[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
5.-11. maí 2000

ALÞJÓÐLEG skákmót í Bandaríkjunum eru venjulega skipulögð með öðrum hætti en víðast hvar annars staðar. Þar eru að öllu jöfnu há verðlaun í boði, en hins vegar þurfa allir keppendur, atvinnumenn jafnt sem áhugamenn, að greiða sjálfir allan þann kostnað sem til fellur vegna þátttökunnar. Kostnaður áhugamanna við að taka þátt er töluvert hærri en atvinnumanna, en það sem vegur hinsvegar upp á móti því er að verðlaun í áhugamannaflokkum eru geysihá eða líkt því sem gerist á bestu atvinnumannaskákmótum í öðrum löndum! Eitt skýrasta dæmið um þetta er sigur dönsku skákkonunnar Christine Jørgenssen, en hún er gift bandaríska stórmeistaranum Nick DeFirmian, fyrir nokkrum árum í áhugamannaflokki opna mótsins í Fíladelfíu. Með sigrinum vann hún sér inn það væna summu að fullyrða má að fáir eða enginn atvinnuskákmaður á Norðurlöndum hafi þénað jafn mikið og hún á einu móti á því ári! Annað sterkt einkenni bandarískra móta er hversu fáum dögum er varið í að ljúka þeim. Oft lýkur 9 umferða opnu móti á 4-5 dögum. Sem betur fer fyrir margan skákmanninn voru fleiri dagar, eða alls sjö, nýttir til að ljúka opna mótinu í New York í ár. Einn af íslensku stórmeisturunum tók þar þátt og stóð sig með prýði.

Þröstur Þórhallsson fékk 6 vinninga af 9 mögulegum og lenti í 16.-40. sæti. Gengi Þrastar hefur verið skrykkjótt að undanförnu en vonandi nær þessi góða frammistaða hans að gefa honum byr undir báða vængi fyrir enn stærri sigra á komandi misserum. Stærsti vinningur sem honum tókst að innbyrða var gegn stórmeistaranum Alexander Shabalov, en kraftmikil taflmennska Þrastar í skákinni vakti mikla athygli á mótinu. Shabalov þessi er með u.þ.b. 2.600 skákstig og er Letti að uppruna, en eins og svo margir sterkir skákmenn frá fyrrum lýðveldum Sovétríkjanna fluttist hann búferlum til Bandaríkjanna skömmu eftir fall járntjaldsins og hefur síðan telft undir fána Bandaríkjanna.

Hvítt: Þröstur Þórhallsson

Svart: Alexander Shabalov

Sikileyjarvörn

1. e4 - c5 2. Rf3 - Rc6 3. d4 - cxd4 4. Rxd4 - e5 5. Rb5 - d6 6. c4 - Be7 7. Be2 -f5 8. exf5 - Bxf5 9. Be3

9. Bg5 er annar athyglisverður möguleiki

9. - Rf6 10. R1c3 - a6 11. Ra3 - O-O 12. O-O - Dd7?!

Svartur verður að tefla af nákvæmni og hugkvæmni til þess að fá mótspil fyrir veikingarnar á d5 og d6 punktunum. Jafnframt verður hann að geta vakið svartreita biskup sinn til lífsins með einum eða öðrum hætti. Helsta von svarts til þess að fá mótspil er að hefja árásir á kóngsvæng hvíts og nýta sér d4-reitinn þegar færi gefst. Textaleikurinn er ekki nógu kraftmikill til þess að færi svarts verði nýtt. Annaðhvort var betra að bíða með að ákveða hvar drottningin eigi að vera með að leika 12. - Hc8 eða að leika 12. - De8 og svara 13. Rd5 með 13. -Dg6 eins og í skák stórmeistaranna Christopher Lutz - Vladimir Kramnik 1996.

13. Rc2 - Hae8 14. Rd5 - Bd8

Venjulega vill svartur að hvítur fái peð á d5 þar sem þá hverfur sterki punktur hvíts á d5 og d6-peðið verður ekki lengur veikt. Vandamálið við14. - Rxd5 15. cxd5 er hinsvegar að þá á riddarinn á c6 ekki gott með að hörfa á góðan reit.

15. Rxf6+ gxf6?

Alvarleg taktísk yfirsjón sem hvítur færir sér í nyt til hins ýtrasta. Eftir 15. - Bxf6 stendur svartur traust, en passíft.

16. Bh6! - Hf7 17. Re3! -Bg6

Með þessu tapar svartur skiptamun. 17. - Rd4 hefði hugsanlega verið skárra en eftir 18. Rxf5 - Rxe2+ 19. Dxe2 - Dxf5 20. Had1 er frumkvæðið í höndum hvíts.

18. c5! - dxc5 19. Bc4 - Rd4 (Sjá stöðumynd í næsta dálki.)

Þó að hvítur vinni núna skiptamun verður hann að tefla af fítonskrafti til þess að viðhalda og auka frumkvæði sitt. Að öðrum kosti mun svartur standa ákjósanlega að vígi. Fyrsta skrefið í að takmarka mótspil svarts er að ráðast á peðamiðborðskeðju hans og því markmiði er náð með næsta firnasterka leik hvíts.

20. f4! - exf4 21. Bxf7+ - Kxf7 22. Bxf4 - Bc7 23. Bxc7 - Hxe3 24. Bg3 - Dd5 25. Hf2!

Afbragðs varnarleikur sem ver aðra reitaröðina ákaflega vel. Eftir þetta fjarar mótspil svarts hægt og sígandi út.

25. - De6 26. Kh1 - h5 27. Dd2 - Kg7 28. Haf1 - Hd3 29. Df4 -Rf5 30. Hf3 - Hd7 31. b3 - h4 32. Bf2 - b6 33. He1 - Dc6

Hvítt hefur bætt vígstöðu sína með markvissum hætti og nú er tími til að láta til skarar skríða.

34. Dg4!

Fellur ekki í gildruna 34. Bxh4 - Hd4!. Textaleikurinn þvingar fram fall annaðhvort h-peðs svarts eða riddarans á f5 og með því hrynur svarta staðan til grunna. Svartur ákvað að reyna á taktískt auga hvíts með því að reyna að halda riddaranum á f5. Hinsvegar varð honum ekki kápan úr því klæðinu að hvítur léti slíkt tækifæri framhjá sér fara.

34. - Hd5 35. Hxf5! - Hxf5 36. He7+ - og svartur gafst upp þar sem eftir 36. - Kf8 37. Dxg6 - Kxe7 38. Dxf5 er hvítur manni yfir.

Hannes á Kúbu

Eftir stórkostlegan sigur Hannesar Hlífars á Reykjavíkurskákmótinu hélt hann til Kúbu til að taka þátt í minningarmóti um Capablanca. Hannes fór illa af stað í mótinu og tapaði fyrstu þremur skákunum. Hann er hins vegar að ná sér á strik á nýjan leik og fór taplaus í gegnum 4.-8. umferð. Hann hefur því smám saman verið að vinna sig upp töfluna og er nú einungis hálfum vinningi á eftir sex skákmönnum sem eru í 5.-10. sæti. Í níundu umferð tefldi hann við skákmanninn í 14. og neðsta sæti, kúbverska stórmeistarann Reinaldo Vera (2.546).

Kasparov teflir í Sarajevo

Bosna 2000 skákmótið í Sarajevo hófst 16. maí og lýkur 29. maí. Þetta er eitt af sterkustu skákmótum ársins og sjálfur Gary Kasparov er meðal þátttakenda. Einni umferð er lokið og urðu úrslit þessi:

Kiril Georgiev - Sergei Movsesian 1-0

Gary Kasparov - Etienne Bacrot 1-0

Alexander Morozevich - Mikh. Gurevich 1-0

Alexei Shirov - Michael Adams ½-½

Ivan Sokolov - Evgeny Bareev ½-½

Nigel D. Short - Veselin Topalov 0-1

Jóhann sigrar á mánaðarmótum TG

Úrslit mánaðarmóta TG fóru fram 15. maí (undanúrslit og úrslit). Þar sem Björn Jónsson var efstur á stigum eftir forkeppnina fékk hann að velja hvorn þeirra (Jóhann eða Kjartan), sem lentu í 3. og 4. sæti, hann fengi sem andstæðing. Björn valdi Kjartan og þess vegna mættust í undanúrslitum Björn Jónsson - Kjartan Thor Wiktfeld og Leifur I. Vilmundarson - Jóhann H. Ragnarsson. Tefldar voru 5 skákir og Björn og Leifur höfðu hvítt í oddaskák. Um þriðja sætið voru einnig tefldar 5 skákir en 7 um efsta sætið. Úrslit urðu eftirfarandi:

Undanúrslit:

Björn - Kjartan 3-0

Leifur - Jóhann 1-3

3. sæti:

Leifur - Kjartan 3½-½

1. sæti:

Björn - Jóhann 1-4

Frá Skákfélagi Akureyrar

Vetrarstarfi Skákfélags Akureyrar er að ljúka, og úrslit í þrem síðustu mótum félagsins hafa verið þessi:

Coca-Cola-hraðskákmótið. 1. Ólafur Kristjánsson, 12 v. af 14, 2. Gylfi Þórhallsson, 10 v. 3.-4. Smári Ólafsson og Jón Björgvinsson 8½ v.

Fischer-klukkumót 3+2: 1. Halldór Brynjar Halldórsson, 14½ v. af 18, 2. Þór Valtýsson, 13 v. 3. Stefán Bergsson, 12 v.

15 mínútna mót: 1. Ólafur Kristjánsson, 6 v. af 7, 2. Guðmundur Gíslason, 6 v., lægri á stigum, 3. Jónas Jónasson, 5 v. 4.-5. Þór Valtýsson og Sigurður Eiríksson, 4½ v. 6.-8. Haraldur Baldursson, Halldór B. Halldórsson og Stefán Bergsson, 4 v.

Uppskeruhátíð félagsins var haldin 14. maí þar sem veitt voru verðlaun fyrir tímabilið frá áramótum.

Baldur Möller sigrar á atkvöldi

Baldur Möller sigraði á maí-atkvöldi Taflfélagsins Hellis, fékk 5½ vinning í 6 skákum. Tefldar voru 3 hraðskákir og þrjár atskákir. Röð efstu manna varð þessi:

Baldur Möller, 5½ v.

2.-4.

Vigfús Ó. Vigfússon, Finnur Kr. Finnsson, Sigurjón Kjærnested, 4 v.

5. Örn Ragnarsson, 3½ v.

6.-9. Benedikt Örn Bjarnason, Grímur Daníelsson, Halldór Heiðar Hallsson, Þórður Ingólfsson, 3 v.

o.s.frv.

Aðalfundur Grandrokk

Aðalfundur Skákfélags Grandrokk var haldinn laugardaginn 13. maí. Hrafn Jökulsson, forseti félagsins, fór yfir síðasta starfsár og rakti helstu stórræði sem Grandrokk hefur staðið í. Hæst ber sigur liða félagsins í 3. og 4. deild, og er stefnan að vinna sæti í 1. deild næsta vetur en þá sendir félagið þrjú lið til keppni í jafnmörgum deildum. Nokkrir sterkir skákmenn hafa gengið til liðs við félagið upp á síðkastið, m.a. Elvar Guðmundsson, Einar K. Einarsson og Ólafur B. Þórsson. Þá hefur Grandrokk efnt til fjölda sterkra hraðskákmóta og hafa hátt í þrjátíu stórmeistarar frá mörgum löndum tekið þátt í þeim. Fyrsta meistaramót Grandrokk í atskák var haldið á síðasta ári og sigraði Dan Hansson með glæsibrag. Dan, sem var drifkraftur við stofnun félagsins fyrir tveimur árum, lést 20. ágúst í fyrra, aðeins 47 ára og var hans minnst með lófataki af fundarmönnum. Skákfélag Grandrokk hefur ákveðið, í samvinnu við veitingastaðinn Grandrokk, að efna til alþjóðlegs minningarmóts um Dan, og verður það að öllum líkindum haldið í haust.

Í stjórn Skákfélags Grandrokk voru kjörnir Hrafn Jökulsson forseti, Róbert Harðarson varaforseti, Kjartan Guðmundsson ritari, Hrannar Jónsson gjaldkeri, Birgir Berndsen, Hjálmar Blöndal og Karl Hjaltested.

Skákmót á næstunni

19.5. SÍ. Íslandsmót grunnskólasveita.

20.5. SÍ. Aðalfundur Skáksambandsins.

21.5. SÍ og Síminn-Internet. Mátnetið.

26.5. Skákþing Norðlendinga.

26.5. Skákskólinn. Meistaramót.

Daði Örn Jónsson Helgi Áss Grétarsson