Betri helmingurinn með Ása

Betri helmingurinn með Ása

Leikarinn Sigurður Þór Óskarsson mætti til mín í skemmtilegt spjall ásamt sínum Betri helming Sonju Jónsdóttur.Sigurður, eða Siggi eins og hann er alltaf kallaður, hefur gert garðinn frægan á fjölum leikhúsanna sem og í sjónvarpsþáttum og bíómyndum og fer hann einmitt á kostum þessa dagana í myndinni “Allra síðasta veiðiferðin”.Sonja er nýkomin heim frá San Fransisco þar sem hún hefur verið að læra vefhönnun undanfarin ár og festu þau nýlega kaup á sinni fyrstu íbúð saman.Siggi & Sonja kynntust í afmæli mömmu sameiginlegrar vinkonu þeirra en hafði Siggi lengi vitað að Sonju en þó hann hafi ekki haft það ofarlega í huga að láta til skarar skríða þar sem hann var sannfærður um að hún væri í sambandi.Með smá hjálp frá vinkonu þeirra beggja kom svo í ljós að svo var ekki og fóru þá hjólin heldur betur að snúast hjá þeim og hefur vatn runnið til sjávar síðan þá og eru þau í dag trúlofuð.Í þættinum ræddum við allt milli himins og jarðar þar á meðal hringferðina á öðru deiti, lífið í fjarsambandi, leiklistina, trúlofunina í sóttkví, spilasýki ásamt því að þau sögðu mér fullt af skemmtilegum sögum úr þeirra sambandstíð þar á meðal magatruflanir Sigga á fyrsta stefnumótinu.Blush.is -     https://blush.is/Bagel 'n' Co -   https://https://www.bagelnco.is/Dominos  -  https://www.dominos.is/Promennt  -  https://www.promennt.is/is

#51 - Siggi Þór & SonjaHlustað

06. apr 2022