Handboltinn okkar

Handboltinn okkar

Hlaðvarpsþátturinn Handboltinn okkar sendi frá sér nýjan þátt í dag en að þessu sinni voru það Gestu, Jói Lange og Kristinn sem sáu um umsjón þáttarins.. Að þessu sinni fóru þeir yfir það sem er framundan í kvennahandboltanum í vetur.  Í upphafi þáttar sögðu þeir frá fréttum sem bárust að vestan í dag þegar að Harðarmenn ákváðu að rifta samningi sínum við Raivis Gorbounovs en leikmaðurinn gerðist sekur um agabrot á dögunum. Raivis sem var markahæsti leikmaður Harðar á síðustu leiktíð mun færa sig um set yfir til Noregs og leika með liði Bergsoy sem Lárus Gunnarsson þjálfar. Jafnframt hafa Harðar men samið við nýjan leikmann en það mun vera Króatísk skytta sem er 195cm á hæð. Þá opinberuðu þeir spá þáttarins fyrir Olísdeild kvenna sem og Grill66 deild kvenna en þeir fengu aðstoð frá sérfræðingum þáttarins en það eru þau, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir,  Brynjar Valsteinsson, Daníel Berg Grétarsson, Brynja Magnúsdóttir og Ívar Benediktsson. Þeir fóru yfir það hverjir eru lykilmenn liðanna í Olísdeild kvenna að mati þáttarins auk þess að velja besta liðið skipað af leikmönnum í Olísdeildinni. Að lokum spáðu þeir í spilin fyrir leikina sem eru framundan í Coca-cola bikar kvenna í vikunni.

Skúbb að vestan - Farið yfir spárnar fyrir Olísdeild kvenna og Grill66deild kvennaHlustað

09. sep 2021