GARÐAR Jökulsson listmálari opnar sýningu á verkum sínum í Menningarmiðstöðinni Kvennó í Grindavík, laugardaginn 20. maí. Garðar er fæddur í Reykjavík árið 1935 og hefur fengist við myndlist frá fimmtugsaldri, en Garðar er sjálfmenntaður í listinni.

Í fréttatilkynningu segir m.a.: "Listamaðurinn bindur sig lítið við stíla og stefnur í málverkinu, utan hvað í flestum verka hans kemur fram einlæg dýrkun á náttúru landsins - litum og birtu. Listamaðurinn notar öll tiltæk efni og blandar þeim saman til að ná fram sínum sérstaka stíl, oft á tíðum á mjög óhefðbundinn hátt.

Garðar Jökulsson hefur haldið 23 einkasýningar og tekið þátt í samsýningum, auk þess sem hann hefur haldið fjölda vinnustaðasýninga. Enda trúir listamaðurinn á að listina skuli bera til fólksins og býður því sín verk föl á viðráðanlegu verði."

Sýningin í Kvennó í Grindavík er hans önnur sýning utan Reykjavíkur, en Garðar var með sýningu í Eden í Hveragerði fyrr á árinu. Sýningin stendur til 4. júní.