MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR HERMANSSON Margrét Sigurðardóttir Hermannsson var fædd á Ísafirði 4. maí 1915. Hún lést í Helsingborg 23. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigurður Sigurðsson, sýslumaður Skagfirðinga og bæjarfógeti á Sauðárkróki, og kona hans Guðríður Stefanía Arnórsdóttir. Systkini hennar eru Sigurður listmálari, Stefanía Guðríður skrifstofumaður (látin), Arnór verðlagseftirlitsmaður á Sauðárkróki, Stefán lögfræðingur (látinn), Hrólfur listmálari, Guðrún listmálari, gift Jens Urup listmálara, búsett í Danmörku, Árni, sóknarprestur á Blönduósi, og Snorri skógfræðingur. Margrét fór til Danmerkur haustið 1939 og vann sem hjúkrunarkona á St. Hans-sjúkrahúsinu í Hróarskeldu. Hún fór til Svíþjóðar haustið 1940 og starfaði á sjúkrahúsinu í Gävle og háskólasjúkrahúsinu í Uppsölum. Margrét giftist 26. mars 1942 Olle Hermansson cand.jur. Voru þau gefin saman í ráðhúsinu í Uppsölum. Þau fluttust þá til Helsingborgar þar sem þau bjuggu upp frá því. Börn þeirra fjögur eru Nanna Stefanía, borgarminjavörður í Stokkhólmi, Gunnar, skipulagsarkitekt í Landskrona, Anders Snorri, starfsmannastjóri í Stokkhólmi, og Sigurður, hjúkrunarfræðingur í Stokkhólmi. Margrét gegndi ýmsum trúnaðarstörfum á vegum Helsingborgar. Hún var borgarfulltrúi 1961-62 og 1967-82, fyrsti varaforseti borgarstjórnar 1980-1982, í skólanefnd 1956-73 og í hafnarstjórn 1974-82. Hún beitti sér innan borgarstjórnar Helsingborgar fyrir fjölmörgum líknar- og menningarmálum, var formaður í samtökunum "Umhyggja fyrir öldruðum" og formaður Kvennadeildar Rauða krossins í Helsingborg. Árið 1967 kom hún því m.a. til leiðar í borgarstjórn, að ákveðið var að stafsetning á nafni H¨alsingborgar yrði breytt til hins upprunalega horfs: Helsingborg. Fyrir störf sín í þágu borgarinnar hlaut Margrét gullheiðursmerki árið 1983. Hún var formaður í Félagi hægri kvenna/Íhaldsflokkskvenna 1964-76. Hún beitti sér innan flokksins fyrir hinu fyrsta raunverulega kvennaframboði í Svíþjóð árið 1973 og hlaut efsta konan á kvennalista flokksins þingsæti. Af 57.000 atkv. Hægri flokksins komu 14.000 í hlut kvennalistans. Aska Margrétar verður jarðsett í kirkjugarðinum á Sauðárkróki í dag.