Öflugur bátur: Sólplast sjósetti nýjan Grunnvíking. Á myndinni til hægri er Gunnar Hauksson útgerðarmaður.
Öflugur bátur: Sólplast sjósetti nýjan Grunnvíking. Á myndinni til hægri er Gunnar Hauksson útgerðarmaður. — Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Keflavík | Plastbátasmiðjan Sólplast ehf. í Njarðvík sjósetti nýjan bát í smábátahöfninni í Grófinni í Keflavík í gær. Er þetta tíu tonna bátur, Grunnvíkingur HF 163, og er eigandi hans og skipstjóri Gunnar Hauksson. Báturinn er af gerðinni Nökkvi 1000.

Keflavík | Plastbátasmiðjan Sólplast ehf. í Njarðvík sjósetti nýjan bát í smábátahöfninni í Grófinni í Keflavík í gær. Er þetta tíu tonna bátur, Grunnvíkingur HF 163, og er eigandi hans og skipstjóri Gunnar Hauksson.

Báturinn er af gerðinni Nökkvi 1000. Í honum er 430 hestafla Cummings-vél og var ganghraði í reynslusiglingu 25 sjómílur. Um borð eru nýjustu siglinga- og fiskileitartæki, öll frá Elcan.

Nýi báturinn er sá þriðji sem ber þetta nafn. Hann leysir af hólmi eldri plastbát. Hann fer fljótlega á grásleppuveiðar og handfæri, að sögn skipstjórans.

Grunnvíkingur er fjórða nýsmíði Sólplasts ehf., að sögn Sigurborgar Andrésdóttur framkvæmdastjóra, og hafa margir sýnt áhuga á að kaupa báta af þessari gerð.