Sjaldséð bryntröll mættust skammt frá Köln

Þýskir hermenn taka stutt hlé frá átökum innan landamæra Sovétríkjanna. …
Þýskir hermenn taka stutt hlé frá átökum innan landamæra Sovétríkjanna. Í bakgrunni sést Nashyrningur. Takið eftir hve stórt fallstykkið er. Myndin er tekin árið 1944. Ljósmynd/Bundesarchiv

Snemma í marsmánuði 1945 sótti H-undirfylki 33. bryndrekahersveitar Bandaríkjahers af miklum móð inn í vesturhluta Þýskalands. Varnir heimamanna réðu illa við þessa stórsókn en þrátt fyrir bága stöðu var þýski herinn fjarri þeirri hugsun að leggja niður vopn sín. Þennan dag mættust á vígvelli við bæinn Niehl, skammt frá Köln, einhver sjaldséðustu bryntröll stríðsins; Nashyrningurinn svonefndi og Pershing-skriðdreki Bandaríkjamanna.

Sunnu­dag­inn 22. júní 1941 réðust her­sveit­ir Þriðja rík­is­ins inn í Sov­ét­rík­in og kallaðist sú aðgerð Barbarossa, eða Rauðskegg­ur. Er þetta umfangsmesta hernaðaraðgerð sögunnar. Fyrstu kynni Þjóðverja af rússneska bryndrekanum T-34 var þess eðlis að þýska herstjórnin sá ástæðu til að leggja áherslu á framleiðslu á sérstökum bryndrekabönum, eða Panzerjäger á þýsku, og skyldu tæki þessi vera búin einhverjum öflugustu fallbyssum styrjaldarinnar. Eitt þessara ofurvopna var Nashyrningurinn, eða Nashorn á...