Veita 30% afslátt á nóttunni

Það er þumalputtaregla að rafbíll þurfi álíka mikið rafmagn og …
Það er þumalputtaregla að rafbíll þurfi álíka mikið rafmagn og lítil íbúð. „Ef við ímyndum okkur einbýlishúsahverfi þar sem einn og jafnvel tveir rafbílar væru á hverju heimili, þá væri viðbótarorkuþörfin á við það að heilu hverfi væri bætt við dreifikerfið,“ útskýrir Símon og bendir á að ef rafmagnsnotkuninni er ekki dreift yfir sólarhringinn kalli það á dýrar fjárfestingar í rafmagnsinnviðum. Morgunblaðið/Árni Sæberg

Í byrjun þessarar viku hóf orkusalinn og nýsköpunarfyrirtækið Straumlind að bjóða verulegan afslátt af rafmagni á nóttunni. Er þetta gert til að koma betur til móts við eigendur rafbíla og um leið dreifa betur álagi á orkuinnviði.

Símon Einarsson er framkvæmdastjóri Straumlindar en fyrirtækið hóf rekstur fyrir tveimur árum og hefur þegar fengið til sín mikinn fjölda notenda, m.a. í krafti þess að bjóða allt að 37% ódýrara rafmagn en sumir keppinautar.

Ekki allar dreifiveitur snjallvæddar

Símon segir að til að byrja með muni aðeins viðskiptavinir Straumlindar á dreifisvæði HS veitna geta nýtt sér næturtilboðið. „Aðrar dreifiveitur eru að vinna í því að uppfæra kerfi sín svo að nýta megi til fullnustu eiginleika snjallmæla,“ segir hann um forsendur þess að geta mælt rafmagnsnotkun á ólíkum tímum sólarhringsins.

Flestar nýjar heimahleðslustöðvar eru búnar hugbúnaði sem getur stýrt hleðslustíma af nákvæmni og er auðvelt...