Eiður Guðnason
Eiður Guðnason
Utanríkisráðherra hefur ákveðið að Eiður Guðnason sendiherra fari til starfa í Winnipeg í Kanada sem aðalræðismaður Íslands þar í borg.

Utanríkisráðherra hefur ákveðið að Eiður Guðnason sendiherra fari til starfa í Winnipeg í Kanada sem aðalræðismaður Íslands þar í borg.

Verkefni hans verða einkum að efla og treysta menningarsamskiptin við Vestur-Íslendinga og auka viðskiptatengsl Íslands við mið- og vesturfylkin í Kanada, Manitoba, Saskatchewan, Alberta og Bresku Kolumbíu. Eiður mun fara til starfa í Winnipeg í byrjun ágúst.