Greinar mánudaginn 5. desember 2022

Fréttir

5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 112 orð

150 skjálftar við virkt eldstöðvarkerfi

Um 150 jarðskjálftar hafa verið skráðir á skjálftasíðu Veðurstofunnar í fjöllunum ofan við Mýrar í Borgarfirði frá því að skjálftavirkni hófst þar á síðasta ári. Vert er að nefna að langt er í næstu skjálftamæla frá Mýrum og því mögulegt að minnstu skjálftarnir mælist ekki Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 231 orð | 1 mynd

Ágreiningur og vantraust í stjórn

„Djúpstæður ágreiningur og vantraust virðast ríkja innan stjórnar Úrvinnslusjóðs, auk þess sem skipan stjórnarinnar er umdeild.“ Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu starfshóps um endurmat á kerfi framlengdrar framleiðendaábyrgðar hér á landi en… Meira
5. desember 2022 | Erlendar fréttir | 229 orð | 1 mynd

B-21 Raider-vélin nýjasta flaggskipið

Flugher Bandaríkjanna hefur svipt hulunni af nýjasta flaggskipinu í flota torséðra (e. stealth) sprengjuflugvéla, B-21 Raider, sem hefur dvalið svo lengi á teikniborðinu að hún mun leysa af hólmi forvera sem flaug sitt fyrsta flug í kalda stríðinu Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 501 orð | 1 mynd

„Við erum komin í öngstræti“

„Þetta er gömul saga og ný að það er talað um niðurskurð og hagræðingu látlaust þegar kemur að þeim málum sem lúta að börnum og eldra fólki og heilbrigðiskerfinu,“ segir Margrét Pála Ólafsdóttir, frumkvöðull í uppeldis- og menntamálum, í samtali við Morgunblaðið Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 309 orð | 2 myndir

Breytingar hjá Fjöl- iðjunni á Akranesi

Fram undan eru breytingar hjá Fjöliðjunni á Akranesi sem er verndaður vinnustaður og endurhæfing. Um 78 leiðbeinendur og almennir starfsmenn í hlutastarfi starfa nú undir regnhlíf Fjöliðjunnar. Atvinnuráðgjafi vinnur að því að fólkið fái vinnu í… Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 363 orð | 2 myndir

Breytt landslag í verkalýðsbaráttu

Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins segir landslagið í verkalýðsbaráttunni óneitanlega hafa breyst á síðustu dögum. Hann sakar Eflingu um að hafa lekið upplýsingum, sem honum bar skylda til þess að deila með þeim, um gang samningsviðræðna SGS við Samtök atvinnulífsins, í fjölmiðla Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 29 orð | 1 mynd

Eggert Jóhannesson

Aðventugleði Skautasvell Nova og Orkusölunnar á Ingólfstorgi er mikið gleðiefni fyrir unga sem aldna og ber nafnið Stuðsvellið í ár. Undanfarin ár hafa tuttugu þúsund manns sótt á... Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 351 orð | 1 mynd

Ekki fundað í dag og vonbrigði áberandi víða

Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins lýsti því yfir í gær að hann hefði verið stunginn í bakið af fólki sem hann taldi vini sína vegna nýs kjarasamnings SGS og Samtaka atvinnulífsins Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 152 orð | 1 mynd

Er heils dags leikskóli eina úrræðið?

„Allir eru farnir út að vinna, karlar og konur, frá eins árs eða yngri börnum og við erum komin í öngstræti að mínu mati. Erum við raunverulega að segja að eina tilboðið sem við viljum gera eins árs gömlum börnum sé heils dags leikskóli?“ spyr… Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 40 orð

Ferðaþjónusta hefur náð fyrri styrk

Ljóst er að ferðaþjónustan hefur náð fyrri styrk eftir mikinn bata undanfarna mánuði. Ferðaþjónusta er aftur orðin sú grein sem skapar mestar gjaldeyristekjur fyrir íslenska þjóðarbúið eða fjórðung allra útflutningstekna Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 230 orð | 1 mynd

Ferðaþjónustan stærst á ný

Ferðaþjónustan er orðin stærsta útflutningsgreinin á nýjan leik. Þetta kemur fram í tölum um þjónustuviðskipti frá Hagstofu Íslands fyrir þriðja ársfjórðung á þessu ári. Þar kemur fram að heildarverðmæti þjónustuútflutnings hafi numið ríflega 153… Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 957 orð | 1 mynd

Fékk köllun við lestur eddukvæða

Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Ég hef starfað mjög víða, maðurinn minn var afleysingaprestur svo ég hef kennt úti um allt land,“ segir Heiðrún Tryggvadóttir, nýskipaður skólameistari Menntaskólans á Ísafirði frá 1. janúar 2023 að telja, en umsækjendur um stöðuna voru tveir. Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 213 orð | 1 mynd

Gersemar á uppboði fyrir jól

Tíminn og vatnið í fyrstu útgáfu, tölusett eintak og áritað af Steini Steinarr, eru á meðal verka sem boðin verða upp á seinni hluta Bókaperla, uppboði úrvalsverka í Fold uppboðshúsi fyrir jólin. Uppboðinu lýkur 11 Meira
5. desember 2022 | Erlendar fréttir | 302 orð | 1 mynd

Geta ekki daufheyrst við mótmælum

Siðgæðislögreglan svonefnda í Íran hefur verið lögð niður í kjölfar tveggja mánaða mótmæla í landinu. Hlutverk lögreglu þessarar var að fylgja því eftir að ströngum íslömskum reglum um klæðaburð kvenna væri fylgt, einkum notkun höfuðslæðu, hijab Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 118 orð | 1 mynd

KEA lagði til 20 milljónir í styrki

KEA afhenti styrki úr menningar- og viðurkenningasjóði félagsins hinn 1. desember og fór styrkúthlutunin fram í Hofi á Akureyri. Var þetta í 89. skipti sem veitt er úr sjóðnum. Úthlutað var 20,3 milljónum króna til 50 aðila Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 233 orð | 1 mynd

Leitinni á sjó haldið áfram í dag

Leit að sjómanninum sem féll útbyrðis norðvestan við Garðskaga á laugardaginn hélt áfram langt fram eftir kvöldi í gær án árangurs. Maðurinn féll útbyrðis laust eftir klukkan fimm á laugardaginn þegar fiskiskip var á veiðum utarlega í Faxaflóa og… Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 415 orð | 2 myndir

Litríkt er landslagið á dagatali Eimskips

Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Margir hafa lagt leið sína í höfuðstöðvar Eimskips við Sundahöfn í Reykjavík til þess að ná sér þar í dagatal félagsins fyrir árið 2023. Afhending þess hófst, hefð samkvæmt, 1. desember, þegar alls 500 eintök voru afhent. „Strax í október byrjar fólk að hafa samband og spyrjast fyrir um almanökin góðu. Okkur hefur þó fundist ágæt hefð að láta dagatölin ekki úr húsi fyrr en á fullveldisdaginn,“ segir Oddur Árni Arnarsson, hönnuður á mannauðs- og samskiptasviði Eimskips. Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 298 orð | 1 mynd

Mesta magn pappírsskjala

Þjóðskjalasafn tók við samtals 2.429 hillumetrum af pappírsskjölum í 169 afhendingum á seinasta ári. Er þetta mesta magn pappírsskjala sem borist hefur á Þjóðskjalasafnið á einu ári. Þessar upplýsingar koma fram í umfjöllun í ársskýrslu Þjóðskjalasafnsins fyrir árið 2021 Meira
5. desember 2022 | Fréttaskýringar | 671 orð | 2 myndir

Mun lærlingurinn sækja á læriföður?

Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, tilkynnti á dögunum sitt þriðja framboð til forseta í Mar-a-Lago, stórhýsi sínu á Palm Beach í Flórídaríki í Bandaríkjunum. Síðan þá hafa margir velt vöngum yfir því hverjir muni bjóða honum birginn… Meira
5. desember 2022 | Erlendar fréttir | 122 orð | 1 mynd

Náttúran sýnir mátt sinn á Jövu

Ferðamenn fylgjast með ólgandi hraunstraumi frá eldfjallinu Semeru á indónesísku eyjunni Jövu í gær, þaðan sem gosstrókur stendur 15 kílómetra í loft upp. Hæsta viðvörunarstig þarlendra almannavarna er í gildi og hefur fjölda fólks verið gert að… Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 335 orð | 1 mynd

Samið um 50 þúsund tonn

LavaConcept Iceland ehf., fyrirtæki sem skráð er í Vík í Mýrdal, hefur gert samning um sölu á sandi til Þýskalands, um 50 þúsund tonn á ári næstu 15 árin. Sandurinn er tekinn úr Höfðafjöru á Kötlutanga, grófunninn við Uxafótarlæk og ekið til útflutnings frá Þorlákshöfn Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 46 orð

Síðustu málsgreinina vantaði

Fyrir mistök féll út síðasta málsgreinin í Tungutaki, umfjöllun Sigurbjargar Þrastardóttur um mismunun á grundvelli tungutaks, í Morgunblaðinu á laugardaginn. Beðist er velvirðingar á því. Málsgreinin í heild sinni sem datt út var svohljóðandi:… Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 74 orð | 1 mynd

Sungið fyrir gesti og gangandi í miðbænum

Karlakór Kjalnesinga söng fyrir gesti og gangandi á Ingólfstorgi og víðar í miðbæ Reykjavíkur um helgina til að létta lund og blása fólki jólaanda í brjóst. Fjöldi fólks var í miðbænum um helgina, líklega margt hvert að undirbúa jólin, og flykktist… Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 139 orð | 1 mynd

Tugir milljarða aukalega í kerfið

Gert er ráð fyrir átján milljörðum króna í fjáraukalögum þessa árs í heilbrigðiskerfið auk tólf milljarða króna aukningar framlaga fyrir fjárlög næsta árs. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir ljóst að ríkisstjórnin standi með heilbrigðiskerfinu Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 568 orð | 2 myndir

Vilja skoða samfélagsveg á Skógarströnd

Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Vert er að skoða allar færar leiðir sem flýtt geta mikilvægum framkvæmdum í samgöngumálum. Samfélagsvegir eru einn möguleikinn í þeirri stöðu og þá sérstaklega þegar horft er til nauðsynlegrar uppbyggingar á Skógarstrandarvegi sem tengir m.a. saman Dali og utanvert Snæfellsnes. Þetta segir Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, um samgöngumálin þar um slóðir. Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 612 orð | 2 myndir

Viljum styrkja okkur úti á landi

Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Viðtökur voru góðar þegar ný verslun Krónunnar við Tryggvabraut á Akureyri var opnuð síðastliðinn fimmtudag. Lengi hefur verið í undirbúningi að opna búð undir merkjum keðjunnar fyrir norðan, sem svo hefur af mörgum ástæðum dregist. „Við viljum styrkja okkur í sessi úti á landi og þetta er áfangi á þeirri vegferð,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, sem í september sl. tók við starfi framkvæmdastjóra Krónunnar. Hún hafði starfað á fyrri stigum sem forstöðumaður stafrænnar þróunar og umbótaverkefna hjá fyrirtækinu og meðal annars tekið þátt í undirbúningi að opnun Krónunnar á Akureyri. Meira
5. desember 2022 | Innlendar fréttir | 240 orð | 1 mynd

Yfir 1.000 börn í Hallgrímskirkju

Yfir eitt þúsund börn munu sækja Hallgrímskirkju yfir aðventuna á þessu ári en tilefnið er sýningin Jólin hans Hallgríms. Hallgrímskirkja hefur boðið leik- og grunnskólabörnum í Reykjavík og nágrenni að heimsækja kirkjuna og sjá sýninguna í… Meira

Ritstjórnargreinar

5. desember 2022 | Staksteinar | 194 orð | 1 mynd

Áróður í barnaefni ríkisútvarps

Andra Steini Hilmarssyni, bæjarfulltrúa í Kópavogi, var skiljanlega ekki skemmt yfir skemmtiþætti Ríkisútvarpsins á dögunum eða barnaefninu sem þar er í boði fyrir jólin. Fram kom í skemmtiþættinum að þáttagerðarkona, sem þar var í viðtali, hefði… Meira
5. desember 2022 | Leiðarar | 692 orð

Kjarasamningar náðust

Þó að teflt sé á tæpasta vað eru samningarnir jákvæð tíðindi Meira

Menning

5. desember 2022 | Bókmenntir | 584 orð | 3 myndir

Gleði og umburðarlyndi

Barnabók Ófreskjan í mýrinni ★★★★½ Eftir Sigrúnu Eldjárn. Mál og menning 2022. Innb., 96 bls. Meira
5. desember 2022 | Menningarlíf | 328 orð | 1 mynd

Jeanne Dielman besta kvikmyndin

Kvikmynd belgíska leikstjórans og handritshöfundarins Chantal Akerman, Jeanne Dielman, 23, Quai du Commerce, 1080 Bruxelles, frá árinu 1975, situr efst á nýjum lista breska tímaritsins Sight and Sound yfir 100 bestu kvikmyndir sögunnar Meira
5. desember 2022 | Menningarlíf | 1371 orð | 2 myndir

Veðrabrigðin stöðugt íhugunarefni

Eugenía var góður píanóleikari, en hún var einnig drátthög og hafði næmt auga fyrir myndlist. Hún hvatti Ásgrím Jónsson listmálara, sem var vinnumaður hjá þeim hjónum í tvö og hálft ár, til dáða í myndlistinni Meira
5. desember 2022 | Menningarlíf | 131 orð | 1 mynd

Þóra og Antonía flytja vel og síður þekktar Ave Maríur í hádeginu

Sópransöngkonan Þóra Einarsdóttir kemur fram á síðustu hádegistónleikum ársins í Hafnarborg á morgun kl. 12 með Antoníu Hevesi píanóleikara. Munu þær, í aðdraganda jóla, flytja vel og síður þekktar Ave Maríur eftir tónskáldin Bach, Gounod, Caccini,… Meira

Umræðan

5. desember 2022 | Aðsent efni | 412 orð | 1 mynd

Borg í vanda

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson: "Til að takast á við eigin óráðsíu hefur verið boðaður verulegur niðurskurður við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs." Meira
5. desember 2022 | Aðsent efni | 616 orð | 1 mynd

Fasteignaskattur frístundahúsaeigenda greiddur í rangt sveitarfélag

Kjartan Eggertsson: "... þá er spurt á hvaða forsendum sveitarfélag hefur rétt til að leggja álögur á frístundahúsaeigendur í formi fasteignaskatts." Meira
5. desember 2022 | Aðsent efni | 320 orð | 1 mynd

Takk sjálfboðaliðar

Ásmundur Einar Daðason: "Íþrótta- og æskulýðsstarf hér á landi getur ekki átt sér stað í núverandi mynd án sjálfboðaliða sem sífellt gefa af sér í þágu heildarinnar." Meira
5. desember 2022 | Aðsent efni | 458 orð | 1 mynd

Takk sjálfboðaliðar

Tómas Torfason: "Án sjálfboðaliða myndi það fjölbreytta og vandaða íþrótta- og æskulýðsstarf sem við þekkjum á Íslandi hvorki virka né vera í boði." Meira
5. desember 2022 | Pistlar | 397 orð | 1 mynd

Tveir funda

Margir eru að velta fyrir sér hvort þið séuð að hittast af því að þið eruð á svipuðum aldri og eigið margt sameiginlegt?“ John Key, fyrrverandi forsætisráðherra Nýja-Sjálands, fundaði með Barack Obama, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, árið 2011 Meira

Minningargreinar

5. desember 2022 | Minningargreinar | 5559 orð | 1 mynd

Albert Guðmundsson

Albert Guðmundsson fæddist á Ísafirði 9. maí 1952. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 10. nóvember 2022. Foreldrar Alberts voru Helga Elísabet Kristjánsdóttir frá Ísafirði, f. 10.5. 1922, d. 25.9. Meira  Kaupa minningabók
5. desember 2022 | Minningargreinar | 1711 orð | 1 mynd

Árni Sævar Gylfason

Árni Sævar Gylfason fæddist 16. ágúst 1967 í Reykjavík. Hann lést á Borgarspítalanum 25. nóvember 2022. Foreldrar hans eru hjónin Gylfi Ómar Héðinsson, f. 6. febrúar 1950, og Svava Árnadóttir, f. 24. júlí 1950. Systkini hans eru: 1) Inga Rut, f. 1970. Meira  Kaupa minningabók
5. desember 2022 | Minningargreinar | 703 orð | 1 mynd

Guðjón Erlendsson

Guðjón Erlendsson fæddist í Reykjavík 22. desember 1938. Hann lést á Kirkjuhvoli á Hvolsvelli 23. nóvember 2022. Foreldrar hans voru Sigurfljóð Olgeirsdóttir húsmóðir, f. 14.12. 1905, d. 6.6. 1990, og Erlendur Guðjónsson bifreiðastjóri hjá Kveldúlfi, f. Meira  Kaupa minningabók
5. desember 2022 | Minningargreinar | 1191 orð | 1 mynd

Ketill Rúnar Tryggvason

Ketill Rúnar Tryggvason, húsasmíðameistari, fæddist í Reykjavík 30. maí 1947. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 14. nóvember 2022. Foreldrar Ketils voru Fanney Þorsteinsdóttir frá Drumboddsstöðum í Biskupstungum, f. 1915, d. Meira  Kaupa minningabók
5. desember 2022 | Minningargreinar | 497 orð | 1 mynd

Stella Aðalsteinsdóttir

Stella Aðalsteinsdóttir fæddist 22. október 1958. Hún lést 9. júní 2022. Kveðjustund fór fram 28. júní 2022. Meira  Kaupa minningabók
5. desember 2022 | Minningargreinar | 748 orð | 1 mynd

Terry Douglas Mahaney

Terry Douglas Mahaney fæddist 15. mars 1961. Hann lést á heimili sínu 22. nóvember 2022. Foreldrar hans voru Estes Calvin Mahaney, f. 1933, d. 2017, og Kristín Zoëga Stefánsdóttir, f. 1942. Uppeldisfaðir Geir Sigurðsson, f. 1939. Meira  Kaupa minningabók
5. desember 2022 | Minningargreinar | 776 orð | 1 mynd

Þorgeir Skaftfell

Þorgeir B. Skaftfell fæddist í Reykjavík 21. október 1937. Hann lést 24. nóvember 2022 á Hrafnistu Laugarási. Foreldrar hans voru Baldvin Skaftfell og Gréta María Jóelsdóttir. Systir Þorgeirs er Sigríður Skaftfell, f. 1943, gift Bergi Þorleyfssyni, f. Meira  Kaupa minningabók

Viðskipti

5. desember 2022 | Viðskiptafréttir | 173 orð | 1 mynd

Óbreytt framleiðsla hjá OPEC+

Samtök olíuframleiðsluríkja, ásamt Rússlandi og öðrum samstarfsþjóðum, ákváðu á sunnudag að halda olíuframleiðslu sinni óbreyttri. OPEC+-hópurinn sammæltist um það í október að minnka olíuframleiðslu um tvær milljónir fata, þvert á mikinn þrýsting frá vestrænum ríkjum Meira
5. desember 2022 | Viðskiptafréttir | 805 orð | 1 mynd

Ætla að hundraðfalda framleiðsluna

Viðtal Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Meira

Fastir þættir

5. desember 2022 | Í dag | 53 orð

„Mikið mildi var að enginn viðskiptavinur né starfsmaður varð fyrir…

„Mikið mildi var að enginn viðskiptavinur né starfsmaður varð fyrir bílnum“ segir í gamalli frétt undir fyrirsögninni „Keyrði inn í blómabúð“. Þar hefur mildi (náð, miskunnsemi) dugað þótt í hvorugkyni sé eins og stundum sést Meira
5. desember 2022 | Í dag | 372 orð

Á fullveldisdaginn og aðventan

Á Boðnarmiði birtir Sigurjóna Björgvinsdóttir þetta fallega ljóð um aðventuna: Aðventan er indæl tíð og alltaf nóg að stússa. Að hafa ennþá enga hríð og endalaust að pússa. Þá skal kaupa þetta og hitt þrífa, skreyta og baka Meira
5. desember 2022 | Í dag | 554 orð | 3 myndir

Nýsköpun á nýsköpun ofan

Andri Heiðar Kristinsson fæddist 4. desember 1982 á Akureyri og varð því fertugur í gær. Hann bjó fyrstu fimm árin á Þórustöðum í Eyjafjarðarsveit en flutti svo til Akureyrar. Átta ára gamall flutti Andri til Reykjavíkur ásamt foreldrum sínum og tveimur yngri systkinum Meira
5. desember 2022 | Dagbók | 89 orð | 1 mynd

Regína fékk alla fjölskylduna með sér

Regína Ósk söngkona og útvarpskona Helgarútgáfunnar hefur gefið út nýtt jólalag en hún fékk alla fjölskyldu sína til að syngja með sér í laginu sem ber titilinn Englar í snjó. Hún ræddi um lagið og jólahefðir fjölskyldunnar í viðtali við Ísland vaknar Meira
5. desember 2022 | Í dag | 26 orð | 1 mynd

Reykjanesbær Ónefndur Þórdísarson fæddist 20. október 2022 kl. 18.12 á…

Reykjanesbær Ónefndur Þórdísarson fæddist 20. október 2022 kl. 18.12 á Landspítalanum. Hann vó 3.602 g og var 51 cm langur. Móðir hans er Þórdís Ósk Helgadóttir. Meira
5. desember 2022 | Í dag | 168 orð

Skák

1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. f3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. e4 Rb6 6. Rc3 Bg7 7. Be3 0-0 8. Dd2 e5 9. d5 c6 10. h4 cxd5 11. exd5 h5 12. g4 Ra6 13. gxh5 Bf5 14. a3 Hc8 15. hxg6 Rc5 16. gxf7+ Hxf7 17. Hd1 e4 18. Rh3 Rd3+ 19 Meira
5. desember 2022 | Dagbók | 27 orð | 1 mynd

Veruleg aukning fjármuna í heilbrigðiskerfið

Ár er liðið síðan núverandi ríkisstjórn tók til starfa. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og nýliðinn í ráðherrahópnum ræðir fyrsta starfsárið, árangurinn og áskoranirnar fram undan í heilbrigðiskerfinu. Meira
5. desember 2022 | Í dag | 88 orð | 1 mynd

Þórdís Ósk Helgadóttir

40 ára Þórdís ólst upp í Reykjavík og býr í Reykjanesbæ. Hún er með BA-gráðu í húsgagnaarkitektúr frá TEKO í Herning í Danmörku og M.Sc.-gráðu í verkefnastjórnun frá HÍ. Hún er forstöðumaður Súlunnar í Reykjanesbæ Meira
5. desember 2022 | Í dag | 180 orð

Þrettándi slagurinn. S-NS

Norður ♠ K ♥ K103 ♦ ÁK9854 ♣ K86 Vestur ♠ D87654 ♥ D82 ♦ G2 ♣ 102 Austur ♠ 1093 ♥ G976 ♦ 103 ♣ D974 Suður ♠ ÁG2 ♥ Á54 ♦ D76 ♣ ÁG53 Suður spilar 7♦ Meira

Íþróttir

5. desember 2022 | Íþróttir | 578 orð | 4 myndir

Golden State Warriors, NBA-meistararnir í körfuknattleik, unnu í fyrrinótt …

Golden State Warriors, NBA-meistararnir í körfuknattleik, unnu í fyrrinótt sinn tíunda leik í röð í NBA-deildinni. Golden State vann þá Houston Rockets, 120:101, þar sem Andrew Wiggins skoraði 36 stig fyrir meistarana og Stephen Curry 30 Meira
5. desember 2022 | Íþróttir | 410 orð | 1 mynd

Góður sigur Aftureldingar

Afturelding krækti í gærkvöld í tvö dýrmæt stig í baráttunni um efstu sætin í úrvalsdeild karla í handbolta með því að sigra Stjörnuna, 29:26, í Garðabæ. Þessi lið virðast ætla að vera í slagnum um að vera í efstu fjórum sætunum fyrir… Meira
5. desember 2022 | Íþróttir | 129 orð | 1 mynd

ÍBV féll gegn öðru eyjaliði í Portúgal

Eyjakonur féllu í gær úr keppni í 32-liða úrslitum Evrópubikarsins í handknattleik þrátt fyrir sigur í seinni leiknum gegn portúgalska liðinu Madeira CAD, 24:22. Liðin léku báða leiki sína á portúgölsku eyjunni Madeira um helgina og heimakonur unnu þann fyrri á laugardaginn, 30:23 Meira
5. desember 2022 | Íþróttir | 217 orð | 1 mynd

Kristín fékk silfrið á EM í Póllandi

Hin borgfirska Kristín Þórhallsdóttir hreppti silfurverðlaun í samanlögðu á Evrópumeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum í Skierniewice í Póllandi í dag eftir gallharða viðureign við Pólverjann Agötu Sitko en þær öttu kappi í -84 kg flokki sem alls var skipaður þrettán keppendum Meira
5. desember 2022 | Íþróttir | 53 orð | 1 mynd

Óánægð með silfurverðlaun á EM

Kristín Þórhallsdóttir hreppti silfurverðlaunin í -84 kg flokki á Evrópumeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum í Póllandi í gær. Hún var þó ekki ánægð með þá niðurstöðu því Kristín átti Evrópumeistaratitil að verja frá því í fyrra Meira
5. desember 2022 | Íþróttir | 440 orð | 2 myndir

Röðin komin að þeim stóru

Stóru fótboltaþjóðirnar tóku völdin um helgina þegar England, Frakkland, Holland og Argentína sigldu öll á frekar sannfærandi hátt inn í átta liða úrslit heimsmeistaramótsins í Katar á meðan Senegal, Pólland, Bandaríkin og Ástralía luku keppni Meira
5. desember 2022 | Íþróttir | 211 orð | 1 mynd

Valskonur fyrstar til að vinna Keflvíkinga

Valskonur stöðvuðu í gærkvöld sigurgöngu Keflvíkinga í úrvalsdeildinni í körfuknattleik með því að vinna þær í 11. umferð deildarinnar í Keflavík, 84:75. Keflavíkurkonur höfðu unnið tíu fyrstu leiki sína á tímabilinu og eru áfram efstar í deildinni en nú aðeins tveimur stigum á undan Haukum Meira
5. desember 2022 | Íþróttir | 126 orð | 1 mynd

Þóra skoraði fjórtán í níunda sigri Vals

Valskonur unnu sinn níunda sigur í jafnmörgum leikjum í úrvalsdeild kvenna í handbolta á laugardaginn þegar þær sigruðu Selfyssinga af miklu öryggi, 35:23, á Hlíðarenda. Þær eru þar með fjórum stigum á undan Stjörnunni en viðureign liðanna í öðru og … Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.