | 863 orð

Bóluefnaklúður ESB

„...mikilvægt að geta hagað sér eins og sjálfstæð þjóð“ Meira
9. janúar 2021 | Reykjavíkurbréf | 2002 orð | 1 mynd

Ertu alltaf í boltanum, eða hinu?

Það er næsta óþarft að taka fram að stjórnmálamenn séu sjaldnast nokkuð mikið meira en það. Menn sem snuddast í stjórnmálum. Þeir eru þó stundum hafnir til skýjanna eða holað niður dimma skúta. En eins og í öllum öðrum greinum eru þeir misgóðir í sínu „fagi“, þótt ekki sé til algildur mælikvarði á hvenær sá hópur sé góður í almennri merkingu orðsins. Meira
9. janúar 2021 | Staksteinar | 214 orð | 1 mynd

Reykjavík þéttir byggð á Suðurlandi

Morgunblaðið fjallaði í gær og fyrradag um mikla uppbyggingu í Vestmannaeyjum og á Suðurlandi. Athyglisvert er að sjá hve mikill kraftur er í byggingarstarfsemi á þessum svæðum, bæði byggingar atvinnuhúsnæðis og íbúða. Eitt af því sem er umhugsunarvert er að töluverður hluti húsnæðisins eru einbýlishús og raðhús, en afar lítið framboð hefur verið á slíku húsnæði í höfuðborginni. Í umfjölluninni kemur fram að fimmtán milljónum króna geti munað á einbýlishúsalóð á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu, sem án efa skýrir að margir kjósa að byggja þak yfir sig og fjölskyldu sína fyrir austan fjall frekar en í Reykjavík. Meira

Menning

9. janúar 2021 | Leiklist | 221 orð | 1 mynd

30 fá 132 milljónir

Samtals 132 milljónum til 30 verkefna hefur verið úthlutað úr sviðslistasjóði fyrir 2021. Alls bárust 143 umsóknir frá atvinnusviðslistahópum, en sótt var um ríflega 738 milljónir. Stjórnvöld juku framlag til sjóðsins milli ára um 37 milljónir. Meira
9. janúar 2021 | Bókmenntir | 550 orð | 3 myndir

Að taka pláss eða sleppa því bara

Eftir Eyrúnu Ósk Jónsdóttur. Bjartur, 2020. Kilja, 102 bls. Meira
9. janúar 2021 | Menningarlíf | 98 orð | 1 mynd

Andreas sýnir og Ottó segir frá

Myndlistarmaðurinn Andreas Brunner opnar í dag, laugardag, kl. 14 sýninguna „Ég hugsa upphátt það sem ég segi hljóðlega“ í Kompunni í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Sýningin er opin daglega frá kl. 14 til 17 til 24. Meira
9. janúar 2021 | Fjölmiðlar | 188 orð | 1 mynd

Athyglinni beint að hljóðfæraleikurum

Önnur þáttaröðin af tónlistarþáttunum Ber er hver að baki hefur hafið göngu sína á Rás 1, annarri af tveimur útvarpsstöðvum ríkisins. Meira
9. janúar 2021 | Tónlist | 536 orð | 3 myndir

Ást orðum ofar...

Allt þetta helvítis myrkur er önnur breiðskífa Kötlu sem er sveit þeirra Guðmundar Óla Pálmasonar og Einars Thorberg Guðmundssonar. Kynngikraftur býr í plötunni rétt eins og í samnefndu fjalli. Meira
9. janúar 2021 | Tónlist | 1321 orð | 2 myndir

Saknar þess að spila fyrir fólk

Viðtal Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þegar ljóst var að lítið sem ekkert yrði af tónleikahaldi í ár ákváðum við í vor að skella í þessa plötu,“ segir Helga Kvam um plötu sem nefnist Þráðurinn hvíti. Á plötunni flytur Helga ásamt Þórhildi Örvarsdóttur söngkonu níu ný lög eftir íslensk tónskáld. Meira
9. janúar 2021 | Myndlist | 120 orð | 1 mynd

Sýning Gígju Jónsdóttur opnuð í Midpunkt í dag

Sýning listakonunnar Gígju Jónsdóttur, „Þrjár kynslóðir af bleikum“, verður opnuð í sýningarsalnum Midpunkt í Hamraborg í Kópavogi í dag frá kl. 14 til 17. Verður sýningin opin á laugardögum og sunnudögum til 24. janúar. Meira
9. janúar 2021 | Menningarlíf | 1085 orð | 3 myndir

Tilhugalíf þeirra varði í 17 ár

Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Ég gladdist mjög. Líka yfir því að bein, sem væntanlega eru Ragnhildar, skyldu vera nánast ofan í sömu gröf. Meira
9. janúar 2021 | Bókmenntir | 712 orð | 12 myndir

Um 450 listamenn fá starfslaun

Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Tilkynntar hafa verið úthlutanir ársins 2021 úr launasjóðum listamanna. Til úthlutunar úr launasjóðnum í ár eru 2.150 mánaðarlaun, sem er 550 mánaða aukning frá 1. Meira

Umræðan

9. janúar 2021 | Aðsent efni | 370 orð | 1 mynd

Að gefnu tilefni

Eftir Þorvald Víðisson: "Það sem ég þekki til get ég fullyrt að biskup Íslands hefur lagt sig í líma við að leysa úr þeim málum á sem farsælastan og bestan máta." Meira
9. janúar 2021 | Aðsent efni | 419 orð | 1 mynd

Aukið fjármagn til verndar náttúru landsins

Eftir Guðmund Inga Guðbrandsson: "Ég hef metnað til að búa vel að þessum svæðum en stór skref hafa verið stigin á þessu kjörtímabili í þá átt, bæði með aukinni landvörslu og uppbyggingu innviða sem skýla náttúrunni." Meira
9. janúar 2021 | Aðsent efni | 461 orð | 1 mynd

Aukin lífsgæði ungs fólks með skerta starfsgetu

Eftir Halldór Benjamín Þorbergsson: "Með virkri starfsendurhæfingu og fjölbreyttum tækifærum er einstaklingum með skerta starfsorku veitt tækifæri til atvinnuþátttöku." Meira
9. janúar 2021 | Pistlar | 289 orð

Árásirnar á þinghúsin

Heimsbyggðin fylgdist agndofa með því, er æstur lýður braust 6. janúar inn í bandaríska þinghúsið. Er með ólíkindum, að hann hafi komist svo langt. Það er fróðlegt siðferðilegt úrlausnarefni, hver ber ábyrgðina. Meira
9. janúar 2021 | Pistlar | 807 orð | 1 mynd

Baráttan um miðjuna

Svar Sjálfstæðisflokksins hlýtur að vera gagnsókn inn á miðjuna Meira
9. janúar 2021 | Pistlar | 462 orð | 2 myndir

„ þýddu og þegiðu!“

Lestu, þýddu og þegiðu.“ Þessi orð áttu að lýsa tungumálakennslunni hér í gamla daga. Það er alveg rétt að við vorum látin lesa texta upphátt sem við áttum síðan að þýða. Og svo áttum við náttúrlega að þegja þegar röðin var komin að næsta nemanda. Meira
9. janúar 2021 | Pistlar | 402 orð | 1 mynd

Breyttar samkomutakmarkanir

Þann 10. desember 2020 tók gildi reglugerð um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar af völdum Covid-19. Síðan sú reglugerð tók gildi hefur staða faraldursins hérlendis verið tiltölulega góð. Meira
9. janúar 2021 | Velvakandi | 194 orð | 1 mynd

Endurútgáfa á Ástrík og Tinna

Virðulegu þýðendur hjá bókaútgáfunni Froski. Meira
9. janúar 2021 | Aðsent efni | 634 orð | 1 mynd

Er þorskurinn í frjálsu falli?

Eftir Guðmund Þórðarson: "Nauðsynlegt er að standa vörð um þá vöktun og rannsóknir sem unnar hafa verið á undanförnum árum." Meira
9. janúar 2021 | Aðsent efni | 758 orð | 1 mynd

Geðheilsan í kófinu

Eftir Ólaf Ó. Guðmundsson: "Ef áætluð þjónustuaukning Breta er yfirfærð má gera ráð fyrir að tugþúsundir Íslendinga þurfi á geðheilbrigðisþjónustu að halda vegna faraldursins." Meira
9. janúar 2021 | Aðsent efni | 540 orð | 1 mynd

Landamæri góðs og ills?

Eftir Arnar Þór Jónsson: "Aðför að lýðræðinu er um leið aðför að borgaralegu samfélagi" Meira

Minningargreinar

9. janúar 2021 | Minningargreinar | 456 orð | 1 mynd

Birgir Svan Símonarson

Birgir Svan fæddist 3. nóvember 1951. Hann lést 25. desember 2020. Útför Birgis fór fram 8. janúar 2021. Meira  Kaupa minningabók
9. janúar 2021 | Minningargreinar | 1606 orð | 1 mynd

Einar Hallsson

Einar Hallsson fæddist á Karlstöðum í Vöðlavík 18. október 1954. Hann lést af slysförum 3. desember 2020. Foreldrar Einars voru Þóra Ólöf Guðnadóttir, f. 20. febrúar 1930, d 10. maí 2016, og Hallur Guðmundsson, f. 20. ágúst 1918, d 6. janúar 1997. Meira  Kaupa minningabók
9. janúar 2021 | Minningargreinar | 2114 orð | 1 mynd

Haukur Magnús Arinbjarnarson

Haukur Magnús Arinbjarnarson fæddist í Borgarnesi 25. desember 1933. Hann lést 28. desember 2020 á sjúkrahúsinu á Akranesi. Foreldrar hans voru Arinbjörn Magnússon, f. 16. september 1897, d. 22. desember 1978, og Guðný Guðnadóttir, f. 9. janúar 1905, d. Meira  Kaupa minningabók
9. janúar 2021 | Minningargreinar | 408 orð | 1 mynd

Hreinn Gunnarsson

Hreinn Gunnarsson fæddist 3. febrúar 1944 í Kaupmannahöfn. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Fossheimum á Selfossi 3. janúar 2021. Foreldrar hans voru Gunnar Salomonsson, f. 15. júní 1907, d. 3. janúar 1960, og Gretha Petersen, f. 2. febrúar 1924. Meira  Kaupa minningabók
9. janúar 2021 | Minningargreinar | 1632 orð | 1 mynd

Kristrún Sigurbjörnsdóttir

Kristrún Sigurbjörnsdóttir fæddist á Skeiði í Fljótum 28. nóvember 1947. Hún lést á Heilbrigðisstofnuninni á Siglufirði 30. desember 2020. Foreldrar hennar voru Sigurbjörn Bogason, f. 3. september 1906, d. 8. Meira  Kaupa minningabók
9. janúar 2021 | Minningargreinar | 801 orð | 1 mynd

Margrét Ólafsdóttir

Margrét Ólafsdóttir fæddist á Eskifirði 19. október 1920. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 24. desember 2020. Foreldrar hennar voru Guðrún Björg Ingvarsdóttir frá Ekru í Neskaupstað, húsmóðir, f. 1.12. 1896, d. 3.12. Meira  Kaupa minningabók
9. janúar 2021 | Minningargreinar | 2105 orð | 1 mynd

María J. Valgarðsdóttir

María J. Valgarðsdóttir fæddist á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 28. apríl 1952. Hún lést á annan dag jóla, 26. desember 2020, á lungnadeild Landspítalans í Fossvogi. Foreldrar hennar eru Jakobína R. Valdimarsdóttir, f. 2.8. 1921, og Valgarð Björnsson, f. Meira  Kaupa minningabók
9. janúar 2021 | Minningargreinar | 1823 orð | 1 mynd

Sveinn Sveinsson

Sveinn Sveinsson sjómaður fæddist á Höfða í Vopnafirði 15. júní 1930. Hann andaðist á hjúkrunarheimilinu Sundabúð á Vopnafirði 31. desember 2020. Foreldrar hans voru hjónin Kristbjörg Sólveig Guðjóndóttir, f. 16. Meira  Kaupa minningabók
9. janúar 2021 | Minningargreinar | 1208 orð | 1 mynd

Tómas Reynir Hauksson

Tómas Reynir Hauksson fæddist í Reykjavík 10. janúar 1957. Hann lést hinn 11. desember 2020 á heimili sínu í Helsinki, Finnlandi. Foreldrar hans voru Haukur Oddsson sjómaður, f. 4. september 1920, d. 16. Meira  Kaupa minningabók
9. janúar 2021 | Minningargreinar | 723 orð | 1 mynd

Valur Guðmundsson

Valur Guðmundsson, bifreiðasmiður, fæddist í Reykjavík þann 9. janúar árið 1941. Hann lést á Fellsenda í Dölum þann 29. desember 2020. Foreldrar hans voru Guðrún Oddsdóttir, húsmóðir fædd 19. júní árið 1909, látin 9. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

9. janúar 2021 | Viðskiptafréttir | 209 orð | 1 mynd

Aðhalds er gætt

Bygging nýs leikskóla á Hvolsvelli er stærsta verkefnið fram undan í Rangárþingi eystra, skv. fjárhagsáætlun sveitarfélagsins sem samþykkt var nýlega. Áætlaðar heildartekjur sveitarsjóðs á árinu 2021 verða alls 2.010 millj. kr. Meira
9. janúar 2021 | Viðskiptafréttir | 228 orð | 1 mynd

Kennarar á námskeið

Menntavísindasviði Háskóla Íslands í samstarfi við Háskólann á Akureyri og Kennarasamband Íslands hefur verið falið að skipuleggja starfsþróunarnámskeið kennara og fagfólks í menntakerfinu. Meira
9. janúar 2021 | Viðskiptafréttir | 630 orð | 1 mynd

Lífeyrissjóðirnir seldu ekki Skeljungsbréf í vikunni

Þóroddur Bjarnason Stefán Einar Stefánsson Baldur Arnarsson Lífeyrissjóðir sem Morgunblaðið setti sig í samband við í gær upplýstu allir nema einn að þeir hefðu ekki selt hluti sína í olíufélaginu Skeljungi til Strengs í vikunni. Meira
9. janúar 2021 | Viðskiptafréttir | 339 orð | 1 mynd

Styðja frestun fasteignagjalda

Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samband íslenskra sveitarfélaga (SÍS) lýsir yfir stuðningi við frumvarp sem felur meðal annars í sér heimildir til að koma til móts við rekstrarvanda fyrirtækja út af kórónuveirufaraldrinum. Meira
9. janúar 2021 | Viðskiptafréttir | 131 orð | 1 mynd

Sylvía Ólafsdóttir fer frá Icelandair til Origo

Sylvía Ólafsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar og markaðsmála hjá Origo og tekur sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Sylvía hefur frá árinu 2018 starfað hjá Icelandair Group , síðast sem forstöðumaður leiðakerfis... Meira

Daglegt líf

9. janúar 2021 | Daglegt líf | 1179 orð | 4 myndir

Mikil þekking býr í náttúrunni

Nýlega fylltist á fjórum mínútum á landvarðanámskeið á vegum Umhverfisstofnunar. Björk Bjarnadóttir verður þar með innlegg um þjóðfræði náttúrunnar. Meira

Fastir þættir

9. janúar 2021 | Fastir þættir | 175 orð | 1 mynd

1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 e6 4. 0-0 Rge7 5. He1 Rd4 6. Rxd4 cxd4 7. c3...

1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 e6 4. 0-0 Rge7 5. He1 Rd4 6. Rxd4 cxd4 7. c3 a6 8. Ba4 b5 9. Bb3 Rc6 10. d3 Bb7 11. a4 b4 12. cxd4 Rxd4 13. Be3 Rxb3 14. Dxb3 d5 15. Rd2 Be7 16. a5 0-0 17. Bb6 Dd7 18. Rf3 Hfc8 19. e5 d4 20. Rxd4 Dd5 21. Dxd5 Bxd5 22. f4 g5... Meira
9. janúar 2021 | Árnað heilla | 927 orð | 3 myndir

Annasamur og gjöfull æviferill

Guðmundur Magnússon fæddist 9. janúar 1926 á Reyðarfirði, fjórða barn foreldra sinna, sem eignuðust níu börn á 10 árum. Tvær dætranna voru teknar í fóstur og lítil stúlka lést nokkurra vikna gömul. Meira
9. janúar 2021 | Árnað heilla | 62 orð | 1 mynd

Birkir Freyr Hilmarsson

30 ára Birkir ólst upp á Álftanesi en býr í Kópavogi. Hann vinnur við smíðar hjá FF Verktökum. Maki : Árný Guðjónsdóttir, f. 1991, leikskólakennari á Sólhvörfum í Kópavogi. Börn : Elmar Logi, f. 2018, og stjúpsonur er Sölvi Hrafn, f. 2013. Meira
9. janúar 2021 | Fastir þættir | 583 orð | 5 myndir

Dubov sló út Magnús Carlsen og tefldi skák ársins

Gengi manna í skákkeppnum hangir oft á einum leik í tvísýnni stöðu og eru um það óteljandi dæmi. Meira
9. janúar 2021 | Í dag | 263 orð

Dugir meðan á tánum tollir

Gátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Sokknum þínum er hún á. Út sig teygir landi frá. Stígur eða stétt er þá. Stafur grískur vera má. Þannig leysir Guðrún B. Meira
9. janúar 2021 | Í dag | 101 orð | 1 mynd

Ferðabransinn á Tenerife ekki góður

Sigvaldi Kaldalóns, betur þekktur sem Svali, hefur starfað í ferðabransanum á Tenerife undanfarin ár. Vegna Covid-19 og þeirra ferðatakmarkana sem veiran hefur valdið hefur verið lítið að gera hjá honum síðustu mánuði. Meira
9. janúar 2021 | Fastir þættir | 180 orð

Gild rök. S-AV Norður &spade;Á843 &heart;ÁD104 ⋄874 &klubs;G5...

Gild rök. S-AV Norður &spade;Á843 &heart;ÁD104 ⋄874 &klubs;G5 Vestur Austur &spade;D2 &spade;G1096 &heart;K7 &heart;G96 ⋄9542 ⋄G10 &klubs;D10642 &klubs;Á987 Suður &spade;K75 &heart;8532 ⋄ÁKD6 &klubs;K3 Suður spilar 4&heart;. Meira
9. janúar 2021 | Árnað heilla | 68 orð | 1 mynd

Harpa Björk Hilmarsdóttir

30 ára Harpa ólst upp á Álftanesi en býr í Reykjavík. Hún er viðskiptafræðingur frá HÍ og er í meistaranámi í verkefnastjórnun. Hún vinnur á skrifstofu Hrafnistu en er í fæðingarorlofi. Maki : Ingólfur Steinar Pálsson, f. Meira
9. janúar 2021 | Árnað heilla | 152 orð | 1 mynd

Hólmfríður Sigurðardóttir

Hólmfríður Sigurðardóttir fæddist 9. janúar 1617 og var prófastsfrú í Vatnsfirði. Foreldrar hennar voru Sigurður Oddsson í Hróarsholti í Flóa, sonur Odds biskups Einarssonar, og kona hans Þórunn ríka Jónsdóttir, f. 1594, d. 1673. Meira
9. janúar 2021 | Í dag | 125 orð | 1 mynd

Lausn jólamyndagátu

Góð viðbrögð voru við myndagátu Morgunblaðsins og bárust nokkur hundruð lausnir. Rétt lausn er: „Garn og handlóð seldust vel á tímum faraldurs. Kvennalandsliðið í fótbolta keppir á EM á þar næsta ári. Meira
9. janúar 2021 | Í dag | 67 orð

Málið

Að horfa á e-ð vitum við hvað er. Að horfa í e-ð , með í -i, getur þýtt svipað: maður horfir í kíki, nú eða í gaupnir sér. En það merkir líka að veigra sér við e-u , hika við e-ð. Meira
9. janúar 2021 | Í dag | 181 orð | 1 mynd

Messur

Orð dagsins: Fel Drottni vegu þína Meira
9. janúar 2021 | Árnað heilla | 33 orð | 1 mynd

Reykjavík Glódís Lea Ingólfsdóttir fæddist 20. júní 2020 á...

Reykjavík Glódís Lea Ingólfsdóttir fæddist 20. júní 2020 á Landspítalanum eftir 34 vikna meðgöngu. Hún vó 2.212 g og var 45 cm löng. Foreldrar hennar eru Harpa Björk Hilmarsdóttir og Ingólfur Steinar... Meira

Íþróttir

9. janúar 2021 | Íþróttir | 481 orð

Allir komnir í startholurnar

Fréttaskýring Víðir Sigurðsson vs@mbl. Meira
9. janúar 2021 | Íþróttir | 82 orð | 1 mynd

Bjóst við stærri sigri gegn Íslandi

„Ég bjóst við því að vinna með fleiri mörkum í hreinskilni sagt,“ sagði Paulo Pereira, landsliðsþjálfari Portúgals í handknattleik, við miðilinn Ojogo um sigurinn gegn Íslandi í undankeppni EM á miðvikudaginn. Meira
9. janúar 2021 | Íþróttir | 75 orð | 1 mynd

England Bikarkeppnin, 3. umferð: Aston Villa – Liverpool 1:4...

England Bikarkeppnin, 3. Meira
9. janúar 2021 | Íþróttir | 293 orð | 3 myndir

*Gott gengi Heimis Hallgrímssonar og hans manna í Al-Arabi hélt áfram í...

*Gott gengi Heimis Hallgrímssonar og hans manna í Al-Arabi hélt áfram í gær en Aron Einar Gunnarsson og samherjar lögðu þá Al Ahli Doha að velli, 1:0, í katörsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Meira
9. janúar 2021 | Íþróttir | 91 orð | 1 mynd

Gæti skipt máli upp á framhaldið að vinna Portúgal á morgun

„Mig minnir að við höfum byrjað vel í leiknum í janúar og það reið líklega baggamuninn í það skiptið. Ekki kemur annað til greina en að vinna á sunnudag [á morgun] og helst með þremur mörkum eða meira til að eiga möguleika á efsta sæti í riðlinum. Meira
9. janúar 2021 | Íþróttir | 9 orð | 1 mynd

HANDKNATTLEIKUR Undankeppni EM karla: Ásvellir: Ísland – Portúgal...

HANDKNATTLEIKUR Undankeppni EM karla: Ásvellir: Ísland – Portúgal... Meira
9. janúar 2021 | Íþróttir | 80 orð | 1 mynd

Hólmbert hefur náð sér að fullu

Hólmbert Aron Friðjónsson hefur náð sér að fullu af meiðslum og gæti spilað sinn fyrsta leik með ítalska knattspyrnuliðinu Brescia annan laugardag, 16. janúar. Meira
9. janúar 2021 | Íþróttir | 265 orð | 1 mynd

Leikið í „handboltabænum“

Eins og fram kemur annars staðar á íþróttasíðum dagsins fer landsleikur Íslands og Portúgals á morgun fram á Ásvöllum í Hafnarfirði. Ekki er hægt að spila í Laugardalshöllinni í þetta skipti þar sem hún er lokuð vegna viðgerða. Meira
9. janúar 2021 | Íþróttir | 587 orð | 2 myndir

Lærir mikið af Alexander

Landsliðið Kristján Jónsson kris@mbl.is Karlalandsliðið í handknattleik mætir Portúgal í undankeppni EM karla í handknattleik á Ásvöllum í Hafnarfirði klukkan 16 á morgun. „Ég held að möguleikarnir séu bara góðir. Meira
9. janúar 2021 | Íþróttir | 250 orð | 1 mynd

Mikill gleðidagur fyrir íþróttirnar sagði Hannes S. Jónsson, formaður...

Mikill gleðidagur fyrir íþróttirnar sagði Hannes S. Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, í samtali við mbl.is í gær um þau tíðindi heilbrigðisráðherra að allt stefndi í að hefja megi keppni á ný í íþróttum frá og með 13. janúar. Meira
9. janúar 2021 | Íþróttir | 141 orð | 1 mynd

Sexfaldur Íslandsmeistari dregur sig í hlé

Atli Guðnason, einn reyndasti knattspyrnumaður landsins og burðarás í sigursælu liði FH um árabil, tilkynnti í gær að hann væri hættur. Meira
9. janúar 2021 | Íþróttir | 97 orð | 1 mynd

Spánn B-deild: Castello – Girona (frl.) 82:84 • Kári Jónsson...

Spánn B-deild: Castello – Girona (frl.) 82:84 • Kári Jónsson lék í 18 mínútur fyrir Girona, skoraði 3 stig, gaf eina stoðsendingu og tók eitt frákast. Meira
9. janúar 2021 | Íþróttir | 29 orð | 1 mynd

Svíþjóð Kristianstad – Västerås 28:23 • Andrea Jacobsen var...

Svíþjóð Kristianstad – Västerås 28:23 • Andrea Jacobsen var ekki með Kristianstad. Undankeppni EM karla 6. riðill: Noregur – Hvíta-Rússland 27:19 *Noregur 4, Hvíta-Rússland 2, Ítalía 2, Lettland... Meira
9. janúar 2021 | Íþróttir | 566 orð | 2 myndir

Vilja vera áfram versta lið sögunnar

Þýskaland Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Stuðningsmenn þýska knattspyrnuliðsins Tasmania Berlín eru farnir að mæta fyrir utan leikvang Schalke í borginni Gelsenkirchen til að reyna að hvetja leikmenn liðsins til dáða. Meira

Sunnudagsblað

9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 658 orð | 11 myndir

2020 – þegar heimilið varð miðpunktur alls

2020 byrjaði óskaplega vel. Janúar var hefðbundinn og febrúar líka en svo fór að síga á ógæfuhliðina þegar veiran fór að gera heimsbyggðinni lífið aðeins leiðara en vanalega. Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 786 orð | 2 myndir

Aldrei einn á ferð

Gerry Marsden, söngvari og gítarleikari Liverpool-sveitarinnar Gerry and the Pacemakers, lést á dögunum, 78 ára að aldri. Hans er fyrst og fremst minnst fyrir flutning sinn á smellinum ódauðlega, You'll Never Walk Alone. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 130 orð | 1 mynd

Alexi Laiho látinn

Málmheimar syrgja nú finnska söngvarann og gítarleikarann Alexi Laiho sem lést á dögunum aðeins 41 árs að aldri. Laiho er þekktastur fyrir að hafa stofnað og starfrækt melódíska dauðarokksbandið Children of Bodom en það leystist upp á nýliðnu ári. Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 3319 orð | 1 mynd

Allt er þetta hluti af stærri sýn

Umhverfis- og auðlindaráðherrann Guðmundur Ingi Guðbrandsson er sveitadrengur með brennandi ástríðu fyrir vinnu sinni. Hann fór bæði í húsmæðraskóla og í klaustur áður en stefnan var tekin í átt að umhverfismálum. Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 3952 orð | 7 myndir

Áramótaheitin 2021!

Nýtt ár er runnið upp og margir sem strengja áramótaheit eða setja sér ný markmið. Morgunblaðið bað nokkra þekkta Íslendinga að segja frá sínum heitum og markmiðum og um leið velta fyrir sér lífinu á þessum skrítnu tímum. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 2026 orð | 8 myndir

Beðið eftir Englendingi

Heimamaður hefur ekki gert lið að Englandsmeistara í knattspyrnu frá árinu 1992 og sú ótrúlega þrautaganga virðist engan enda ætla að taka. Frank Lampard virðist næst því að vinna björninn en samt svo langt frá því. Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 1834 orð | 7 myndir

Borðið ykkur til betri heilsu!

Á nýju ári vilja margir endurskoða mataræðið, ekki síst eftir allan hátíðarmat jólanna. Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 11 orð | 1 mynd

Brynja Hannesdóttir Bara vel. Ég fer utan ef það verður hægt...

Brynja Hannesdóttir Bara vel. Ég fer utan ef það verður... Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 9 orð | 1 mynd

Davíð Freyr Hjaltalín Mjög vel. Ég get kannski ferðast...

Davíð Freyr Hjaltalín Mjög vel. Ég get kannski... Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 99 orð | 1 mynd

Enn dansar Danson

Seigla Ted gamli Danson ætlar að reynast alveg ofboðslega slitgóður í sjónvarpi en nýir gamanþættir, þar sem hann er í aðalhlutverki, voru frumsýndir í Bandaríkjunum í vikunni. Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 98 orð | 7 myndir

Gleymið veganúar, hér er strákanúar!

Flautað verður til 27. heimsmeistaramótsins í handbolta í Egyptalandi á miðvikudaginn. Eins og svo oft áður er Ísland meðal keppenda og verður þjóðin að líkindum límd við skjáinn næstu vikurnar. Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 6 orð | 1 mynd

Guðmundur Búason Vel. Það gerir það...

Guðmundur Búason Vel. Það gerir... Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 295 orð | 6 myndir

Gömul húsráð og og tips um áhrif rýmis á kynlíf

Í síðustu viku keypti ég loksins Ljóðasafn Kristínar Ómarsdóttur fyrir pening sem ég fékk frá ömmu minni. Hnausþykkur gripur sem telur yfir 400 síður og ég var lengi búinn að hafa augastað á. Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 424 orð | 1 mynd

Hafið þið „beisiklí“ séð ljótara orð?

Ef við þurfum nauðsynlega að fá orð lánuð úr ensku hlýtur lágmarkskrafan að vera sú að orðið hljómi sæmilega og líti umfram allt vel út. Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 157 orð | 2 myndir

Helgi Björns aftur á skjáinn

Helgi Björns snýr aftur og fjöldi íslenskra þátta í Sjónvarpi Símans Premium. Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 58 orð | 1 mynd

Hvar er flugvöllurinn?

Minjar um mannvirki sem reist voru á tímum síðari heimsstyrjaldar sjást víða um land, þótt fækkandi fari. Strax eftir hernámið 10. maí 1940 hófust Bretar handa um gerð þess stóra flugvallar á Suðurlandi sem hér sést. Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 17 orð | 1 mynd

Ingibjörg Heiðdal Ágætlega. Ef maður fær bólusetningu sem fyrst getur...

Ingibjörg Heiðdal Ágætlega. Ef maður fær bólusetningu sem fyrst getur maður farið að hugsa sér til... Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 142 orð | 1 mynd

Keppni í veðurspá

„Í nýútkomnu hefti af Veðrinu segir Guðmundur Kjartansson, jarðfræðingur, frá skemmtilegri keppni í veðurspá, sem menn höfðu sér til gamans í fræðslu- og skemmtiferð Hins íslenzka náttúrufræðifélags inn á Kjöl í sumar. Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 66 orð | 1 mynd

Krossgátuverðlaun

Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátttökuseðil með nafni og heimilisfangi ásamt úrlausnum í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 112 Reykjavík. Frestur til að skila krossgátu 10. Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 158 orð | 1 mynd

Lag Daða og Ásdísar fjallar um sjálfsást

Tónlistarfólkið Daði Freyr og Ásdís María gáfu á dögunum út lagið Feel the Love en þetta er annað lagið sem þau gefa út saman. Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagspistlar | 607 orð | 1 mynd

Maður með horn

Hann segir hverjum sem heyra vill að hann hafi átt fullan rétt á að fara inn á skrifstofuna hennar, setja fæturna upp á borð og taka það sem hann vildi. Enda sé hann búinn að borga fyrir þetta allt saman. Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 1247 orð | 2 myndir

Og aldrei það komi til baka

Eftir óvenjuróleg jól og áramót , svona að undanskildum sprengingum og svifryksmengun, heilsuðu landsmenn nýju ári fremur frískir og virtust ekki hafa lent í sams konar smitbylgju og víða gætti erlendis. Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 609 orð | 1 mynd

Olíufurstar sólgnir í fálka

Karachi, Pakistan. AFP. | Muhammad Rafiq hefur tekist að leggja álitlegar fúlgur til hliðar síðan hann lærði að ná fuglum lifandi þegar hann var táningur. Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 112 orð | 1 mynd

Sharon öll að koma til

Veikindi Spjallþáttastjórnandinn og raunveruleikastjarnan Sharon Osbourne ræddi veikindi sín í þætti sínum vestur í Bandaríkjunum í vikunni en hún greindist með kórónuveirusjúkdóminn fyrir rúmum mánuði. Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 747 orð | 2 myndir

Söguleg innrás

Það eru öllum unnendum frelsis og lýðræðis sár vonbrigði að slíkur atburður skuli eiga sér stað í landi sem hefur á sínum bestu stundum verið helsti kyndilberi þeirra gilda í heiminum. Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 294 orð | 1 mynd

Vináttan er sterkt afl

Um hvað er þáttaröðin? Í þáttunum köfum við í sögulegt samhengi vináttunnar, ræðum samskipti, blóðtengsl, einmanaleika, einelti og vinamissi, auk þess að velta upp mikilvægi vináttu í samfélaginu í heild. Meira
9. janúar 2021 | Sunnudagsblað | 82 orð | 1 mynd

Ætlaði aldrei að verða stjarna

Goðsögn „Ég ætlaði aldrei að verða kvikmyndastjarna. Mig langaði bara að verða eins góð og mögulegt var. Markmið af því tagi leiðir mann jafnan í aðra átt en þá að vilja verða stjarna, sem getur verið skelfileg lífsreynsla. Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.