Varð alveg ofboðslega „óléttur“

Aðalbjörn Tryggvason, Addi í Sólstöfum, hefur gjörbreytt um lífstíl á …
Aðalbjörn Tryggvason, Addi í Sólstöfum, hefur gjörbreytt um lífstíl á síðustu sjö árum. Hætti að drekka 2013 og er búinn að vera reyklaus í meira en ár. „Mér finnst gott að reykja sígarettur en það er bara orðið svo mikið vesen, sérstaklega þegar maður ferðast mikið í flugi,“ segir hann. Morgunblaðið/Eggert

Margt hefur gengið á hjá Aðalbirni Tryggvasyni, Adda í Sólstöfum, síðustu árin; uppgjör við alkóhólisma, sambandsslit og vinslit sem hér um bil riðu hljómsveitinni að fullu. En einnig gleðilegri hlutir, eins og velgengni Sólstafa erlendis og fæðing hans fyrsta barns. Á nýju plötunni, Endless Twilight of Codependent Love, er ein af meinsemdum mannlífsins, meðvirknin, í forgrunni.

Langt er liðið á kvöldið þegar ég tek hús á Adda í Sólstöfum í miðbæ Reykjavíkur. Sannarlega óvanalegur tími fyrir viðtal af þessu tagi en heilmikið rokk í því, þegar maður hugsar út í það. Það er þó ekki rokk sem tafði Adda, heldur lenti hann í Ófærð. Nei, ó-ið er ekki ofvaxið, við erum nefnilega að tala um þriðju seríu sjónvarpsþáttanna vinsælu úr smiðju Baltasars Kormáks og félaga. Addi vinnur um þessar mundir sem hljóðmaður á settinu á löngum vöktum, myrkranna á milli og rúmlega það, og fyrir vikið gat hann ekki tekið á móti mér fyrr en klukkan 22.

Okkar maður er á...