Fáheyrt tjón í miklu ofsaveðri

Netaflækja í skrúfu Heimaeyjar varð þess valdandi að báturinn hraktist …
Netaflækja í skrúfu Heimaeyjar varð þess valdandi að báturinn hraktist stjórnlaus upp í fjöru. Myndin birtist á forsíðu Morgunblaðsins 18. febrúar 1981. MorgunblaðiðRAX

Fjörutíu ár eru í dag liðin frá því Engihjallaveðrið svonefnda, einn mesti stormhvellur sem sögur fara af, gekk yfir landið. Djúp og kraftmikil lægð barst að landinu síðdegis 16. febrúar 1981 svo vindstyrkur fór í áður óþekktar stærðir. Illviðrið olli fáheyrðu tjóni á þéttbýlum svæðum suðvestanlands, þök fuku af húsum í heilu lagi, rúður brotnuðu og hundruð ökutækja skemmdust. Víða urðu rafmagnstruflanir, sums staðar langvarandi rafmagnsleysi, og nær öll uppskera garðyrkjubænda í Biskupstungum eyðilagðist. Þá létust tveir ungir skipverjar á Heimaey VE 1 þegar þá tók út er bátinn hrakti stjórnlaust undan ofsaveðrinu upp í fjöru, skammt vestan við Hólsárós á Þykkvabæjarfjöru.

„Fárviðri gekk yfir landið í gærkvöldi og nótt og olli miklum skemmdum á mannvirkjum og farartækjum, en ekki var kunnugt um alvarleg slys á fólki í landi. Mbl hafði samband við fréttaritara og lögreglu um allt land og víðast hvar fengust fréttir af því að járnplötur og jafnvel heilu...