VARNARLIÐSMENN halda árlega vorhátíð sína með ,,karnival"- sniði á Keflavíkurflugvelli laugardaginn 20. maí nk. og er öllum landsmönnum boðið að taka þátt í skemmtuninni.

VARNARLIÐSMENN halda árlega vorhátíð sína með ,,karnival"- sniði á Keflavíkurflugvelli laugardaginn 20. maí nk. og er öllum landsmönnum boðið að taka þátt í skemmtuninni.

Hátíðin fer fram í stóra flugskýlinu næst vatnstanki vallarins og gefst gestum kostur á að njóta þar fjölbreyttrar skemmtunar fyrir alla fjölskylduna frá klukkan ellefu árdegis til fjögur síðdegis. Lifandi tónlist, þrautir, leikir og hressing af ýmsu tagi verður á boðstólum og flugvélar og annar búnaður Varnarliðsins verður til sýnis. Björgunarþyrla sýnir björgun nauðstaddra klukkan eitt og fallhlífarstökkvarar sýna listir sínar ef veður leyfir. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Umferð er um Grænáshlið ofan Njarðvíkur. Gestir eru vinsamlega beðnir um að hafa ekki með sér hunda.