Sveiflast í takt við væntingar

Skotflaugarbrot á hveitiakri í Úkraínu. Hagræn áhrif Úkraínustríðsins gætu aukist …
Skotflaugarbrot á hveitiakri í Úkraínu. Hagræn áhrif Úkraínustríðsins gætu aukist og breitt úr sér og haft keðjuverkandi áhrif, t.d. á matvælaverð. AFP

Árið hefur aldeilis ekki verið tíðindalaust og undanfarnir mánuðir einkennst af sveiflum á mörkuðum og inngripum seðlabanka og ríkisstjórna um heim allan. Stóru bandarísku hlutabréfavísitölurnar hafa verið á niðurleið, ávöxtunarkrafa skuldabréfa á uppleið, verðbólga er með hæsta móti og innrás Rússlandshers í Úkraínu hefur haft mikil áhrif á áburðar- og matvælaverð.

Stríð og vextir

Konráð S. Guðjónsson er aðalhagfræðingur sjóðastýringarfyrirtækisins Stefnis og segir hann að þeir sem vilja freista þess að spá um framhaldið verði ekki hvað síst að taka þróun stýrivaxta og ákvarðanir Vladimírs Pútíns með í reikninginn:

„Við byrjuðum að sjá breytingar á mörkuðum um síðustu áramót en nokkru fyrr mátti greina undiröldu og ótta við að verðbólgan sem kom í kjölfar kórónuveirufaraldursins yrði ef til vill ekki eins skammvinn og vonast hafði verið til. Þessi órói varð þess valdandi að fjárfestar hófu að vænta stýrivaxtahækkana og...