BJÖRN SIGURÐSSON

Björn Sigurðsson fæddist á Ósi í Skagahreppi 26. apríl 1913. Hann andaðist á Héraðshælinu á Blönduósi 5. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Sigurður Jónsson, bóndi, og Sigurbjörg Jónsdóttir. Björn var næstelstur í hópi átta systkina. Af þeim eru þrjú á lífi. Þau eru Guðrún, sem dvelur á elliheimilinu á Sauðárkróki, og Lára og Ástvaldur, sem eru búsett í Reykjavík. Fjölskyldan fluttist frá Ósi að Mánaskál í Laxárdal um 1918. Sigurbjörg, móðir Björns, lést af barnsburði árið 1922. Eftir lát hennar annaðist Guðrún, móðir Sigurbjargar, barnauppeldið, en tvö yngstu börnin voru send annað. Eiginkona Björns var Elísabet S. Frímannsdóttur frá Jaðri á Skagaströnd, f. 16.6. 1913, d. 1.9. 1990. Börn þeirra eru fjögur og öll búsett á Skagaströnd. Þau eru: 1) Sigurður, f. 1942, trésmiður, kvæntist Margréti Haraldsdóttur, þau skildu. 2) Hallbjörn, f. 1945, rafvirkjameistari, eiginkona hans er Guðný Sigurðardóttir, bankastarfsmaður. 3) Guðmundur, f. 1949, gröfumaður. Eiginkona hans er Þórunn Bernódusdóttir leikskólakennari. 4) Kristín, verkakona, f. 1951. Eiginmaður hennar er Ágúst Jónsson, lagermaður. Alls eru barnabörn Björns þrettán og barnabarnabörnin fimm. Að auki áttu Björn og Elísabet eina fósturdóttur, Engilráð Guðmundsdóttur, f. 1936, sem búsett er í Hafnarfirði og starfar sem ritari á St. Jósefsspítala. Hún var gift Jóni Guðmundssyni. Þau skildu. Þau áttu tvo syni sem báðir eru látnir. Ungur fluttist Björn til Keflavíkur og vann um tíma í Skipasmíðastöðinni þar. Síðar settist hann á skólabekk og lærði til vélstjóra. Hann kom aftur norður að námi loknu og settist að á Skagaströnd. Hann starfaði fyrst sem vélstjóri í frystihúsinu og síðar á vélaverkstæði Síldarverksmiðju ríkisins á Skagaströnd í tæp þrjátíu ár. Hann vann lengst af við alls kyns járnsmíði og vélavörslu bæði til sjós og lands. Auk þeirra starfa sem fyrr er getið vann hann talsvert lengi hjá Karli Berndsen í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar ásamt lausamennsku ýmiss konar. Björn var mikill völundur, bæði á járn og tré og afar fær vélvirki. Áhugamál hans voru fyrst og fremst landgræðsla, skógrækt og fiskeldi. Í ágúst árið 1990 fékk Björn heilablæðingu sem olli því að hann var bundinn hjólastól upp frá því. Hann bjó á dvalarheimili aldraðra, Sæborg á Skagaströnd frá 1991 til 1996, að hann fékk hjartaáfall. Upp frá því bjó hann á Héraðshælinu á Blönduósi. Útför Björns verður gerð frá Hólaneskirkju á Skagaströnd í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Jarðsett verður í Höskuldsstaðakirkjugarði.