Endurskoða þarf ranga raforkuspá

Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, varar við frekari fjárfestingu í …
Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, varar við frekari fjárfestingu í orkuinnviðum að svo stöddu. Viðsjár kalli á frekari umræðu um stöðu mála. Ljósmynd/Atli Már Hafsteinsson

Eftir fjögurra áratuga starf í orkugeiranum hefur Bjarni Bjarnason komið víða við og kynnst honum frá mörgum hliðum. Fyrir rétt tæpum tíu árum tókst hann á við þá miklu áskorun að stýra endurreisn Orkuveitu Reykjavíkur, sem stóð mikið löskuð eftir ágjöf síðustu kreppu. Nú gefur aftur á bátinn svo víða hriktir í stoðum íslensks orkuiðnaðar. Spurningar vakna um orkuþörf landsins til framtíðar og sitt sýnist hverjum.

Í kjölfar umræðna um orkuskipti í innlendum samgöngum hefur Bjarni sagt að ekki sé þörf á að virkja né styrkja flutningskerfi rafmagns til að standa undir þeirri þróun. Blaðamaður spyr: Hvers vegna stígur þú fram með jafn afgerandi hætti?

„Ég er búinn að vera mjög lengi í orkugeiranum, um 40 ár, og verið allan hringinn í kringum borðið, bæði í vinnslu og rannsóknum, sem jarðfræðingur og í stóriðjunni. Ég stýrði Járnblendifélaginu á Grundartanga í nokkur ár, sem stóriðjukaupandi á rafmagni; var mörg ár hjá Landsvirkjun og er...