[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Það eru orðin átta ár síðan íslenskir krakkar fengu fyrst að kynnast Íþróttaálfinum og íbúunum í Latabæ en fyrsta bók Magnúsar Scheving um fólkið í Latabæ kom út árið 1995.

Það eru orðin átta ár síðan íslenskir krakkar fengu fyrst að kynnast Íþróttaálfinum og íbúunum í Latabæ en fyrsta bók Magnúsar Scheving um fólkið í Latabæ kom út árið 1995. Leikritið "Áfram Latibær" sem var byggt á bókinni var frumsýnt ári síðar og framhaldsleikritið "Glanni glæpur í Latabæ" nokkrum árum eftir það.

Magnús Scheving, sem sjálfur leikur Íþróttaálfinn, hefur sagt frá því að hann hafi skrifað fyrstu bókina um Latabæ eftir að hann ferðaðist um landið og hélt fyrirlestra um heilbrigt líferni í skólum. Hann segir að margir krakkar hafi þá spurt hann að því hvernig þeir gætu hætt að borða sælgæti og byrjað að hreyfa sig og að hann hafi verið að reyna að svara því þegar hann skrifaði fyrstu bókina um Latabæ.

Magnús og félagar hans hafa síðan reynt að svara þessum spurningum með ýmsum hætti m.a. með hreyfispilinu Latador og Orkubókinni.

Svo stefna þeir líka að því að kynna Latabæ fyrir bandarískum börnum en í desember hefjast tökur á sjónvarpsþáttum um Latabæ sem verða sýndir í sjónvarpi í Bandaríkjunum.