Gestir lækka ósjálfrátt róminn

Egill í nýja salnum með Polestar 2 á bak við …
Egill í nýja salnum með Polestar 2 á bak við sig. Polestar hefur fengið mjög góðar viðtökur hér á landi. Morgunblaðið/Hákon

Fyrr í mánuðinum opnaði Brimborg nýjan sýningarsal fyrir Polestar. Salurinn þykir einkar vel heppnaður, enda var hugað að minnstu smáatriðum við hönnun hans og smíði.

Er óhætt að segja að umgjörðin hæfi bifreiðunum frá Polestar vel en bæði bílablaðamenn og neytendur hafa kolfallið fyrir þessu nýja merki á rafbílamarkaði: „Fólk dregst að bílnum og fellur fyrir hönnuninni en einnig er um einkar vandaða framleiðslu að ræða líkt og má sjá af áferð og frágangi,“ segir Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar, og bætir við að skýringin sé ef til vill að hluta sú að Thomas Ingenlath, forstjóri Polestar, er eini stjórnandi stórs bílaframleiðanda sem er bílahönnuður að mennt. „Þá þykir akstursupplifunin mjög góð og heldur bíllinn vel utan um ökumann og farþega, og er Polestar bæði rásfastur og kraftmikill.“

Eftir ströngustu stöðlum

Hanna þurfti sýningarsalinn eftir forskrift Polestar og segir Egill að frá síðasta hausti...