Firmað ritar

Firmað ritar

The Start up of You kom út árið 2012. Höfundar eru Reed Hoffman, einn stofnenda Paypal og Linkedin og Ben Casnocha. Í bókinni er farið yfir hvernig við verðum að hugsa starfsferil okkar á annan hátt. Áður dugði að fá góða vinnu hjá stöndugu fyrirtæki og ef maður stóð sig vel þá óx maður og fékk framgang. Slík línuleg þróun á ekki við í dag og mæla höfundar með að við nálgumst starfsferill okkar eins og um væri að ræða rekstur á sprotafyrirtæki (Startup). Ferill okkar flestra sé sjaldnast línulegur heldur sé einkennist hann af því að fara upp og niður eftir tímakvarðanum.  Í bókinni er farið yfir og við ræðum í þessum þætti. Við verðum að skilgreina okkur - sérstöðu, gildismat og framboð og eftirspurn eftir færni og hæfileikum okkar. Við eigum að vera tilbúin að breyta um kúrs. Tengslanetið sé eitt það mikilvægasta sem við eigum. Farið er yfir hvernig maður byggir upp og viðheldur tengslaneti. Mikilvægi þess að við grípum stóru tækifærin þegar þau gefast.Áhættu hvernig mannkyn ofmetur áhættu og mikilvægi þess að við tökum áhættu á skipulagðan hátt.Bókina má nálgast á AmazonOg hún er aðgengileg á Audible    

The Startup of You - Taktu stjórn á eigin starfsframaHlustað

30. apr 2021