Frávísun eða brottvísun eftir synjun

Morgunblaðið/Eggert

Útlendingastofnun segir að það fari eftir þeirri málsmeðferð sem umsókn fær hvort umsækjanda um vernd sé vísað brott í kjölfar synjunar eða ekki. „Umsækjendur sem fá umsókn sína afgreidda í forgangsmeðferð fá brottvísun og endurkomubann samhliða ákvörðun um synjun og er ekki veittur frestur til sjálfviljugrar heimfarar. Í forgangsmeðferð eru meðal annars afgreiddar umsóknir sem taldar eru bersýnilega tilhæfulausar en til þeirra teljast alla jafna umsóknir frá ríkisborgurum ríkja á lista yfir örugg upprunaríki,“ segir í svari stofnunarinnar. „Umsækjendur sem er synjað í öðrum tegundum málsmeðferðar fá frávísun frá landinu og tækifæri til að yfirgefa það sjálfviljugir. Fari þeir ekki innan þess frests sem veittur er til sjálfviljugrar heimfarar getur brottvísun komið til álita.“

Hafi einstaklingi verið birt ákvörðun um brottvísun og endurkomubann eru upplýsingar um það skráðar í Schengen-upplýsingakerfið. Það er rafrænt og tengt sameiginlegu...