Vaxandi hernaðarumsvif næstu ár

Michael Gilday telur mikilvægt að P-8-vélar haldi áfram að koma …
Michael Gilday telur mikilvægt að P-8-vélar haldi áfram að koma til Íslands í tímabundnar aðgerðir. Morgunblaðið/Eggert

„Ég vil fullvissa Íslendinga um að bandaríski sjóherinn og ríkisstjórn Bandaríkjanna kunna að meta Ísland sem samstarfsaðila og bandamann. Áframhaldandi tímabundnar aðgerðir okkar með P-8-vélum teljum við mjög mikilvægar og vonum að þær geti haldið áfram,“ segir Michael Gilday, aðgerðastjóri bandaríska sjóhersins, er hann er spurður hvert helsta markmið hans sé með heimsókninni til Íslands.

Boeing P-8 (Poseidon) flugvélar bandaríska sjóhersins eru sérbúnar fyrir leit að kafbátum og hafa verið í tímabundnum aðgerðum á Íslandi undir merkjum NATO undanfarin ár. Vélarnar koma með reglulegu millibili en samanlagt er um að ræða um hálft ár á ári hverju, en fyrir fáeinum árum komu þær í rúman mánuð.

Gilday segir alveg ljóst að umfang aðgerða bandaríska sjóhersins hér á landi sem og á öðrum svæðum á norðurslóðum hafi aukist frá árinu 2018. „Ég sé fyrir mér þá þróun halda áfram. Viðvera okkar á norðurslóðun mun halda áfram, en við erum ekki með áætlanir um...