Hermann Nökkvi Gunnarsson hng@mbl.is „Þessi skýrsla er ekki skrifuð á bak við skrifborð í Reykjavík, hún er stutt og skýr. Skrifuð af Vestfirðingum fyrir Vestfirði,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í samtali við Morgunblaðið, en hann hyggst fylgja eftir öllum 15 tillögum Vestfjarðaskýrslunnar. Á meðal tillagna var beðið um að aflétta friðlýsingarskilmálum innan friðlands í Vatnsfirði fyrir 20-30 MW vatnsaflsvirkjun, fá ríkið til að leita leiða til að lækka kostnað við tengigjald fyrir Austurgilsvirkjun og halda áfram vinnu við myndun þjóðgarðs á Friðlandinu á sunnanverðum Vestfjörðum.
Meira