Greinar fimmtudaginn 8. maí 2025

Fréttir

8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 280 orð | 2 myndir

„Er kannski á leiðinni til okkar í hvalstöðina“

„Hann er kannski á leiðinni til okkar í hvalstöðina,“ segir Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf., í gamansömum tón í samtali við Morgunblaðið og bætir því við að sé svo þurfi kannski ekki að fara út á báti til að ná í þá í framtíðinni Meira
8. maí 2025 | Fréttaskýringar | 496 orð | 2 myndir

Aukning á pottasölu kom á óvart

Sala á heitum pottum hjá NormX í Auðbrekku í Kópavogi hefur tekið mikinn kipp nú í vor og kveðst Orri Stefánsson, sölu- og verslunarstjóri, aðspurður ekki hafa haldbæra skýringu á aukningunni. Hann segir að kannski sé góð tíð nú á vormánuðum hluti af skýringunni Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 488 orð | 1 mynd

Bestu vinir í 49 ár berjast um gull

Stjarnan úr Garðabæ og Tindastóll á Sauðárkróki keppa um Íslandsmeistaratitilinn í meistaraflokki karla í körfuknattleik og þar kemst aðeins eitt að hjá öllum viðkomandi, að sigra. Meira að segja vinskapur Benedikts Guðmundssonar þjálfara Tindastóls … Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 131 orð | 1 mynd

Borgarstjóri þeysist um götur Reykjavíkur

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hjólaði átakið Hjólað í vinnuna af stað í gær ásamt Maríu Ögn Guðmundsdóttur Íslandsmeistara í götuhjólreiðum, Sigrúnu Ágústsdóttur forstjóra Náttúruverndarstofnunar og Andra Stefánssyni framkvæmdastjóra ÍSÍ Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 1026 orð | 3 myndir

Byrjaði að grilla 13 ára gömul í útilegu

Kristín Birta ætlar að gefa lesendum Morgunblaðsins uppskriftina að uppáhaldsgrillrétti sínum þar sem ribeye-steik er í aðalhlutverki ásamt meðlæti sem kitlar bragðlaukana. Hún er 27 ára gömul og hjarta hennar slær í eldhúsinu á Hótel Reykjavík Grand þar sem hún starfar sem vaktstjóri Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 922 orð | 1 mynd

Ég get lítið haldið á barnabörnunum

„Vitneskja almennings um sjúkdóminn þarf að vera almennari og meiri en nú er og þjónusta okkur til handa betri,“ segir Helga Fanney Edwardsdóttir, formaður ME-félagsins á Íslandi. Næstkomandi mánudag, 12 Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 249 orð | 2 myndir

Fjölmenningu fagnað með hátíð á Hvolsvelli

Fjölmenningarhátíð verður haldin í Rangárvallasýslu nú um helgina með samkomu sem verður í íþróttahúsinu á Hvolsvelli á laugardaginn, 10. maí. Í tilkynningu segir að á samkomunni sem stendur milli kl Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 215 orð | 2 myndir

Fresta ársfundi vegna forfalla

Ársfundi Orkuveitunnar sem ber yfirskriftina „Hrein tækifæri 2025 – Ísland í ólgandi heimi“ hefur verið frestað fram á haust, en fundinn átti að halda í Grósku í dag, 8. maí. Verður nákvæm dagsetning gefin þegar nær dregur Meira
8. maí 2025 | Erlendar fréttir | 125 orð | 1 mynd

Gripnir með eftirsótta maura

Fjórir ungir karlmenn hafa verið dæmdir til greiðslu sektar eftir að hafa reynt að smygla sjaldgæfum og friðuðum maurum úr landi í Afríkuríkinu Kenía. Maurarnir áttu að enda á svörtum markaði í Evrópu og Asíu, en tveir mannanna eru frá Belgíu og einn frá Víetnam Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 75 orð | 1 mynd

Gunnlaugur Árni gerir það gott í bandaríska háskólagolfinu

Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur átt merkilegu gengi að fagna á sínu fyrsta ári í bandaríska háskólagolfinu. Hann tekur fyrstur Íslendinga þátt í Arnold Palmer Cup, sterkasta áhugamannamóti heims, og tekur einnig þátt í úrtökumóti fyrir US Open, eitt af fjórum risamótum heims Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 365 orð | 1 mynd

Hafnarfjarðarbær leysir til sín lóðina

Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti nýverið að lóðin að Hvaleyrarbraut 22 félli til bæjarins en bygging á lóðinni brann í ágúst 2023. Lóðarleigusamningur er útrunninn og hafði ekki verið endurnýjaður þegar bruninn varð Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 244 orð | 1 mynd

Halla skoðaði björgunarþyrlu

Opinber heimsókn Höllu Tómasdóttur forseta Íslands til Svíþjóðar hélt áfram í gær. Alls eru fjórtán auk forsetahjónanna í opinberri sendinefnd forsetaembættisins í heimsókninni og að auki eru tvær sendinefndir með í för Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 221 orð | 1 mynd

Hátíð haldin í 70 ára Kópavogsbæ

Margt er til gamans gert í Kópavogi nú í vikunni í tilefni þess að 70 ára afmæli bæjarfélagsins er næstkomandi sunnudag, 11. maí. Þann dag heimsækir Halla Tómasdóttir forseti Íslands bæinn og tekur þátt í barnamenningarhátíð sem verður með afmælisbrag Meira
8. maí 2025 | Erlendar fréttir | 106 orð | 1 mynd

Herþotum grandað eftir loftárásir

Forsætisráðherra Pakistans hefur heimilað hersveitum sínum að svara fyrir árásir Indlands. Gerðar voru eldflaugaárásir á skotmörk innan landamæra Pakistans sem Indverjar segja tilheyra vígamönnum. Nokkur fjöldi almennra borgara lést í aðgerðinni Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 225 orð | 1 mynd

Hjónin saman á strandveiðum

„Við hjónin erum samrýmd og ágætlega fiskin,“ segir Ómar Marísson sjómaður í Ólafsvík. Hann gerir út strandveiðibátinn Rakel SH 700 og saman eru um borð Ómar og Ingibjörg Steinþórsdóttir kona hans Meira
8. maí 2025 | Fréttaskýringar | 616 orð | 3 myndir

Hveitibrauðsdagar í þyngri kantinum

Allsérstök staða virðist vera uppi í þýskum stjórnmálum um þessar mundir en eins og greint hefur verið frá hér í blaðinu náði Friedrich Merz ekki í kjöri sem kanslari í þýska þinginu í fyrstu umferð Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 461 orð | 1 mynd

Íslenskan æfð í gegnum leiki og útivist

Námskeiðið Tungumálatöfrar verður haldið í áttunda sinn 5.-9. ágúst á Flateyri, en námskeiðið er ætlað börnum á aldrinum 5-14 ára og þá sérstaklega tvítyngdum og fjöltyngdum börnum. „Eins og í fyrra styrkir Ísafjarðarbær okkur um afnot af… Meira
8. maí 2025 | Erlendar fréttir | 190 orð | 1 mynd

Kjör á nýjum páfa hafið

Páfakjör hófst síðdegis í gær þar sem 133 kardinálar kaþólsku kirkjunnar komu saman til að kjósa hver verður arftaki Frans páfa, sem lést á annan í páskum. Óvíst er hve langan tíma kjörið tekur. Síðustu tveir páfar voru kjörnir innan tveggja daga… Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 168 orð | 2 myndir

Krónan fer á nýjan stað í Reykjanesbæ

Krónan er meðal þeirra fyrirtækja sem verða með starfsemi í því verslunarhúsi við Fitjabraut í Njarðvík í Reykjanesbæ sem nú er verið að reisa. Verslunin er í dag við Fitjar, hvar þröngt er orðið um allt í samræmi við aukin viðskipti og fólksfjölgun á Suðurnesjum Meira
8. maí 2025 | Erlendar fréttir | 242 orð | 1 mynd

Merz og Macron í aukið samstarf

Friedrich Merz, nýkjörinn kanslari Þýskalands, sótti í gær París heim og átti þar fund með Emmanuel Macron Frakklandsforseta. Er þetta fyrsta embættisverk kanslarans utan landsteinanna en þaðan hélt hann til Varsjár í Póllandi Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 237 orð | 3 myndir

Mikil innviðaskuld á Vestfjörðum

Starfsmenn Vegagerðarinnar á sunnanverðum Vestfjörðum hafa unnið við holufyllingar að undanförnu á nokkrum vegaköflum, m.a. fyrir botni Tálknafjarðar norðan megin, á Kleifaheiði, Mikladal og í Raknadalshlíð Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 604 orð | 2 myndir

Óska eftir sögum af jarðskjálftum

Rangárþing ytra óskar nú eftir reynslusögum frá fólki sem upplifði Suðurlandsskjálftana árið 2000 en þann 17. júní næstkomandi verða 25 ár frá því fyrri skjálftinn af tveimur reið yfir. Sá síðari varð aðfaranótt 21 Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 74 orð | 1 mynd

Ótal litbrigði kvenraddarinnar

Írska söngsveitin Systir heldur tónleika í Hannesarholti föstudaginn 9. maí kl. 20 og Hallgrímskirkju í Saurbæ laugardaginn 10. maí kl. 16. Þær heimsækja einnig Vitann á Akranesi kl. 11 á laugardag og koma fram í Hörpuhorni á sunnudag Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 352 orð | 1 mynd

Rekstrarstöðvun yfirvofandi

„Staðan er mjög erfið og þung. Markaðirnir eru ákaflega daprir og verðið er mjög lágt og hefur lækkað það sem af er þessu ári. Við erum að glíma við tiltölulega háan kostnað, verksmiðjan er frekar ný, en aðalmálið er að markaðirnir eru… Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 37 orð

Rétt kort um helgarvinnuna

Kort með frétt um helgarvinnu Evrópubúa, sem birt var á bls. 8 í Morgunblaðinu í gær, var ekki með réttum tölum um hlutfall launþega sem vinna helgarvinnu. Hér birtist rétt kort og beðist er velvirðingar á mistökunum. Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 126 orð | 1 mynd

Rýnt í sögu Geirs á Kjarval

Fyrsti viðburður Bókaklúbbs Spursmála fór fram á Vinnustofu Kjarvals í gær. Þar settist Geir H. Haarde niður með klúbbmeðlimum og ræddi ævisögu sína sem hann sendi frá sér á liðnu ári. Í spjalli við Stefán Einar Stefánsson skerpti Geir á nokkrum… Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 125 orð | 1 mynd

Samkeppniseftirlitið sýknað

Hæstiréttur staðfesti í gær niðurstöðu Landsréttar um að sýkna Samkeppniseftirlitið (SKE) af kröfu Samskipa. Landsréttur hafði sýknað Samkeppniseftirlitið í september. Samskip vildu láta ógilda úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem fól í sér að kæru fyrirtækisins yrði vísað frá nefndinni Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 267 orð | 1 mynd

Skrifaði nafn manns­ins á kross

Ákærði Jón Þór Dagbjartsson neitar alfarið sök í máli sem tekið var fyrir í Héraðsdómi Austurlands í gærmorgun, þar sem hann er sakaður um tilraun til manndráps og stórfellt brot í nánu sambandi gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður, Hafdísi Báru Óskarsdóttur Meira
8. maí 2025 | Fréttaskýringar | 443 orð | 3 myndir

Skýrsla um Sundabraut á lokastigi

Umhverfismatsskýrsla Sundabrautar er að taka á sig endanlega mynd hjá Vegagerðinni. Þetta segir Helga Jóna Jónasdóttir, verkefnisstjóri Sundabrautar, í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins. Eins og fram kom í Morgunblaðinu sl Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 78 orð | 1 mynd

Steypireyður máluð í 18 stiga hita

Krakkarnir á Árholti á leikskólanum Grænuvöllum á Húsavík gerðu sér lítið fyrir og máluðu steypireyði í raunstærð á götuna fyrir utan leikskólann í gær. Listaverkið er liður í hvalaskólanum þar sem nemendur læra um hvali og hvalaskoðun, fara á hvalasafnið og skoða hvalaskoðunarbáta Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 555 orð | 1 mynd

Stjórnarmenn fái fundarsetu greidda

Til stendur að taka upp greiðslur til stjórnarmanna í Blaðamannafélagi Íslands vegna fundarsetu, en málið verður tekið fyrir á félagsfundi. Þetta staðfestir Blaðamannafélagið í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 259 orð | 2 myndir

Tveir prestar ráðnir til starfa

Nýlega var gengið frá ráðningu tveggja presta til starfa í þjóðkirkjunni. Hefur biskup Íslands, Guðrún Karls Helgudóttir, staðfest ráðningu þeirra. Séra Hjalti Jón Sverrisson hefur verið ráðinn í starf fangaprests þjóðkirkjunnar Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 101 orð | 1 mynd

Varðberg með fund um ógnir og öryggi

Varðberg, ríkislögreglustjóri og sendiráð Noregs boða í dag til fundar í Norræna húsinu í Reykjavík um opið mat á ógn og öryggi ríkja. Fjallað verður um framkvæmd og niðurstöður áhættumats í Noregi, en fundurinn hefst kl Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 84 orð

Varðhald framlengt í Garðabæjarmálinu

Gæsluvarðhald yfir Margréti Höllu Hansdóttur Löf, í tengslum við rannsókn lögreglunnar á andláti föður hennar, Hans Rolands Löf, hefur verið framlengt um fjórar vikur, eða til 3. júní, á grundvelli almannahagsmuna samkvæmt tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 111 orð | 1 mynd

Veiðigjaldahækkun mun hafa áhrif

Það er afar mikilvægt að umræða um hækkun veiðigjalda verði ekki til þess að gera gjá milli landsbyggðar og suðvesturhorns landsins segir Jens Garðar Helgason varaformaður Sjálfstæðisflokksins í viðtali í Dagmálum Meira
8. maí 2025 | Innlendar fréttir | 884 orð | 2 myndir

Þrjár þyrlur og allar af sömu tegund

Nú um miðjan aprílmánuð fékk Norðurflug, sem gerir út frá Reykjavíkurflugvelli, sína þriðju þyrlu í flotann. Með því lýkur þeirri endurnýjun hjá fyrirtækinu sem hófst 2018. Nýja þyrlan er af gerðinni Airbus AS350B3+ Meira

Ritstjórnargreinar

8. maí 2025 | Staksteinar | 155 orð | 2 myndir

Hækkun skatta hefur afleiðingar

Hrafnar Viðskiptablaðsins segjast hafa fylgst „spenntir með fyrstu umræðu á Alþingi um frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um hækkun á veiðigjöldum – eða „leiðréttinguna miklu“, eins og sannkristnir stjórnarliðar kjósa að kalla málið Meira
8. maí 2025 | Leiðarar | 734 orð

Stjórnskipan í uppnámi

Ráðherrar eru ekki hafnir yfir lög sem Alþingi setur Meira

Menning

8. maí 2025 | Fólk í fréttum | 945 orð | 10 myndir

„Fataveikin“ byrjaði mjög snemma

Helen Óttarsdóttir flutti til Lundúna fyrir fimm árum. Hún flutti til borgarinnar til að sækja listnám í hinum virta Central Saint Martins. Hún starfaði sem fyrirsæta samhliða náminu en eftir að hún lauk því hefur það orðið að hennar aðalstarfi Meira
8. maí 2025 | Tónlist | 591 orð | 4 myndir

„Sofðu unga tölvan mín …“

Er það óþægilegt að vita til þess að þetta mannlega vantar? Möguleikinn á mistökum, hráleika, einhverju „x“ sem verður aldrei hægt að setja upp í töflureikna. Meira
8. maí 2025 | Fólk í fréttum | 1042 orð | 2 myndir

Af pöndufréttum og dómsdagsskruni

Flest þekkjum við þá tilfinningu að opna símann og fá strax yfir okkur bylgju af fréttum um áföll, átök og hörmungar. Þótt við viljum vera vel upplýst getur þetta stöðuga flæði af neikvæðum fréttum tekið sinn toll Meira
8. maí 2025 | Menningarlíf | 136 orð | 1 mynd

DJ Bambi vekur athygli í Danmörku

Skáldsagan DJ Bambi eftir Auði Övu Ólafsdóttur kom út hjá Batzer í Danmörku fyrir stuttu í þýðingu Kims Lembek og hefur hlotið góða dóma í miðlum þar í landi. Bókin fær fimm stjörnur af sex mögulegum hjá gagnrýnanda Jyllands-Posten en þar segir… Meira
8. maí 2025 | Menningarlíf | 113 orð | 1 mynd

Hreyfiafl skapandi framtíðarsýna

Rannsóknasetur skapandi greina (RSG) í samstarfi við CCP býður í samtal um skapandi greinar í dag, fimmtudaginn 8. maí, kl. 8.30-10 í húsakynnum CCP í Grósku. Yfirskrift fundarins að þessu sinni er „Hreyfiafl skapandi og skáldlegra framtíðarsýna“ Meira
8. maí 2025 | Menningarlíf | 298 orð | 1 mynd

Húmor, léttleiki og kaldhæðnislegt raunsæi

Í málverki Hallgríms Helgasonar Love & Love, The Good Bedroom er litið inn í rúmgott rauðmálað svefnherbergi. Fyrir miðju er stórt rúm þar sem tvær alhvítar verur liggja í faðmlögum á blárri ábreiðu Meira
8. maí 2025 | Menningarlíf | 1135 orð | 4 myndir

Jónsi sýnir í marglofuðu safni

Jón Þór Birgisson, einnig þekktur sem Jónsi úr hljómsveitinni Sigur Rós, hefur í auknum mæli verið að hasla sér völl innan myndlistarinnar. Í síðustu viku opnaði hann sýninguna VOX í Kunstsilo í Kristiansand í Noregi Meira
8. maí 2025 | Fjölmiðlar | 200 orð | 1 mynd

Lítilmagni rís upp gegn ofureflinu

Ég horfði á fyrsta þátt á RÚV í breskri þáttaröð sem segir frá sannsögulegum atburðum frá því fyrir stuttu, eftir aldamótin 2000. Þáttaröðin, sem heitir Bates gegn póstþjónustunni (Mr Meira
8. maí 2025 | Menningarlíf | 115 orð | 1 mynd

Rósenberg breytist í billega tötraknæpu

„Kaffi Rósenberg í Kvosinni breytist í billega tötraknæpu þar sem þýskur kabarett tekur völdin í tilefni af því að í ár eru 125 ár frá fæðingarári tónskáldsins Kurts Weill og 75 ár síðan hann sveif til Youkali.“ Með þessum orðum hefst kynning á… Meira
8. maí 2025 | Menningarlíf | 1414 orð | 2 myndir

Þráhyggja sem varði í þrjú ár

Nú erum við alltaf í símanum, meðvituð um hvað tímanum líður og fáum stöðugt upplýsingar um það sem er að gerast í lífi okkar eða annarra. Tæknin leyfir ekki huganum að reika eða að gleyma sér í stundinni. Meira

Umræðan

8. maí 2025 | Aðsent efni | 636 orð | 1 mynd

Eigum afganginn

Við í Framsókn höfum efnt loforð okkar til borgarbúa um breytingar í fjármálum borgarinnar en verkefninu er ekki lokið. Meira
8. maí 2025 | Pistlar | 416 orð | 1 mynd

Kvótakerfið og brothættar byggðir

Ég ólst upp í litlu íslensku sjávarþorpi með 595 íbúa þar sem lífið iðaði af krafti árið 1974. Sjávarútvegurinn var hjarta samfélagsins og mótaði bernsku mína á ógleymanlegan hátt. Ellefu ára gömul hóf ég störf í frystihúsinu Meira
8. maí 2025 | Aðsent efni | 324 orð | 1 mynd

Laxeldi og auðlindir – tryggjum íslensk yfirráð

Með skýrum reglum um eignarhald í laxeldi tryggjum við að auðlindir okkar verði áfram undir okkar stjórn. Meira
8. maí 2025 | Aðsent efni | 598 orð | 2 myndir

Opið bréf til íslenskra stjórnvalda frá Félagi íslenskra nýrnalækna

Fjöldi sjúklinga með lokastigsnýrnabilun á Gaza hefur látist vegna skorts á aðstöðu og heilbrigðisþjónustu á síðustu mánuðum. Meira
8. maí 2025 | Aðsent efni | 574 orð | 1 mynd

Ósjálfbær rekstur Reykjavíkurborgar

Afar mikilvægt er að fjármál Reykjavíkurborgar verði tekin föstum tökum og látið af stjórnlausri skuldasöfnun. Meira
8. maí 2025 | Aðsent efni | 349 orð | 1 mynd

Verra er þeirra réttlæti

Þá var talað hátt um gagnsæi, vönduð vinnubrögð og nauðsyn þess að stjórnsýslan starfaði eftir leikreglum lýðræðisins. Meira
8. maí 2025 | Aðsent efni | 492 orð | 1 mynd

Viðsjárverð veröld

Margt bendir til að mannréttindi og lýðræði eigi í vök að verjast víða um heim. Meira

Minningargreinar

8. maí 2025 | Minningargreinar | 1564 orð | 1 mynd

Áslaug Guðbrandsdóttir

Áslaug Guðbrandsdóttir fæddist 3. júní 1934 á Kambsnesi í Dalasýslu, yngst sex systkina. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 5. apríl 2025, tæplega 91 árs að aldri. Foreldrar hennar voru Guðbrandur Gíslason frá Gillastöðum í Dalasýslu og Friðbjörg Eyjólfsdóttir frá Dröngum á Skógarströnd Meira  Kaupa minningabók
8. maí 2025 | Minningargreinar | 6414 orð | 1 mynd

Birgir Guðjónsson

Birgir Guðjónsson, stærðfræðikennari við Menntaskólann í Reykjavík, fæddist í Reykjavík 16. apríl 1957. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að morgni sumardagsins fyrsta, 24. apríl 2025 Meira  Kaupa minningabók
8. maí 2025 | Minningargreinar | 664 orð | 1 mynd

Dagný Kjartansdóttir

Dagný Kjartansdóttir (skírð Jóhanna Dagný) fæddist á Hauganesi 2. mars 1939. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 17. apríl 2025. Dagný var dóttir hjónanna Birnu Guðrúnar Jóhannsdóttir, f. 12.9. 1918, d Meira  Kaupa minningabók
8. maí 2025 | Minningargreinar | 1125 orð | 1 mynd

Einar Steingrímsson

Einar Steingrímsson fæddist í Vestmannaeyjum 22. desember 1951. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 30. apríl 2025. Foreldrar hans voru Steingrímur Arnar Friðvinsson flugvallarstjóri í Vestmannaeyjum, f Meira  Kaupa minningabók
8. maí 2025 | Minningargrein á mbl.is | 1090 orð | 1 mynd | ókeypis

Erla María Erlendsdóttir

Erla María Erlendsdóttir fæddist á Skúlaskeiði 18 í Hafnarfirði 13. desember 1947. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 26. apríl 2025. Foreldrar hennar voru Erlendur Indriðason, fisksali í Hafnarfirði, f. 1898, d. Meira  Kaupa minningabók
8. maí 2025 | Minningargreinar | 1876 orð | 1 mynd

Erla María Erlendsdóttir

Erla María Erlendsdóttir fæddist á Skúlaskeiði 18 í Hafnarfirði 13. desember 1947. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 26. apríl 2025. Foreldrar hennar voru Erlendur Indriðason, fisksali í Hafnarfirði, f Meira  Kaupa minningabók
8. maí 2025 | Minningargreinar | 2067 orð | 1 mynd

Gunnar Ingvi Baldvinsson

Gunnar Ingvi Baldvinsson fæddist á Akureyri 20. apríl 1932. Hann lést 26. apríl 2025 á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Foreldrar hans voru Baldvin Pálmason frá Samkomugerði í Eyjafirði, húsasmiður, f Meira  Kaupa minningabók
8. maí 2025 | Minningargreinar | 4713 orð | 1 mynd

Gylfi Gautur Pétursson

Gylfi Gautur fæddist í Reykjavík 23. janúar 1956. Hann lést á heimili sínu 17. apríl 2025. Foreldrar hans voru Pétur Gautur Kristjánsson, lög­fræð­ing­ur og kennari, f. 14.7. 1934, d. 10.12. 1999, og Halla Steingrímsdóttir, ritari, f Meira  Kaupa minningabók
8. maí 2025 | Minningargrein á mbl.is | 850 orð | 1 mynd | ókeypis

Hallur Steingrímsson

Hallur Steingrímsson fæddist á Ingvörum í Svarfaðardal 29. mars 1948. Hann lést á gjörgæsludeild SAK 22. apríl 2025. Meira  Kaupa minningabók
8. maí 2025 | Minningargreinar | 2191 orð | 1 mynd

Hrafnhildur Jónsdóttir

Hrafnhildur Jónsdóttir fæddist á Akureyri 2. janúar 1942. Hún lést 29. apríl 2025. Foreldrar hennar voru Jón Guðjónsson bakari á Akureyri, f. 1903, d. 1969, og Þorgerður Einarsdóttir verkakona, f. 1910, d Meira  Kaupa minningabók
8. maí 2025 | Minningargreinar | 3416 orð | 1 mynd

Margrét Sigríður Einarsdóttir

Margrét Sigríður Einarsdóttir fæddist í Reykjavík 11. ágúst 1930. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 27. apríl 2025. Foreldrar hennar voru Einar Þorsteinsson skrifstofustjóri, f. 20. desember 1906, d Meira  Kaupa minningabók
8. maí 2025 | Minningargreinar | 1564 orð | 1 mynd

Valborg Guðmundsdóttir

Valborg Guðmundsdóttir, ávallt kölluð Vallý af ættingjum og vinum, fæddist í Hvallátrum á Breiðafirði 18.8. 1939. Hún lést á Landspítalanum 25.4. 2025. Móðir Valborgar var Jóhanna Steinunn Sveinsdóttir, ráðskona í Ásbyrgi í Hveragerði, f Meira  Kaupa minningabók
8. maí 2025 | Minningargreinar | 465 orð | 1 mynd

Örn Kristinsson

Örn Kristinsson fæddist 8. maí 1943 á Eskifirði. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut 28. apríl 2025. Foreldrar hans voru Vilborg Björnsdóttir og Kristinn Berg Pétursson. Örn átti 12 systkini Meira  Kaupa minningabók

Sjávarútvegur

8. maí 2025 | Sjávarútvegur | 620 orð | 1 mynd

Grásleppa veiðanleg í botnvörpu

Hegðunarmynstur og dreifing grásleppu á Íslandsmiðum gerir mögulegt að veiða tegundina í nægilegu magni með botnvörpu til að hægt sé að byggja stofnmat tegundarinnar á niðurstöðum úr togararalli. Þetta er mat vísindamanna Hafrannsóknastofnunar Meira
8. maí 2025 | Sjávarútvegur | 158 orð

Ráðgjöf sveiflast í Norðursjó

Ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) um hámarksafla í síld úr Norðursjó á næsta ári lækkar um 30% frá yfirstandandi ári en eykst um 213% í tilfelli brislings í Norðursjó og Skagerrak. Ráðið leggur til að ekki verði landað meira en 287.772… Meira

Viðskipti

8. maí 2025 | Viðskiptafréttir | 452 orð | 1 mynd

Kína og Bandaríkin ætla að brjóta ísinn

Bandaríkin og Kína munu hefja formlegar viðræður í Genf í Sviss næstkomandi laugardag, 10. maí, í því skyni að draga úr spennu í viðskiptastríði sem hefur haft alvarleg áhrif á viðskiptalíf heimsins alls, að því er Reuters greindi frá Meira
8. maí 2025 | Viðskiptafréttir | 283 orð | 1 mynd

Tímasetning sölunnar fín

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hefur greint frá því að stefnt sé að því að ljúka sölunni á Íslandsbanka á næstu vikum. Hann hefur sagt að þegar komið verði að sölunni muni íslenskur almenningur njóta forgangs Meira
8. maí 2025 | Viðskiptafréttir | 117 orð

Þungur rekstur hjá WW

WW International, áður þekkt sem WeightWatchers, hefur óskað eftir gjaldþrotaskiptum samkvæmt kafla 11 í Bandaríkjunum. Kafli 11 veitir fyrirtækjum tímabundna lagalega vernd gegn kröfuhöfum á meðan þau vinna að samþykktri endurskipulagningu Meira

Daglegt líf

8. maí 2025 | Daglegt líf | 897 orð | 2 myndir

Mætir öllum á jafningjagrundvelli

Ég kann afskaplega vel við að vinna með ungu fólki, nemendum mínum. Ég þurfti í mörg ár að minna mig á að ég fengi borgað fyrir þetta, því mér finnst svo gaman að kenna. Í mínum huga eru alger forréttindi að fá að sinna þessu starfi, alltaf líf og fjör Meira

Fastir þættir

8. maí 2025 | Í dag | 71 orð

[4021]

Ýmist er sagt: brjóta í bága við e-ð eða brjóta í bág við e-ð. Bági eða bágur – báðar myndir hafa lifað lengi hlið við hlið – er árekstur og að brjóta í bág/bága við e-ð þýðir að vera andstætt e-u, rekast á… Meira
8. maí 2025 | Í dag | 282 orð

Af bridds, Kára og páfakjöri

Magnús Halldórsson fylgist spenntur með páfakjöri: Kjöri páfa kvað, þeir vilji hasta, því kardínálar saman þurfa’ að fasta. Ég aldrei matinn yfirhöfuð lasta, þó ekki vilji sjálfur borða pasta. Átta merar eiga hér að kasta, ég enda svo með punkt og basta Meira
8. maí 2025 | Í dag | 142 orð | 1 mynd

Björn H. Sigurbjörnsson

60 ára Björn fæddist á Eskifirði og ólst þar upp til 14 ára aldurs. Þá flutti fjölskyldan til Vopnafjarðar og þar hefur hann búið síðan. Hann gekk í Laugaskóla eins og margir Vopnfirðingar og síðan fór hann að vinna sem nemi í vélvirkjun og pípulögnum Meira
8. maí 2025 | Í dag | 945 orð | 4 myndir

Briddsáhuginn heltekur menn

Þórir fæddist á Hömrum við Suðurlandsbraut í Reykjavík. „Hamrar var steinhús sem afi minn Hersveinn byggði, fyrir neðan þar sem Tónabíó var, en það er búið að rífa Hamra.“ Þórir ólst upp í Sólheimum og gekk í Vogaskóla, sem á þeim tíma… Meira
8. maí 2025 | Dagbók | 82 orð | 1 mynd

Ótrúleg tækni líkamsgatara heillar

Bear Reed, faglærður líkamsgatari í Bandaríkjunum, hefur vakið mikla athygli á netinu með myndböndum þar sem hann gatar eyrun á börnum – svo fimlega að þau fatta það ekki fyrr en lokkarnir eru komnir í gegn Meira
8. maí 2025 | Í dag | 136 orð | 1 mynd

Skák

Staðan kom upp á Reykjavíkurskákmótinu sem lauk fyrir skömmu í Hörpu en mótið var haldið í boði Kviku eignastýringar og Brims. Stigahæsti skákmaður Íslands, stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2.536), hafði hvítt gegn Þjóðverjanum Raphael Kracht (2.196) Meira
8. maí 2025 | Í dag | 178 orð

Slögum fjölgað S-NS

Norður ♠ G107 ♥ K54 ♦ ÁK97 ♣ K72 Vestur ♠ 5 ♥ 876 ♦ DG10854 ♣ D65 Austur ♠ 9832 ♥ D10932 ♦ 32 ♣ G3 Suður ♠ ÁKD64 ♥ ÁG ♦ 6 ♣ Á10984 Suður spilar 7♠ Meira
8. maí 2025 | Í dag | 90 orð | 1 mynd

Unnar Blöndal

30 ára Unnar fæddist á Akureyri og þar ólst hann upp og gekk í skóla. „Ég er lærður smiður en er núna að læra pípulagningar.“ Í dag býr hann á Dalvík og starfar sem pípulagningamaður. Það er nóg að gera á heimilinu með þrjú börn en þegar … Meira
8. maí 2025 | Dagbók | 33 orð | 1 mynd

Verðmætasköpun og skattpíning

Fátt annað en umræða um veiðigjöld kemst að á Alþingi þessa dagana, en þar er tekist á um verðmætasköpun í stóru samhengi, eins og Jens Garðar Helgason varaformaður Sjálfstæðisflokksins ræðir við Andrés Magnússon. Meira

Íþróttir

8. maí 2025 | Íþróttir | 69 orð | 1 mynd

Aron áfram hjá Al Gharafa

Aron Einar Gunnarsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, hefur gert nýjan samning við Al Gharafa í Katar og verður þar út næsta tímabil. Aron, sem er 36 ára, gekk í raðir Al Gharafa í september 2024 Meira
8. maí 2025 | Íþróttir | 761 orð | 2 myndir

„Það væri algjör draumur“

Valur mætir spænska liðinu Porrino í fyrri úrslitaleik liðanna í Evrópubikar kvenna í handbolta næstkomandi laugardag. Liðið flýgur til Porto í Portúgal í dag og fer síðan með rútu yfir til Vigo, sem er í nágrenni við Porrino á norðvesturhorni Spánar Meira
8. maí 2025 | Íþróttir | 138 orð | 1 mynd

Einvígi Tindastóls og Stjörnunnar hefst á Sauðárkróki í kvöld

Tindastóll og Stjarnan hefja í kvöld úrslitaeinvígi sitt um Íslandsmeistaratitil karla í körfuknattleik en flautað verður til fyrsta leiksins á Sauðárkróki klukkan 20.15. Tindastóll vann Keflavík 3:0 í átta liða úrslitum og Álftanes 3:1 á meðan Stjarnan vann ÍR 3:1 og Grindavík eftir oddaleik 3:2 Meira
8. maí 2025 | Íþróttir | 68 orð | 1 mynd

Fimmti hæstur í bestu deildinni

Martin Hermannsson, fyrirliði þýska liðsins Alba Berlín, er fimmti hæstur í stoðsendingum í EuroLeague, sterkustu körfuboltadeild Evrópu, á þessu tímabili. Martin lék 24 af 34 leikjum Alba í deildinni í vetur og átti þar 5,7 stoðsendingar að meðaltali í leik Meira
8. maí 2025 | Íþróttir | 1138 orð | 2 myndir

Fyrsta árið lyginni líkast

Undanfarið ár hefur verið afskaplega viðburðaríkt fyrir Gunnlaug Árna Sveinsson, 19 ára kylfing úr GKG, sem varð á dögunum fyrsti Íslendingurinn í sögunni sem er valinn til þátttöku í Arnold Palmer Cup, sterkasta áhugamannamóti heims Meira
8. maí 2025 | Íþróttir | 80 orð | 1 mynd

Góð byrjun en áfall fyrir liðið

Golden State Warriors fór vel af stað í undanúrslitum Vesturdeildar NBA í körfuknattleik í fyrrinótt þegar liðið vann góðan útisigur á Minnesota Timberwolves, 99:88. En um leið varð liðið fyrir miklu áfalli þegar Steph Curry fór meiddur af velli,… Meira
8. maí 2025 | Íþróttir | 71 orð | 1 mynd

Katrín Anna til liðs við Fram

Handknattleiksdeild Fram hefur gert þriggja ára samning við landsliðskonuna Katrínu Önnu Ásmundsdóttur. Hún kemur til félagsins frá Gróttu. Katrín skoraði 57 mörk í 21 leik með Gróttu í úrvalsdeildinni á liðinni leiktíð en gat ekki komið í veg fyrir fall liðsins niður í 1 Meira
8. maí 2025 | Íþróttir | 222 orð | 1 mynd

Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði tvívegis fyrir Sarpsborg í 3:1-sigri á…

Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði tvívegis fyrir Sarpsborg í 3:1-sigri á Sandefjord í 32-liða úrslitum norsku bikarkeppninnar í knattspyrnu í gær. Hann hefur nú skorað fimm mörk í sjö leikjum í deild og bikar á tímabilinu Meira
8. maí 2025 | Íþróttir | 223 orð | 1 mynd

Valskonur brjóta blað í íslenskri handboltasögu þegar þær mæta Porrino frá…

Valskonur brjóta blað í íslenskri handboltasögu þegar þær mæta Porrino frá Spáni í tveimur úrslitaleikjum næstu tvo laugardaga. Aldrei áður hefur íslenskt kvennalið leikið til úrslita í Evrópukeppni í handbolta, og reyndar ekki í öðrum boltaíþróttum svo það sé sagt Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.