Samfélagið

Samfélagið

Hefur það sem við veljum að læra eða starfa við áhrif á velferð okkar og jafnvel lífshamingju? Skiptir máli að starfa við það sem við höfum ástríðu fyrir eða er það aukaatriði í stóra samhenginu. Sif Einarsdóttir, prófessor í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands, ætlar að ræða þetta við okkur en hún fer fyrir stóru alþjóðlegu rannsóknarverkefni, Eldar í iðrum, en markmið þess er að skilja betur hvaða þættir hafa áhrif á þróun starfsferils hjá fólki. Við ætlum að tala um Forbes-listann yfir ríkasta fólk í heimi. Kannski má kalla þetta ríkukallafélagið því þarna raða sér í öll efstu sætin mismiðaldra karlar sem flestir koma úr tæknibransanum. Ekki þó sá sem er í efsta sæti. Hann hefur safnað sínum fáránlega mikla auði með sölu lúxusmerkja; fatnaði, kampavíni, skartgripum og snyrtivörum. Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi og höfundur bókarinnar Peningar, ætlar að renna yfir þennan lista með okkur. Og meira um peninga. Samfélagið frétti af manni sem var að taka til í skúffum og skápum þegar hann fann kassa með gjafabréfum. Þau voru öll útrunnin og verðmæti þeirra reyndist um 200 þúsund krónur. Við tölum um útrunnin gjafabréf, inneignarnótur og önnur verðmæti sem renna fólki úr greipum við Brynhildi Pétursdóttur framkvæmdastjóra Neytendasamtakanna. Tónlist: EDISON LIGHTHOUSE - Love Grows (Where My Rosemary Goes). ELVIS PRESLEY - Return To Sender.

Rannsókn á áhrifum náms- og starfsvals á lífshamingju, Forbes-listinn og ríkukallafélagið, neytendaspjall - gjafabréfHlustað

18. apr 2024