Flugkappinn sem Foringinn dásamaði

Adolf Hitler og Hanna Reitsch við orðuveitingaathöfn í mars 1941. …
Adolf Hitler og Hanna Reitsch við orðuveitingaathöfn í mars 1941. Var Hanna þá sæmd járnkrossinum af annarri gráðu fyrir flugafrek sín. Í bakgrunni má m.a. sjá Hermann Göring ríkismarskálk. Ljósmynd/Bundesarchiv

„Ég á erfitt með að lýsa þessari upplifun. Þetta var heillandi. Það var sem maður sæti á fallbyssukúlu á fleygiferð um himininn. Eins konar hraðavíma. Það var alls ekki erfitt að fljúga henni en upplifunin var yfirþyrmandi. Við enda flugbrautar var hraðinn yfir 800 km/klst. og jókst í sífellu í nær lóðréttu risi. Eftir um eina og hálfa mínútu var flughæð 30 þúsund fet.“ Svona lýsir einn helsti tilraunaflugmaður Þriðja ríkisins upplifun sinni af undravopninu Messerschmitt Me 163 „Komet“, einu eld­flauga­flug­vél heims til að kom­ast í almenna herþjón­ustu. Flugkappinn var Hanna Reitsch og hefur henni verið lýst sem einum helsta brautryðjenda síns tíma og sögð hafa verið uppáhaldsflugmaður Foringjans. Er hún jafnframt eina konan í seinna stríði til að hljóta bæði járnkross af fyrstu gráðu og heiðursmerki flugmanna Luftwaffe í gylltu með demöntum.

Hanna Reitsch var fædd 29. mars árið 1912 í borginni...