Gríðarmikilvægt að efla Gæsluna

Floti LHG samanstendur af þremur björgunarþyrlum, tveimur varðskipum og einni …
Floti LHG samanstendur af þremur björgunarþyrlum, tveimur varðskipum og einni eftirlitsflugvél. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson

Njáll Trausti Friðbertsson, formaður Íslandsdeildar NATO-þingsins, varaformaður utanríkismálanefndar og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur gríðarlega mikilvægt að efla björgunargetu Landhelgisgæslu Íslands (LHG). Svæðið sem LHG ber ábyrgð á er nítján sinnum stærra en Ísland og spannar 1,9 milljónir ferkílómetra.

Í skýrslu forsætisráðherra um mat þjóðaröryggisráðs á ástandi og horfum í þjóðaröryggismálum sem fjallað var um í Morgunblaðinu í síðustu viku kom fram að nauðsynlegt væri að leggja mat á viðbragðsgetu LHG og gera ráðstafanir til þess að tryggja betur vöktun.

Meiri áhersla á norðurslóðir

Njáll Trausti segir ljóst að meiri áhersla sé lögð á viðveru Atlantshafsbandalagsins (NATO) á Norður-Atlantshafi. Byggja eigi upp aukna getu til þess að geta sinnt varnar- og öryggismálum í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. „Mér finnst eðlilegast að við horfum til leitar og björgunar og tökum að okkur það hlutverk í þessu samstarfi. Við þurfum að huga að...