Spegillinn

Spegillinn

18. apríl 2024 Landsréttur skoðar hvort formgalli í máli hjúkrunarfræðings sem var sýknaður af manndrápsákæru eigi að leiða til þess að sýknudómurinn verði ómerktur og málinu vísað aftur til héraðs. Ákæruvaldið telur sig geta krafist þess að hjúkrunarfræðingurinn verði til vara dæmdur fyrir manndráp af gáleysi, en verjandi hennar segir ekki hægt að skipta um hest í miðri á. Freyr Gígja Gunnarsson segir frá. Byrjað er að draga úr urðun sorps í Álfsnesi og lög kveða á um að hætta skuli urðun að fullu, alstaðar á landinu, sem kallar á að önnur lausn verði fundin fyrir allan þann úrgang sem til fellur og ekki er hægt að endurvinna með einhverjum hætti. Þegar er byrjað að flytja þennan úrgang til Svíþjóðar, þar sem hann er brenndur og orkan úr brennslunni nýtt í fjarvarmaveitu. Í dag kom út skýrsla starfshóps um fýsileika þess að reisa svokallaða hátækni-sorpbrennslu hér á landi. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Helga Þór Ingason prófessor og verkefnastjóra, sem fór fyrir starfi skýrsluhöfunda. Innri markaður Evrópusambandsins og EES ríkjanna þarf að taka viðamiklum breytingum, svo efnahagslíf álfunnar dragist ekki enn frekar aftur úr gagnvart samkeppnisaðilum á borð við Bandaríkin og Kína. Þetta er megin niðurstaða nýrrar skýrslu sem kynnt var á leiðtogafundi Evrópusambandsins í Brussel í dag. Auka þarf samþættingu og víkka út markaðinn, svo hann nái yfir geira sem hingað til hafa verið á forræði einstakra ríkja. Björn Malmquist segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

Manndrápsmál í Landsrétti, hátækni-sorpbrennsla á Íslandi og innri markaður ESB og EESHlustað

18. apr 2024