Handboltinn okkar

Handboltinn okkar

Drengirnir í Hlaðvarpsþættinum Handboltinn okkar skelltu sér í Klaka stúdíóið sitt í dag og gáfu út nýjan þátt. Umsjónarmenn þáttarins að þessu sinni voru þeir Jói Lange ogKristinn Guðmundsson Í þætti dagsins fóru þeir yfir allt það markverðasta sem gerðist í 1.umferð Olísdeildar kvenna. HK liðið ölli þeim vonbrigðum og þá í sérílagi spilamennskan þeirra í seinni hálfleik gegn Haukum en þessi lið eru líkleg til að berjast um það hvort liðið fari í umspil í vor.  Þá kom byrjun Aftureldingar gegn Val þeim á óvart og voru þeir í raun bara nokkuð ánægðir með spilamennsku þeirra þó að sigur Valsstúlkna hafi vissulega verið sannfærandi.  Að lokum völdu þeir þá leikmenn sem koma til greina sem Klaka leikmaður umferðarninnar en það eru þær Hildigunnur Einarsdóttir (Val), Hafdís Renötudóttir (Fram), Birta Lind Jóhannsdóttir (Haukum) og Martha Hermanssdóttir (KA/Þór).

Seinni hálfleikur vonbrigði hjá HK -Hörkuleikur fyrir norðan - Fram ógnarsterkarHlustað

21. sep 2021