Sigurbergur Sigsteinsson íþróttakennari lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ miðvikudaginn 29. janúar 2020.
Hann fæddist á Landspítalanum í Reykjavík 10. febrúar 1948 og var því nær 72 ára þegar hann lést. Foreldrar hans voru Sigsteinn Sigurbergsson húsgagnabólstrari og Herdís Antoníusardóttir.
Sigurbergur kvæntist Guðrúnu Hauksdóttur verslunarmanni, f. 30. mars 1952. Börn þeirra eru: 1. Herdís, f. 18. mars 1971. Börn hennar eru Sigrún María Jörundsdóttir og tvíburarnir Snædís María og Sigurbergur Áki. 2. Heiða, f. 1. júlí 1976, maki Hafliði Halldórsson, f. 4. febrúar 1972, þeirra börn eru Halldór og Guðrún Helga. Fyrir átti Hafliði tvær dætur af fyrra sambandi og fjögur barnabörn. 3. Sigsteinn, f. 13. október 1977. 4. Oddný, f. 6. nóvember 1991, maki Arnar Daði Helgason, f. 28. júní 1987.
Sigurbergur lauk íþróttakennaraprófi frá Íþróttakennaraskóla Íslands á Laugarvatni 1969 og kennsla var hans aðalstarf, síðast í Verzlunarskóla Íslands 1975-2014, en lengi kenndi hann jafnframt í Árbæjarskóla. Hann var þjálfari um árabil, bæði í handbolta og fótbolta, þjálfaði meðal annars meistaraflokk karla og kvenna í handbolta hjá Fram, meistaraflokk karla hjá Haukum og HK, meistaraflokk kvenna hjá ÍR og Stjörnunni og meistaraflokk karla í fótbolta hjá Leikni Fáskrúðsfirði og Þrótti Neskaupstað. Ennfremur kvennalandsliðin í handbolta og fótbolta. Þá þjálfaði hann yngri flokka í fótbolta hjá Val og Fram, var með knattspyrnuskóla hjá Fram og ÍR og Sumarbúðir í borg hjá Val. Auk þess var hann þjálfari hjá lögreglunni og Landsbankanum.
Sigurbergur var fjölhæfur íþróttamaður og spilaði handbolta, körfubolta og fótbolta. Hann lék lengi með meistaraflokki Fram í handbolta og var lykilmaður í landsliðinu, lék fleiri A-landsleiki en nokkur annar Framari. Hann spilaði einnig með meistaraflokki Fram í fótbolta, var m.a. Íslandsmeistari í handbolta og fótbolta 1972, og lék einn A-landsleik. Þá lék hann unglingalandsleiki í körfubolta.
Sigurbergur fékk ýmsar viðurkenningar, meðal annars frá Fram, ÍR, HSÍ og KSÍ.
Útför Sigurbergs fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 10. febrúar 2020, og hefst klukkan 13.


Kveðja frá Knattspyrnufélaginu Fram

Við fráfall Sigurbergs Sigsteinssonar sér Fram á bak góðum, traustum og litríkum félaga. Sigurbergur, sem ólst upp á Njálsgötunni; við Frakkastíg, varð margfaldur meistari með yngri flokkum félagsins bæði í knattspyrnu og handknattleik. Hann varð unglingalandsliðsmaður og síðan landsliðsmaður í báðum greinum. Sigurbergur lék 352 leiki með Framliðinu í handknattleik, 1966-1980, og 225 leiki í knattspyrnu, 1966-1979. Hann lék með Fram í Meistarakeppni Evrópu í báðum greinum.

Sigurbergur var einn af bestu handknattleiksmönnum Íslands og fastamaður í landsliðinu, fjölhæfur leikmaður í sókn og öflugur í vörn; einn besti varnarleikmaður landsins. Sigurbergur lék 88 landsleiki á árunum 1967-1978. Hann var kallaður, 19 ára, frá Laugarvatni, þar sem hann var við nám í Íþróttakennaraskólanum, til að leika sína fyrstu landsleiki gegn Tékkóslóvakíu í byrjun desember 1967. Þegar Ísland vann hinn frækna sigur á Dönum í apríl 1968, 15:10, stjórnaði Sigurbergur varnarleiknum; í sínum þriðja landsleik.

Hann varð Íslandsmeistari í handknattleik með meistaraflokki 1967, 1968, 1970 og 1972, Íslandsmeistari í knattspyrnu 1972 og bikarmeistari 1970.

Sigurbergur lék sinn eina landsleik í knattspyrnu gegn áhugamannalandsliði Englands á Laugardalsvellinum 1971.

Sigurbergur tók þátt í heimsmeistarakeppninni í handknattleik í Frakklandi 1970 og HM í Austur-Þýskalandi 1974. Þá lék hann með landsliðinu á Ólympíuleikunum í München 1972. Fyrir leikana var hann lykilmaður í knattspyrnuliði Fram sem barðist um Íslandsmeistaratitilinn. Þá setti HSÍ knattspyrnubann á Sigurberg til að hann gæti tekið af fullum krafti þátt í undirbúningi fyrir ÓL. Sigurbergur kom síðan tvíefldur frá München til að leika á ný með Framliðinu og fagna meistaratitli með félögum sínum.

Sigurbergur, sem var einn besti skallamaður landsins hafði yfir að ráða mikilli skallatækni, varð bikarmeistari í knattspyrnu 1970, eftir að hafa skallað Víking út úr bikarkeppninni á Melavellinum, 3:2. Tíminn sagði þannig frá: Áhorfendur fengu að sjá eitt glæsilegasta skallamark, sem lengi hefur sést. Eftir hornspyrnu lyfti Sigurbergur sér upp á réttu augnabliki og skallaði knöttinn undir þverslána og þaðan í netið. Sigurbergur skapaði glundroða í Víkingsvörninni er hann kom þangað, og lítið höfðu Víkingar að gera í hann, er þeir sóttu hann heim í Framvörnina, þar sem hann bar höfuð og herðar yfir alla.

Sigurbergur fékk oft það hlutverk að hafa gætur á hættulegasta sóknarmanni andstæðinganna.

Jóhannes Atlason sagði að Sigurbergur hefði verið svakalegur skallamaður. Mér fannst hann alltaf höfðinu hærri en ég í leikjum, en við læknisskoðun kom eitt sinn í ljós, að hann var sentimetra minni en ég!

Sigurbergur, sem skoraði 18 mörk, flest með skalla, fyrir Fram í knattspyrnu árunum 1966-1979, skoraði einnig eftirminnilegt mark í handknattleik í Laugardalshöllinni, þegar hann kastaði sér fram og skallaði knöttinn í netið í hraðaupphlaupi.

Sigurbergur var drengur góður og leit yfirleitt á björtu hliðarnar og þá var oftar en hitt stutt í spaugið. Það var ávallt mikil músík í kringum hann, en Sigurbergur átti eitt glæsilegasta plötusafn landsins. Uppáhaldshljómsveit hans var enska gítarsveitin The Shadows og Cliff Richard. Þar var átrúnaðargoðið Hank Marvin. Hann og Sigurbergur áttu það sameiginlegt að leika af fingrum fram, þegar þeir komust í ham. Marvin uppi á sviði með gítarinn, Sigurbergur inni á vellinum, með knöttinn!



Sigurbergur var mikill keppnismaður, öflugur varnarmaður bæði í handknattleik og knattspyrnu. Hann undirbjó sig vel fyrir hverja orrustu lagði alla krafta sína í verkefnin, ákveðinn að láta sitt ekki eftir liggja. Hann var þó ekki alls kostar tilbúinn í sína síðustu baráttu, alzheimerssjúkdóminn, sem svo margir standa berskjaldaðir frammi fyrir. Jafnvel sterkustu vígi falla í slíkum slag. Það er sárt að horfa á eftir góðum félaga á þennan hátt.

Það munaði eitt sinn ekki miklu að Sigurbergur missti af Evrópuleik gegn Partizan Bjelovar frá Júgóslavíu í Laugardalshöllinni. Hann hafði farið í ljós, til að fá á sig smá lit. Svo óheppilega vildi til, að Sigurbergur sofnaði, þannig að bakið á honum brann og varð eins og glóandi hnöttur. Sigurbergur gaf sig ekki; mætti í átökin, 16:16. Hann var sárþjáður eftir átökin og þegar hann klæddi sig úr keppnisbolnum, fylgdi skinnið af baki Sigurbergs, peysunni.

Sigurbergur sýndi einnig mikla keppnishörku þegar hann skoraði jöfnunarmark Þróttar Nes. gegn Selfossi í knattspyrnuleik 1979. Morgunblaðið sagði þannig frá: Sigurbergur lék með skurð á höfði og þurrkaði af og til blóðið af höfði sér með grisju, sem hann hélt á. Jöfnunarmarkinu, sem kom eftir hornspyrnu, var lýst þannig: Sigurbergur skallaði knöttinn yfir markmann Selfoss. Hafnaði blóðugur boltinn í netinu.

Það má segja að Sigurbergur hafi alltaf verið á ferð og flugi. Hann var í mörg ár afkastamesti þjálfari landsins og þjálfaði meira en eitt kapplið í einu í handknattleik og knattspyrnu, auk þess að vera leikfimiskennari í Verslunarskólanum og Árbæjarskólanum.

Stuttu eftir að Sigurbergur útskrifaðist sem íþróttakennari frá Laugarvatni 1968 var hann ráðinn, 20 ára, þjálfari unglingalandsliðsins í handknattleik. Unglingaliðið varð í þriðja sæti á NM í Noregi 1969, undir stjórn Sigurbergs.

Síðan átti hann eftir að verða landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik 1974-1975, aftur 1980-1983 og stjórna landsliðinu í 32 landsleikjum.

Þegar Sigurbergur þjálfaði kvennalandsliðið tímabilið 1980-1981, þjálfaði hann einnig kvennalið Fram (1. deild) og ÍR (2. deild). Þegar liðin mættust í úrslitaleik um Reykjavíkurmeistaratitilinn, ákvað hann að halda sig til hlés; sýna hlutleysi með því að horfa á liðin leika, frá áhorfendapöllum! Fram vann.

Sigurbergur er eini þjálfarinn sem hefur þjálfað bæði kvennalandslið Íslands í handknattleik og knattspyrnu. Hann þjálfaði og stjórnaði kvennaliðinu í knattspyrnu í 8 leikjum 1985-1986. Með liðinu léku þá fjórar stúlkur, sem höfðu leikið undir hans stjórn með handknattleikslandsliðinu.

Sigurbergur var á stöðugri ferð á milli íþróttahúsa og valla, til að kenna og þjálfa. Í Safamýrinni (Fram þjálfaði meistaraflokk karla og kvenna í handknattleik og yngri flokka í handknattleik og knattspyrnu. Hann var í mörg ár skólastjóri hins vinsæla Knattspyrnuskóla Fram), að Hlíðarenda (Valur þjálfaði bæði meistaraflokk kvenna í handknattleik og knattspyrnu, og yngri flokka í knattspyrnu), í Árbæ (leikfimiskennari) og Breiðholti (ÍR þjálfaði meistaraflokk kvenna í handknattleik), Í Hafnarfirði (Haukar þjálfaði meistaraflokk karla í handknattleik), hjá Ármanni þjálfaði meistaraflokk karla í knattspyrnu, hjá HK í Kópavogi, liðsstjóri leikmaður og þjálfari í handknattleik. Tvö sumur fór hann austur á firði, til að leika með og þjálfa knattspyrnulið, Leikni á Fáskrúðsfirði (1975) og Þrótt Neskaupstað (1979).

Sigurbergur fór til Freiburg í Þýskalandi sumarið 1982, þar sem hann tók þátt í þjálfaranámskeiði í handknattleik.

Sigurbergur lenti oft í kapphlaupi við tímann, er hann geystist um á milli íþróttahúsa og valla. Hann fékk oft hraðasektir, í Ártúnsbrekkunni, á leið í bæinn eða upp í Árbæ. Lét það ekkert á sig fá; hélt ró sinni og yfirvegun er hann mætti á æfingar. Ferðir á milli staða tóku lengri tíma þegar Sigurbergur var bíllaus og ferðaðist á milli staða með strætisvögnum.

Knattspyrnufélagið Fram kveður Sigurberg Sigsteinsson með hlýju. Eiginkonu hans og fjölskyldu eru sendar hugheilar samúðarkveðjur.


Sigmundur Ó. Steinarsson