Konan í gröfinni

Ingvild Mjelde og Elise Kjørsvik sinna því eljuverki að leita …
Ingvild Mjelde og Elise Kjørsvik sinna því eljuverki að leita að örsmáum perlum í gröfinni. Perlurnar eru nú orðnar 339 ásamt fleiri gripum. Ljósmynd/Eystein Østmoe/Vísindasafn NTNU

Eystein Østmoe, fornleifafræðingi við Norska vísinda- og tækniháskólann í Þrándheimi (NTNU), og hans fólki var tekið að leiðast þófið nokkuð við minjaleit sína á Hestnes í Þrændalögum eftir vikur af ákaflega hversdagslegum fundum, svo sem stólpaförum eftir byggingar og eldstæðum.

Forvitnin var því eðlilega vakin nú fyrr í mánuðinum þegar við uppgröft blasti við ferhyrndur reitur með áberandi dökkum og fituríkum jarðvegi, skýrum teiknum um að þar lægi manneskja grafin.

Þetta kom hópnum frá NTNU nokkuð spánskt fyrir sjónir þar sem Hestnes er ekki þekktur fundarstaður kumla. Ekki dró það úr undruninni þegar tekið var að grafa og í ljós komu yfir eitt þúsund ára gamlar leifar af grafreit eða grafhýsi úr timbri, því sem norskir fornleifafræðingar nefna á sínu fagmáli kammergrav.

Frá árabilinu 850 – 950

Slíkar grafir eru mjög sjaldgæfar í þessum hluta Noregs, útskýrir Raymond Sauvage, fornleifafræðingur og stjórnandi rannsóknarinnar á Hestnes,...