Ánægjan er þeim mun meiri

Kormákur Geirharðsson og Gunni Hilmars á nýja klæðskeraverkstæðinu.
Kormákur Geirharðsson og Gunni Hilmars á nýja klæðskeraverkstæðinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar tók þátt í Hönnunarmars í ár og kynnti til sögunnar nýtt tweed, eða vaðmál, sem nú er framleitt úr íslenskri ull eftir 50 ára hlé. En fyrirtækið er með ýmislegt annað á prjónunum, eins og ViðskiptaMogginn fékk að vita.

Herraföt úr tweed-efni, sem ofið er úr íslenskri ull, hafa ekki verið í boði hér á Íslandi um áratugaskeið, en úr því hefur Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar nú bætt. Eftir áralanga þróun og undirbúning komu fyrstu fötin úr þessu efni í hillur verslunarinnar um síðustu áramót og nutu samstundis mikilla vinsælda. Þar var um að ræða jakka, buxur, vesti og höfuðföt. Von er á nýrri sendingu innan tíðar. Skjöldur Sigurjónsson, annar eigenda verslunarinnar, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að nú sé svo komið að fötin eru nánast uppseld.

Herrafataverzlunin var stofnuð í Reykjavík fyrir jólin 1996 af þeim Skildi og félaga hans, Kormáki Geirharðssyni, og seldi upphaflega notuð föt. Tilgangurinn með stofnun...