Pétur Guðmundsson
Pétur Guðmundsson
Pétur Guðmundsson fæddist í Reykjavík 30. október 1958. Hann lauk stúdentsprófi í Bandaríkjunum 1997. Hann starfaði við íþróttamál sem ráðgjafi fyrir unglinga sem hyggja á framhaldsnám sl. sjö ár í Bandaríkjunum þar sem hann bjó í Seattle í Washington. Nú er Pétur þjálfari í körfuknattleik hjá Ungmennafélaginu Fjölni í Grafarvogi þar sem hann þjálfar börn og unglinga.
Pétur Guðmundsson fæddist í Reykjavík 30. október 1958. Hann lauk stúdentsprófi í Bandaríkjunum 1997. Hann starfaði við íþróttamál sem ráðgjafi fyrir unglinga sem hyggja á framhaldsnám sl. sjö ár í Bandaríkjunum þar sem hann bjó í Seattle í Washington. Nú er Pétur þjálfari í körfuknattleik hjá Ungmennafélaginu Fjölni í Grafarvogi þar sem hann þjálfar börn og unglinga.

Í DAG kl. 17 hefst úrslitakeppni áttunda flokks drengja í körfuknattleik. Keppnin stendur í tvo daga og leikirnir fara fram í Íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi. Pétur Guðmundsson, þjálfari Fjölnis, hefur umsjón með mótinu. "Þetta er fjórða fjölliðamótið á vetrinum í Íslandsmóti í körfuknattleik," sagði Pétur.

-Hverjir eru taldir sigurstranglegastir nú?

"Fjölnisstrákarnir hafa unnið tvö af þremur þessum mótum hingað til og koma sterkir til keppni. Fyrirfram er búist við að aðalkeppnin verði á milli þeirra og KR en nýliðarnir í A-riðli eru KFA/Akranes, það má ekki vanmeta þá, þeir hafa unnið alla sína leiki í vetur en þeir byrjuðu í D-riðli."

-Er þetta mikið mót sem fram fer í dag?

"Helmingur mótsins fer fram í dag og á morgun hefst það klukkan níu og lýkur með leik Fjölnis og Þórs klukkan 13. Við ætlum að vera með þá tilbreytni í byrjun þessa móts að klukkan 15 verður svolítil upphitun í samkomusal Húsaskóla þar sem verða skemmtiatriði á vegum krakka úr Húsaskóla og Rimaskóla. Tveir þátttakendur í söngvakeppni Samtaka félagsmiðstöðva syngja og klappstýrur 8. flokks Fjölnis úr Rimaskóla verða með dansatriði. Einnig verða veitt verðlaun, þ.e. 8. flokkur Fjölnis tók þátt í Íslandsmóti 9. flokks í II deild og varð þar Íslandsmeistari og fær verðlaunapeningana sína afhenta þar."

-Er algengt að klappstýrur komi fram á íslenskum mótum?

"Ekki enn, en þetta er þó að verða algengara. Þessar klappstýrur sem koma fram í dag hafa æft í vetur og eru allar úr 8. bekk í Rimaskóla. Þetta er eina klappliðið í Grafarvoginum en ég veit að það eru komnar klappstýrur á Akranesi, í Keflavík og Njarðvík og hafa þær mætt á leiki og hvatt sína menn og áhorfendur."

-Nú hefurðu starfað við íþróttamál í Bandaríkjunum, klappstýrur leika stór hlutverk þar ef marka má bandarískar kvikmyndir.

"Já, þær eru mjög stór hluti af skemmtuninni sem íþróttaleikir eru í Bandaríkjunum, þar er farið með íþróttaleiki miklu meira sem skemmtun en hér á landi."

-Eru til klappstrákar þar?

"Já, við getum kallað þá klappkónga. Margir fimleikastrákar henta vel í þessi hlutverk, þeir kunna að vera með alls hlaup, hopp og köst þannig að það myndast við það skemmtileg "stemming", en um það snúast þessir leikir aðallega. Klappkóngar og klappstýrur í Bandaríkjunum koma fram í leikhléum og hálfleik svo það er aldrei dauður tími á íþróttaviðburðum þar. Þetta er aðalmunurinn á íslenskum íþróttaviðburðum og þeim bandarísku, á þeim síðarnefndu er fyllt rækilega inn í alla "dauða punkta" leiksins."

-Hvernig er staðan í körfuknattleik unglinga á Íslandi miðað við í Bandaríkjunum?

"Mér finnst við standa nokkuð vel og hér er gífurlegur áhugi. Það er geysileg þátttaka í körfuknattleik í yngri aldurshópum, einkum í ákveðnum hverfum eins og Grafarvogi þar sem mikið er um börn og unglinga."

-Hvernig er búið að þessari íþrótt hér?

"Almennt er vel búið að íþróttinni en aðalatriðið sem mér finnst vera ábótavant er að í flestum íþróttahúsum hafa verið lagðir dúkar frekar en parketgólf. Það hefur sýnt sig að slíkt veldur mun fleiri álagsmeiðslum, sérstaklega er þetta erfitt fyrir krakka eins og þá sem ég er að þjálfa í áttunda bekk, þetta eru krakkar sem eru að stækka mjög hratt og þessi hörðu gólf valda miklum verkjum, einkum í hnjám og öðrum liðamótum, og geta sumir af þeim sökum illa æft. Margir heimilislæknar hafa mælt með því að krakkar hætti að æfa þar til þeir hafa tekið út vöxt, en það er út í hött, þá missa þeir af lestinni."

-Hverjir keppa á mótinu í dag og á morgun?

"Það eru Fjölnir, KR, KFA/Akranes, Snæfell úr Stykkishólmi og Þór frá Akureyri. Það spila þarna allir við alla. Í þessum mótum er ekki um útsláttarkeppni að ræða heldur er spilað í fjórum riðlum, A, B, C og D, og lið vinna sig upp. Ef þau standa sig ekki falla þau aftur á móti niður. Þess má geta að nú er loksins verið að spila Reykjavíkurmót yngri flokkanna, en venjulega er þetta mót sem er spilað að hausti og eru fyrstu leikir vetrarins. Það hefur viljað brenna við að þessi mót hafa verið látin sitja á hakanum og þeim svo lokið af í fljótheitum á vorin. Að þessu sinni hefur verið lögð talsverð vinna í mótaskipulagningu af körfuknattleiksráði Reykjavíkur, sem sér alfarið um þetta, og Reykjavíkurmótið hefur nú verið opnað fyrir lið utan Reykjavíkur. Það þýðir að nú eru skráð sex lið í hverjum aldursflokki. Tveir yngri flokkar eru hjá stúlkum og fimm hjá strákum. Mótinu lýkur með því að öll lið spila um sæti og jafnframt því fara fram troðslukeppnir, þriggja stiga skotkeppnir og Stingerkeppnir í yngstu flokkunum."