Þann 1 maí árið 1990 kom hin 23 ára gamla Pamela Ann Smart heim eftir langan dag í vinnunni. Hún bjóst við að eiginmaður hennar Greggory Smart tæki á móti henni og sömuleiðis hundurinn þeirra Halen, sem var alltaf spenntur að fá hana heim. Í staðinn tók á móti henni alger hrollvekja sem átti eftir að koma af stað rannsókn sem hægt og rólega fletti ofan af lygum, svikum, kynlífi og peningum. Ekki er allt sem sýnist ...