EKKERT RUSL

EKKERT RUSL

Nú þegar jólin nálgast þá örlar á öfund hjá Lenu Magnúsdóttur, þáttastjórnanda hlaðvarpsins Ekkert rusl, því hún upplifir að konur í kringum hana komi í hamingjukasti úr verslunarferðum með nýja skó, skart og föt. Hún er búin að hemja sig allverulega árið 2022 og kaupa ekkert nýtt nema samfellu sem hana bráðvantaði þegar hún var á leið í brúðkaup og áttaði sig á því að kjóllinn var hálfgagnsær og gamla samfellan hennar spratt af henni. Lena er mannleg og spennt fyrir því að kaupa sér eitthvað nýtt og fallegt á nýju ári. Hún talar um þetta í nýjasta þættinum og segir Margréti Stefánsdóttur, hinum þáttastjórnandanum að hún hafi oft séð föt með merkimiðanum á fatamörkuðum því fólk kaupi kannski flík í einhverju kaupæði sem kemur kannski ekki nógu vel út yfir brjóstin o.sfrv. Þær ræða í því samhengi föt og brjóst.Magnús Jónsson, fyrrverandi veðurstofustjóri og pabbi Lenu, er viðmælandi þáttarins en þegar hann var að læra veðurfræði þá var talið að við værum að fara inn í ísöld og aukin koltvísýringur í andrúmsloftinu væri í því samhengi til góðs og myndi seinka því ferli eða koma í veg fyrir það. Raunin varð vissulega önnur – ísöld var fjarri lagi og nú eru langflestir veðurfræðingar sammála um það að jörðin sé að hitna og það um of – og alltof hratt.

EKKERT RUSL - Lena er orðin smá öfundsjúk út í kaup annarra kvenna. Ræðum það og dýfum okkur í viskubrunninn Magnús Jónsson, fyrrum veðurstofustjóra sem er einnig pabbi Lenu.Hlustað

01. des 2022