Vil helst ekki kalla þetta bílapartasölu

Netpartar rífa 2-300 bíla á ári, en 1-2 daga tekur …
Netpartar rífa 2-300 bíla á ári, en 1-2 daga tekur að vinna hvern bíl niður Morgunblaðið/Arnþór Birkisson

Aðalheiður Jacobsen, eigandi og framkvæmdastjóri Netparta kom víða við í íslensku atvinnulífi, áður en bílapartarnir urðu hennar ær og kýr fyrir um 10 árum. Nýtt upplýsingakerfi mun hefja starfsemina upp á annað plan.

Þegar bílapartasölur og bifvélaverkstæði koma til umræðu sjá menn sjaldnast fyrst fyrir sér konur þar í aðalhlutverkum. Karlar í bláum samfestingum með smurolíubletti á víð og dreif koma hjá vel flestum mun fyrr upp í hugann. Blaðamaður ViðskiptaMoggans biður Aðalheiði Jacobsen að rekja stuttlega aðdragandann að því að hún stofnaði bílapartasöluna Netparta.

„Ég og fyrrverandi eiginmaður minn bjuggum í Hafnarfirði á sínum tíma og áttum þá fyrirtæki sem hét Varahlutaþjónustan. Árið 2000 fluttum við svo upp í sveit og hófum rekstur ferðaþjónustu. Við sinntum henni næstu ár, fram að bankahruni árið 2008. Á þeim tímapunkti, þegar allt hrundi, tók við óvissa, og maður þurfti að finna sér...