Ekki í mínum villtustu draumum!

Vanda Sigurgeirsdóttir ætlar að leggja mikla áherslu á fræðslu og …
Vanda Sigurgeirsdóttir ætlar að leggja mikla áherslu á fræðslu og forvarnir innan knattspyrnuhreyfingarinnar. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Við Vanda Sigurgeirsdóttir, nýkjörinn formaður Knattspyrnusambands Íslands, horfum yfir fagurgrænan og rennisléttan Laugardalsvöllinn meðan Kristinn Magnússon ljósmyndari stillir græjum sínum upp og landsleikurinn gegn Armeníu í karlaflokki, sem fara á fram rúmum sólarhring síðar, berst í tal. „Hefði einhver sagt við mig fyrir örfáum vikum að ég ætti eftir að sitja í heiðursstúkunni á þessum leik við hliðina á forseta Íslands hefði ég farið að hlæja,“ segir Vanda sposk á svip. En enginn veit sína ævina fyrr en öll er, segir spakmælið, og Vanda er þvert á öll áform tekin við formennsku í KSÍ – og það á snúnustu tímum í sögu sambandsins.

„Ég bý hérna rétt hjá og sé skrifstofurnar að heiman og hef stundum velt fyrir mér að gaman gæti verið að vinna hérna. En þá var ég meira að hugsa um fræðslu- og forvarnamál eða annað slíkt sem stendur mér nærri; ég gerði aldrei ráð fyrir því að verða kjörin formaður Knattspyrnusambands Íslands....