— Morgunblaðið/Ómar
KVENNALIÐ Hauka bætti við titli í safn sitt á laugardaginn er liðið lagði Keflavík að velli í úrslitum fyrirtækjabikarkeppninnar, Powerade-bikarsins.

KVENNALIÐ Hauka bætti við titli í safn sitt á laugardaginn er liðið lagði Keflavík að velli í úrslitum fyrirtækjabikarkeppninnar, Powerade-bikarsins. Haukar skoruðu 77 stig gegn 63 stigum Keflavíkur en Haukar hafa titil að verja í bikarkeppni KKÍ eftir áramót en Keflavík er Íslandsmeistari frá því á síðustu leiktíð. Helena Sverrisdóttir til vinstri fagnaði sigri Hauka vel og innilega með samherja sínum, Pálínu M. Gunnlaugsdóttur. Þetta er í fyrsta sinn sem Haukar sigra í þessari keppni sem fór fyrst fram í kvennaflokki árið 2000 er KR sigraði, Grindavík árið 2001 en Keflavík sigraði þrjú ár í röð, frá 2002-2004.

Kesha Tardy var stigahæst í liði Hauka með 28 stig og 24 fráköst, en Helena Sverrisdóttir skoraði 20 stig og tók 14 fráköst. Í liði Keflavíkur skoraði Birna Valgarðsdóttir 20 stig.