Endurskoðun hugtaksins

Biden á fundi með blaðamönnum. Á árinu 2022 er allt …
Biden á fundi með blaðamönnum. Á árinu 2022 er allt annað en auðvelt að vita hvað er satt og rétt og vissara að hafa réttar skoðanir á málunum. AFP/Evan Vucci

Það eru engar ýkjur að segja að við lifum á stórfurðulegum tímum og er ástandið hvergi skrítnara en í Bandaríkjunum.

Þannig gerðist það í júlí að birtar voru nýjar hagtölur sem sýndu að landsframleiðsla í Bandaríkjunum hefði dregist saman tvo ársfjórðunga í röð, sem er einmitt það sem hér um bil allir hagfræðingar nota sem viðmið, til að skilgreina hvenær samdráttarskeið er runnið upp.

Greinilegt var að bandarískir hægrimenn hugsuðu sér gott til glóðarinnar, enda fara fram þingkosningar í nóvember þar sem öll 435 sætin í neðri deild þingsins og þriðjungur sæta í efri deildinni eru í húfi. Minnkandi landsframleiðslu má hæglega rekja til aðgerða ríkisstjórnar Joes Bidens og væri leikandi létt fyrir repúblíkana að nota samdráttinn til að lumbra á demókrötum í aðdraganda kosninganna.

En þá hugkvæmdist demókrötum svolítið, sem að meira að segja Trump sjálfur hefði ekki haft ímyndunaraflið til að gera: þeir véfengdu hvernig efnahagslegt samdráttarskeið er...