Ég heiti Ósímandjas

Biden stuðaði marga þegar hann leit aftur og aftur á …
Biden stuðaði marga þegar hann leit aftur og aftur á úrið sitt á meðan verið var að taka við líkamsleifum fallinna hermanna á herflugvellinum í Dover. Átakanlegt hefur verið að fylgjast með frammistöðu Bidens á blaðamannafundum. AFP

Ég held það hafi verið á gelgjuskeiðinu að það hvarflaði fyrst að mér að það gæti verið gaman ef ég léti að mér kveða í pólitík. Fyrir bólugrafinn slána með æðarnar stútfullar af testósteróni var það ómótstæðileg tilhugsun að hafa einhver völd og fá að rölta endrum og sinnum upp í ræðustól á Alþingi – sperrtur og rogginn í glerfínum jakkafötum – og láta þar gamminn geysa svo að skopteiknararnir hefðu einhvern efnivið til að moða úr.

Þessir draumórar hurfu eins og dögg fyrir sólu þegar ég var í kringum tvítugt og rak augun í blaðagrein um nýja rannsókn sem sýndi að af öllum starfsstéttum væru það stjórnmálamenn sem fengju minnstan svefn. Ég þarf mínar 8-9 klukkustundir í fletinu og makindalegan morgunverð, svo fyrr en varði höfðu minn innri nautnaseggur og minn innri letingi tekið höndum saman og kálað mínum innri ungpólitíkus.

En ef það skyldi samt einhvern tíma gerast að neyðarkall berst frá áhugaverðum flokki með ágætisfrjálshyggju-slagsíðu, og ég...