Húsið skiptist í forstofu með skápum, gestasalerni, miðrými, eldhús með nýlegri innréttingu og góðum borðkrók. Framan við eldhúsið er borðstofa og fjórar tröppur upp tekur við mjög stór stofa og er þar útgengi út á flísalagðar suðursvalir.
Steyptur stigi er niður á jarðhæð og þar er gangur með stórum skápum, tvö góð barnaherbergi, hjónaherbergi, mjög stórt herbergi (tómstundaherbergi), baðherbergi með kari og sturtuklefa, þvottahús með útgengi, tvær litlar geymslur og köld útigeymsla. Gólfefni eru vandað parket og flísar.
Bílskúr er með öllum lögnum. Garðurinn er mjög fallegur og skjólgóður með stórri timburverönd.
"Húsið er mikið endurnýjað, m.a. gólfefni, innihurðir, eldhúsinnrétting, gluggar og gler, þak og þakkantur o.fl.," sagði Snorri Egilsson að lokum. Ásett verð er 45 millj. kr.