KOSTNAÐUR við framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna er orðinn um 200 milljónir króna, frá árinu 2001, að því er fram kemur í skriflegu svari utanríkisráðherra, Geirs H. Haarde, við fyrirspurn Sigurjóns Þórðarsonar, þingmanns Frjálslynda flokksins. Kostnaðurinn er skv. svarinu aðallega til kominn vegna fjölgunar í fastanefnd Íslands hjá SÞ í New York.
Í svarinu segir að undirbúningsvinna og áætlanagerð vegna framboðsins hafi hingað til verið sinnt samhliða öðrum málum og því hafi ekki þurft að bæta við mönnum í ráðuneytinu. "Enginn teljandi risnu- eða ferðakostnaður hefur fallið til vegna framboðsins," segir í svarinu.
Þar segir að gætt verði hófs í framhaldinu. "Gert er ráð fyrir að kostnaður vegna framboðsins næstu þrjú ár, eða þar til kosið verður um sætið í ráðinu haustið 2008, verði rúmlega 200 milljónir kr. Það felur í sér lækkun frá fyrri áætlun vegna þessara þriggja ára um u.þ.b. 170 milljónir kr. Ekki er gert ráð fyrir sérstökum farandsendiherra vegna framboðsins eða öðrum sérstökum ferðalögum vegna þess. Kosningabaráttan verður fyrst og fremst háð á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í New York.
Ekki er heldur gert ráð fyrir risnu eða stórum menningarviðburðum vegna framboðsins. Þó að óumflýjanlegt sé að fjölga frekar starfsmönnum í fastanefnd Íslands í New York, verður það gert með tilfærslu starfsmanna úr ráðuneytinu. Litið verður á framboðið sem tímabundið forgangsverkefni utanríkisþjónustunnar, sem önnur verkefni víkja fyrir á meðan á því stendur."
Í lokin segir að nái Ísland kjöri hafi verið áætlað að kostnaður vegna setunnar í öryggisráðinu árin 2009-2010 gæti numið um 100 milljónum kr. á ári. "Þennan kostnað er þó erfitt að áætla nákvæmlega. Þannig er auðvitað ekki hægt að útiloka að atburðir í alþjóðamálum á kjörtímabili Íslands leiddu til aukinna umsvifa í störfum ráðsins."