Að líta á uppsögn sem blessun

„Mitt djamm er núna að vakna snemma á laugardagsmorgni, hitta …
„Mitt djamm er núna að vakna snemma á laugardagsmorgni, hitta gott fólk og fara út í náttúruna,“ segir Ragnhildur. Morgunblaðið/Ásdís

Bros Ragnhildar Aðalsteinsdóttur er stórt, ekta og einlægt; það hefur blaðamaður oft hugsað þegar hann skoðar myndir af henni á samfélagsmiðlunum. Þar sést hún gjarnan geislandi glöð úti í náttúrunni en þar segist hún einmitt njóta sín best. Ragnhildur var gestur blaðamanns í Dagmálum í vikunni og þar fórum við yfir lífshlaup hennar. Ragnhildur hefur komið víða við á tæpri hálfri öld og virðist alltaf hafa haft jákvæðnina að vopni.

Ljósmyndun fjarlægur draumur

„Ég er alin upp á bóndabæ fyrir austan, og þá meina ég ekki fyrir austan fjall, heldur á Austurlandi,“ segir Ragnhildur og bætir við að bær fjölskyldunnar heiti Vaðbrekka og sé í Jökuldalshreppi.

„Þarna var mikið frjálsræði og við tókum þátt í bústörfum og lékum okkur daginn út og inn. Ég fór svo í heimavist í fyrsta bekk, sjö ára gömul. Það var ekki langt í skólann en vegirnir voru svo slæmir á þessum árum,“ segir hún og segir það hafa vanist vel.

...