Spegillinn

Spegillinn

Hverjir eiga möguleika á því að verða næsti forseti Íslands? Hver skoðanakönnunin rekur aðra þessa dagana, síðast í dag kom könnun sem sýnir mikið forskot tveggja frambjóðenda. Eiga fleiri möguleika? Hvað með þann þriðja sem er á fleygiferð og þann fjórða - gamalkunnugt ólíkindatól. Eva H. Önnudóttir prófessor í stjórmálafræði spáði í nýjustu skoðanakönnunina með Speglinum. Síðustu tólf mánuði hafa komið upp átta mál þar sem lögregla hefur rannsakað hvort andlát hafi borið að með saknæmum hætti. Afbrotafræðingur segir að það væri skrýtið ef svona mál hefðu ekki áhrif á fólk og það sé mikilvægt fyrir almenning að málin séu upplýst.

Manndráp og forsetakosningarHlustað

23. apr 2024