Á FUNDI með forsætisráðherra og fjármálaráðherra sömdu þeir Benedikt Davíðsson, formaður LEB, og Ólafur Ólafsson, formaður FEB í Reykjavík, um það að lög ríkisstjórnarinnar um endurgreiðslu tekjutengingar við laun maka fjögur ár aftur í tímann skuli ekki gilda til endurgreiðslu á tekjutengingu við laun maka ellilífeyrisþega. Mér finnst að embættismenn geti varla komist neðar í siðferðilegri fátækt.
Aðstöðumunur milli öryrkja og ellilífeyrisþega mun sennilega felast í því að öryrkjar eru úr öllum stéttum og hafa því bakstuðning frá efri stéttum þjóðfélagsins, en ellilífeyrisþegar sem kæmu til með að fá greitt aftur í tímann úr lágtekjuhópnum með lágan lífeyrissjóð. Sem sagt það fólk sem ríkisvaldið hefur í gegn um tíðina litið á sem ruslhóp þjóðfélagsins.
Vegna þess að bakstuðningur þessa hóps er nánast enginn í þjóðfélaginu fær hann enga umfjöllun í fjölmiðlum. Það er líka eftirtektarvert að nú hefur FEB ekki látið neitt frá sér heyra um málið og sjónvarpsstöðvarnar sem voru öll kvöld fullar af viðtölum og yfirlýsingum um öryrkjamálið steinþegja um þessa einræðislegu valdbeitingu. Þetta sýnir vel hvað hugarfarið í þjóðfélaginu er orðið rotið.
Mér finnst það háalvarlegt mál að ríkisvaldið skuli setja lög til að breyta lögum sem það er nýbúið að setja, í þeim eina tilgangi að setja ákveðinn hóp ellilífeyrisþega skör lægra í mannréttindum en öryrkja með því að greiða ekki það sem ríkið tók af þeim án heimildar samkvæmt úrskurði Hæstaréttar og nýjum lögum ríkisstjórnar. Slík hentistefna á beitingu löggjafarvaldsins getur varla verið heiðarleg.
Ég veit að það verður reynt að þegja þetta mál í hel en vona að það verði fleiri en ég sem fordæma svona vinnubrögð á Alþingi.
Ríkisstjórnin hefur kvartað undan því að það færu miklir peningar í það að greiða út fjögur ár aftur í tímann. En á það ekki að vera skylda að ríkið skili því sem það hefur án heimildar af fólki tekið?
Heildargreiðslur til öryrkja voru 1.300 milljónir. Þar af fékk ríkið í skatta 420 milljónir svo útborgun varð ekki nema 880 milljónir. Þessir peningar fara svo strax út í viðskiptalíf þjóðfélagsins og þá fær ríkið virðisaukaskatt og önnur gjöld upp á um 220 milljónir, svo endanleg greiðsla ríkisins verður ekki nema um 660 milljónir. Varla kollsteypuupphæð fyrir eina af 10 ríkustu þjóðum heims.
Forusta LEB og FEB getur varla verið stolt af hagsmunagæslu sinni fyrir eldri borgara og ég dreg það í efa að hún sé starfi sínu vaxin.
GUÐVARÐUR JÓNSSON,
Hamrabergi 5,111 Rvk.
Frá Guðvarði Jónssyni: